Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 Reykjavíkurskákmótið hefst í dag: Reshevsky kom með eigin matarbirgðir BANDARÍSKI gyðingurinn Sam- uel Keshevsky kom klyfjaður til landsins þegar hann mætti til leiks á Reykjavíkurskákmótið, sem hefst á Hótel Loftleiðum klukkan 17 í dag. Hann hafði í fórum sínum eigin matarbirgðir. Ekki það að Reshevsky treysti ekki íslenzkum kokkum. „Ég vil gjarna borða mat sem ég á að venjast," sagði Resh- evsky í stuttu spjalli við Mbl. á Hótel Loftleiðum í gær. Reshevsky teflir ekki á laug- ardögum vegna trúar sinnar. „Ég mun tefla eftir sólarlag á laugardögum, svo ekki þarf að hnika miklu til,“ sagði hann í gærkvöldi. Samuel Reshevsky er einn af kunnustu skákmönnum 20. aldarinnar — eitt af undra- börnum skáksögunnar. Hann náði vart upp fyrir borðbrún, þegar hann telfdi fjöltefli sex ára gamall og lagði flesta and- stæðinga sína. Fæddist í Pól- landi og flutti ungur til Banda- ríkjanna. Nú er hann hingað kominn í fyrsta sinn, 72 ára gamall. Hvaða vonir bindur þessi aldni meistari við frammistöðu sína. „Ég er í góðu líkamlegu og and- legu formi. Úrslit skipta ekki mestu máli — hvort ég stend uppi sem sigurvegari eða verð að lúta í lægra haldi. Jú, ég tefli ánægjunnar vegna," sagði Sam- uel Reshevsky. MorKunblaðið/Ól.K.M. „Ég tefli ánægjunnar vegna,“ sagði Samúei Keshcvsky, sem nú er 72 ára gamall. Þarf að draga mikið úr veiðum á Grænlandsmiðum - segir dr. Sigfús A. Schopka um tillögur Efnahagsbandalagsins „ÞAÐ ER augljóst, að fiskveiðar við Grænland geta haft nokkur áhrif á fiskveiðar okkar íslendinga. Karfa- og grálúðustofnarnir eru hinir sömu og auk þess er sannað, að þorskstofn- arnir við Austur- og Vestur-Grænland ganga hingað á íslandsmið. 1980 og 1981 komu t.d. hingað göngur af því hafsvæði og höfðu áhrif á okkar veið- ar,“ sagði dr. Sigfús A. Schopka, fískifræðingur, í samtali við Mbl. í gærkvöldi um tillögur Efnahags- bandalags Evrópu um veiðar við Grænland. Sigfús sagði að tillögur EBE um 44 þúsund tonn af karfa og 3.000 tonn af grálúðu gerðu ekki ráð fyrir mjög aukinni veiði þeirra við Grænland, en ef miða ætti við til- Iögur Alþjóða hafrannsóknaráðs- ins þyrfti að draga mikið úr veiðum á þessum stofnum. „Karfastofn- arnir við A-Grænland eru taldir vera þeir sömu og við veiðum úr,“ sagði Sigfús, „og afli úr þessum karfastofnum hefur farið langt fram úr því, sem Alþjóða hafrann- sóknaráðiö hefur talið æskilegt. Karfaaflinn 1982 var alls um 170 þúsund tonn, þar af veiddum við um 115 þúsund tonn, en ráðið legg- ur til að ekki verði veidd nema 105 þúsund tonn í ár. Ef svo mikið er Háseti lést eftir slys í Rauðanúpi Haufarhttfn, 13. febrúar. UM klukkan 11 á laugardagsmorgun- inn varð banaslys um borð í Kauða- núp frá Raufarhöfn er hann var á veiðum á I'apagrunni í vonskuveðri. Tildrög slyssins voru þau, að aðfara- nótt laugardags missti skipið trollið og á laugardagsmorgun var hafíst handa um að útbúa nýtt troll eftir að séð varð að hitt næðist ekki. Þegar hífa átti varatrollhlera út í rennu fékk skipið á sig hnút. Vatt þá skipið undan til stjórnborða, en Ingi Viðar Asgeirsson, háseti, var að vinna við toghlera. Þegar hann ætlaði að forðast þessa hættu varð hann fyrir hinum toghleranum, og klemmdist undir honum. Strax var stefna sett á land og haft samband við lækni. Og í samráði við lækni Samvinna um verndun fiskistofna - segir Hans G. Andersen „Hafréttarsáttmálinn gerir ráð fyrir því, að tvær þjóðir eins og fslendingar og Grænlendingar skuli hafa með sér samvinnu um verndun fískistofna," sagði Hans G. Andersen, sendiherra, í samtali við Morgunblaöið. Um fiskveiðar sagði Hans G. Andersen aðspurður, að þær væru bundnar samningum þjóða í mill- um. Ekki væri til sérstakur samn- ingur milli íslendinga og Græn- lendinga, en þar ættu aðilar að fara eftir ákvæðum samningsins um Norðvestur-Atlantshafið. tekið úr stofninum getur stefnt til hins verra." Hann sagði að sömu sögu væri að segja af grálúðu. Ráðið hefði mælt með að kvótinn fyrir 1983 yrði 24 þúsund tonn en Islendingar einir hefðu veitt langt í 30 þúsund tonn. „Ég fæ ekki séð að EBE sé að fara fram á mikla aukningu en það fer ekkert á milli mála, að það þarf að fara varlegar á Grænlandsmiðum en gert hefur verið. Þorskstofninn við Austur- Grænland hefur dregist ört saman á undanförnum árum og miðað við ástand stofnsins verður að draga enn frekar úr veiðunum til að koma í veg fyrir áframhaldandi ofveiði. Samkvæmt opinberum tölum var þorskaflinn við A-Grænland innan við tíu þúsund tonn á árunum 1981—1983 en talið er að aflinn hafi verið mun meiri, eða allt að 27 þúsund tonn 1982 og 13 þúsund tonn 1983. Hvað varðar miðin við vestur- strönd Grænlands, þá er það veru- legt atriði fyrir okkur, að fisk- verndaraðgerðir þar takist, því við njótum gangna, sem koma þaðan, eins og ég gat um áðan,“ sagði dr. Sigfús Schopka. o INNLENT Ingi Viðar Ásgeirsson var ákveðið að sigla til Norðfjarð- ar. Á leiðinni í land hafði Ingi Við- ar meðvitund af og til og talaði þá við skipsfélaga sína. Ferðin til Norðfjarðar gekk vel. Áætlaður komutími þangað var klukkan 20, en Rauðinúpur var kominn til Norðfjarðar klukkan 18.20. Þá var hinn slasaði strax fluttur í sjúkrahús í Neskaupstað en þar lést hann laust eftir klukkan 19. Ingi Viðar Ásgeirsson var 26 ára gamall, búsettur á Raufarhöfn. Hann lætur eftir sig konu og tvö börn. Sjópróf fóru fram á Neskaup- stað klukkan 20 á laugardagskvöld og lauk um miðnætti. Þá lagði Rauðinúpur af stað til Raufarhafn- ar. Kom þangað um hádegi á sunnudag. Skipið hafði aflað 65 til 70 tonna af fiski. Gildandi loðnuverði sagt upp: Nauðsynlegt vegna markaðsverðsins - segir framkvæmdastjóri SR LOÐNUVERÐI, sem í gildi hefur verið, var um helgina sagt upp af hálfu kaupenda. Var það gert vegna lækkandi markaðsverðs, bæði á mjöli og lýsi. Kaupendur telja því ekki grundvöll fyrir því aö greiða óbreytt verð og sagði Jón Reynir Framfærslu- vísitala hækk- ar um 0,65% - Verðbólguhraðinn um 8,1% KAUPLAGSNEFND hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í byrjun febrúar og reynd- ist hún vera 396,99 stig. Hafði hún hækkað frá útreikningi miðuöum við verðlag í janúarbyrjun um 0,65%, en þá var vísitalan 394,44 stig. Framreiknuð hækkun vísitölu framfærslukostnaðar næstu tólf mánuði, eða verðbólguhraðinn á þessum tímapunkti, er tæplega 8,1%. Hækkun vísitölu framfærslu- kostnaðar milli mánaðanna des- ember og janúar var 0,72%, sem jafngilti um 9% verðbólguhraða. í frétt Hagstofu Islands segir, að í febrúarbyrjun hafi komið til framkvæmda 25% hækkun á hita- veitutöxtum í Reykjavík, sem hafi valdið um 0,64% hækkun vísitöl- unnar. Magnússon, framkvæmdastjóri Síld- arverksmiðja ríkisins, í samtali við Morgunblaðið, að því hefði verið nauðsynlegt að segja verðinu upp. Fréttin um aukningu á loðnuveiðum hefði ekki getað komið á verri tíma. Jón Reynir sagði ennfremur, að markaðsverð hefði farið lækkandi að undanförnu, fituinnihald loðn- unnar minnkandi og eftirspurn minnkandi. Því væru fréttir um aukningu veiða helzt til að lækka markaðsverðið. Um þessar mundir væri markaðsverð um 7,05 dollar- ar á próteineiningu mjöls en hefði verið um 7,5 dollarar er verðlagn- ingin hér heima hefði verið ákveð- in í janúar. Þá hefði lýsislestin síðast selzt á 425 dollara en verið á 470 í janúar. Verðið virtist enn á niðurleið og væri nú talað um próteineiningu mjöls undir 7 doll- urum og lýsislestina undir 400 dollurum. Verðið, sem ákveðið var í janú- ar, var 900 krónur á lestina miðað við 8% fituinnihald og 16% fitu- frítt þurrefnisinnihald. Enn hefur verð á loðnuhrognum hér heima ekki verið ákveðið, en samið hefur verið um sölu 3.000 lesta af hrogn- um til Japan. Talsvert umfram- framboð er nú á loðnuhrognum í Japan og í samningum SH þar var samkomulag um hugsanlega verð- lækkun, sem tæki þá mið af verð- tilboðum Norðmanna, sem ætluðu sér að selja verulegt magn hrogna til Japan. Langfari fór út af flugbraut: Þotan reyndist í fullkomnu lagi - Bremsuskilyrði reyndust verri eftir lendingu en fyrir hana RANNSÓKN stendur enn yfír á ástæðu og tildrögum þess, að Flugleiðaþotan Langfari fór út af flugbrautinni á Keflavíkurflugvelli síðdegis á sunnudaginn við komuna til landsins frá Luxemborg. Um borð í vélinni voru 228 farþegar og átta manna áhöfn. Engan sakaði og vélin skemmdist ekkert. Hún fíaug áfram til Chicago laust fyrir kl. 01 í fyrrinótt, skv. upplýsingum Sæmundar Guðvins- sonar, blaðafulltrúa Flugleiða. Skömmu áður en þotan lenti kl. 16.35 var flugbrautin bremsumæld og reyndust hemlaskilyrði vera I meðallagi, skv. upplýsingum sem Mbl. aflaði sér í gær. Lendingin gekk eðlilega fyrir sig en þegar hjólahemlum var beitt rann vélin stjórnlaust áfram og stöðvaðist ekki fyrr en hún var komin um 30 metra út á malarborið öryggissvæði við brautarendann. Eftir óhappið var brautin bremsumæld á nýjan leik og kom þá I Ijós, að bremsuskilyrði höfðu versnað nokkuð. Brautin hafði verið rudd skömmu áður en þotan lenti og leiddi sérfræðingur, sem Mbl. ræddi við í gær, að því getum að eftir að hálfblautum snjónum hafði verið mokað af brautinni hafi frosið skyndilega. „Þetta getur gerst eins og hendi sé veifað, jafnvel á örfáum mínútum," sagði hann. Þotan var dregin upp að flug- stöðvarbyggingunni, hemlar reynd- ir, hreyflar „keyrðir upp“ og allar aðra'r nauðsynlegar athuganir gerð- ar. Kom ekkert athugavert í ljós og var þotunni flogið áfram vestur um haf eftir 6—7 stunda seinkun. Farþegarnir voru hinir rólegustu þegar óhappið átti sér stað. Þeir, sem ætluðu að halda áfram til Bandaríkjanna voru fluttir til Reykjavfkur á meðan beðið var og dvöldu þeir í góðu yfirlæti á Loft- leiðahótelinu. Flugstjóri I þessari ferð var Daníel Pétursson. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst Mbl. ekki í gær að ná tali af Skúla Jóni Sigurðarsyni, forstöðu- manni Loftferðaeftirlitsins, sem annast rannsóknina. ______„ Helgi Langfari utan flugbrautar á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.