Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 15 Júlíana Sveinsdóttir og greinarhöfundur fyrir 37 árum og 50 pundum. sem er veitingahús frá 1899. Veðr- ið var unaðslegt, sólskin og sást vel yfir til Svíþjóðar, en kráin er byggð á sjávarkambi við Eyrar- sund. Hvarvetna var fólk í göngu- túrum, skokktúrum eða reiðtúr- um. Smáflokkakerfiö er ótækt Smáflokkakerfið hér í Dan- mörku gerir stjórnmálamönnum ákaflega erfitt fyrir að stjórna landinu, enda gerir þingræðiskerf- ið ráð fyrir tveggja flokka kerfi, svo sem tíðkast í Bretlandi og Bandaríkjunum. í þessu sambandi koma mér í hug ummæli Eysteins Jónssonar, er hann ræddi frum- varp Þjóðvarnarmanna á alþingi í gamla daga, að afnema ætti eins- og tveggjeyringa, að hann taldi þetta ágætt frumvarp, en það þyrfti að ganga miklu lengra, það ætti að afnema pólitíska tveggj- eyringinn líka. Það taka margir undir orð Eysteins hér í Dan- mörku og væri góð byrjun að krefjast 5% af heildaratkvæða- magni til þess að koma að þing- manni. Þá mundu Danir e.t.v. . losna við trúð eins og Glistrup, sem hefur verið á tíðum ferðalög- um undanfarið á rútunni Kristi- ansborg-Hörseröd-fangelsi. Hann klykkti út á þinginu með að svara blaðamanni sem spurði hann um samanburð á stjórnmálamönnum og afbrotamönnum: „Afbrota- mennirnir eru heiðarlegri." Gunnlaugur Blöndal á uppboði í dag á að bjóða upp málverk eftir Gunnlaug Blöndal hjá P. Herholdt Jensen-uppboðsfirmanu í Hammerichsgade 14 hér í borg. Myndin er olíumálverk 98x78 cm og heitir „Kona við vaskafat". Myndin er næst hæst metin 922 muna á uppboði þessu, aðeins Keshanteppi er metið hærra, á dkr. 40.000,00, meðan Blöndal er metinn á dkr. 35.000,00. Ef að lík- um lætur munu þeir listaverka- kaupmennirnir Bárður Halldórs- son á Akureyri, Guðmundur Ax- elsson og Knútur Bruun bítast um Blöndalsmyndina, nema einhver Dani laumist til að bjóða í mynd- ina, því stúlkan er fáklædd. Mynd- in er á forsíðu mjög vandaðrar sýningarskrár, sem við keyptum okkur, er við fórum að skoða upp- boðsmunina. Tvö önnur uppboðs- firmu bjóða oft upp íslenskar myndir, en það eru Kunsthallen og Arne Bruun Rassmussen í Breið- götu 33. Nýhöfn 20 Nú fer að styttast í heimför, síð- asti dagurinn er notaður til þess að rifja upp gamlar endurminn- ingar frá dvöl minni hjá Júlíönu Sveinsdóttur föðursystur minni, en hjá henni dvaldi ég röska níu mánuði 1947—8, ýmist í sumarbú- stað hennar í Horneby á Sjálandi, eða í Nýhöfn 20, þar sem hún hafði lengi búið og bjó til dauðadags, 1966. Á þeim árum var hin dökka hlið Nýhafnar í miklum blóma, en það voru ójöfnu tölurnar í götunni og nefndu Danir þá hlið „Den uartige side“. Þar réðu þeir félag- ar Amor og Bakkus ríkjum og heyrðist glaumur og gleði þaðan fram undir morgun. En hinum megin við kanalinn, þar sem hinar jöfnu tölur Nýhafnar voru á hús- unum, bjó settlegt fólk eins og Einar Nörby óperusöngvari og Githa Nörby dóttir hans, hin kunna leikkona, í nr. 10, en Júlí- ana eins og fyrr segir í nr. 20. Þeg- ar nær dró Kongens Nytorv okkar megin fór menningin öll að færast í aukana, Charlottenborgarsýn- ingarsalurinn fyrst, en síðan sjálf- ur Listaháskólinn á horninu. í báðar þessar byggingar kom ég oft með Júllu frænku, því hún var í sýningarnefnd hjá Charlotten- borg, en í Akademíráðinu hjá Listaháskólanum. Oft var litið inn hjá Riseby prófessor, þar sem hann vann að mosaikmyndum sín- um og var stórfróðlegt að sjá þau vinnubrögð. En nú er hún Snorrabúð stekk- ur, ostaheildsalar hafa hreiðrað um sig í gömlu Nýhöfn 20, söngv- arnir að mestu þagnaðir frá krán- um, harmoníkan í nr. 41 líklegast sprungin, en mest fer fyrir rútum með erlenda ferðamenn í skoðun- arferðum. Ef næmur maður geng- ur um ganga Nýhafnar 20, þá fer ekki hjá því, að hann finni enn, þrátt fyrir allt, anda H.C. Ander- sen svífa þar yfir vötnum, en hann bjó í húsi þessu árið 1835, er fyrsta ævintýri hans birtist á prenti. Við hjónin höldum á brott úr húsinu með þá tilfinningu, að ekk- ert geti stöðvað ungan mann frá Fjóni, sem kann að segja sögur, eða unga stúlku frá Vestmanna- eyjum, ef hún er list sinni og föð- urlandi trú. Leifur Sveinsson er lögfrædingur og framkræmdasljóri í Keykjavík. Jakob Kristinsson, framkvæmdastjóri Fiskvinnslunnar á Bfldudal: Kemur ekki leigja Sölva til greina að Bjarnason pess að skipið yrði komið í höfnina á Tálknafirði fyrir þann dag. Var það gert og skipinu þar með lagt, ein- göngu að ósk eigenda, en ekki vegna þess að Fiskvinnslan hefði gefist upp á útgerð skipsins. Síðan í nóvember hefur legið fyrir tilboð frá Fisk- vinnslunni hf. um leigu á skipinu, sem ekki var gengið að fyrr en 7. febrúar 1984, þegar átti að bjóða skipið upp að kröfu Fiskveiðasjóðs Islands. Þann dag var undirritaður samningur um leigu á skipinu til ársloka þessa árs og fer skipið á veiðar eftir nokkra daga. Hins vegar hefur legið ljóst fyrir að löndunar- samningur Tálkna hf. við Fisk- vinnsluna hf. tryggði það, að Fisk- vinnslan ætti rétt á aflamarki skips- ins á árinu 1984 og væru Bílddæl- ingar fegnir ef Útgerðarfélag Akur- eyringa tæki að sér að skaffa okkur hráefni í heilt ár.““ nema skipið landi afla sínum hér „SAMKVVKMT samningum við eig- endur togarans Sölva Bjarnasonar skal skipið landa afla sínurn hér. Því kemur ekki til greina að leigja skipið til Út- gerðarfélags Akureyringa nema því að- eins að það landaði hér, en við yrðum fegnir því, ef það vildi taka að sér að gera skipið út og útvega okkur hráefni í heilt ár,“ sagði Jakoh Kristinsson, framkvæmdastjóri Kiskvinnslunnar á Bíldudal í samtali við Morgunblaðið. Jakob óskaði einnig þess að koma á framfæri eftirfarandi athugasemd: „Vegna villandi skrifa Morgunblaðs- ins þann 3. febrúar og 9. febrúar um útgerð skuttogarans Sölva Bjarna- sonar og viðskipti hans við Fisk- vinnsluna hf. viljum við koma fram með eftirfarandi athugasemdir og upplýsingar: „I upphafi árs 1980 fengu eigendur skipsins fyrir- greiðslu hjá Byggðasjóði til að fjár- magna eigið framlag í skipinu. Var þessi fyrirgreiðsla veitt vegna lönd- unarsamnings við Fiskvinnsluna hf. til 6 ára. Vegna þessa samnings seldi Fiskvinnslan tvo línubáta, sem fyrir- tækið hafði gert út til að tryggja frystihúsinu hráefni. í marz 1983 gafst Tálkni hf. upp á útgerð skips- ins og var gripið til þess ráðs, að Fiskvinnslan hf. tæki skipið á leigu til þriggja mánaða, það er til byrjun- ar júlí. Þessi samningur var síðan framlengdur þar til Fiskveiðasjóður íslands ætlaði að bjóða skipið upp 8. nóvember 1983 og sögðu eigendur þá upp leigusamningnum og kröfðust TOLVU Wordstar Ritvinnslukerfið Wordstar er tvímælalaust útbreidd- asta ritvinnslukerfi sem fram hefur komið. Hérlendis er það notað m.a. á Televideo tölvur. Efni: Námskeiðið er að langmestu leyti í formi verk- legra æfinga þar sem farið er í allar helstu skipanir kerfisins og þær útskýrðar. Tilgangur: Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að nota Wordstar við ritvinnslu. Leiðbeinandi. Ragna Sigurðardóttir Guðjohnsen. Tími: 20.—21. febrúar. Staður: Síðumúli 23, 3. hæð. Ath. VR og SFR styrkja félagsmenn sína til þátttöku á þessu námskiði. Vinsamlegast hafið samband við við- komandi skrifstofur. STJÓRNUNARFÉLAG ISIÁNDS I*23 Utsala Hressil§gur. . afslattur a steinleir 40% afsláttur á keramik, sem þegar hefur verið lækkað áður vegna óverulegra galla. 25% afsláttur á steinleir 40% afsláttur á hvítu keramiki Matar-kaffistell 20—40% afsláttur Höfðabakka 9, S. 85411 Opið frá 13—18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.