Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.02.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1984 31 Skipum sem fyllt hafa aflamark sitt heim- ilt að veiða áfram segir Halldór Ásgrfmsson „VIÐ erum að undirbúa það, að hcimila aukningu á loðnuveiðunum í samræmi við tillögur fiskifræð- inga. I'að tekur hins vegar nokkurn tíma og verður ekki ákveðið end- anlega fyrr en eftir fundi með EBE og Norðmönnum í næstu viku. Við höfum hins vegar ákveðið aö heim- ila þeim skipum, sem fyllt hafa afla- mark sitt að halda veiðunum áfram. I«að er mikilvægast að ná loðnunni eins fljótt og mögulegt er og nýta tímann til hins ýtrasta," sagði Hall- dór Ásgrímsson, sjávarútvegs- ráðhcrra, í samtali við Morgunblað- ið. Halldór sagði ennfremur, að ekki væri enn ljóst með hvaða hætti veiðunum yrði stjórnað eft- ir viðbótina. Það yrði ákveðið í samráði við hagsmunaaðilja eins og verið hefði að undanförnu við stjórnun fiskveiða. Þessi viðbót væri mjög þýð- ingarmikil fyrir loðnuflotann, verksmiðjurnar og það fólk, sem atvinnu hefði af veiðunum. Þess- ari atvinnugrein hefði legið við gjaldþroti, en veiðarnar, sem hefðu verið heimilaðar í haust, hefðu bjargað henni og væntan- leg viðbót yrði vonandi til þess, að menn kæmust yfir erfiðasta hjallann. Þá sagði Halldór Ásgrímssön aðspurður, að eftir því sem loðnu- afli skipanna ykist þýddi það minni hluta þeirra í botnfiskveið- unum. 10 ára KM-húsgögn 10 ára Vegna 10 ára afmælis okkar bjóöum viö 10% afslátt af öllum vörum KM-húsgögn Langholtsvegi 111 — Reykjavík 10 ára símar 37010 — 37144. 10 ára Ljósmynd: Rafn ólafsson. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifrædingur, um borð í Bjarna Sæmundssyni. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur: Óhætt að veiða 265 þúsund lestir af loðnu til viðbótar „ÞAÐ náðist mjög góð mæling á hrygningarstofninum í lok leiðang- urs okkar og á miðnætti 9. febrúar var hann metinn um 875.000 lestir. Vaninn er að skilja eftir um 400.000 lestir til hrygningar og mið- að við náttúruieg afföll af stofnin- um og að 240.000 lestir voru þá komnar á land, telst okkur til að óhætt sé að leggja til að veiddar verði 265.000 lestir á þessari vertíð til viðbótar þcim 375.000 lestum, sem áður hafði verið ákveðið að leyfa að veiða,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræðingur í sam- iali við blm. Morgunblaðsins. „Nú eru um 13 til 14% af þyngd loðnunnar hrogn og fer því að styttast að hrygning hefj- ist, en loðnan er misjöfn og gæti hrygningin því staðið langt fram eftir marsmánuði og veiðar þá um leið. Skýringin á því, að við leggjum nú til þessa viðbót er sú, að við höfum fundið meiri loðnu en í haust og þar að auki hefur hún þyngst nokkuð að meðaltali, sem er óvenjulegt. Aðstæður til mælinga nú reyndust betri en í haust og er frávikið á stofn- stærðinni meðal annars vegna þess og þyngdaraukningarinnar. Það er ljóst að friðun stofnsins seinnihluta vetrarvertíðar 1981, en á þeim árgangi byggist veiðin að mestu nú, hefur haft mikið að segja. Þá hafa vaxtarskilyrði í sjónum verið þessum árgangi með hagstæðara móti. í leiðangrinum fengust einnig upplýsingar um ókynþroska loðnu, sem ekki mun hrygna fyrr en að ári. Næsta mál á dagskrá okkar er því að vinna úr þeim gögnum og sjá hvort við verðum einhvers vísari um það hvers má vænta næsta .haust og vetur," sagði Hjálmar Vilhjálmsson. DANSKUR LINGAPHON E CMJC CBC' Áður: 3.160 Nú: Kr. 1.960 Viö léttum undir meö nemum á öllum aldri og bjóðum hin árangursríku Lingaphone-námskeið í dönsku á stórlækkuðu kynningarverði. Lingaphone er fullkominn málakennari fyrir fólk á öllum aldri og ómetanlegur stuðningur við þá fjölmörgu grunnskólanemendur sem þreyta sam- ræmt próf í vor einmitt með aðstoð segulbands. Kr. 1.960 fyrir danskt/íslenskt námskeið með íslenskum skýringartexta, dansk/ísienska orðabók, 4 snældur og aðra nauðsynlega fylgihluti. LINGAPHONE ER LEIÐIN TIL LÉTTARA NÁMS Hljóðfærahús Reykjavíkur Laugavegi 96 - Sími 13656 /HIKLIG4RDUR MARKAÐUR VIÐSUND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.