Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 20.04.1988, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 69 HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KNATTSPYRNA Ámi þjálfar Gróttu Lék síðast með Gróttu 1977 ÁRNI Indriðason, þjálfari . Víkinga undanfarin tvö ár, hef- ur ákveðið að þjálfa lið Gróttu í 1. deildinni í handknattleik næsta vetur. Ami lék reyndar með Gróttu áður en hann fór til Víkinga og mun nú ganga aftur til liðs við gömlu félaga sína sem þjálfari. Hann hefur hinsvegar ákveðið að leggja skóna endanlega á hilluna. Ámi lék sfðast með Gróttu keppn- istímabilið 1976-77, en þá féll liðið í 2. deild. Ámi gekk þá til liðs við Víking, en snýr nú aftur heim í heiðardalinn. „Verður erBð glíma“ „Þetta er óneitanlega dálítið spenn- andi, en verður án efa erfíð glíma," sagði Ámi í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Það verður baráttu 'upp á líf og dauða fyrir sæti í 1. deild. Þetta er ungt og reynslulítið lið, en ef þeim tekst að halda sér í deildinni þá gætu þeir fest sig þar í sessi. En þetta verður mikil vinna. Ég kunni vél við mig hjá Víkingum, en er búinn að þjálfa þar í þijú ár. Það var því kominn tími á breyting- ar.“ Árnl Indrlðason. Friðrik Friðriksson ekki með í óiympíuleikjunum Hefur verið skorinn upp vegna kalkmyndunar í fæti FRIÐRIK Friðriksson, lands- liðsmarkvörður I knattspyrnu, getur ekki leikið með Ólympíu- landsliðinu gegn Hollendingum og A-Þjóðverjum. Friðrik var skorinn upp vegna kalkmynd- unar í fæti á mánudaginn og verður rúmliggjandi þartil um helgina. Guðmundur Hreiðarsson, mark- vörður Víkings, sem var einnig valinn í ólympíuhópínn, gefur ekki kost á sér í ferðina, af persónuleg- um ástæðum. KR-ingurinn Páll 01- afsson hefur því verið valinn í lands- liðshópinn, en fyrir er Birkir Krist- insson, markvörður Fram. Annar þessara markvarða fer svo beint frá A-Þýskalandi til Búdapest í Ung- veijalandi, til að vera varamark- vörður Bjama Sigurðssonar í vin- áttulandsleiknum þar. Guðni Bergsson, miðvörður úr Val, getur ekki leikið með ólympíulands- liðinu og landsliðinu. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðiðinu, þá er hann meiddur og verður að fara í uppskurð. KNATTSPYRNA Sautján leikmenn fara út með ólympíulandsliðinu. Nokkir leik- menn liðsins fara einnig til Búda- r pest, þar sem leikinn verður vin- áttuleikur gegn Ungveijum 4. maí. Þangað koma flestir atvinnumenn íslands og þá fara þeir Pétur Ormslev, Fram og Ragnar Mar- geirsson, Keflavík, til Búdapest. Vegna gamalla melösla Friðrik Friðriksson liggur nú á sjúkrahúsi í Óðinsvéum í Dan- mörku, vegna meiðslanna sem fyrr er getið. Hann leikur með 3. deildar- liðinu B 1909 og stundar nám í bænum. Að sögn Nönnu Leifsdótt- ur, unnustu Friðriks, í gær, hafði storknað blóð — sem safnast hafði saman framan til í vinstra legg við spark einhvem tíma áður — breyst í kalk sem varð til þess að ígerð komst í fótinn. HANDBOLTI / FRÆÐSLUMAL B-stigs námskeið hjá HSÍ Fræðslunefnd HSÍ gengst fyrir B-stigs þjálfaranámskeiði dagana 21.-24. apríl næstkomandi og stendur námskeiðið í 40 tíma. Rétt til þátttöku hafa allir sem lokið hafa A-stiginu, íþróttakennarar og þjálfarar og leikmenn með margra ára reynslu af þjálfun og metur fræðslunefnd umsælrjendur. Þátttöku á námskeiðinu skal tilkynna í síðasta lagi í dag til skrifstofu HSÍ og er staðfestingargjald kr. 1.000. Öruggt hjá KR Einn leikur var' í gær í mark KR og Pétur Pétursson Reykjavíkurmótinu í knatt- bætti öðru við úr vítaspymu. Það spymu. KR-ingar sigruðu ÍR- var svo Sæbjöm Guðmundsson inga, 3:0. sem gerði út um leikinn með þriðja Willum Þór Þórsson skoraði fyrsta markinu. Morgunblaðiö/Einar Falur Pálmar Slgurósson, þjálfari og leikmaður Hauka, stóð sig frábærlega í leiknum I gærkvöldi. Hér er han „tolleraður" af félögum sínum eftir að sigurinn var í höfn. BROTIÐ BLAÐ HANDBOLTI Svíar unnuDani Tveir leikir fóru í gær fram á Akranesi í Evrópumóti lands- liða lögreglumanna í handknattleik. Norðmenn sigruðu Frakka 27:24 og Svíar lögðu Dani að velli, 23:18. í kvöld ■Fylkir og Vtkingur leika f Reykjavfk- urmótinu f knattspymu á gervigrasvell- inum f Laugardal kl. 20.30 f kvöld. ■Evrópumót lögreglulandsliða heldur áfram f kvöld. Tveir leikir verða f Kópa- vogi. ísland leikur gegn Noregi kl. 18 og Danmörk gegn V-Þýskalandi kl. 19.15. Þetta eru úrslitaleikimir f riðla- keppninni. ■IS og Þór leika úrslitaleikinn um lausa sætið f úrvalsdeildinni f fþrótta- húsi Kennaraháskólands f kvöld kl. 20.30. ■Sfðustu leikir Sparisjóðsmótsins f handknattleik verða leiknir f kvöld f Hafnarfirði. Það em Haukar og FH sem keppa um Sparisjóðsbikarinn. Meistaraflokkar, B-lið, félaganna leika kl. 19. Strax á eftir leika lið meistara- flokks kvenna og sfðan leika karlaliðin. Eftir leikina fær það félag sem vinnur flesta leikina Sparisjóðsbikarinn. Kaffi- veitinar em á staðnum. FÉLAGSSTARF Vertídarlok hjá Víkingum Vertíðarlok verða hjá hand- knattleiksdeild Víkings á morgun, sumardaginn fyrsta, í samkomusal Réttarholtsskóla kl. 16. Þangað eru allir Víkingar vel- komnir og eru yngri handknatt- leiksmenn sérstaklega boðnir vel- komnir með foreldrum sínum. Með- el annars verða veitt afreksverðlaun fyrir yngri flokkanna. Þess má geta að á morgun er merkisdagur í sögu Víkings, því liðin eru nákvæmlega 80 ár síðan félagið var stofnað. BROTIÐ er blað í sögu körfu- knattleiks á íslandi. Islands- meistarabikarinn er kominn í fyrsta sinn í sögunni f Hafnar- fjörðinn. Þessi mikli hand- boltabær er nú Ifka komínn á spjöld sögunnar sem körfu- boltabær og þótti mörgum kominn tími til. Ekki var fyrirfram búist við að Haukar myndu gera sig mikið gildandi f þessari úrslita- keppni þar sem gengi þeirra hefur verið heldur rysj- KARFA ótt í vetur. En þeir ggggg létu allar hrakspár sem vind um eyru Bdíason Þíóta. °K klikktu skrífar út með því að sigra sjálfa íslands- meistarana í gærkvöldi. Það er erfitt að hugsa sér meira sannfær- andi og verðskuldaðri íslands- meistaratitil þar sem þeir eru í úrslitakeppninni búnir að ryðja úr vegi báðum Suðumesjarisun- um. Þetta er mikill persónulegur sigur fyrir Pálmar Sigurðsson, hinn skemmtilega leikmann Haukanna, sem jafnframt er þjálfari þeirra, og ekki má heldur gleyma þætti Hálfdáns Markús- sonar, en hann hefur stjómað lið- inu af bekknum í allan vetur. Þessir tveir fyrrverandi félagar og burðarásar Haukaliðsins f gegnum árin geta svo sannarlega litið stoltir yfír farinn veg. Þáttur ívars Webster er einnig stór. Eft- ir áfall það sem hann varð fyrir í vetur hefur ívar komið endur- nærður til leiks og hann á ekki minnstan þátt f þessum glæsilega sigri Haukanna. Lftum nánar á leikinn í gær- kvöldi. Haukar byijuðu af miklum krafti og virtist þessi barátta setja Njarðvfkinga algerlega út af lag- inu. Njarðvíkingar höfðu gert breytingu á vamarleik — Isak Tómasson, sem ávallt hefur haft góðar gætur á Pálmari í leikjum liðanna, var nú látinn gæta Henn- ings Henningssonar, en Teitur Örlygsson settur til höfuðs Pálm- ari. Það er auðvelt að sjá hvað vakti fyrir þjálfara Njarðvíkurs- liðsins með þessari breytingu. Hann hefur ætlað að nýta sér hæð Teits til þess að reyna að stöðva Pálmar, en þetta dæmi gekk ekki upp. Teitur hafði einfaldlega ekki þann hraða sem þarf til að ráða við Pálmar, sem fyrir bragðið fékk mikið að leika lausum hala og náði við það að skjóta sig í stuð. í síðari hálfleik var gerð breyting og ísak tók aftur við Pálmari. Það gekk allvel hjá honum, en bæði var að ísak var kominn í villu- vandræði og Pálmar kominn f þvílíkan ham að ekkert varð við ráðið. Þetta tel ég hafa verið mjög mikilvægan hlut í þessum leik. Haukamir nýttu sér yfírburði ívars Websters í fráköstum og hraðaupphlaupin gengu nánast upp eins og skólabókardæmi. Vamarfráköstin lentu nær undan- tekningarlaust í höndum ívars Webster, þaðan fór boltinn beint í hendur Pálmars sem keyrði af stað með miklum látum og mat- aði síðan Henning, Ólaf og ívar Ásgrímsson til skiptis, sem æddu eins og hraðlestir upp kantana. Þannig skoraðu Haukar fjölda- mörg stig. Leikur Njarðvíkinga bar meira keim af einstaklingsframtakinu. Valur Ingimundarson barðist hetjulegri baráttu og Teitur Örl- ygsson átti frábæran leik í sókn- inni. En leikmenn beggja liða börðust alveg eins, og ljón og var aldrei gefíð eftir fyrr en í fulla hnefana, eh oft var kappið meira en forsjáin. Þannig misstu Njarðvíkingar boltann til dæmis þrisvar sinnum á örlagamiklum aungablikum á lokamínútum venjulegs leiktíma, er dæmd voru á þá skref. Villuvandræði settu svip sinn á leikinn og ef til vill hafa þau ráðið úrslitum, þar sem ísak Tómasson lenti snemma í fyrri hálfleik strax f villuvandræð- um. Hann fór út af fyrir miðjan hálfleik og kom ekki inn á aftur fyrr en um miðjan seinni hálfleik. Ungur strákur, Friðrik Ragnars- son, tók hans stöðu og stóð sig vel, en náði auðvitað engan veginn að fylla skarð ísaks. Þá var og afdrífaríkt að bæði Helgi Rafns- son og Sturla Örlygsson fengu sína 5. villu í fyrri framlengingu. Haukar nýttu sér það vel og Ingi- mar Jónsson kom mjög sterkur út í síðari framlengingunni. Það er ekki hægt að skilja svo við þennan leik að nefna ekki hinn óbilandi baráttuvilja Haukaliðs- ins. Strákamir hafa oft á tfðum horft fram á nánast glataða stöðu en hafa aldrei játað sig sigraða. Þeim hefur tekist að klóra f bakk- ann og uppskera að lokum glæsi- lega laun alls síns erfíðis. Til ham- ingju, Haukar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.