Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
120. tbl. 77. árg.
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kína:
Námsmenn blása
lífí í andspyrnuna
Peking. Reuter.
ALLT AÐ 100.000 manns komu saman á Torgi hins himneska friðar
í gær einkum til að virða fyrir sér eftirlíkingu af Frelsisstyttunni
bandarisku. Námsmenn, sem enn hafast við á torginu, höfðu reist stytt-
una til að blása lífi í andófíð gegn yfírvöldum. Mótmælin hafa verið
í rénun undanfarna daga eftir að ljóst virtist að harðlímimenn hefðu
yfirhöndina í flokknum. Handtaka þriggja félaga í ólöglegum verka-
lýðssamtökum stappaði stálinu í námsmenn og verkamenn í miðborg
Peking. Á miðnætti í Kína voru 20.000 manns eftir á torginu að sögn
JZeuters-fréttastofunnar.
I gærmorgun spurðist út að félag-
ar í óháðu verkalýðsfélagi, sem ný-
verið var stofnað í Peking, hefðu
verið handteknir í skjóli nætur.
Skömmu síðar settust námsmenn og
verkamenn að í höfuðstöðvum Pek-
ing-lögreglunnar og færðu sig síðan
yfir í ráðuneyti öryggismála og
kröfðust fregna af hinum hand-
Míkhaíl Gorbatsjov:
Æðsta ráðið
fái vald til
breytinga á
á stjómarfari
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, Sovét-
leiðtogi, flutti í gær stefhu-
markandi ræðu á fulltrúaþingi
Sovétríkjanna þar sem hann
brást við gagnrýni sem fram
hefur komið og gerði nánari
grein fyrir framhaldi umbóta-
stefiiunnar. Hann lagði til að
ný stjórnarskrá Sovétríkjanna
yrði samþykkt þar sem Æðsta
ráðinu, nýkjörnu löggjafar-
þingi landsins, yrði m.a. heim-
ilað að breyta stjórnkerfí
ríkisins. Gorbatsjov upplýsti
einnig að á þessu ári rynnu
77,3 rnilljarðar rúblna (7,224
billjónir ísl. króna) til hermála
í Sovétríkjunum eða um það
bil 15% af ríkisútgjöldum.
Gorbatsjov sagði að á næstu
tveimur árum yrðu útgjöld skor-
in niður um. samtals 14%. Af
opinberum tölum í Sovétríkjun-
um hefur mátt ráða undanfarin
ár að útgjöldin væru miklu lægri
en Gorbatsjov upplýsti nú eða
20 milljarðar rúblna á ári.
Miklar deilur spunnust á full-
trúaþinginu út af yfirlýsingu
Gorbatsjovs um að fresta yrði
kosningum til þinga lýðveldanna
á meðan reglur um þær yrðu
endurskoðaðar. Gorbatsjov til-
kynnti að kosningarnar færu
fram að ári en ekki í haust eins
og til stóð. Hann lofaði í ræðu
sinni að endurskoða forréttindi
embættismanna og gaf til kynna
að ráðuneyti þau sem miðstýrt
hafa öllu athafnalífi yrðu fyrr
eða síðar óþörf.
Hörð átök voru á þinginu í
gær milli fyrrum flokksfor-
manns í Georgíu og yfirmanns
hersins í Tíflis um hvor bæri
ábyrgðina á því að beitt var eit-
urgasi gegn mótmælendum þar
í borg 9. apríl með þeim afleið-
ingum að 20 manns létust.
teknu. Síðar um daginn sagði opin-
bera fréttastofan Nýja Kína að 11
manns hefðu verið handteknir fyrir
að efna til óspekta á almannafæri
og væri mál þeirra í rannsókn.
Með því að reisa eftirlíkingu Frels-
isstyttunnar á Torgi hins himneska
friðar vildu námsmenn sýna að and-
ófi gegn stjórnvöldum væri síður en
svo lokið. Námsmenn sögðu tákn-
rænt að í Kína þyrfti gyðja lýðræðis-
ins að halda frelsiskyndlinum á loft
með báðum höndum. í kínverska
sjónvarpinu var aðgerð stúdenta for-
dæmd og gefið í skyn að styttan
yrði rifin niður. Einnig var vitnað í
bréf ónefnds embættismanns þar
sem sagði að námsmenn mættu ekki
gleyma því að þeir væru í Kína en
ekki í Bandaríkjunum.
Reuter
Kínverskir námsmenn ögruðu yfirvöldum í gær með því að reisa
eftirlíkingu af Frelsisstyttunni fyrir framan gríðarstóra mynd af Mao
Tse Tung á Torgi hins himneska friðar í Peking.
Vilja reka Ed-
ward Heath
^ London. Reuter.
ÝMSIR frammámenn í breska
Ihaldsflokknum kröfðust þess í
gær að Edward Heath, fyrrum
Ieiðtogi flokksins og forsætisráð-
herra, yrði rekinn úr flokknum.
Heatli hefúr lengi gagnrýnt stefiiu
Margaretar Thatcher, forsætis-
ráðherra, harkalega, einkum í
málefiium Evrópubandalagsins
(EB), en undanfarna daga hefúr
keyrt um þverbak. Á blaðamanna-
fúndi í Brussel á mánudag sakaði
hann Thatcher með óbeinum hætti
um „yfirlæti, sérdrægni og
hræsni“ og sagði afstöðu hennar
gagnvart EB-samstarfinu. bæði
heimskulega og móðgandi.
Heath sagði í gær að sérstök deild
flokksvélar íhaldsmanna, er annaðist
óþverrabrögð, reyndi að bregða fæti
fyrir sig með þvi að banna flokks-
deildum að bjóða sér að halda ræður
á fundum félaganna. Er formaður
flokksins, Peter Brook, vísaði þessu
á bug kallaði Heath hann lygara.
Loks má geta þess að Heath hefur
sakað Thatcher um að efna til deilna
við yfirstjórn EB til að beina athygl-
inni frá innanlandserfiðleikum
stjórnar sinnar. Er Thatcher var
spurð álits á ummælum Heaths sagði
hún: „Við vitum öll hvernig Ted er.“
Kosningar til Evrópuþingsins fara
fram í júní og á Ihaldsflokkurinn i
vök að veijast ef marka má skoðana-
kannanir.
Bandalagið hefur slegið
tvær flugur í einu höggi
- sagði George Bush Bandaríkjafor-
seti að loknum leiðtogafimdi NATO
Brussel og París. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti var að vonum kampakátur þegar
hann svaraði spurningum fréttamanna að loknum leiðtogafúndi aðild-
arrílqa Atlantshafsbandalagsins á hádegi í gær. Tillögur stjómar hans
í afvopnunarmálum höfðu verið samþykktar af öðrum aðildarríkjum
NATO og samkomulag náðst um framtíðarstefnu bandalagsins í varn-
ar- og afvopnunarmálum. „Við höfúm slegið tvær flugur í einu höggi,“
sagði forsetinn og lagði áherslu á að fundurinn væri ekki persónuleg-
ur sigur fyrir sig heldur fyrir bandalagið allt. Viðbrögð Sovétmanna
við niðurstöðu Ieiðtogafúndar NATO vom jákvæð. Edúard Shevardn-
adze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, fagnaði tillögum Bush, sem
lagðar vom fram á leiðtogafundinum í Brussel, og sagði þær „yfirveg-
að skref í rétta átt“. Hann sagði þó að erfitt gæti reynst að ná sam-
komulagi í Vínarviðræðunum um takmörkun hefðbundins herafla á
6-12 mánuðum eins og Bandaríkjamenn binda vonir við.
Leiðtogar NATO-ríkja voru án-
ægðir með niðurstöðu fundarins,
sem stóð í tvo daga, ekki síst vegna
þess að á fundi utanríkisráðherra
bandalagsins, sem stóð langt fram
eftir aðfaranótt þriðjudags, fanpst
málamiðlun í afstöðunni til end-
urnýjunar skammdrægra flauga í
Evrópu. Einnig var sameinast um
frumkvæði Bandaríkjastjórnar í tak-
mörkun hefðbundinna vopna og
ítrekað að stefna bandalagsins um
sveigjanleg viðbrögð á átakatímum
væri í fullu gildi og að um fyrirsjáan-
lega framtíð þyrfti bandalagið að
reiða sig á fælingarmátt bæði hefð-
bundinna vopna og kjarnorkuvopna.
Einnig var lögð rík áhersla á að
samkomulag um fækkun hefðbund-
inna vopna og hermanna þjónaði
öryggishagsmunum aðildarríkja
bandalagsins. „Niðurstaðan var af-
bragðs afmælisgjöf," sagði Helmut
Kohl, kanslari VesturrÞýskalands,
en leiðtogafundurinn var haldinn til
að minnast 40 ára afmælis Atlants-
hafsbandalagsins.
Undanfarna mánuði hefur ágrein-
ingur Vestur-Þýskalands annars
vegar og Bandaríkjanna og Bret-
lands hins vegar um endurnýjun
skammdrægra kjarnaflauga stefnt
einingu bandalagsins í hættu. í
skýrslu um heildarstefnu bandalags-
ins í afvopnunarmálum, sem var nið-
urstaða fundarins í Brussel, segir
að aðeins verði samið um fækkun
hluta skammdrægra eldflauga í Evr-
ópu og ekki fyrr en hafin verði fram-
kvæmd samnings um niðurskurð
Reuter
George Bush Bandaríkjaforseti gefúr ljósmyndurum heimspressunn-
ar til kynna að allt sé í góðu lagi við komuna til Bonn í Vestur-
Þýskalandi í gær. Þangað hélt Bush í opinbera heimsókn að Ioknum
leiðtogafúndi NATO í Brussel.
hefðbundins herafla í Evrópu. Ein-
staka vestur-þýskir embættismenn
túlkuðu orðalagið þannig að „þriðja
núll-!ausnin“, uppræting skamm-
drægra flauga á landi, væri þar með
ekki útilokuð. Fréttamenn báru
þessa afstöðu undir Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, að loknum leiðtogafundinum
í gær. „Þeir geta spriklað eins og
þeir vilja en eftir stendur það sem
þeir skrifuðu undir,“ sagði Thatcher.
í samtali við fréttaritara Morgun-
blaðsins sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra að ekki
væri vafamál að fundurinn hefði
farið betur en áhorfðist og að George
Bush hefði með frumkvæði sínu
höggvið á hnútinn. Sömuleiðis hefði
vinna utanríkisráðherranna verið
ákaflega mikilvæg og báðir aðilar
gefið eftir. Kvaðst Steingrímur sam-
mála Margaret Thatcher um að eft-
ir orðanna hljóðan væri ekki gefið
undir fótinn með núll-lausn en aftur
á móti talað um fækkun, en það
gætu Vestur-Þjóðveijar sætt sig við.
Sjá fréttir af leiðtogafúndinum
á bls. 22 og forystugrein á
miðopnu.