Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 22
22 esei IAM .18 flUOAOUMIVGIM .GflGLAJHWJOHOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989 Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins Fækkun kjamavopna háð árangri í viðræðum um hefðbundinn vígbúnað Endumýjun skammdrægra kjamorkueldflauga írestað til 1992 FUNDI leiðtoga 16 aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) lauk í Brussel í Belgíu í gær. í lok fundarins var birt lokaályktun leið- toganna og skýrsla Atlantshafsbandalagsins um samræmda afVopnunar- stefnu þess. í yfirlýsingum þessum kemur fram að Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að hcfja viðræður við Sovétmenn um fækkun skammdrægra kjarnorkuvopna í Evrópu að uppfylltum þeim skilyrðum sem George Bush Bandarikjaforseti kynnti á mánudag þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að lokið verði við gerð sáttmála um stórfelldan niðurskurð á sviði hins hefðbundna herafla í álfúnni eftir sex til tólf mánuði. Skýrt er tekið fram að aðeins komi til greina að semja um hluta þeirra kjarn- orkueldflauga sem staðsettar eru í Evrópu og er hvergi vikið að „þriðju-núllausninni“ en svo hefúr hugmyndin um algjöra útrýmingu þessara vopna verið nefiid. Stefúa bandalagsins um kjarnorkufælingu og sveigjanleg viðbrögð á átakatímum er ítrekuð og kveðið á um að kjarnorkuvopnum í eigu bandalagsins verði haldið við þar sem nauð- syn kre§i. Ekki er vikið að hugsanlegum viðræðum um afvopnun á og í höfúnum en í skýrslunni segir að árangur á einu sviði afvopnunar- mála geti leitt til niðurstöðu á öðrum sviðum auk þess sem vikið er að því að fækkun vopna megi ekki leiða til aukinnar spennu á tilteknum svæðum. í lokaályktun fundarins er að finna tillögu þá er Bush Bandaríkjaforseti kynnti á mánudag. Tillagan er í fjór- um liðum og kveður m.a. á um stór- felldan niðurskurð á sviði hins hefð- bundna herafla bæði hvað varðar Qölda hermanna og þúngavopna auk þess sem gengið er að þeirri kröfu Sovétmanna að viðræðurnar, sem þegar eru hafnar í Vínarborg, taki jafnframt til orrustuþotna og þyrlna í eigu bandalaganna tveggja í Evr- ópu. Gert er ráð fyrir því að unnt verði að ljúka við gerð samnings um fækkun í hinum hefðbundna herafia í Evrópú eftir sex til tólf mánuði. Sjálfri framkvæmd samningsins þ.e. afvopnun hersveita og eyðingu þungavopna beri hins vegar að ljúka árið 1992 eða 1993. Hefðbundinn herafli og skammdræg kjarnavopn í 48. grein skýrslunnar um heild- arstefnu bandalagsins í afvopnunar- málum segir að Atlantshafsbanda- iagið leggi ríka áherslu á að árangur náist í viðræðum um niðurskurð hins hefðbundna herafla í Evrópu líkt og komið hafi fram í lokaályktun fundar utanríkisráðherra NATO í Reykjavík árið 1987. Því beri að hraða viðræð- um þeim sem fram fara um þennan hluta heraflans í Vínarborg. í skýrsl- unni segir: „Bandaríkjamenn hafa látið í ljós von um að unnt verði að ná þessu markmiði innan sex til tólf mánaða. Þegar hafin er framkvæmd samnings í þessa veru eru Banda- ríkjamenn, að höfðu samráði við bandamenn sína, reiðubúnir til að hefja viðræður um fækkun skamm- drægra kjarnorkueldflauga í eigu Sovétmanna og Bandaríkjamanna þannig að jöfnuður ríki á því sviði og að unnt verði að sannreyna að ákvæði þess háttar sáttmála verði haldin." Skýrt er tekið fram að að- eins komi til greina að semja um fækkun eldflauganna að hluta og að Sovétmenn verði áður að hafa fækk- að einhliða skammdrægum kjam- orkueldflaugum sínum. Endurnýjun eldflauga frestað í skýrsiunni kemur ennfremur fram að aðildarríkin 16 hafa náð sáttum um að fresta ákvörðun um uppsetningu nýrra skammdrægra kjamorkueldflauga til ársins 1992. Afram verður unnið að þróun nýrra eldflauga í stað bandarískra Lance- eldflauga, sem flestar eru staðsettar í Vestur-Þýskalandi, en þær verða úreltar um miðjan næsta áratug. Munu Bandaríkjamenn kosta þróun og smíði þeirra eldflauga. í lokaályktun fundarins sem og í skýrslu bandalagsins um samræmda afvopnunarstefnu þess er ítrekað tekið fram að stefna bandalagsins um sveigjanleg viðbrögð á átakatím- um sé enn í fullu gildi. Um fyrirsjáan- lega framtíð komi bandalagið til með að þurfa að reiða sig á fælingarmátt bæði hefðbundinna vopna og kjam- orkuvopna. Því muni ekki verða hvik- að frá fyrri yfirlýsingum bandalags- ins þess efnis að kjarnorkuvopn og hefðbundinn herafli verði endurnýjuð þar sem þörf þykir. A hinn bóginn er lögð rík áhersla á að samkomulag um fækkun hefðbundinna vopna og hermanna þjóni öryggishagsmunum aðildarríkja bandalagsins og að slíkur sáttmáli sé lykillinn að stöðug- leika og slökun á spennu í Evrópu. Fram kemur að NATO vill beita sér fyrir banni við þróun og framleiðslu efnavopna auk þess sem óheimilt verði með öllu að safna upp birgðum Reuter Manfred Wörner, framkvæmda- stjóri Atlantshafsbandalagsins, á blaðamannafúndi að loknum tveggja daga leiðtogafúndi bandalagsins. slíkra vopna eða selja þau til annarra ríkja. Skipting Evrópu í lokaályktunni segir að mikilvæg- ar breytingar hafí átt sér stað í Sov- étríkjunum en á hinn bóginn harma leiðtogarnir að tiltekin ríki í Austur- Evrópu haldi enn áfram að bijóta gegn grundvallarréttindum manna. Farið er fremur almennum orðum um að auka beri samskipti ríkja aust- urs og vesturs á sviði menningar- mála og tæknisamvinnu. Markmið NATO sé það að gera skiptingu Evrópu að engu og ítrekaðar eru fyrri yfirlýsingar í nafni bandalags- ins um að jafna beri Berlínarmúrinn við jörðu. Reuter Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, ver augun fyrir ljósum sjónvarpsmanna á blaða- mannafúndinum. Hvergi er vikið beinum orðum að því að æskilegt sé að hafnar verði viðræður um afvopnun á og í höfun- um eða undirbúningur slíkra við- ræðna. í 37. grein skýrslunnar segir að gæta beri þess að ákvarðanir um takmörkun vígbúnaðar leiði ekki til aukinnar spennu á tilteknum svæð- um. Ennfremur segir í skýrslunni að árangur á tilteknu sviði afvopnunar- mála geti greitt fyrir ákvörðunum á öðrum sviðum. í 30. grein hennar ar er hins vegar ítrekað það álit bandalagsins að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi á flutningaleiðum bæði á legi og í lofti frá Bandaríkjun- um til Vestur-Evrópu þar eð varnar- stefna NATO geri ráð fyrir liðs- og birgðaflutningum yfir Atlantshafið á átakatímum. NATO hefiir náð finmkvæði - segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SEGJA má að í augum fjölmiðla iðasta þáttinn, það hafi George Bush stolið senunni af Þjóðveijum. Tillögur hans breyttu umræðu fúndarins og auðvelduðu samkomulag um erf- Steingrímur Hermannsson á NATO-fundinum: Fækkun vopna nái til allra tegunda árásarvopna í STUTTU máli er hið íslenska viðhorf það, að fækkun vopna eigi að ná til allra árásarvopna, kjarnorku, efna- og hefðbundinna, og bæði á landi og á og í sjónum. Bandalagið ætti opinberlega að setja sér það markmið að ná með samningum lægstu hugsanlegri stöðu hemaðar- styrkleika, án þess að fórna öryggi og nauðsynlegri lágmarksfælni. Með því að leggja slíkt til myndi Atlantshafsbandalagið ná frumkvæði í afvopnun, sem væri mjög æskilegt. Þannig komst Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra að orði í ræðu sem hann flutti á leiðtoga- fúndi Atlantshafsbandalagsins í Bmssel á mánudag. Forsætisráðherra sagði einnig, að íslenska sendinefndin væri sammála þeirri forgangsröð sem hefði verið ákveðin. „Við fögnum eyðingu með- aldrægra kjranorkueldflauga og banni við efnavopnum. Við fögnum þeirri ákvörðun að hefja á ný viðræð- ur um langdrægar eldflaugar og treystum því að þær muni fljótiega leiða til helmingsfækkunar eins og ráðgert er. Jafnvægi í hefðbundnum vopnum og hernaðarstyrk í Evrópu er mjög mikilvægt, og við erum sam- mála því að það er forsendan fyrir áframhaldandi afvopnun. Ég fagna góðri byijun í hinum nýju viðræðum í Vín og ég lýsi ánægju og stuðningi við þær tillögur sem Bush forseti hefur lýst hér nú á þessu sviði. Við vörum hins vegar við því að ákveða endumýjun skammdrægra kjarnorkueldflauga með fullkomnari og langdrægari flaugum. Slík ákvörðun gæti komið í veg fyrir þá fækkun vopna sem nú er unnið að. Auk þess teljum við að áður en slík ákvörðun er tekin beri að gera til- raun til að draga með samningum úr yfirgnæfandi styrk Sovétríkjanna á sviði skammdrægra eldflauga, þannig að sambærilegt verði við styrkleika Atlantshafsbandalagsins. Ef jafnvægi næst í hefðbundnum hernaðarstyrk ætti algjör eyðing skammdrægra kjarnorkuvopna að vera hugsanleg. Á þessum fundum hefur enginn minnst á fækkun kjamorkuvopna á og í hafinu. Við íslendingar erum háðari hafinu en aðrar þjóðir At- lantshafsbandalagsins. Við höfum fylgst með gífurlegri aukningu kjarn- orkuflotanna. Svo virðist sem sam- dráttur í kjarnorkueldflaugum á landi hafi leitt til aukinnar áherslu á fleiri og fullkomnari kjamorkuvopn á herskipum og kafbátum. Þetta hörmum við. Hið nýlega slys í kjarn- orkuknúnum kafbáti Sovétríkjanna á Noregshafi gefur sterklega til kynna þá hættu sem í þessu felst fyrir umhverfi hafsins. Með þetta i huga leggjum við áherslu á að viðræður hefjist sem fyrst milli Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins um að draga úr stærð kjamorkuflotans. Á þessa skoðun hafa utanríkisráðherrar okk- ar iðulega lagt áherslu, til dæmis í ráðherranefndinni og einnig fasta- nefnd okkar. Það var gert við undir- búning þessa fundar og loks með sérstökum skilaboðum til aðalritar- ans. Við skiljum og styðjum þá nauðsyn að tryggja ætíð öruggt samband yfir Atlantshafið á milli Norður-Ameríku og Evrópu. Þetta er að sjáKsögðu mikilvægt, ekki síst fyrir okkur. Hins vegar virðist mér umhugsunarvert hvort þetta væri ekki best tryggt án kjamorkunnar. Hinn hefðbundni floti Atlantshafsbandalagsins er langtum sterkari en Sovétríkjanna." í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins eftir fundinn sagði forsætis- ráðherra að flestir teldu óraunhæft að árangur næðist innan 6 - 12 mánaða. Hins vegar væri nú kominn skriður á hlutina og hann sagðist hafa lýst þeirri von sinni að það yrði til þess að flýta viðræðum um kjarna- vopn á og í hafínu. Framkvæmda- stjórinn hefði staðið við sitt og getið fyrirvara íslendinga í ræðu sinni. er skamm- drægu eldflaugamar. Fyrir utan víðtækar tillögur er einnig um tímaáætlun að ræða, sem miðar að þvi að hraða viðræðunum i Vín. Boltinn er því núna í garði Varsjárbandalagsins. Þeir verða að svara því hVort þeir em reiðu- búnir til samkomulags eftir hálft eða heilt ár. Verði svo kemst á jafnvægi í hefðbundnum vopnum á meginlandi Evrópu árið 1992, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra að loknum leiðtogafúndi Atlantshafsbanda- lagsins í gær. Niðurstaðan var sú, að Atlants- hafsbandalagið féllst á að taka upp viðræður við Varsjárbandalagið um fækkun skammdrægra kjarna- vopna svo fljótt sem það bregst við þessum tillögum NATO, sagði ut- anríkisráðherra. Þessi tillögugerð þýðir að NATO hefur náð frum- kvæði á veigamiklu sviði afvopnun- armálanna, sem mest hafa verið í sviðsljósinu á meginlandi Evrópu. í þeim skilningi skiptu þessar tillögur Bush sköpum, bæði hvað varðaði frumkvæði bandalagsins og eins til að leysa ágreiningsmálin við Þjóð- veija. Af þessu er t.d. ljóst, að tillögur okkar um afvopnun í höfunum eru aðeins á undan sínum tíma. Við fengum ekki stuðning við þær, til dæmis ekki frá fulltrúum Norð- manna. Það er sérstaklega athyglis- vert því að norski vamarmálaráð- herrann hefur talað mest um þetta af stjómmálamönnum á Norðurl- öndum. Þessa sjónarmiðs hans gætir ekki þegar kemur að mál- flutningi Norðmanna hér innan Atlantshafsbandalagsins. í einka- viðræðum hefur komið fram, að til- lögumar njóta skilnings. Það hefur verið orðað svo, að í fyrradag var það tabú að tala um árásarflugvélar í tengslum við afvopnun, í dag er það tabú að tala um afvopnun í höfunum. Það, sem var tabú í gær, er orðið að tillögum í dag. Islending- ar eru komnir með tillögur, sem verða teknar alvarlega fljótlega. Það sakar ekki að vera svolítið á undan samtíðinni. í nafni samstöðu héldum við því ekki til streitu, að tillagan yrði í lokaskjalinu en við gerðum það með ákveðnum skilyrð- um. Við létum færa tillögu okkar til bókar á fundi Atlantshafsráðsins og afhentum síðan aðalritara bandalagsins bréf þar sem við árétt- uðum þessar tillögur og lýstum því yfir, að við væmm fjarri því fallnir frá þeim. Við áskildum okkur allan rétt til að fylgja þeim eftir innan NATO og ef nauðsyn krefði á öðmm vettvangi. Við óskuðum eftir því, að Manfred Wömer framkvæmda- stjóri staðfesti þessa afstöðu okkar þegar hann drægi saman niður- stöðu fundarins, sem hann og gerði. Á fundum utanríkisráðherranna á mánudagskvöld og fram á nótt hélt ég fram fyrirvörum okkar hvað þetta varðaði og dró ekkert til baka fyrr en utanríkisráðherra Vestur- Þýskalands hafði fyrir sitt leyti dregið til baka þann fyrirvara, sem Þjóðveijum var hvað erfiðastur, en þá er átt við, að þeir gátu ekki fal- list á, að í skjalinu er kveðið á um, að bandalagið sé meðvitað um þá staðreynd, að Bandaríkjamenn muni fjármagna rannsóknir og þró- un vegna endurnýjunar skamm- drægra eldflauga til að tryggja, að bandalagið eigi einhverra kosta völ þegar kemur að ákvörðun um end- urnýjun. Við munum á næstunni tryggja, að tillögnr okkar verði til umfjöllun- ar áfram og það verður meðal ann- ars hlutverk nýráðins sérfræðings, Gunnars Gunnarssonar, fyrrum starfsmanns öryggismálanefndar, að útfæra þessar tillögur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.