Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 18

Morgunblaðið - 18.01.1990, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 Sjónvarpstœki i Sjónvarps- myndavélar Hljómtœkja- samstœöur Ferðaviðtœki Útvarpsvekjarar Gœðatœki fyrir þig og þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 Áskriftarsiminn er 83033 Sverð og vog _________Bækur______________ Gylfi Knudsen Ármannsbók. Aftnælisrit helgað Ármanni Snævarr. Sögufélag. Reykjavík 1989. 367 bls. Nokkuð hefur færst í vöxt hin síðari ár að safnað er saman vísind- alegum ritgerðum ýmissa manna og gerð bók úr efniviðnum, sem gefin er út sem nokkurs konar afmælisgjöf á stórafmælum manna, oftast atkvæðamikilla fræði- og vísindamanna. Reyndar geta slík afmælisrit verið með öðrum hætti, t.d. úrval ritgerða eftir afmælis- bamið, greinar um það, viðtöl eða blanda af þessu öllu saman. Venju- lega er í slíku riti „tabula gratulat- oria“, sem er nafnaskrá þeirra sem heiðra vilja afmælisbarnið með því að gerast áskrifendur að ritinu. Þá er oft í slíkum ritum skrá um rit- verk afmælisbarnsins. Þessi fallegi og gagnlegi siður virðist ekki jafn- tíðkaður í öllum fræðigreinum hér- lendis. Það er einkum í íslenskum fræðum, sagnfræði, hagfræði og lögfræði, að menn ráðast í slíka afmælisviðhöfn. Þessi siður er ekki nýr af nálinni hér á Iandi þótt hans fari ekki að gæta að marki, fyrr en undir miðja þessa öld. Fyrsta íslenska ritið af þessu tæi er talið „Þrjár ritgjörðir“ tileinkaðar Páli Melsteð á áttræðis- afmæli hans 1892. Kunnastur var Páll sem sagnfræðingur og kennari við Lærða skólann, en einkum þó sem sérstakur öðlingur og göfug- menni. En próf hafði hann aðeins í lögfræði, hið minna lagapróf, svonefnt danskt próf. Hinir „latn- esku júristar" töldu hans líka au- virðilega „danska kúska“. Ekki reyndust „kúskarnir" þó ver en þeir sem fullkomnari prófin höfðu. Nokkru síðar en 1905 var skáldjöf- urinn sr. Matthfas Jochumsson heiðraður á sjötugsafmæli sínu með riti nokkru. Af lögfræðingum næst á eftir Páli hlotnaðist Einari Arnórssyni afmælisrit á sextugsaf- mæli sínu 1940. Þá Ólafi Lárussyni sjötugum 1955. Af lögfræðingum, sem notið hafa slíks heiðurs á síðari árum, minnist undirritaður Auðar Auðuns og Ólafs Jóhannes- sonar. Geta má þess til gamans að einum manni var ,júblað“ í tvígang með afmælisriti. Það var auðvitað Sigurður Nordaþ sem hlaut bæði „Nordælu“ og „Á góðu dægri“. Það var vel til fundið þegar dr. jur. Ármann Snævarr, fyrrv. há- skólarektor og hæstaréttardómari, varð sjötugur 18. september sl. að ráðast í útgáfu veglegs afmælisrits honum til heiðurs svo atkvæðamik- ill sem hann hefur verið í fræðunum og brennandi í andanum. Ármann er þjóðkunnur maður sem lagt hefur gjörva hönd á margt í fræð- um, félagsmálum og embættisstörf- um. Meginstörf hans hafa þó verið lagakennsla og dómstorf í Hæsta- rétti. Nokkrir gamlir nemendur og vinir Ármanns gengust fyrir útgáfu ritsins en Sögufélagið gefur það út. Ármann Snævarr í ritinu eru 18 ritgerðir eftir jafn- marga höfunda auk ritaskrár af- mælisbarnsins og æviágrips þess, nafnaskrár (tab. grat.) og kveðja frá nokkrum samtökum. Af ritgerð- unum eru 9 eftir íslendinga og 9 eftir fræðimenn annars staðar á Norðurlöndum. Er það vel við hæfi, þegar litið er til þess, hve hagvanur Ármann er í norrænu lögfræðingasamfélagi, ef svo má að orði komast, og góðkunnur meðal norrænna lagamanna. Þessar erlendu ritgerðir eru eftir ýmsa af fremstu lögfræðingum Norður- landa. Ritgerðirnar í bókinni eru allar um lögfræðileg efni en engu að síður mjög fjölbreytilegar. Fyrsta ritgerðin er um „framiljebegreppet“ í Svíþjóð nú á tímum en sú síðasta um vígsakir hér á landi á 14. öld. Gefur það nokkra hugmynd um hið fjölskrúðuga efni. Til frekari glöggvunar má nefna að í bókinni eru ritgerðir um efni úr skaðabóta- rétti, samningarétti, þjóðarétti, réttarfari, skattarétti, gjaldþrota- rétti, sjórétti, sifjarétti, réttarheim- speki, lagaskilarétti, réttarsögu og félagsmálarétti. Auðvitað eru rit- gerðirnar misjafnar að gæðum eins og gengur og er ekkert við því að ségja. I sumum er meira færst í fang en öðrum en engin getur þó beinlínis talist léleg. Ef eitthvað er virðist hér meira af bitastæðu efni en venjulegast er í slíkum ritum. Þá er í ýmsum ritgerðanna fjallað um efni, sem er ofarlega á baugi um þessar mundir. Sá, sem hér heldur á penna, hefur ekki bréf upp á það að gagn- rýna þessar ritgerðir fræðilega, enda engan veginn fær um það. Það er hlutverk annarra á öðrum vettvangi að sinna þeirri skyldu, sem reyndar er illa rækt hér á landi. Eg tel hins vegar rétt að gefa lesendum blaðsins örlitla inn- sýn í efni bókarinnar, svo að þeir fái einhveija hugmynd um heilabrot lögfræðinga nú um stundir. Þá frá- sögn mína verður að skoða sem einhvers konar leiðslubókmenntir. Verður byijað á hinum erlendu höfundum. Að framan var drepið á grein um fjölskylduhugtakið í Svíþjóð, sem svenskir elta nú um krákustíga velferðarkerfisins. Um það ritar Anders Angell, prófessor við Upp- salaháskóla. Johannes Andenæs, fyrrv. prófessor við háskólann í Ósló, á hér ritgerð um vitnaleiðslur barna í sakamálum. Edward And- Helgi Þorgils Friðjónsson Hallgrímur Helgason Andlitsmyndir Myndlist Bragi Ásgeirsson í vestari gangi Kjarvalsstaða hafa þeir kumpánar Hallgrímur Helgason og Helgi Þorgils Frið- jónsson komið fyrir all sérstæðri sýningu. Sérstæðri fyrir þá sök, að slík vinnubrögð í málverki hafa ekki sést frá þeirra hendi opin- berlega áður. En málarar eru nú vanir að geta komið mönnum á óvart, því að margir þeirra bua yfir fjöl- hæfni, sem þeir þó í mörgum til- fellum fara leynt með og þá eink- um ef að þeir vilja mála í sam- ræmi við list dagsins eða réttara það sem er þeirra bjargfasta trú, að sé list dagsins. Ekki er þó um neitt hliðarspor að ræða hjá hinum framsæknu ungu málurum, held- ur gæti ég best trúað, að þessar innhverfu myndir afhjúpi meira af þeirra eigin sjálfi en margt það, sem helst hefur þótt kenni- mark þeirra fram að þessu og er sennilega vænlegra til að vekja athygli djúptþenkjandi fræðinga. Upprunaleg list og staðbundin telst innhverf, en alþjóðleg viðhorf úthverf og þó er það svo að ekki er mögulegt að vera alþjóðlegur nema að vera innhverfur um leið. Það sem og vakti sérstaka athygli mína á sýningunni var, að það eru einmitt myndir af nán- ustu vinum og ættingjum, sem hafa yfir sér heimslegasta yfir- bragð og eru afdráttarlausastar í útfærslu. Vísa ég máli mínu til áréttingar til mynda Hallgríms af Helga Þorgils (7), sjálfsmynd (15), mynd af móður hans (16), tengdamóður (17), eiginkonu (18) og ömmu (20). Myndir Hallgríms eru einfaldar í tækni, og þær einkennir hrein og klár áferð ásamt því, að þær eru í senn nútímalegar sem sígild- ar í útfærslu. Það er eitthvað fínt og vatnstært við þær, formin heil og hnitmiðuð, og ég minnist ekki að hafa séð jafn hrein og mynd- ræn vinnubrögð frá hendi þessa listamanns í annan tíma. Hvað Helga Þorgils snertir, er svipaða sögu að segja af myndum hans, nema að þær eru litríkari og sígildari í útfærslu. Elstu andlit hans af Ingólfi Arnarssyni (3) og Gunnari Harðarsyni (4) (1986) eru nokkuð sér á báti og formið lausara. En nýjustu mynd- ir hans bera örygginu vitni svo sem sjálfsmyndin (6), myndin af Hallgrími (8), Tuma Magnússyni (9), Eggerti Péturssyni (11) og eiginkonunni (12). Þessi sýning kom mér nokkuð á óvart og þótti mér uppörvandi að skoða hana vegna hinna þró- uðu og einlægu vinnubragða, en þó er sá ljóður á henni, að sýning- arskrá vantar og númerin við hlið myndanna eru alltof lítil. Framsækni og metnaður Því verður ekki á móti mælt, að það er margt og mikið að geijast í myndum Margrétar Jóns- dóttur og að athafnir hennar ein- kenni mikill metnaður og dirfska. Ekki eru margir mánuðir liðnir frá því að hún sýndi með föður sínum, myndhöggvaranum Jóni Benediktssyni, í FÍM-salnum og nú er hún mætt aftur til leiks og með sýningu á stórum dúkum í vestri sal Kjarvalsstaða. Hún var einnig með stóra dúka á fyrri sýningunni, en munurinn er sá, að þeir nutu sín alls ekki í hinum • þröngu verslunarhúsakynnum á Garðastræti. Hins vegar eru Kjarvalsstaðir eins og sniðnir fyrir þessa tegund myndlistar, er byggist á yfirstærðum og ábúðar-. miklum formum. Það verður deginum ljósara, um leið og inn í salinn kemur, að hér er um að ræða langsamlegast öflugasta framtak Margrétar Jónsdóttur til þessa og að hér er á ferð lista- kona í rífandi framsókn. Þó ekki endilega fyrir það, að yfir myndunum sé tiltakanlega persónulegur blær, því að maður kennir sterkan skyldleika við ýmsa þætti nýja málverksins svonefnda. Þannig sækja sumir myndþættirnir jafnvel skyldleika til frumstæðrar listar og galdra- trúar eins og t.d. hinn ástþrungni vöxtur úr tijábolum og útferð úr munni og mannslimum, en það gerir einmitt fjölmargt í nýbylgj- unni ekki síður en í öðrum tegund- um núlista aldarinnar. Það eru ófreskar kynjaverur, sem reika um svið myndheims listakonunnar, og að því er virðist eru þær í flestum tilvikum karl- kyns, svo að karlpeningurinn sýn- ist henni jafn mikil uppspretta myndefna og kvenkynið hefur verið karlmálurunum um aldir. Kannski er hér kominn enn einn angi jafnréttis og kvenfrelsis! Um sumt virðist Margrét og vera að feta í fótspor ýmissa stór- tækra málara nýja málverksins af hinu kyninu svo sem Sigurðar Örlygssonar, því að þótt myndirn- Margrét Jónsdóttir ar á sýningunni séu einungis fimmtán að tölu, þá fylla þær salinn algjörlega. En sem lista- menn eru þau þó gjörólík að upplagi. Það eru myndirnar á endaveggjunum, sem vekja strax athygli skoðandans fyrir markviss og heilsteypt vinnubrögð, en þær nefnast hvor um sig „Still Iife“ (nr. 4 og 5) og „Af moldu ertu kominn og að moldu skalt þú aftur verða“ (nr. 11 og 12). Einkum eru það hinar síðast- töldu, er mér þótti til um og standa fullkomlega fyrir sínu eftir endurteknar skoðanir, en hins vegar kenni ég einhveija áferð á hinum myndunum, sem ég er ennþá ekki alveg sáttur við. Auðvitað eru myndirnar á sýn- ingunni æði misjafnar, enda ekki við öðru að búast, er lagt er í slík vinnubrögð, en það má finna fjári góða hluti í þeim flestum, þótt formið eigi það til að gerast nokkuð klunnalegt á köflum og að endar virðast ekki alltaf ná saman varðandi rismikla og sam- fellda heild. Einkennilegt að söfnin skuli ekki taka við sér í þessu tilviki og kannski er hér lifandi komin hin margumrædda karlremba, því að slíkt framtak og slík dirfska kallar á umbun og uppörv- un.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.