Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.01.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1990 GARÐASTÁL Á þök og veggi = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 Ljújfengt og Létt Næstu vikurnar býður Hótel Holt gestum sínum upp á sérstakan matseðil í hádeginu, þar sem Iéttleikinn og hollustan eru í fyrirrúmi. Forréttur, aðalréttur og eftirréttur sem hver velur að vild, með gæði og góða þjónustu að leiðarljósi sem fyrr. Forréttir Hreindýrapate Rækjur og reyktur lax í ostasósu' Gæs og avocado í pastasalati Rjómasúpa með fersku grænmeti Fitusnautt pastasalat með jógúrtsósu Aðalréttir Marineraðar grísasneiðar « Grillað heilagfiski Heitt sjávarsalat í pastahreiðri Hreindýrasmásteik í púrtvínssósu Steikt karfaflök með spínatsósu Eftirréttir Heitt epli með vanillusósu Sítrónubollur með hunangi Forréttur, aðalréttur og eftirréttur kr. 995 Hafðu það fyrsta flokks - það kostar ekki meira. Bergstaðastrœti 37, Sími 91-25700 NEYTENDAMAL Mengnn frá bifreiðum Ákvæðum frestað í nýju mengunarvarnareglugerðinni Biffeiðaskoðun íslands tók til starfa í nýjum húsakynnum við Hestháls um síðustu áramót. Þar eru ný tæki til að mæla öryggi bifreiða og útblásturs- loft. Við kynntum okkur stöðu mála og höfðum samband við Karl Ragnars framkvæmda- stjóra Bifreiðaskoðunar Islands. Hann var spurður um ástand bifreiða sem skoðaðar hafa verið frá áramótum. Hvað mengun frá bifreiðum snertir þá er ástandið ekki fullkom- lega ljóst ennþá, sagði Karl, þar sem hin nýja skoðunarstöð hefur aðeins starfað í hálfan mánuð. Við eftirlitið er farið eftir „skoðunar- reglum“ sem dómsmálaráðuneytið hefur gefið út og gilda eiga til 1. júlí á þessu ári. Samkvæmt þessum reglum eru viðmiðunarmörk kolm- ónoxíðs allt að 5 'A-7% af útblást- urslofti og er þá miðað við hæga- gang bifreiðar. Karl gat þess að í Evrópulönd- unum væru viðmiðunarmörkin um 3‘A% og í Bandaríkjunum væru þau mun lægri. Hann benti á að í vönduðum bifreiðum, sem í væri hreinsibúnaður, væri kolmónoxíð- magnið aðeins 0,1%. Ástand bifreiða hér — Hve margar bifreiðir hafa verið skoðaðar frá áramótum og hvemig var ástand þeirra? Karl sagði að skoðaðar hafi ver- ið 268 bifreiðir og í 35 þeirra hafi kolmónoxíðmagnið verið 7% eða meira og í 32 var það 5 ‘/2-7%. Hafi bifreið 7% kolmónoxíð í útblæstri eða meira er gef inn frest- ur í einn mánuð, sagði Karl, og skal hún færð til skoðunar á ný. Eigendur bifreiða með 5 ‘A-7% fá tilmæli um að lagfæra bifreið sína. Ákvæði mengunar- varnareglugerðar Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu ákvað ráðu- neytið á miðju ári 1989, að frá 1. janúar 1990 skyldi fylgt svokölluð- um USA-73 staðli, um leyfilegt hámark mengunarefna í útblást- urslofti bifreiða. Þann 27. desem- ber 1989 var gefin út bráðabirgða- reglugerð sem frestar gildistö- kunni til 1. júlí á þessu ári. Eftir þann tíma á þessi USA-73 staðall að gilda: Kolmónoxíð 24,2 g/km Kolvetni 2,1 g/km Köfnunarefnisoxíð 1,9 g km Strangari reglur um mengunar- mörk útblásturslofts fólksbifreiða eiga að koma til framkvæmda með árgerð 1992 og eiga reglurnar einnig að ná yfir allar fólksbifreið- ir sem f luttar verða til landsins frá og með 1. janúar 1992. Mengunar- mörkin verða miðuð við USA-75 staðal. Samkvæmtþeim staðli má: Kolmónoxíð vera 2,1 g/km Kolvetni vera 0,25 g/km Köfnunarefnisoxíð vera 0,62 g/km Ryk vera 0,124 g/km Bensíngufur vera 2,0 g/km Þessi ákvæði munu aðeins ná til innfluttra bifreiða, engin ákvæði eru um mengunarmörk eldri fólksbifreiða eða stærri f lutn- ingabifreiða. Eftirlit og fullkomin mælingartæki í mengunarvarnarreglugerð er tekið skýrt fram hve mikið magn ákveðinna efna má vera í útblát- urslofti bifreiða. Karl Ragnars var spurður að því, hvaða efni í út- blæstri bifreiða væri hægt að mæla með hinum nýju mælingar- tækjum Bifreiðaskoðunar ríkisins? Karl sagði að það væri aðeins kolmónoxíðmagn frá fólksbifreið- um og sótmagn frá díselbílum sem mögulegt væri að mæla. Þar að auki yrði það hlutverk eftirlitsins að gera kröfur um vottorð frá framleiðendum um réttan búnað nýrra bíla sem fluttir verða til landsins. í framhaldi af því er eðlilegt að spurt sé: Hvernig verður hægt að fylgjast með hættulegum efnum í útblæstri bifreiða, sem eftirlits- skyld eru samkvæmt ákvæðum í mengunarvamareglugerð , ef full- nægjandi mælitæki eru ekki fyrir hendi til að mæla þau? M. Þorv. Kolmónoxíð í andrúmsloft- inu hættulegt fyrir hjartað Umhverfísmál og afleiðing mengunar á heilbrigði manna eru eðlilega mjög til umræðu um þessar mundir, enda getur mengunin verið afdrifarík. I bandaríska tímaritinu „Science News“ 25. nóvember sl. er greint frá þeirri hættu sem kransæðasjúkling- um stafar af kolmónoxíði í andrúmsloftinu. Nýjar rannsóknir hafa leitt ljós að kolm- ónoxíðmag- nið í and- rúmsloftinu, sem til þessa hefur verið álitið nokkuð öraggt eftir þeim stöðlum sem settir hafa verið í Banda- rikjunum, getur komið af stað verkjum fyrir bijósti hjá kransæða- sjúklingum. Þessar upplýsingar þykja benda til þess, að stór hluti þeirra 6 milljóna manna, sem eru með kransæðasjúkdóma þar í landi, séu í hættu vegna súrefnisskorts í hjarta vöðva, jafn- vel þó þeir andi að sér aðeins litlum skammti af þessari lofttegund á vinnustað eða í umferð inni. Kolmónoxíð er bæði lit arlaust og lyktarlaust og myndast við ófullkomna brennslu á eldsneyti öku tækja, og getur það komið í veg fyrir f lutning súr- efnis með rauðu blóðkornunum til vefja líkamanns. Vísindamenn rannsökuðu 63 menn með kransæðasjúkdóma, með því að láta þá taka þátt í gönguæfingum í æfingarsölum með mismunandi miklu kolmónox- íðmagni. Rannsóknin leiddi í ljós að jafnvel þó að kolmónoxíðmag- nið væri lítið fundu menn eftir ákveðinn tíma óþægindi fyrir brjósti og önnur einkenni súrefn- isskorts. Þrátt fyrir að kolmónox- íð-magnið væri ekki meira en umhverfisvarnarráð Banda- ríkjanna hefur samþykkt gat það valdið bijóstverkjum og óeðlilegu hjartalínuriti. Einnig hefur komið fram (New England Journal of Medicine) að reykingamenn, sem anda að sér meira kolmónoxíði, en er í „ávana“ þeirra, eru í jafnvel enn meiri hættu á að fá hjartakveisu en aðr- ir. Þeim hefur m.a. verið ráðlagt að skokka ekki við miklar um- ferðargötur. Speki dagsins Á blíðyrðum verða hyggn- ir blekktir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.