Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C 84. tbl. 82. árg. FÖSTUDAGUR15. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tuttugu og sex manns fórust í árás bandarískra flugvéla yfir Irak Blóðbað- inu linn- ir ekki Sarajevo. Reuter. BOSNÍU-Serbar héldu í gær uppi árásum á griðasvæði múslima í Bosníu og virtust einnig skipulega reyna að ögra friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna, að sögn talsmanns UNPROFOR. Héldu þeir m.a. uppi stórskotaliðsárásum á flugvöllinn í Tuzla, sem er á valdi SÞ, og hnepptu fimmtán kanadíska friðargæsluliða í hald, skammt frá Gorazde. Engin særðist í árásinni á Tuzla. Sveitir Serba umkringdu einnig birgðastöð í grennd við Sarajevo þar sem þungavopn þau er þeir létu af hendi í febrúar til að koma í veg fyrir loftárásir NATO eru geymd af friðargæsluliðum SÞ. Voru mennirnir með skriðdreka með í för og kröfð- ust þess að fá þungavopnin afhent en friðargæsluliðamir voru tilbúnir til að verjast og NATO-flugvélar sveimuðu uppi yfir tilbúnar til að skerast í leikinn. Serbneskar leyniskyttur létu einn- ig til sín taka í Sarajevo á ný og særðist einn franskur friðargæsluliði alvarlega. Eftir að herþotur NATO gerðu loftárásir á sveitir Serba við Gorazde hættu þeir árásum sínum á borgina. Aðgerðir þeirra gagnvart friðar- gæsluliðinu hafa hins vegar stöðugt magnast. Andrej Kozyrev, utanríkisráðherra Rússlands, sagði í gær að Rússar hygðust endurskipuleggja samskipti sín við Vesturlönd til að koma í veg fyrir frekari „óvæntar uppákomur" á borð við loftárásir NATO án þeirra vitneskju. Sagði hann loftárásirnar gera það að verkum að ekki væri víst hvort hann héldi til höfuðstöðva NATO í næstu viku til að undirrita samkomulag um þátttöku Rússa í friðarsamstarfi við NATO. Kigali. Reuter. SÍÐUSTU belgísku hersveitirnar bjuggu sig í gær undir að hverfa á braut frá Kigali, höfuðborg Rúanda, en skæruliðar gerðu þá árásir á alþjóðaflugvöllinn í borg- inni. Var ekki Ijóst hvort flugvélar kæmust á loft frá honum eða hvort eina leiðin frá blóði drifinni borg- inni væri landleiðin til Búrúndí. Hjálparstarfsmenn sögðu að blóð- baðinu í Kigali linnt.i ekkert. Herinn stundaði fjöldamorð, heimili manna væru brennd til kaldra kola og bar- dagar stæðu annan daginn í röð á milli stjórnarhersins og skæruliða. Höfðu starfsmenn Rauða krossins byrgt glugga með hrísgijónasekkjum og margir grétu af skelfingu. Höfðu þeir heyrt að talsverður hluti hina innfæddu starfsmanna hefði verið drepinn. --------»-»■■■■♦------ Nú mega flugurn- ar vara sig Amsterdam. Reuter. MEÐ rannsóknum sem staðið hafa í fimm ár hefur tekist að sýna fram á hvenær og hvernig best er að drepa flugu. Það er síðdegis þegar aðeins er farið að bregða birtu og árangursríkast er að vera rauðklæddur og með rauðan flugnaspaða. Hollenska dagblaðið De Telegraaf skýrði frá þessu í gær og hefur eftir vísindamanninum, Rene Bult við há- skólann í Groningen, að flugur fari með 75% heilaorkunnar í sjónina. Hún daprast hins vegar töluvert þeg- ar komið er fram yfir miðjan dag enda er þá sólin farin að lækka á lofti og flugurnar að þreytast. Þá er best að leggja til atlögu við þær. Bult segir, að flugur sjái best grænt og ijolublátt en átti sig illa á rauðu. Þess vegna er best að vera í rauðum herklæðum. Rannsóknanið- urstöður Bults verða gefnar út síðar í mánuðinum. Keuter Vaxtalækkun víða í Evrópu Frankfurt, Brussel. Reuter. ÞÝSKI seðlabankinn kom fjármálamörkuðunum á óvart í gær þegar hann lækkaði mikilvægustu vextina um fjórðung úr prósenti. Fóru seðlabankar í Hollandi, Belgíu, Sviss og Danmörku strax að dæmi hans og lækkuðu sína vexti. Forvextir þýska seðlabankans voru lækkaðir úr 5,25% í 5% og Lombardvextir eða endurkaupa- vextir úr 6,75% í 6,50%. Búist hafði verið við örlítilli lækkun í síðar- nefnda vaxtaflokknum en engri í hinum. Hans Tietmeyer seðla- bankastjóri sagði á blaðamanna- fundi í gær, að verðbólga í Þýska- landi yrði innan við 3% á síðari misseri þessa árs. Seðlabankar í Hollandi og Belgíu brugðust strax við með vaxtalækk- un og í Sviss voru forvextir lækkað- ir um hvorki meira né minna en hálft prósentustig, úr 4% í 3,5%. í Danmörku voru tveir helstu vext- irnir lækkaðir um fjórðung úr pró- sentustigi annars vegar og um einn tíunda hins vegar. Var hér um að ræða tólftu vaxtalækkunina í Dan- mörku á átta mánuðum. Morgunblaðið/Ragnar Th. Sigurðsson Vestfirskir snjóhamrar Breiðadals- og Botnsheiði hafa löngum reynst Vestfirðingum örðug- ur farartálmi. Snjóþyngsli hafa valdið töfum og oft og tíðum hefur snjórinn safnast saman í háa skafla eða björg eins og sjá má að ofan. Hafa hér myndast eins konar snjógöng í svokallaðri Kinn á Breiðadalsheiði og er hærri kanturinn að sögn Péturs Ásvaldssonar, starfsmanns Vegagerðar, 6 til 7 m á hæð. Hann sagðist ekki telja að skaflinn yrði hærri eða hætta stafaði af honum. Myndin var tekin á þriðjudag en vegurinn yfir heiðina var opnaður um hádegi í gær. Grönduðu eigin þyrlum Irbil. Reuter. Leyniskyttur aftur að verki í Sarajevo Serbar með ögr- anir við SÞ-liða / vesturvíking NORSKA víkingaskipið Haförn sigldi upp Tempsá í gær og framhjá breska þinghúsinu en að þessu sinni fóru Norðmenn- irnir með friði. Þeir tóku þátt í hátíðahöldum í tilefni af því, að Víkingasafnið í Jórvík er 10 ára um þessar mundir. Voru þeir á nákvæmri eftirlíkingu af Gauks- staðaskipinu. TUTTUGU og sex manns fórust þegar tvær bandarískar F-15-her- þotur skutu niður tvær bandarískar þyrlur yfir Norður-írak í gær. Sagði Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, á fréttamanna- fundi í Hvíta húsinu í gær, að uin hefði verið að ræða „hörmulegt slys“ en flugmenn orrustuþotnanna héldu að þyrlurnar væru írask- ar en þær voru á svæði þar sem umferð íraskra flugvéla er bönn- uð. Mennirnir, sem fórust, voru frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi, Tyrklandi og íraskir Kúrdar. Ekki hafði verið skýit frá nöfnum þeirra. Með þyrlunum fórust 15 Banda- ríkjamenn og Malcolm Rifkind, varnarmálaráðherra Bretlands, sem nú er staddur í Washington, sagði, að um borð hefðu verið tveir bresk- ir foringjar. 1 yfirlýsingu frá franska varnarmálaráðuneytinu sagði, að einn franskur foringi væri meðal hinna látnu og sam- kvæmt upplýsingum frá Tyrklandi voru þrír tyrkneskir foringjar um borð. Að auki fórust fimm íraskir Kúrdar. Þessi atburður er mikið áfall fyr- ir bandaríska herinn, en bandarísk ratsjárflugvél var á svæðinu og er sögð hafa aðstoðað við árás orr- ustuþotnanna á þyrlurnar, sem voru af gerðinni UH-60 Blackhawk. William Perry, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær taka á sig fulla ábyrgð á „slysinu" og fyrirskipaði nákvæma rannsókn á því. Herafli frá Bandaríkjunum, Bret- landi, Frakklandi og Tyrklandi hef- ur haldið uppi eftirliti með flugbannsvæðinu, sem ákveðið var yfir Norður-írak skömniu eftir Persaflóastríðið 1991, en tilgangur- inn með því er að koma í veg fyrir loftárásir Irakshers á Kúrda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.