Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 13 Ljós og myrkur við myndverkin og sundurlausir text- ar á veggjunum bæta hér ekki upp. Frekar rugla sýningargestinn, eins og formáli í sýningarskrá, sem er samhengislaus orðavaðall og ekki í samræmi við raunveruleikann. Stað- hæfingin „Eitthvert óskilgreint sam- komulag meinar samtímamönnum okkar að ræða um ákveðna hluti, til dæmis eld og blóm,“ stenst þannig engan veginn. Ekki er t.d. ýkja langt síðan heilt hefti af listritinu „Kunst- forum“ var tileinkað eldinum í núlist- um tímanna og að venju var það upp á 500 síður! Sjálf skráin er í stóru og óhandhægu broti og stórletraðir textarnir bæta ekki upp myndirnar frekar að þær dragi þær niður „bana- lisera“ þær eins og það heitir. Band- ið hefur lánast betur en síðast, en skráin er sem fyrr óhandhæg_ og á það til að sveigjast fljótlega. Ósam- kvæmnin heldur áfram hvað ljós- mynd á kápu snertir, því ekki skil ég tilganginn með mynd sem bersýni- lega er tekin á veitingastaðnum að Laugayeg 22, qg á frekar heima í flölaltylduaibúminu, petta er öpnur sýningin í röð á þessum stað, sern dregur fram flesta ókosti hins galopna rýmis, og yfir- þyrmandi tómleikatilfinningin sem með því er framkölluð er síst til þess fallin að laða að gesfi. Listaskáli Alþýðu, Grensásvegi 16a. Dröfn Friðfinnsdóttir, tréristur opið daglega 14-19. Til 24. apríl. Akureyringar sækja fram í hin- um ýmsu geirum myndlistarinnar og þannig hafa þeir eignast nokkra markverða grafíklistamenn á und- anförnum árum og meðal þeirra er Dröfn Friðfinnsdóttir. Ýmsir munu minnast sýningar Drafnar í FÍM salnum 1992, sem góða athygli vakti, og nú er hún komin með enn viðameiri fram- kvæmd og er vettvangurinn lista- skáli Alþýðu við Grensásveg. Þar sýnir hún 24 tréristur og eru sumar af atærri gerðinni, í raumyfirstærð- ir hvað þessa tækni snertir. Þetta er í samræmi vjð tfmana og það er satt að segja ákaflega spennandi athöfn að spreyta sig á stórum flöt- um í grafík og sumir láta sér ekki nægja eitt blað heldur raða saman tveimur til þrenrnr í einn ramma, eins og t.d. sá nafnkenndi danski myndlistarmaður Per Kirkeby. En þar hættir samlíkingin, því að Dröfn er af allt annarri gráðu í listinni en Kirkeby, sem t.d. bæði málar einnig og vinnur í skúlptúr, og lætur sér ennþá nægja að þrykkja á eitt blað þótt ummmál þess sé umtalsvert. Það er sterkur og samstæður heildarblær yfir þessari sýningu Drafnar og ljóst má vera, að hér er um metnaðargjarnan listamann að ræða, sem er í örum vexti. Framtak sitt hefur listakonan kosið að nefna „ljós og myrkur" og má það vera réttnefni, nema hvað hinn blakki heimur er henni hug- stæðari en birtan, sem liggur nokk- uð djúpt á myndfletinum. Það er alveg rótt sem í sýningarskrá stpnd- ur; „í myrkrinu ferðumst við um djúpin þar sem leyndardómar sköp- unarinnar þúa; sorg, þjáning, dauði.“ Hins vegar virka myndir Drafnar ekki á mig sem neitt þung- búið og átakanlegt heldur mun frekar dulrænt og magnað, sem er að sjálfsögðu ailt annar handlegg- ur. Þetta er þannig að mínu mati öllu frekar forvitnilegur boðskapur uin hið uppliafna í tnyrkrinu sem hér er á ferð, ásamt ófreskum töfr- um fjarlægðanna. Á stundum er ejns og við Séum stödd í undirdjúp- um eða mararbotni, enn aðrar myndir eins og leiða hugann að víghöttum himinloftanna og bráðn- aðri kviku. í fyrstu eru það hin stóru og ábúðarmiklu verk sem athygli vekja, t.d. nr, 2 og 8, þarnæst hin- ar meðalstóru nr. 13 og 15 og við nánari athugun hinar minnstu svo sem ni'. 1 og 24 sem eru n\jog form- rænt lifandi. Mér segir svo hugur, að það sé neisti í dijúgan grafíklistamann í Dröfn Friðfinnsdóttur og hún hefur mikinn sóma af þessari framkvæmd sinni. arskólanum í Mosfellsbæ leika á þver- flautur og píanó. Frá Tónmenntaskóla Reykjavíkur spilar léttsveit skólans og klarinettuhópur. Frá Tónlistarskóla ís- lenska Suzukisambandsins kemur fram 10-20 barna fiðluhópur og börn leika á selló og pfanó. I lok dagskrár mun Nýi Tónlistarskólinn vera með atriði úr Töfraflautunni eftir W.A. Mozart. Þá munu skólamir vera með kynningu á starfsemi sinni, þar sem gestir geta fengið upplýsingar um starfsskrá þeirra. Kynning verður á flyglum og píanóum á vegum Leifs H. Magnússonar. Aðgangur að Tónlistardegi Perlunnar er ókeypis. Barnakór Bústaða- kirkju heldur tónleika Barnakór Bústaðakirkju heldur tón- leika vegna loka starfsárs sunnudaginn 17. apríl kl. 17! Kórinn skipa stúlkur á aldrinum 8-11 ára sem allar byijuðu s.l. haust. Kórinn hefur sungið við messu einu sinni í mán- uði í vetur og kom einnig fram á tónleik- um með gospel söngkonunni Ettu Camer- on í febrúar s.l. Stjórnandi kórsins er Erla Þórólfsdóttir. Að tónleikunum loknum verður kaffi- sala í safnaðarheimilinu til styrktar starf- semi kórsins. Kór Menntaskólans að Laugarvatni Kór Menntaskólans að Laugarvatni og Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands flytja sameiginlega söngdagskrá í Selfosskirkju 16. apríl kl. 16 og í Skálholtskirkju 17. apríl kl. 17. Stjórnandi kórs Menntaskól- ans að Laugarvatni er Hilmar Örn Agn- arsson, organisti við Skálholtskirkju. Kór Menntaskólans að Laugarvatni hefur haft allmikla samvinnu við aðra skólakóra, m.a. kóra Flensborgarskóla og Fjölbrautaskólans í Breiðholti. í vetur hafa tekist samskipti við kóra Mennta- skólans við Sund og Fjölbrautaskóla Vesturlands, helgina 18.-20. mars sl. fór kórinn í söngheimsókn til Akraness og Borgarness. Einna mest hafa þó tengsl hans verið við kór Fjölbrautaskóla Suður- lands. Léttsveit Tónmennta- skóla Reykjavíkur á Hvolsvelli Léttsveit Tónmenntaskóla Reykjavíkur mun leika í sal skólans á Hvolsvelli á morgun laugardaginn 16. apríl kl. 15. í sveitinni eru 18 krakkar á aldrinum 13-15 ára, sem leika á blásturshljóðfæri, rafmagnsgítar, bassa, píanó og slagverk, en sveitin leikur aðallega djass og dægur- lög. Sveitin hefur víða koma fram t.d. i þætti hjá Hemma Gunn í febrúar sl. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. Kórsöngur í Laugar- neskirkju Kór Tónlistarskólans í Reykjavík syng- ur í Laugarneskirkju, sunnudaginn 17. apríl kl. 20.30. Flutt verður „Dauða- dans“, kórverk eftir Hugo Distler. Hall- dór Vilheimsson fer með hlutverk dauð- ans. Stjórnandi kórsins er Marteinn H. F’riðriksson. Einnig syngja og stjórna nemendur úr Tónmenntakennaradeild. Aðgangur er ókeypis. Kórtónleikar í Árnesi I Árensi í Gnúpveijahreppi verða sam- eiginlegir tónleikar þriggja kóra næsta laugardagskvöld kl. 21, Arnesingakórsins í Reykjavík, Árneskórsins og Samkórs Selfoss. Þessir þrír kórar hafa haft sam- starf um nokkurra ára skeið og heimsótt hver annan á vordægrum. Stjórnendur kóranna _eru Sigurður Bragason, sem stjómar Árnesingakóm- um, Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir stjórnar Árneskór og Jón Kristinn Cortes stjórnar Samkór Selfoss. Undirleikarar með kórunum eru Bjarni Jónatansson og Þórlaug Bjarnadóttir. Efnisskráin er fjöl- breytt og undir miðnætti syngja 8 kórfé- lagar úr Samkór Selfoss og hafa Helena Káradóttir og Ólafur Þórarinsson séð um að æfa hann. Vortónleikar Lúðra- sveitarinnar Svans Lúðrasveitin Svanur heldur vortón- leika að þessu sinni í Seltjarnameskirkju laugardaginn_16. apríl kl. 14. Stjórnandi er Haraldur Á. Haraldsson sem tók við sprotanum síðastliðið haust. Efnisskrá tónleikanna er viðamikil og má þá helst nefna að Szymon Kuran leikur á fiðlu með hljómsveitinni lagið Czardas eftir V. Monti. Einnig verður á efnisskránni Perpetum mobile eftir Strauss, syrpa af lögum eftir Gershwin í útsetningu K. Pfortner, Brennið þið vitar eftir Pál ísólfsson í útsetningu Ellerts Karlssonar, Célébre Adagio eftir T. Albinoni ásamt fleiru. Kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti í Vest- mannaeyjum Kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti heldur tónleika í Safnaðarheimili Landa- kirkju, á morgun laugardaginn 16. april kl. 16. Á tónleikunum verða m.a. á dagskrá íslensk lög, ensk, ítölsk og lög frá Norð- ur- og Suður-Ameríku. í kórnum eru 60 ungmenni. Allan undirleik, hljóðfæraleik og einsöng annast kórfélagar sjálfir með aðstoð eins skólafélaga síns. Leiklist Leiksmiðja Reykjavík- ur sýnir í Frú Emilíu Leiksmiðja Reykjavíkur sýnir spuna- verkið „Frá kyrrstöðu til hagvaxtar" og er það unnið af Leiksmiðju Reykjavíkur ásamt Rúnari Guðbrandssyni. Allur texti verksins er úr Morgunblað- inu 26. mars 1994. Sýnt er í Leikhúsi Frú Emilíu, Seljavegi 2, Héðinshúsi og eru næstu sýningar föstudaginn 15. apríl og laugardaginn 16. apríl. Fyrir börn Kvikmyndasýning í Norræna húsinu Sænska kvikmyndin „Nya hyss av Emil i Lönneberga" verður sýnd í Nor- ræna húsinu sunnudaginn 17. apríl kl. 14. Uppátæki Emils eru óteljandi og í þess- ari kvikmynd fáum við enn á ný að kynn- ast ævintýrum hans í Kattholti. Kvik- myndin er byggð á bók eftir Astrid Lind- gren. Sýningin tekur um eina og hálfa klst. Kammersveit Hafnarfjarðar Fjögw ný íslensk hljómsveitarverk Tónlist Ragnar Björnsson Leikritaskáld nokkurt sagði ein- hveiju sinni að þótt leikhúsgestur- inn skildi kannske ekki alltaf verk skáldsins væri þó ófyrirgefanlegt að láta gestinum leiðast. Kannske segir þetta ekki ýkja mikið en gæti þó hlaðið upp þó nokkrum vanga- veltum ef reynt væri að skilja orð skáldsins. „Flug fjórtán sérhljóða" eftir Atla Ingólfsson „er eins og refill með fjórtán myndum“ — „sumar eru rangan á fyrri mynd, en sumar eru íhugun þess sem á undan er gengið“. Verkið er unnið úr marg notuðum efniviði, marg sönnuðum eða afsönnuðum, eftir því hvernig á það er litið. Þó var ekki auðvelt að fylgja atburðarás verksins né tilgangi, þegar verkinu lauk taldi undirritaður sig vera staddan í fjórðu mynd. Finnur Torfi Stefánsson átti þijá þætti úr óperu sem hann kallar „Leggur og skel“, einsöngvari þáttanna var Sverrir Guðjónsson kontratenór og söng hlut skeljarinnar og dagdraum drengsins. Vonandi skilar þessi tón- list sér í heild sinni og þegar leik- ur, sviðsmynd, búningar og fleira spilar með, en því miður verður að segjast að þessi úttekt vakti tak- markaðan áhuga, til þess vantaði alla spennu í hljómaupplausnir og einhveiju óvæntu brá sjaldan fyrir. Tónar hafa sama lögmál og tund- ur, líf kviknar ekki nema að gneisti á milli. Guðrúnu Ingimundardóttur hef ég ekki vitað um sem tónskáld, en hún átti næsta verk á efnis- skránni, verk sem hún kallar því einfalda nafni „Ljóð“ og segir verk- ið byggt á frumsömdu ljóði, en hér lýstu lögmálin, og í þessu stutta verki sýndi Guðrún að hún kann vel að meðhöndla formið og hljóð- færin, hér var rödd sem má ekki þagna. Páll P. Pálsson kann að láta hljóðfærasamsetningar hljóma og það gerðist í „Þulum“ sem hann samdi fyrir Kammersveit Hafnar- fjarðar við þulur eftir Theodóru Thoroddsen. Þarna fékk og Sverrir Guðjónsson að sýna hæfni sína I kontratenórshlutverkinu og gerði krefjandi línur mjög skemmtilega. Ekki kvað mikið við þjóðlegan tón í þulunum, en lífi hélt músikin til enda. Kammersveit Hafnarfjarðar er skipuð 14 hljóðfæraleikurum, allt atvinnumönnum, og stjórnandi var Örn Óskarsson, sem komst vel frá sínu hlutverki og fylgir sveitinni á tónleikaferð til Englands og Rúm- eníu og er þeim öllum óskað góðs gengis og góðrar heimkomu aftur. SIEMENS LU NY ÞVOTTAVEL A NYJU VERÐI! • 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott, mislitan þvott, straufritt og ull • Vinduhraði 500 - 800 sn./mín. • Tekur mest 4,5 kg • Sparnaðarhnappur (1/2) • Hagkvæmnihnappur (e) • Skolstöðvunarhnappur • Sérstakt ullarkerfi • íslenskir leiðarvísar Og verðið er ótrúlega gott. Siemens þvottavél á aðeins kr. 59.430 stgr. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjörður. Guðni Hallgrímsson CC Stykkishólmur Skipavík Búðardalur: ^ Ásubúð ísafjörður Póllinn Hvammstangi: Skjanni Blönduós: Hjörleifur Júlíusson Sauðárkrókur: Rafsjá Sigluhörðun Torgið Akureyri: Ljósgjafinn Húsavík: öryggi Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaður: Rafalda Reyðarfjörður:, Rafvélaverkst. Áma E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn í Hornafirði: Kristall Q Vestmannaeyjar: Tréverk Hvolsvöllur: U Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkipn Garðun Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavik: Ljósboginn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúla, Álfaskeiði LLI LO QQ og er með sænsku taii. Allir eru velkomn- ir og er aðgangur ókeypia. Viljir þú endingu og gæði uelur þú SIEMEIÍIS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.