Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 27 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Skoða nýjungar í prentun OLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra ásamt forystumönnum í íslenskum prentiðnaði að skoða nýjungar í prentvinnslu sem til sýnis eru á Prentmessu 94. Prentmessa 94 sett á Hótel Loftleiðum Viðamesta prent- sýning hér á landi PRENTMESSA 94 var sett á Hótel Loftleiðum í gær að viðstöddum Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra, og er þetta viðamesta prentsýn- ing sem haldin hefur verið hér á landi. Sýningin stendur yfír 15.-16. apríl frá kl. 10-18 . Við setninguna í gær voru afhentar bókaviðurkenn- ingar Samtaka iðnaðarins fyrir bækur framleiddar á íslandi, og eru þær bækur sem viðurkenningu hlutu sýndar á Prentmessunni. ist á misskilningi ttu ðd untals efnd á næstu vikum urnar sem þar væru, stæðust ekki. Þeir drógu því verðtilboð sitt til baka. íslensk stjómvöld biðu þess að fá leiðrétt verðtilboð frá þeim banda- rísku, og eftir að „tilboðið" var dreg- ið til baka, greindu bandarísk stjóm- völd frá því að fyrri verðhugmyndir, þ.e. 800 milljónir króna fyrir nýlega Sikorsky-þyrlu, stæðu. Bandarísk stjómvöld hafa gefið þeim íslensku til kynna, að þau séu reiðubúin að senda hingað til lands á næstu vikum viðræðunefnd. Sendiherra Bandaríkjanna segir framhaldið vera undir íslenskum stjórnvöldum komið Parker Borg, sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að viss misskiln- ings hefði gætt í símbréfi því sem bandarísk stjórnvöld hefðu sent ís- lenskum stjórnvöldum í síðustu viku, en í þeim efnum væri ekki hægt um vik fyrir hann að fara út í smáat- riði. „Við höfum nú veitt íslenskum stjórnvöldum nýjar upplýsingar,“ sagði Borg. Hann sagði að það væri undir íslenskum stjómvöldum komið, hvort bandarísk viðræðunefnd kæmi hingað til viðræðna á næstu vikum. Engar skuldbindingar „Ef ríkisstjórn íslands hefur áhuga og vill að viðræðu- eða kynningar- nefnd komi hingað frá Bandaríkjun- um til þess að fara yfir ákveðin at- riði, em bandarísk stjórnvöld reiðu- búin til þess að senda slíka nefnd hingað, en það væri án allra skuld- bindinga," sagði sendiherrann enn- fremur. Aðspurður hversu langan tíma hann áætlaði að slíkar samn- ingaviðræður bandarískra og ís- lenskra stjórnvalda kæmu til með að taka, ef af þeim yrði á annað borð, sagði Borg: „Það er útilokað að segja til um það á þessu stigi. Þar til okk- ur berst ákveðin ósk íslenskra stjórn- valda um að slík nefnd komi hingað, ríkir að sjálfsögðu fullkomin óvissa um, með hvaða hætti tillögur verða. Auðvitað vilja menn ljúka slíkum við- ræðum eins fljótt og auðið er, en það verður undir innihaldi fyrirspurna og tillagna komið, hversu fljótt verður hægt að fá niðurstöðu í málið.“ í utanríkisráðuneytinu er orðsend- ing bandarískra stjómvalda túlkuð á þann veg, að Bandaríkjamönnum sé full alvara í þeim efnum að ganga til samninga við íslendinga um fram- tíð þyrlubjörgunarsveitarinnar á Keflavíkurflugvelli og þátttöku ís- lendinga í rekstri sveitarinnar. Jafnframt mun það viðhorf vera uppi í utanríkisráðuneytinu og raunar víðar í íslenska stjómkerfinu, að þrátt fyrir tölulega rangar upphafsupplýs- ingar frá Bandaríkjamönnum, séu líkur á, að þau kjör, sem hægt verði að fá hluta þyrlusveitar bandaríska sjóhersins á, í toppviðhaldsástandi, ásamt fullkominni tveggja ára þjálf- un starfsmanna, geti orðið svo góð, að þau verði í engu samanburðarhæf við þau kjör sem til boða standi, að því er varðar kaup Super Puma- björgunarþyrlunnar frá Frakklandi. Sighvatur Björgvinsson, starfandi utanríkisráðherra, kallaði síðdegis í gær Parker Borg, sendiherra Banda- ríkjanna, á sinn fund, þar sem ráð- herrann greindi honum frá óskum íslenskra stjórnvalda um nákvæmari upplýsingar frá þeim bandarísku, en þeim hafa þegar borist. Það sem einkum mun vaka fyrir íslenskum stjómvöldum, er að fá úr því skorið hvort bandarísk stjómvöld eru reiðubúin til þess að ganga til samninga við Islendinga um verk- töku, að því er varðar rekstur þyrlna sjóhersins. Þessa ósk setja íslensk stjórnvöld fram, með tilvísan til orða Perrys hér á landi í ársbytjun, þar sem hann gaf í skyn að hægt væri að semja um slíka verktöku. Þetta mun vera grundvallarviðhorf þeirra sem stjórna viðræðunum við Banda- ríkjamenn og í þeim efnum er talið að tölulegar upplýsingar um verð þyrlnanna skipti minna máli, en framtíðarfyrirkomulag á rekstri þyr- lusveitarinnar, sem samkvæmt þeim samningum sem tókust hér í ársbyij- un, er fullkominni óvissu háð, að tveimur árum liðnum. Rektrarkostn- aður þyrlnanna til frambúðar sé ekki síður þýðingarmikill, en sjálfur stofn - kostnaðurinn. Ekki samhljómur í ríkisstjórninni I ríkisstjóm Davíðs Oddssonar er þó ekki samhljómur í afstöðu ráðherr- anna, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra mun eindregið þeirrar skoðunar að dráttur sá sem orðið hefur á ákvarðanatöku, að því er varðar þyrlukaup fyrir Landhelgis- gæsluna, sé þegar orðinn óhóflegur og öll frekari töf, sé ríkisstjórninni til vansa. Þó mun vera samstaða um að bíða átekta þær þijár vikur, sem ætla má að það taki, að fá úr því skorið hvort raunverulegur pólitískur vilji er fjrir því innan bandaríska stjórnkerfísins, að ganga til samn- inga við íslendinga á þeim grunni, sem Perry varnarmálaráðherra lagði með orðum sínum um hugsanlega verktöku Islendinga í ársbyijun. Því mun m.a. hafa verið reifaður sá möguleiki, að kaup á Super Puma- þyrlunni verði fljótlega ákveðin, en hægt sé að tryggja hagsmuni íslend- inga og ríkissjóðs með þeim hætti, að samið verði um endurkaup seljand- ans á þyrlunni, eftir tiltekinn tíma, eða að samið yrði til skamms tíma, þannig að reynsla fengist á notkun Super Puma-þyrlunnar, áður en endanlega væri ákveðið til frambúð- ar, hvort þar væri um heppilegasta kostinn fyrir íslendinga að ræða. Þannig mætti tryggja að fljótlega gæti Landhelgisgæslan losað sig við Super Puma-þyrluna, ef slíkir samn- ingar næðust við bandarísk stjórn- völd um kaup á nýlegum, fullkomlega útbúnum Sikorsky-þyrlum og þjálfun áhafna þeirra, að ekki þætti stætt á því að hafna slíkum samningum. Alla vega hefði þyrluleysi landans verið brúað á meðan á samningaviðræðum við Bandaríkjamenn stendur, verði svör þeirra í þá veru að bandarísk stjómvöld séu reiðubúin að ganga til verktökusamninga við íslendinga. Þannig gætu samningsaðilar tekið sér góðan tíma í að ljúka samnings- gerðinni. Sýnendur á Prentmessunni eru tuttugu talsins og skiptast þeir í tvo hópa. Annars vegar er um að ræða þjónustufyrirtæki við prentiðnaðinn og innflytjendur tækja, en hins vegar sýna þar framsækin fyrirtæki sem sjálf eru í prentiðnaði og útgáfu. Við setningu Prentmessu 94 vom í annað sinn veittar viðurkenningar fyrir þær íslenskar bækur sem þótt hafa skarað fram úr t hönnun, prent- un, bókbandi og öllum frágangi. Steindór Hálfdánarson formaður dómnefndar afhenti viðurkenning- amar, en þær hlutu að þessu sinni eftirtaldar bækur eða bókaflokkar: The Icelandic homily book, útgefandi Stofnun Áma Magnússonar, prent- vinnsla og bókband G. Ben. prent- stofa hf.; Orð um ..., bókaflokkur átta smábóka sem Mál og menning gefur út; Kría siglir um suðurhöf, útg. Mál og menning; Fjallganga, útlit og umbrot Erla Sigurðardóttir, útg. Almenna bókafélagið; Veröld sem ég vil, hönnun Elísabet A. Coc- hran, útg. Kvenréttindafélag íslands; Hreinn Friðfinnsson, hönnun Erling- ur Páll Ingvarsson, útg. Listasafn Islands og Mál og menning, en prent- vinnslu og bókband allra þessara fimm útgáfa annaðist Prentsmiðjan Oddi hf. I ávarpi Arnar Jóhannssonac^ stjómarmanns í Samtökum iðnaðar- ins, kom fram að til þessara viður- kenninga hefði verið stofnað til að efla prentlistina og koma henni aftur til þeirrar virðingar sem hún naut. „En ekki duga viðurkenningar einar sér. Tilkoma Prenttæknistofnunar og starfsemi hennar hefur þegar sannað ágæti sitt og eru bundnar miklar vonir við framhald endurmenntunar og annarrar starfsemi svo sem sjá má hér í dag,“ sagði Örn. Gunnar Flóvens „Af skiljanlegum ástæðum eru erlendir saltsíldarkaupendur ekki fáanlegir til að semja um kaup sín með fyrirframsamningum nema þeir hafi trygg- ingu fyrir því að ekki verði síðar boðin eða seld samskonar síld frá sömu vertíð á viðkom- andi markað á lægra verði eða með hagstæð- ari kjörum en kveðið er á um í fyrirfram- samningum.“ méð samþykki viðkomandi hags- munasamtaka. Síldarútvegsnefnd hefir ekki sótt um slíkt einkaleyfi um langt árabil. Af átta stjórnar- nefndarmönnum Síldarútvegsnefnd- ar eru þrír tilnefndir af samtökum síldarsaltenda, einn af samtökum útvegsmanna og einn af samtökum sjómanna. í sambandi við starfssvið Síldar- útvegsnefndar skal það tekið fram að samkvæmt lögum heyrir sala á síld í neytendaumbúðum ekki undir starfsemi Síldarútvegsnefndar. Einnig tel ég rétt að láta þess getið að Síldarútvegsnefnd hefir aldrei fengið fé úr ríkissjóði eða öðrum opinberum sjóðum. Til þess að standa undir rekstri nefndarinnar fær hún sölulaun sem eru lægri en mér er kunnugt um hjá ýmsum öðr- um útflutningsaðilum og er þó nefndinni einnig gert að annast margskonar verkefni og þjónustu fyrir atvinnugreinina sem flokkast ekki undir venjulegan sölukostnað. í tilefni þess misskilnings varðandi sölufyrirkomulagið sem áður er vikið að skal eftirfarandi reynsla rifjuð upp. Undirritaður hefír starfað að sölu- málum íslenzkrar saltsíldar í meira en fjóra áratugi, fyrst sem forstöðu- maður skrifstofu Síldarútvegsnefnd- ar í Reykjavík frá stofnun skrifstof- unnar haustið 1950, síðan sem fram- kvæmdastjóri frá 1959 til vors 1990 og starfar nú sem stjórnarformaður nefndarinnar. Með hliðsjón af þess- ari reynslu tel ég mig geta fullyrt að á þessum rúmlega fjórum áratug- um hafi aldrei komið upp hinn minnsti ágreiningur við áðurnefnd hagsmunasamtök um fyrirkomulag á sölumálunum og samvinnan við þessa aðila og alla síldarsaltendur hefir vorið eins og bezt. verður á 1 kosið*. (a 1 iriím filéo' Á þessum áratugum hefir það al- loft borið við að aðrir aðilar hafi óskað eftir að fá heimild til að reyna að selja saltaða síld til útflutnings. Í öllum tilfellum hefir verið látið á þetta reyna og viðkomandi aðilum þá um leið veitt aðstoð eftir því sem óskað hefir verið eftir. Ég dreg ekki í efa að þessir aðilar muni vera reiðu- búnir að staðfesta að hér sé rétt farið með staðreyndir, enda hefir ætíð tekizt góð samvinna um þessar sölutilraunir. Á sl. síldarvertíð óskuðu t.d. 14 einstaklingar og verzlunarfyrirtæki eftir heimild til að reyna að selja saltaða síld til útflutnings og var öllum veitt slík heimild með þeim venjulegu skilyrðum að síldin yrði ekki seld á lægra verði en kveðið væri á um í fyrirframsamningum við kaupendur í viðkomandi markaðs- löndum. Mér er ekki kunnugt um annað en að allir þessir aðilar hafi verið ánægðir með samstarfið við Síldarútvegsnefnd. Eins og áður er sagt hefir það verið venja að leita umsagna þeirra samtaka sem mestra hagsmuna eiga að gæta áður en ákvörðun hefír ver- ið tekin um sölufyrirkomulagið hveiju sinni. Þar sem sölufyrirkomulag á ís- lenzkum útflutningsvörum hefir oft valdið ágreiningi höfum við ekki lát- ið nægja að kanna árlega viðhorf áðurnefndra hagsmunasamtaka, heldur höfum við einnig á nokkurra ára fresti látið fara fram skoðana- kannanir á því hjá öllum síldarsölt- unarstöðvunum hvort óskað væri eftir breytingum á sölufyrirkomulag- inu eða hvort unnið skyldi áfram á núverandi grundvelli. Síðast þegar slik könnun var gerð fyrir nokkrum árum urðu niðurstöð- ur þær.aði^lja^ ptöðvarnar óskpðu 4 ejftip jpþröytþu-i söjufyrwkpipúlágþíPgx engar óskir hafa komið fram um breytingar síðan. En hvers vegna er verið að setja sérstök lög um útflutning á saltaðri sfld kunna einhveijir að spyija. Ástæðurnar eru fyrst og fremst eft- irfarandi: 1. Saltsíldin hefir þá sérstöðu að semja verður um söluna áður en söltun getur hafízt, enda eru kröfur hinna ýmsu kaupenda um tegundir, verkunaraðferðir, stærðarflokka ofl. mjög misjafnar. Af þeim sökum kem- ur oft fyrir að nýta verður síld úr einum og sama farminum fyrir kaup- endur í 3-4 markaðslöndum. Söltun- ina verður því að skipuleggja með hliðsjón af þessum mismunandi kröf- um kaupenda og ástandi fersksíldar- innar hveiju sinni og er það flóknara viðfangsefni en margur gerir sér ljóst. I því sambandi skal þess getið, að á síðustu vertíð var söltuð síld á íslandi framleidd eftir 78 mismun- andi tegundum, verkunaraðferðum, verkunarefnum og stærðarflokkum. 2. Af skiljanlegum ástæðum eru erlendir saltsíldarkaupendur ekki fáanlegir til að semja um kaup sín með fyrirframsamningum nema þeir hafí tryggingu fyrir því að ekki verði síðar boðin eða seld samskonar síld frá sömu vertíð á viðkomandi mark- að á lægra verði eða með hagstæð- ari kjörum en kveðið er á um í fyrir- framsamningum. Slíka tryggingu er ekki unnt að gefa nema einhver að- ili skipuleggi söltunina, fylgist með útflutningi og söluverði síldarinnar, sbr. löggildingarákvæðið (útflutn- ingsleyfaákvæðið) í lögunum um Síldarútvegsnefnd og útflutning saltaðrar síldar. 3. Sökum þess hve markaður fyr- ir saltaða síld er takmarkaður og sveiflukenndur og geymsluþol síldar- innax' lítið, taka ,síjdarsaltendurual- mennt ekki þá gífurlegu áhættu að framleiða saltaða síld nema salan sé tryggð með fyrirframsamningum. Mistök í þessum efnum geta á fáum, eða jafnvel einum söltunardegi eyði-J' lagt vertíðarafkpmu viðkomandi söltunarstöðvar. í þessu sambandi er rétt að láta þess getið að aðeins um 10-12% af síldaraflanum í heim- inum hafa á undanförnum árum ver- ið nýtt til söltunar og langtum lægra hlutfall sé miðað við samskonar sfld og nú er veidd hér við land. 4. Af sömu ástæðum hafa bankar ekki verið fáanlegirtil að veita afurð- alán út á síld, sem söltuð er án fyrir- framsamninga. 5. Erfítt er fyrir síldarsaltendur að fá lán til kaupa á tunnum, salti, sykri, kryddi og öðrum rekstrarvör- um vegna síldarsöltunarinnar nema að tryggt sé að varan seljist. -á- Ég hefí aldrei farið dult með þá skoðun mína að sum ákvæði núgild- andi laga um Síldarútvegsnefnd og útflutning saltaðrar síldar séu óþörf og að því leyti get ég verið sammála flutningsmönnum umræddrar þings- ályktunartillögu. Aftur á móti er það reginmisskilningur að lögunum þurfí að breyta til þess að aðrir aðilar en Síldarútvegsnefnd geti selt og flutt út íslenzka saltsíld, sbr. skýringar þær sem gefnar hafa verið hér að framan. Það sem mestu máli skiptir í þess- um efnum fyrir saltsíldarframleiðsl- una er að einhver aðili hafí lagalega heimild til að koma í veg fyrir að söltuð sfld verði boðin eða seld á lægra verði en kveðið er á um í fyrir- framsamningum. Án fyrirframsamn- inga er söltun sfldar vægast sagt glæfraspil. , Höfundur er formaður Síldarútvcgsnefiidan , u

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.