Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.04.1994, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994 BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Á tímamótum framboðsmála í Yestmannaeyj um Frá Guðmundi Þ. B. Ólafssyni: Eins og tilkynnt hefur verið munu Alþýððuflokkur, Alþýðu- bandalag og Framsóknarflokkur í Vestmannaeyjum bjóða fram sam- eiginlegan lista til bæjarstjórnar- kosninganna nú í vor. Er þetta í fyrsta skiptið sem þessir flokkar bjóða fram sameiginlega. Umræð- an um sameiginlegt framboð hefur áður farið fram, en aldrei fyrr hefur það orðið að veruleika og er hér því um merk tímamót að ræða. Helsta hvatningin að þessu framboði er sú mikla umræða, vilji og hugur bæjarbúa fyrir framboð- inu og þá ekki síst eftir að núver- andi meirihluti bæjarstjórnar sem myndaður er af sex fulltrúum Sjálfstæðisflokksins á móti tveim- ur fulltrúum frá Alþýðuflokki og einum fulltrúa frá Alþýðubanda- lagi, ákvað með meirihlutavaldi að fækka bæjarfulltrúum úr níu í sjö. Þetta var ákveðið með hreinni valdbeitingu gegn atkvæðum minnihlutans. Eftir ákvörðunina lá fyrir að með óbreyttu fyrirkomulagi, með framboði fjögurra flokka hvers í sínu lagi, hefði getað skapast sú staða að meirihluti hefði getað unnist með einungis 41% greiddra atkvæða um leið og 59% Vest- mannaeyinga sem hefðu kosið hin framboðin þrjú hefðu lent í minni- hluta í bæjarstjóm. Bæjarbúar kjósa sér fulltrúa í bæjarstjórn og það væri afskræming á lýðræðinu ef minnihluti réði meirihluta, með þessum hætti. Sameiginlegt framboð flokk- anna á Vestmannaeyjalistanum er grundvallað á auknu lýðræði við stjórn bæjarins okkar, lýðræði sem því miður hefur alltof lítið farið fyrir á yfirstandandi kjörtímabili. Framboðslisti Vestmannaeyja- listans hefur verið lagður fram og vinnan við stefnumálin er í fullum gangi. Innan tíðar verður gerð grein fyrir helstu stefnumálum Vestmannaeyjalistans. Listabók- stafur framboðsins verður V. Kosningaskrifstofa V-listans verður á Heiðarvegi 6 og eru Vest- mannaeyingar hvattir til að taka þátt í starfinu og eiga þar með þátt í að móta framtíðina og betri bæ. Vestmannaeyingar, vinnum með. Vestmannaeyjalistann fyrir Vestmannaeyjar. GUÐNI Þ. B. ÓLAFSSON, Vestmannaeyjum. Skoðanaskipti eða hvað? Frá Björgvin Brynjólfssyni: Þriðjudaginn 19. apríl sl. var í sjónvarpinu þáttur um aðskilnað ríkis og kirkju. Sjónvarpsþættir um deilumál eru venjulega byggð- ir upp með þeim hætti að hin umdeildu sjónarmið komi sem ský- rast fram og með líkri aðstöðu til málflutnings. í þessum þætti var því öðruvísi farið. Þar voru fjórir viðmælendur ásamt stjórnanda. Þrír þeirra voru valdir úr áhrifa- stöðum þjóðkirkjunnar: kirkju- málaráðhera, biskupsritari og for- maður prestafélagsins. Allir voru þeir sammála um að viðhalda sam- bandi kirkjunnar við ríkið með auknu forræði kirkjunnar í eigin málum. Fjórði viðmælandinn var forstöðumaður aðventista. Hann reyndi að mæla með aðskilnaði en var yfirgenginn af málflutningi þjóðkirkjumanna. Stjórnandinn gaf aðventistanum fá tækifæri til að tjá sig um málið. Frétt frá Svíaríki Að þættinum loknum vaknaði hjá mér sú spurning: hvers vegna var stofnað til þessa þáttar? Ekki var gætt jafnræðis í fjölda viðmæ- lenda og gengið framhjá þeim samtökum sem hafa mál þetta á stefnuskrá sinni, eða hafa gert um það samþykktir. Margt virðist benda til þess að þátturinn hafi verið gerður til mótvægis þeirri frétt sem borist hefur frá Svíþjóð, um að þar sé stefnt að fullum aðskilnaði ríkis og kirkju árið 2000. Þjóðkirkjumennirnir rang- túlkuðu þessa frétt og töldu hana ekki beina til aðskilnaðar heldur væri aðeins stefnt að auknu sjálf- stæði kirkjunnar í landinu. Þróun sem ekki verður stöðvuð Aðskilnaður ríkis og kirkju á fjöldafylgi með þjóðinni, sem greinilega kom fram í skoðana- könnun Gallups sem var gerð hér fyrir einu ári. Þar töldu 5% þeirra sem afstöðu tóku sig vera hlynnta aðskilnaði. Þeir sem undirbjuggu sjónvarpsþáttinn hefðu auðveld- lega getað fengið fleiri viðmælend- ur úr hópi aðskilnaðarmanna. Fjöl- menn stjórnmálasamtök hafa gert samþykktir um stuðning við að- skilnaðinn, t.d. Samband ungra sjálfstæðismanna og Alþýðu- bandalagið. Auk þess hefur Sið- mennt, félag áhugafólks um borg- aralegar athafnir, aðskilnaðinn á stefnuskrá sinni og Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju, sem er ætlað það hlutverk að samræma aðgerðir máli þessu til framgangs. Ég vil beina þeirri áskorðun til Sjónvarpsins að það bæti fyrir mistök sín með nýjum þætti um þetta mál sem væri byggður á jafnri aðstöðu um mannfjölda og ræðutíma. Rökræður tveggja manna kæmu vel til greina að mínu mati. BJÖRGVIN BRYNJÓLFSSON, Skagaströnd. HÖGNI HREKKVÍSI „ZALTK'IÖT OG&AUNHZ EtZO \ HINWI TUNNUNNI.* Yíkveiji skrifar Viðskiptahættir Pósts og síma eru Víkverja stöðug upp- spretta skrifa eins og tryggir les- endur dálksins þekkja. Kunningi Víkveija þurfti fyrir skömmu að láta opna síma sem hafði verið lok- að vegna þess að dregist hafði úr hófi að greiða símreikning. Kunn- inginn átti bágt með að komast frá og hringdi þess vegna í innheimtu- deild Pósts og síma og spurði hvort hann gæti ekki beðið bankann sinn um að millifæra reikningsupphæð- ina beint inn á reikning hjá Pósti og síma. Hjá innheimtudeild fengust þær upplýsingar að það væri vissulega hægt en myndi taka 2-3 virka daga að skila sér til innheimtudeild- ar vegna þess að greiðslan þyrfti að fara í gegnum Póstgíróstofuna. Af þeim sökum yrði ekki hægt að opna fyrir símann fyrr en að þeim tíma liðnum. Kunninginn brá því á það ráð að fara í pósthúsið í Kringl- unni, sem opið er til kl. 18, borga reikninginn þar með tékka og fá símann opnaðan. Það einkennilega í málinu er að þrátt fyrir að klukk- an hafi verið langt gengin í 18 þegar reikningurinn var greiddur og allir bankar löngu lokaðir þá var tékkinn engu að síður skuld- færður út af reikningi kunningjans samdægurs. Það er því greinilega ekki sama í hvaða átt færslan er gerð, úr banka og yfir til Pósts og síma, eða öfugt. xxx * Islendingar taka þátt í Söngva- keppni sjónvarpsstöðva í Evr- ópu í 9. skipti á morgun. Flesta rekur eflaust minni til þess hve mikil bjartsýni greip þjóðina árið 1986, þegar við þreyttum frumraun okkar í keppninni, með Gleðibank- anum. Ekki voru aðrir Evrópubúar okkur fyllilega sammála um ágæti lagsins_ og niðurstaðan varð 16. sætið. ísland vermdi það sæti einn- ig árin 1987 og 1988 og voru margir farnir að örvænta. Lengi getur vont versnað og árið 1989 fékk ísland ekkert stig og þar af leiðandi neðsta sætið. Nú hafði mesti Eurovision-áhuginn ijátlast af þjóðinni, en ári síðar hreppti Stjórnin 4. sætið í Júgóslavíu og landinn tók gleði sína á ný, en. aðeins til að sætta sig við 15. sæt- ið 1991. Aftur vænkaðist hagurinn 1992, þegar niðurstaðan varð 7. sætið og í fyrra enduðum við í 13. sætinu. Yíkveiji hefur ekki mikla drauma um frama í þessari annars ágætu söngvakeppni. Hann er þó ánægður með framlag Islands að þessu sinni, því þau Friðrik Karlsson lagahöfundur og Sigríður Beinteinsdóttir söngkona eru ágæt- is hráefni, ef hægt er að finna uppskrift að góðu gengi á annað borð. Sigríður á að hluta heiðurinn vegna besta árangurs íslands hing- að til, þ.e. 4. sætið 1990 og 7. sætið 1992, og Friðrik samdi jú lagið í síðara skiptið. Nú spá veð- bankar Breta og íra laginu okkar 3. sæti, en úrslit vilja oft verða á annan veg. Víkveiji er þess þó full- viss að íslenski hópurinn verður okkur til sóma í Dyflinni á laugar- dagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.