Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 4

Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 4
4 »' f c / í? Fimmtudagur 16. ágúst 1962. - STfi-trtí’r:na=i. Nokkrar af myndabókum Hans Reich i flokknum „Terra magica' Þr jár nýjar Islandsmyndabækur Almenna bókafélagið og það hefur verið ákjósanleg sam- vinna þar á milli. Til þessa höf um við haft samvinnu um út- gáfu á þrem bókum um ís- land. Fyrst var það almenn myndabók um land og þjóð, ber titiiinn „ísland". Síðar kom bók um Heklugosið 1947 og loks bók um gamla íslenzka list, og voru þær myndir teknar í þjóð- ■“linjasafninu. — Hver þeirra hefur selzt ezt? — íslandsbókin langsamlega ezt. Hún hefur verið gefin út í mörgum tungumálum og hvar vetna hlotið ágætar undirtekt- ir. Ég held að allar þessar bæk- ur hafi ekki aðeins verið Al- menna bókafélaginu til sóma, heldur einnig verið góð land- kynning fyrir Island. Mér er það meðal annars minnsstætt sem ambassador Þjóðverja á Is landi, ,hr. Hirschefeld sagði mér um kynni sfn af íslands- bókinni. — Hvað var það? Þýzki myndabókaút- gefandinn Hans Reich frá Munchen, sem m. a. hefur séð um útgáfur á þrem myndabókum um ísland fyrir Almenna bókafélagið í Reykjavík, kom hingað tii lands fyr ir nokkrum dögum, og ræddi þá við forráða- menn Almenna bóka- félagsins um útgáfu nýrra myndabóka um ísland. Þær myndabækur, sem Hans Reich hefur séð um útgáfu á, eru yfirleitt betur prentaðar en almennt gerist um myndabæk- ur. I því sambandi má geta þess, að enda þótt Þjóðverjar standi meðal fremstu þjóða í prentlist, hefur Hans Reich sent bækur sínar til Sviss og látið prenta þær þar, af því að hann telur að þar sé prentunin enn betur af hendi leyst. Er hér þó um verulegan kostnaðarauka fyrir hann að ræða, þar sem hann verður að greiða toll af öllum þeim bókum sem prent- aðar eru utan heimalandsins. Þrjár nýjar myndabækur. Hans Reich hefur frá upp- hafi haft nána samvinnu við Almanna bókafélagið og hefur annazt fyrir það útgáfur á þrem forkunnarfögrum myndabókum, þ.e. Islandsbókinni, sem þegar hefur verið gefin út á fjölmörg um tungumálum og telja verður í senn meðal útbreiddustu bóka sem gefnar hafa verið út um ísland og jafnframt verið ein hin ákjósanlegasta Iandkynning. sem um getur. Þá er það bókin um Heklugosið 1947 og loks bókin um íslenzka list að fornu, en þar er um að ræða myndir af ýmsum merkum og fögrum gripum úr Þjóðminjasafninu. Allt eru þetta hinar fegurstú bækur og hafa hvorki fyrr eða síðar sézt jafn fallega prentað- ar myndabækur um ísland sem þessar. Að þessu sinni kom Hans Reich hingað til lands til að ræða við Almenna bókafélagið um framhald á myndabókaút- gáfu félagsins og eru þar efst á baugi bækur um Öskju, Reykja vík og nýja íslandsmyndabók. Gaf út tæknibækur. Fréttamaður Vísis átti tal við Hans Reich um útgáfustarfsemi hans yfirleitt, en hún er nú orðin víðfræg, ekki aðeins um allt Þýzkaland, heldur einnig víðs vegar um heim. Flestar þeirra eru gefnar út undir heildarheitinu „Terra magica", þ.e. töfrandi heimur, og er sá bókaflokkur nú kunnur meðal bóksala og bókaútgefenda í allri vestan verðri Evrópu og þótt viðar sé leitað, — Hvað er Iangt síðan að þér hófuð bókaútgáfu? — Það var í ársbyrjun 1946, að ég hóf útgáfu á tæknibók- um, en það var hvort tveggja í senn sérfræðigrein mín og að- aláhugamál. Þarna var hvort tveggja um að ræða kennslu- bækur í þessum greinum og al- þýðiegar fræðslubækur þar sem reynt er að gefa almenningi inn sýn á ljósan og einfaldan hátt í furðuveröld tækninnar og þau gífurlegu áhrif sem þún hefur á allt nútímalíf. Tvær kvik- myndir hafa verið gerðar eftir þessum fræðslubókum mínum og hlutu báðar verðlaun á al- þjóðlegri kvikmyndasamkeppni suður í Feneyjum. Ég gaf einn- ig á tímabili út blað um út- varpsmál. — Eruð þér hættur við út- gáfu á þessum tæknibókum? — Nei, ekki með öllu. Þær eru hugðarefni mitt enn sem áður og ég gef öðru hvoru út bækur um þau jafnhliða mynda bókunum. Upphaf myndabóka- útgáfu. — Hvenær hófuð þér útgáfu á myndabókunum? — Það var af einskærri til- viljun árið 1952. Ég var lang- þreyttur orðinn af miklu starfi og hafði ekki tekið mér frí í nokkur ár. Ég ákvað þvl að fara í langferð suður um alla Suður-Afríku og verja til þess nægum tíma. Ég var 9 mánuði í ferðinni og fór mjög víða. í þeirri ferð tók ég dálítið af tónupptökum fyrir þýzka út- varpið, en auk þess hafði ég tvær ljósmyndavéiar meðferðis, Leica og Rolleicord. Þegar ég sá árangurinn af ljósmynda- töku niinni kom mér allt í einu í hug að það væri ekki svo vit- laust að gefa út myndabók úr þessari för. Það varð fyrsta bindið í „Terra magica", en það nafn kom mér í hug, einu sinni þegar ég var á skíðum í Suð- ur-Þýzkalandi, skömmu eftir heimkomuna úr Afríkuferðinni. Ekki ljósmyndari. — Eruð þér lærður ' ljós- myndasmiður? — Ég hef lært og lært ekki Aldrei gengið í ljósmyndaskóla og aldrei öðlazt réttindi sem fagmaður. Hins vegar kynntist ég einu sinni nemanda í ljós- myndaskóla í Múnchen og ég vann með honum að öllum verk efnum sem honum voru fengin í hendur þar til n. .ið var bú- ið veit ég sitt að hverju um ljós- og annarri tækni og fyrir bragð ið veit ég sitt af hvoru um ljós- myndagerð og ljósmyndatækni. — Takið þér sjálfur myndir í myndabækurnar sem þér gefið út? —- Stundum. í sumum tilfell- um tek ég flestallar myndirn- ar sjálfur, í öðrum tilfellum enga eða nær enga. — Hvað hafið þér gefið' út margar myndabækur og hvað koma þær út í miklum eintaka- fjölda? — Það hafa komið út sam- tals um 30 myndabækur á for- lagi mínu, en margar eru núna í undirbúningi og sumar komn ar I prentun. 220.000 eintök. Um eintakafjölda gilda ekki neinar reglur. Þar verður maður í hverju einstöku tilfelli að reikna með líkum. Ef verðið á bókunum á að verða skaplegt eins og við köllum það, þá má eintakafjöldinn helzt ekki vera minni en 10-12 þúsund af hvorri bók. Vinsælasta bókin, sem komið hefur út á mínum veg- um heitir „Börn úr víðri ver- öld“ (Kinder aus aller Welt), hún hefur komið út samtals í 220 þúsund eintökum. — Þér látið ekki prenta myndabækurnar í heimalandi yðar, Þýzkalandi? — Fæstar. Mér þykir miður að þurfa að segja það, að ég tel Svisslendinga vera komna á enn hærra stig hvað mynda- prentun snertir. Þess vegna lcet ég prenta flestar bækurnar þar. Fjárhagslega er þetta óhagstætt fyrir mig, því ég þarf fyrir bragðið að borga toll og bæk- urnar verða dýrari. Samt vil ég vinna þetta til, því ég legg megináherzlu á að bækurnar séu eins vel úr garði gerðar or frekast er unnt. Næstu bækur. — Hvaða myndabækur eruð þér með á döfinni sem stendur? — Þær eru margar, fleiri en nokkru sinni áður. Meðal bóka sem ég vinn að um þessai mundir eru 5 bækur um bygg- ingarlist. Ein þeirra fjallar um íbúðabyggingar allt frá elztutím um og til vorra daga, allt frá hofum, hellum og moldarhreys- um til hinna nýtízkulegustu halla, Önnur bókin fjallar um nytjabyggingar í hvers konar mynd, sú þriðja um kirkjur og guðshús, sú fjórða um brýr og sú fimmta um tröppur. Af öðrum bókum sem ýmist eru í undirbúningi eða jafnvel komnar í prentun má nefna bók um ákveðið hérað í Frakk landi og aðra hliðstæða bók frá Austurríki, bók um Grikk- iandseyjar, bók sem ég nefni Svif, og fjallar um svif eða flug fugla og flugvéla, skyld- leikans og andstæðunnar sem þar gefur að líta. Þá er bók með myndum sem teknar hafa verið úr lofti víðsvegar á jörð- inni, bók um Spán, sem ég sjálf ur hef einkum unnið að og væntanleg er á næsta ári og loks er möguleiki á nýjum bók um frá íslandi. Bækurnar um ísland. — Hafið þér gefið út margar bækur frá íslandi til þessa? — Þar er ég ekki*hinn raun- verulegi útgefandi, heldur er það Almenna bókafélagið í Reykjavík. — Þess vegna koma þær ekki út í flokkum „Terra magica", enda þótt útgáfurnar séu með áþekkum hætti. Ég sé hins vegar um útgáfurnar fyrir Góð landkynning. — Hann sagði mér frá því að þegar það hafi fyrst borizt í tal í utanríkisráðuneytinu í Bonn að hann yrði gerður að ambassador á Islandi hafi farið um sig hálfgerður hrollur. Hann þekkti að vísu hvorki til lands né þjóðar, en nafnið var kalt og hann bjóst við leiðinlegu landi, þöktu snjó og ís og fólkið vafa laust með svipuðum blæ. Hann færðist þess vegna eindregið undan að taka við þessari stöðu Áður en endanleg ákvörðun var þó tekin um að senda ann- an í hans stað til íslands varð hr. Hirsehfeld gengið framhjá bókabúð og athygli hans beind- ist að bók í glugganum sem hét „ísland". Hann fór inn, keypti bókina og um kvöldið skoðaði hann og kona hans bókina gaumgæfilega. Daginn eftir þeg ar Hirschefeld kom í ráðuneytið sagði hann að ákvörðun sín væri breytt,. sig langaði ekkert meira heldur en að fara til ís- lands. Og það sem ambassador inn taldi þó enn meira virði væri þó, að landið sjálft hefði gert miklu meira heldur en að efna það sem bókin gaf fyrir- heit um. Urðum samferða. — Hafið þér orðið þess var að Islandsbækurnar hafi haft á- hrif á fleira fólk en ambassador inn? — Oft og einatt. Ég hef þrá faldlega verið ónáðaður af fólki sem hafði séð eða eignazt ein- hverja af íslandsbókunum, og ■ Framhald á bls. 7. Myndin hér að ofan var einnig úr myndabókinni „ísland“ og sýnir reiða svani verja hreiður sitt. í hinni væntanlegu ís- landsmyndabók Almenna bókafélagsins verða eingöngu nýjar myndir, sem ekki voru í fyrri bókinni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.