Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 16.08.1962, Blaðsíða 16
VISIR Fimmtudagur 16. ágúst 1962. ► Bandarískir læknar kynna sér nú þá hjálp sem í Vestur-Þýzka- landi er veitt bömum, sem fæddust vansköpuð, vegna þess að mæður þeirra tóku inn thalidomide á með göngutímanum. Grunað að enn eitt lyf — tetracyclin valdi vansköpunum Enn eitt meðal er nú grunað um að geta valdið vansköpun barna á fósturstigi. Er þar nú um að ræða eitt af fúkkalyfjunum (antibiotics) sem notað er gegn bólgum. Það kallast tetracyclin og hefur verið í lyfjabúðum á Norðurlöndum. Tveir brezkir læknar dr. M. P. Carter og dr. F. Wilson hafa varað við þessu lyfi í brezku læknatímariti. Þeir halda því fram að hugsan- legt sé að það sé ekki thalidomid eitt, sem valdið hafi fjölgun van- skapaðra barna, grunur falli einn- ig á önnur efni, þeirra á meðal á tetracyclin. AÐVÖRUN TIL KVENNA Læknayfirvöldin í mörgum lönd- um hafa hrokkið upp við hinar alvarlegu afleiðingar thalidomids. Hefur yfirstjórn heilbrigðismála í Svíþjóð nú skipað sérfræðing, Jan Winberg, dósent, til að rannsaka sambandið milli vansköpunar barna og ýmissa lyfja. Winberg hefur gef- ið út aðvörun til sænskra kvenna að nota ekki tetracyclin lyf, séu þær barnshafandi. Það er nú upplýst, að tetracyclin lyf hafa t.d. verið á boðstólum 'í norskum lyfjabúðum eins og víða Framhald á bls. 5. Smygl / Heklu Við tollskoðun um borð í Heklu í gær, fannst ýmis varningur þar sem grunur leikur á að um smygl sé að ræða. Ekki er þó enn vit að í hversu stórum stíl smyglið sé, en sam- kvæmt upplýsingum frá Unnsteini Beck yfirtoll- verði verður nánari at- hugun gerð á því seinna í dag. Hefur allur grunsamlegur varn- ingur verið innsiglaður, fylgzt er nú með uppskipun úr skipinu og tollverðir hafa góðar gætur á hafnarbakkanum bæði nótt sem dag. Þegar Hekla kom til Reykjavík- ur klukkan 9 í gærmorgun, gerðu tollverðir ítarlega rannsókn á skipinu. Mun það hafa verið gert sem „stikkprufa“, frekar en af rökstuddum grun um óeðlilegan varning um borð. Við þessa skoðun kom í ljós, bæði í farþegafarangri og eins í farmi skipsins, eins og fyrr segir, að meira var til flutnings en skráð hafði verið. Engar upplýsingar var hægt að fá í morgun um magn né hverrar tegundar smyglið viæri, en heyrzt hefur þó að þar muni helzt um vín og fatnað að ræða. Vegna tolleftirlitsins, urðu nokkur óþægindi hjá farþegum enda tafðist skipið og dróst að fá leyfi fyrir farþegana að fara í land. Varð af þessu óánægja meðal þeirra en farþegarnir eru flestir erlendir, þýzkir og danskir. Hekla kemur frá Kaupmanna- höfn, Gautaborg, Kristiansand og Þórshöfn. |Skymaster-vél og fullkomnari tækil i í gær kom til landsins hin nýja gæzluflugvél Landhelgis- gæzlunnar. Hún er af gerðinni DC-4, Skymaster, og er keypt af portúgölsku rikisflugfélagi, sem notaði hana á sínum tíma í Goa. Var henni flogið þaðan burt á síðustu stundu er Ind- verjar tóku nýlenduna. Vél þessi bætir til muna að- stöðu til gæzlu í kring um land ið. Lætur nærri að hún geti af- kastað helmingí meiru en Rán, þar sem hún er miklu hraðfleyg ari. Vél þessi er núna útbúin eins og venjuleg farþegaflugvél. Hún hefur radar f nefinu, en ætlunin er að bæta öðrum rad- ar við, sem settur verður neðan á flugvélina og getur hann séð í allar áttir frá flugvélinni, í stað aðeins beint fram. Breytingar á vélinni Allmiklar breytingar eru fyr Framh. á bls. 5. / stolnum bíl í fyrrinótt stálu tveir piltar af síldveiðiflotanum 16 og 20 ára að aldri bíl á Seyðisfirði og óku honum upp á Hérað og Hróars- tungu þar til þeir urðu bénzín- lausir. Þá stálu þeir öðrum bíl á bæ í Hróarstungu, en voru stöðvaðir og handteknir. Hvorugur þessara pilta hafði bíl- próf og báðir voru ölvaðir. Þeir hófu þennan feril sinn með því að stela á Seyðisfirði, Skoda-bifreið sem er eign apótekarans á staðn- um, Kristjáns Hallgrímssonar. Óku þeir á henni yfir Fjarðarheiði, til Framhald á bls. 5. Emil Jónsscn sjávarútvegsmála- ráðherra. Myr.din tekin við komu hans til Ösló. I Emil Jónsson sjávarútvegsmála- ráðherra lýsti því yfir í samtali við norska blaðið Aftenposten á þriðju daginn, að hann teldi líklegast að island myndi leita eftir einhvers konar aukaaðild (Assosiering) við Efnahagsbandalag Evrópu. Taldi hann erfitt að ímynda sér, að ísland gæti uppfyllt allar skuld- bindingar sem fylgdu fullri aðild að bandalaginu.- Skýrir hann blað- inu frá því að íslendingar séu farn- ir að kanna möguleikana á tengsl- um við bandalagið, en tekur fram að það sé Alþingi sem verði að sjálfsögðu að taka lokaákvörðun í málinu. Samtal þetta átti ráðherrann við blaðið við komuna til Osló, en hann var þá á leið til að sitja fiski- málaráðstefnu Norðurlanda sem haldin verður í Þrándheimi. Sitja ellefu íslendingar ráðstefnuna, þeirra á meðal Davíð Ólafsson fiski málastjóri.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.