Vísir - 06.10.1962, Blaðsíða 3
WsYÍR . Laugardagur 6. október 1962.
-»
★
Það er tímanna tákn,
að um sömu mundir og
Eiríkur Kristófersson, sá
þjóðkunni skipherra læt
ur af störfum, tekur
Landhelgisgæzlan í þjón
ustu sína nýtt flugskip,
gljáandi hraðfleygt og
hentugt. Nú fljúga þeir
skipunum og hafa fljúg-
andi skipherra enda er
aðbúnaður gæzlunnar
orðinn slíkur að „togara
skipstjórarnir þora ekki
einu sinni lengur að
koma nálægt línunni“
og er þa mikið sagt.
Áður var það svo að erlendir
aðilar, vinir okkar Danir, gættu
landhelginnar, en nú er svo
komið að við erum farnir að
kenna stórveldunum aðferðirn-
ar. Bretarnir nota t. d. ennþá
skeiðúrið til að mæla staðsetn-
ingar togara, aðferðin sem land
helgisflugvélin Rán notaði fyrir
10 árum!
Við hlógum að þessu, frétta-
menn Vísis, þegar við heyrðum
þessa sögu í gær. Okkur var
boðið um borð í nýju landhelg-
isflugvélina Sif, og kynntumst
þar á skammri stundu herbrögð
um gæzlunnar. Við fengum að
fara fram í, og skoða kortið hjá
siglingafræðingnum og hlusta
á Pétur Sigurðsson útlista þá
aðstöðu sem landhelgisgæzl-
unni væri búin með nýju vél-
inni.
Þeir á vélinni gerðu meira að
segja heiðarlega tilraun til að
sýna okkur vinnuaðferðirnar út
í yztu æsar, en togararnir reynd
ust hinir leiðinlegustu og héldu
sig á löglegum slóðum. Hafa
líklega fengið hugboð eins og
Eiríkur eða „ömmuskeyti“ úr
landi. Þrjá sáum við, alla lengst
út I hafi. Skipherra á Sif er
Garðar Pájsson, og hann hefur f
áhöfn sinni 5 árvaka gæzlu-
menn. Vélin flýgur 180 sjómílur.
á klukkustund, á móti
105 þeirrar gömlu.
Leitað að línunni.
Flugferðin tók þrjá tíma og
hálfan.
Við lögðum fyrst á Hellisheið
ina og þræddum nýja Þrengsla-
veginn og hugleiddupi hvers
vegna ábyrgir aðilar væru eig-
inlega að leggja langa og leiðin-
Iega vegi, þegar hægt væri að
fara sömu leið á ekki lengri
týna en við gerðum. Eða hvað
finnst ykkur?
Við tókum stefnuna til Eyja
og síðan til Eldeyjar og drang-
ans. Við gláptum niður í sjóinn
leituðum að línunni og togara
fyrir innan — en fundum hvor-
ugt.
Skrítið það!
Nú var stefnt til iands aö
nýju, Reykjanesið, Akranes,
Mýrarnar, Breiðafjörður og Snæ
fellsnesið. Ég hirði ekki um að
lýsa leiðinni ,það þekkja þetta
allir. Hrjóstrug hraunin, háus-
litirnir og sveitabæirnir á víð
og dreif, rétt eins og þeirh hefði
verið dritað niður af smekk-
lausri kríu.
Snæfellsjökullinn skartaði
sínu fegursta og bauð okkur
byrginn, góðlátlegur og yfirlæt-
islaus — svona séður að ofan.
Kíkt yfir fósturjörðina.
Rétt þegar við skriðum yfir
jökulbunguna, lýsti Pétur Sig-
urðsson fyrir okkur viðbrögð-
um togaranna, fyrst þegar land-
helgisflugvélin kom til skjal-
anna. „Þeir áttuðu sig ekki á
Garðar Pálsson skipherra með sextantinn.
Leitað að landhe/gislínu
því í fyrstu, við fórum varla svo
I flugferð að við næðum ekki
togara i landhelgi. Þegar þeir
sáu aö okkur var alvara, hættu
þeir áð fara inn fyrir á daginn,
en læddu sér frekar á nóttinni.
Nú fara þeir helzt hvorki á mk.
né degi. „En það er athyglis-
vert," hélt Pétur áfram, „hvern-
ig viðbrögðin hjá togurunum
eru, þegar þeir sjá vélina koma.
v Þeir snúa undantekningarlaust
'alltaf stafninu á haf út, eins og
þeir séu í sakleysi sínu að Stíma
á miðin.“
Við Wktum enn niður á fóst-
urjörðina, þegar við renndum
yfir Borgarfjarðarbóndabæina
og leituðum að fólki, sem sæ'i
okkur. Ég veit nefnilega sjálf-
ur, hvernig ég fyllist öfund, þeg-
Þarna var einnig Eiríkur Kristófersson, og sést hann hér ræða við
Garðar Pálsson skipherra á Sif.
ar ég teé fagurtimaða flugdreka
renria’ ýfir höföi mér og njóta
útsýnisins.
Vonandi hefur einhver Borg-
firðingur litið öfundsjúkur upp
til Sifar í gær.
„Þaö er aC mörgu leyti merki-
legir menn, þessir togaraskip-
stjórar. Eitt sinn átti Landhelg-
isgæzlan að framfylgja sam-
þykktu frumvarpi og útbúa fiski
kort. Hún leitaði til togaraskip-
stjóranna og þeir voru jú allir
sammála um hversu bráðnauð-
synlegt væri að útbúa fiskikort.
Það versta var bara, að enginn
þeirra hafði neinar upplýsingar
um fiskimið!"
Og Pétur hélt áfram:
80 togarar við landið.
„Það fer líka mikið eftir veðr-
inu hvar togararnir halda sig.
Þeir eru úti í hafi þegar vel
Framhald á bls. 5.
í vélinni er 30 manna farþegarými og þar var mönnum boðið
upp á kaffi. Sjást hér þeir Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar og Torfi Hjartarson tollstjóri.
Um borð í Sif: í stýrisklefanum, frá vinstri: Henning Bjarnason, frá F. í. Ingi Loftsson vélamaður,
Guðjón Jónsson fiugmaður vélarinnar.
0