Vísir - 05.06.1963, Blaðsíða 1
„Það er indælt að starfa með
Framsóknarflokknum. Hann er
róttækur og góður" sagði Einar
Olgeirsson á Alþingi í janúar s.l.
'OSKÖP BKu 5leuc<4CfMe
okkae lopnih
mmm nyja vinstristjorn
Atkvæði sem greitt er Framsóknar-
flokknum við þessar kosningar jafngildir
atkvæði :il kommúnista. Það eru engar
ýkjur. Það er staðreynd. Ef stjórnarand-
staðan ber sigur af hólmi munu þeir Einar
Olgeirsson og Eysteinn Jónsson mynda
nýja vinstri stjóm.
Það er jafn víst og dagur fylgir nóttu
Lítum á hvemig tvíburasamstarf
kommúnista og framsóknar hefir verið á
síðustu missemm. Látum staðreyndimar
tala.
1) Á Alþingi í vetur mærði Einar
Olgeirsson mjög Framsóknarflokkinn og
sagði í ræðulok: „Framsóknarflokkurinn
er nú róttækur og góður og það er indælt
að starfa með honum. All frá 1924 minn-
ist ég þess ekki að svo gott hafi verið að
starfa með honum“.
2) Skömmu áður en Berlínarmúrinn var
reistur gisti Þórarinn Þórarinsson rit-
stjóri Austur Berlín í boði Ulbrichts. í
grein í Tímanum um förina sagði hann:
Hér er ég meðal vina.
3) Á þingi Alþýðusambandsins 1960
gengu Framsóknarmenn í lið með komm-
únistum og hindruðu með ólögum að
stærsta stétt landsins, verzlunarfólk,
fengi inngöngu í samtökin.
4) Eftir að Félagsdómur hafði ógilt þetta
framferði hindraði Framsóknarmenn enn
í samblæstri við kommúnista að verzlun-
arfólk fengi frumstæðustu mannréttindi,
atkvæðisrétt, á þinginu í fyrra.
5) Árið 1958 studdu Framsóknarmenn
kommúnista til meirihlutavalds í ASÍ,
sem þeir síðan notuðu til þess að brjóta
rétt á verzlunarfólki og efla til verkfaila á
næstu árum.
6) Á Alþingi 1960 sameinuðust Fram-
sóknarmenn og kommúnistar um tillögu
um grunnlínur landhelginnar. Nú vilja
báðir flokkarnir rifta í sameiningu land-
helgissamningnum frá 1960.
7) Síðast en ekki sízt stjórnuðu Fram-
sóknarmenn og kommúnistar landinu í
tvö ár, 1956—1958 í beztu samvinnu og
eindrægni. Þá sagði Hermann: Samhent-
ari stjórn hefir aldrei setið á íslandi.
Þetta sýnir að Framsóknarmönnum
er ekki treystandi.
Þegar á ríður eiga þeir og kommún-
istar eina sál. Þess vegna brýtur fylgi við
Framhald á bls. 5.