Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 8

Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 8
V í S I R . Mánudagur 8. júní 1S64. m Jcgeiandi Blaðautgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttasíjórar: Þorsteinn Ó. Thorarensen Bjðrgvin Guömundsson Rltstjórnarshrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald fer 80 krónur a mánuði t lausasölu 5 kr eint - Sími 11660 (5 Ifnur) Prentsmiðja Vfsis - Edda h.f I| 1 Hátíð lista | gær hófst hin mikla listahátíð, sem haldin er í til- efni þess að lýðveldið er senn tuttugu ára. Fer vel að rninnast hinna vonglöðu júnídaga 1944, er þjóðin gekk fagnandi mót framtíð sinni, á þennan hátt. í listum 1 istallast menning þjóðarinnar, listimar eru aðal liennar og sú eigind, sem veitir henni í sanni og raun (inkunnina sjálfstæð þjóð. Því lítils virði væri hið pðlitíska sjálfstæði, ef þjóðin ætti sér ekki sérgreinda nenningu og listalíf, sem greinir hana úr hafi þeirra nilljóna manna, sem umlykja hana í veröldinni. Þetta ! ;efur hið unga íslenzka lýðveldi skilið, enda er byggt þessum efnum á traustu bjargi fortíðarinnar. Mun ’ að mála sannast, að hér á landi byggi ekki sjálfstæð bjóð í dag, ef íslenzk menning hefði ekki átt bæði mátt >g seiglu á niðurlægingaröldunum. Þá væru hér aðeins aeinar fiskimannahræður annarri þjóð tilheyrandi. í nyndlist, leiklist og tónlist hefir staðið mikið blóma- tímabil undanfarin ár. Eru það vissulega góð undur, hve skjótt skínandi myndlistarmenn hafa vaxið hér úr grasi. Veitir sú sýning, sem opnuð vár í gær, vitneskju um hverhíg íslenzkir listmálarar sameina litadýrð ís- lenzkrar náttúru óhlutlægum formum málverksins. Á vettvangi bókmenntanna hefir hins vegar ríkt furðu mikil stöðnun, nema þá helzt í ljóðlistinni. Má það vera þjóðinni nokkurt áhyggjuefni ef þeirri þróun linn- ir ekki brátt, og skáld finna sér aftur söguefni í sam- tíðinni. Kjarabætur hinna efnaminnstu J>essa dagana hefjast samningar við verklýðsfélögin f Reykjavík og á Suðurlandi um kaup og kjör. Þeir samningar munu ekki reynast torveldir eftir að ramma samkomulagið milli ríkisstjórnarinnar og aðila vinnu- markaðsins komst á. Það samkomulag var sigur heil- brigðrar skynsemi og allir landsmenn munu fagna því að það komst á. Hins vegar er samkomulagið engin endanleg frambúðarlausn, eins og forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, benti á eftir undirritun samninga. Ráðherrann sagði: Um einstök atriði samninga skal ég ekki fjölyrða. Enginn skyldi halda að allur vandi væri leystur með þeim. Meira að segja geta sum atriði haft hættur í för með sér, ef úr böndum fer. En nú hafa verið sköpuð betri skilyrði en um langt skeið til að hafa hemil á verðbólgunni og er vonandi að allir ieggist áfram á eitt um að það megi takast. Þó að ég vilji ekki ræða einstök atriði, þá lýsi ég sérstaklega ánægju minni yfir því að nú hefir tekizt betur en fyrr >.ð gera ráðstafanir til bóta á kjörum þeirra, sem verst eru settir, án þess að aðrir geti byggt á því kröfur sér l il handa, því á þá er ekki hallað. Hótel Borg við Austurvöll. Hótelin í Reykjavlk full- skipuð í allt sumar Samkvæmt upplýsingum sem Vfsir hefur aflað sér f sambandi við ferðamannastrauminn í sumar hefur komið f Ijós að öll gistihús Reykjavíkur eru meira eða minna fullskipuð yfir allt annatímabilið í sumar og engin leið að koma gestum að til iengri dvalar. Gildir þetta jafnt um dýrustu sem ódýrustu gistihúsin, jafnt um Stúdentagarðana sem Sögu svo og öll önnur hótel. Ennþá mun að ,u vera hægt að komá manni til gistingar nótt og nótt á stangli, ef þannig hittist á, en hvarvetna svo á- skipað að ekkert hótelanna get- ur héðan í frá tekið gesti, sem vilja dvelja 4—5 nætur sam- felit eða lengur. Gildir þetta yfir tfmabilið frá sfðari hluta þessa mánaðar og allt fram til ágústloka, en þá er ferðamanna straumurinn hvað mestur til landsins. En jafnvel aðra tíma vors eða sumars getur verið erfitt að fá gistingu í okkar ástkæru höfuðborg. Það sannaðist m. a. um mánaðamótin síðustu, því að frá s.l. miðvikudegi og fram til sunnudagskvölds, var hvert ein- asta hótelherbergi í Reykjavík full?kipað og þá varð að leita í Hafnarbúðir til að fá gistingu fyrir framandi ferðalanga. Sömu leiðis varð að leita eftir gist- ingarmöguleikum á einkaheimil- Auk þeirra herbergja sem sum hótelanna hafa í eigin húsakynnum hafa þau herbergi til ráðstöfunar á einkaheimil- um víðsvegar um borgina. Þessi herbergjaskortur hjá gistihúsunum gefur greinilegast til kynna hvílík nauðsyn það er að koma upp nýju hóteli eða hótelum f Reykjavfk. Margir ímynduðu sér að þegar Hótel Saga tæki til starfa yrði vanda- mál þetta leyst um ófyrirsjáan- lega tíma, en reyndin hefur leitt allt annað í ljós. Samkvæmt upplýsingum sem Vfsir hefur aflað sér eru 295 hótelherbergi í. Reykjavík til umráða fyrir gesti. Þar af mun um 75% vera tveggja manna herbergi, Auk þess lætur nærri að hótelin hafi yfir 70—80 her- bergjum á einkaheimilum að ráða, sem þau geta stöðugt gripið til eftir þörfum. j®; W; Laxveiðin kéfst 1. júnl Stofnun veiðifélngs við Lngarfljót í undirbúningi Laxveiði hófst í fyrstu án- um mánudaginn 1. júnf. Þá var byrjað að veiða f Laxá i Kjós, Þverá í Borgarfirði, Norð- urá og Miðfjarðará. Blaðið átti nýlega stutt samt. við Þórð Guð jónsson, veiðimálastjóra og sagð ist hann enn ekkert hafa frétt af ve.'ði f þessum ám. Um þessar mundir vinna starfsmenn Veiðimálastjórnar- innar að merkingu gönguseiða í Úlfarsá, en allt frá því 1947 hefur Veiðimálastjórnin merkt gönguseiði f ánni. Þá gat veiði málastjóri þess, að undanfanð hafi verið stofnuð veiðiféiög. 1 vor var stofnað veiðifélag um Elliðavatn og þær ár sem í vatnið falla. Unnið er að þvf að endurreisa félag um Hörgá í Eyjafirði og verið er að stofna veiðifélag um Breiðdaisá. Þá er verið að undirbúa stofnun veiði félags á Héraði um Lagarfljót. Að undanförnu hefur verið sleppt laxaseiðum í Lagarfljðt. til þess að athuga um laxagöng- ur upp Lagarfoss. Laxastigi var gerður í fossinn fyrir allmörgum árum, en ekki er vitað til að lax hafi gengið þar upp. Þá gat veiðimálastjóri þess að f sumar yrði meira um stanga veiði á veiðisvæðum Ölfusár og Hvítár. í fyrra bar nokkuð mik- ið á smálaxagöngum og bendir það til þess að búast megi við all góðri veiði af miðlungslaxi, 8-12 pund að stærð. Margir vilja Síldarvertíðin fer nú senn í hönd. Mikil bjartsýni ríkir í röðum útgerðarmanna og báta- sjómanna og reyndar út fyrir þær raðir. Eftir- spurn eftir bátsrúmi er meiri nú, en nokkru sinni fyrr. Er það eink- um af hálfu pilta á aldr- inum 16—19 ára. Bátum hefur og mjög fjölgað jafnt því sem þeir sjálfir stækka og minni og eldri heltast úr lestinni. Samkvæmt upplýsingum frá Landssambandi ísl. útvegs- manna hafa aldrei borizt fleiri u.nsóknir um skipsrúm á síldar- báta en nú í vor og hefur þó alls ekki verið auglýst eftir slikum umsóknum. Er það einm ig í fyrsta skipti sem ekki er auglýst eftir fólki og stafar það að sjálfsögðu af því, hversu auð veldlega skipstjórunum gengur að manna báta sína. Bjartsýni útgerðarmanna kemur glöggt í Ijós f fjárhæð- um þeim, sem lagðar hafa verið í nýja báta á árinu. Má telja að um 30—40 nýir bátar verði á síldveiðum í sumar. Bát- arnir fara óðum stækkandi og er sá stærsti þeirra, Þórður Jónass jn, 300 tonn. Síðastliðið sumar var meðalstærð sfld- arbáta 110 tonn og í ár hafa þeir ennþá stækkað. Eldri og minni bátar heltast úr lestinni, þegar útgerðarmenn irnir endurnýja flotann á þenn- an hátt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.