Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 5
V í S IR . Mánudagur 8. júní 1964. 5 Snæfell Framh. af bls. 16 1100 mál í þriðju 1040 og nú síðast um 1100 og lagði aflann upp í Krossanesi. í síðustu veiði ferð var Snæfellið að veiðum um 70 mílur NA af Raufar- höfn. „Ég gizka á að nú séu um 40-50 skip komin á miðin,“ sagði Trausfi. „Þarna virðist vera mikið af síld, en hún er dreifð um töluvert stórt svæði. Það er erfitt að veiða síldina, því hún stendur yfirleitt djúpt og er stygg, en þetta er ein- göngu stór síld.“ Enn hefur ekki verið samið um verð á síldarmálinu, en ef vcvðið verður á milli 170-180 kr. má gizka á að hásetahluturinn á Snæfellinu sé orðinn um 25 þús. kr. á sl. fimm dögum, eða frá því að það fór á síldveið- Sildin Framh. uf bls 1 og I nðtt: Halldór Jónsson með 1110 mál, Ólafur Bekkur 1124, Helga Guðmundsdóttir 1194, Guð- mundur Péturs 1336, Bjarmi frá Dalvík 544, Hanr.es Hafstein 740, Grótta 862, Bára 672, Árni Magnús son 1060, Jón Kjartansson 1012 og Ólafur Magnússon, sem var með 1208 mál. í morgun biðu eftirtalin skip á Raufarhöfn, eða voru að byrja að landa: Gylfi annar með 450 mál, Heimir með 1000, Guðrún Jónsdótt ir með 1200 og Bjarmi annar með 1400 mál. SIGLUFJÖRÐUR: Hér er allt „klárt“ til að taka á móti síld, við bíðum aðeins og vonum, sagði Ragnar Jónasson, fréttaritari Vísis á Siglufirði í morgun. Héí verða 20 eða 21 sölt- unarstöð í sumar, en voru 22 í fyrra. Mannskapurinn var víða not aður s. 1. haust til að hafa allt til- búið á söltunarstöðvunum fyrir næstu vertíð, sem nú er að hefjast. Síldarverksmiðjurnar hér eru einn- ig tilbúnar að taka á móti síld, og fáein skip hafa þegar komið inn með síld til frystingar og í bræðslu, en bræðsla er ekki hafin. Aðkomufólk er sárafátt ennþá, sagði Ragnar Jónasson að lokum. IíÚSAVÍK: Til Húsavíkur hefir aðeins borizt einn síldarfarmur í sumar, það er fyrsta síldin, sem barst á land fyr- ir norðan, af Helga Flóventssyni, sagði Ingvar Þórarinsson, fréttarit- ari Vísis á Húsavík i morgun. Ing- var sagði eins og Ragnar, að allt væri tilbúið til síldarmóttöku, bæði verksmiðjan og söltunarstöðvarnar, sem verða þrjár í sumar eins og í fyrra. Scranton — Framh. af bls. 16 Roosevelts og Dwights Eisenhow- ers, en þeir líta og svo á, að Barry Goldwater muni ekki fylgja for- dæmi áðurgreindra þjóðarleiðtoga. Og nú safnast höfuðleiðtogarnir saman í Ohio-ríki til þess að reyna að leysa vandann. Fundinn sitja j m. a. Eisenhower fyrrv. forseti og i Nixon fyrrv. varaforseti. Barry Goldvvater situr einn'" r! síefnuna, sem haldin er vegna vanda, sem flokkurinn er k • í, eftir sigur Barry Goldwnf' Kalifomiu. Flotholtin sem Hótel Víkingur á að standa á, voru í gærmorgun dregin úr Reykjavíkurhöfn og upp í Langárósa. Þaðan verður þelm svo ekið þá ca. 35 kílómetra, sem eftir eru á ákvörðunarstað. Ámyndinni sést vélbáturinn Jón Bjarnason með flotholtin í togi. (Ljósm.: Albert Jónsson). I kvöld kl 8.30 flytur danski^ læknaprófessorinn dr. Ole Bent- zen erindi í Hátíðasal Háskól- ans sem nefnist Det Handikapp- ede Barn og Samfundet. Dr. Bentzen er yfirlækn’r og stjórn- andi Heyrnarlækningastöðvar danska ríkisins í Árósum og einn fremsti sérfræðingur Dana í háls-, nef- og eyrnasjúkdóm- um. I störfum sínum hefir hann haft mikil afskipti af vanheil- um börnum og mun segja frá 'skoðunum sínum á þvi hvern'g uppeldi og umönnun þeirra verður bezt hagað og hvernig þau aðlagast bezt daglegu lífi í þjóðfélaginu. Er óhætt að fuJl yrða að hér er um mjög merka heimsókn að ræða, og ættu all ir sem á þessu sviði starfa að hlýða á mál hins danska yfir- læknis. Framh. af bls. 16 Ávörp af svölum Alþingis- hússins fluttu Emil Jónsson sjávarútvegsmála.ráðherra, Valdi mar Indriðason frá Akranesi, fulltrúi útgerðarmanna, Örn Steinsson vélstjóri, fulltrúi sjó- manna, og loks Pétur Sigurðs- son, alþm., form. sjómar.nadags- ráðs, sem afhenti heiðursmerki sjómannadagsins. Að pessu sinni voru hins vegar ekki af- hent nein björgunarverðlaun, þar sem ekki varð fundin nein meiriháttar björgunaraðgerð, sem uppfyllti þau skilyrði, sem sett eru fyrir verðlaunaveitingu. Við athöfnina á Austurvelli lék Lúðrasveit Reykjavíkur og Erlingur Vigfússon tenórsöngv- ari söng. Nú stefndi mannfjöldinn nið-.j ur að höfn til þess að horfa á kappróður, sem fór fram yzt á höfninni fyrir innan innsigling- una. Kepptu þar átta sveitir, þar af- 4 skipshafnir, 2 kvennasveit- ir og 2 unglingasveitir. Sigur- vegarar í skipshafnakeppninni urðu sjómenn af Guðmundi Þórðarsyni, en skipstjóri þeirra, ‘ Haraldur Ágústsscn, sat við stjórnvölinn. Er þetta í fimmta sinn í röð, sem áhöfn af þessu skipi verður hlutskörppst. Önn- ur varð skipshöfnin á björgun- arskipinu Gísla J. Johnscn, en hún er skipuð meðlimum slysa- varnardeildarinnar Ingólfs. Um kvöldið voru fagnaðir og danssamkomur si.'manna á ýms- um skemmtistöðum í bænum. Þar var mest sjömannadagshóf- ið að Hótel Sögu. Framh at bls I skáld frá Fagraskógi, látizt. Heiðruðu allir viðstaddir minn- ingu þessara og annarra Iátinna listamanna með því að rísa úr sætum. Ræða menníamála- ráðherra i Þá flutti Gylfi Þ. Gíslason, menritamálaráðherra, ávarp og talaði um nauðsyn þess. að e.fla listirnar. Hann sagði m. a.;-áð vísindi og listir væru työ stór- veldi og-væri öllum hollast að valdajafnvægi ríkti milli þeirra stórvelda, án hvorugs mættu menn vera. Ráðherrann nefndi fjöldamenninguna og sagði, að hún yrði að byggja á einstakl- ingsbundinni list, ef hún ætti að vera sönn menning, og að því bæri að stefna. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri í Reykjavík, flutti einnig ávarp. Hann kvað listina og borgina hvor annarri háoa, list- in væri borgarbúum lífsnauð- syn. Borgarstjóri þakkaði lista- mönnum fyrir þeirra mikla fram lag til menningarlífs borgarinn- ar. Orð Nóbels- skáldsins. Halldór Laxness flutti aðal- ræðu dagsins, sem fjallaði að miklu leyti um smáþjóðir, svo sem Gyðinga, Forn-Grikki og ís- lendinga, sem hefðu skapað hin mestu menningarverðmæti. Eggj aði hann þjóðina að vera menn- ingu sinni trú og láta ekki stór- þjóðirnar útrýma okkar sér- stöku menningu. Þá nefndi Halldór Laxness ýmisleg verkefni, sem honum virtust aðkallandi á sviði bók- mennta, og of lengi hefði dreg- izt að vinna að, svo sem vís- indalega útgáfu á Sæmundar- Eddu, ú|gáfu Miðaldakvæða og útgáfu heilagra manna sagna. 1 „Sá sem er listamaður af innri köllun sannfreringu og samvizku fyrir honum er sá staður beztur þar sem forsjónin hefur sett hann. Hann er ó- háður auglýsingu og gæti ekki orðið meiri meistari þó hann væri af öðru þjóðerni. Sagan sýnir að listamenn unnu bezt þegar þeir voru óþekktir af he'minum og vanmetnir af ná- grenni sínu. Nöfn hinna á- gætustu meistara hófust ekki til stjarnanna fyrr en löngu eft- • ir áð bein þeirra voru orðin að Vladimir Ashkenazy. ,. .ft .. Ashkenazy heldeir . dæmdu þá: úri l£ik. Sú !(e|ms-f'. f^$n8dKa " f frægð sem auglýsingin skapár í dag er oft gleymd á morgun, af því að tíminn er vitrari list- dómari en auglýsingakerfi'ð. Listaverki liggur ekkert á.“ Að lokinni ræðu Halldórs Laxness lásu þeir Guðmundur Gíslason Hagalín, Guðmundur Böðvarsson og Þórbergur Þórð- arson upp úr verkum sínum, og þessari setningarhátíð í Háskóla bíói Iauk með hljómleikum. Flutt voru tvö verk: Minni íslands, forleikur fyrir hljómsveit og kór eftir Jón Leifs, við texta eftir Einar Ben. og Jónas Hallgríms- son, og Lofsöngur fyrir hljóm- sveit og kór, eftir Pál ísólfsson, við texta eftir Davíð Stefánsson. Stjórnandi var Igor Buketoff, en flytjendur: Sinfóníuhljómsveit ís lands, söngsveitin Fílharmónía og blandaður kór Fóstbræðra. Öllum Iistamönnum, sem fram komu, var þakkað með dynjandi lófataki. *f.. ( s Rússneski píanóleikarinn Vladi- mir Askenazy heldur píanótönleika í Háskólabíói n. k. miðvikudags- ltvöld kl. 9 e. h. Verða það einu einleikstónleikarnir, er hinn frægi rússneski píanóleikari heldur í Reykjavík. Akureyri Gerið skil í hnatt- ferðarhappdrættinu Dregið verður í happdrætti SJálfstæðisflokks- ins 10. júní, eða á miðvikudaginn kemur. Vinn- ingar eru hnattferð fyrir ívo að verðmæti 250 þúsund krónur og þrjár bifreiðir, SAAB, DAF og Willys, samtals að verðmæti 450 þúsund krónur. Sjálfstæðismenn, sem fengið hafa happdrættis miða, eru beðnir að gera skil í dag. Happdrættið er til. eflingar Sjálfstæðisflokkn- um 0g fjölbreyttu starfi Iians. i ■ a ■ o ■ i Framh. af bls. 16. gærmorgun voru skip og bátar í höfninni á Akureyri skreytt með flöggum. Sex bátar frá Ak- ureyri eru farnir á síldveiðar og voru því færri bátar inni en vant er á sjómannadaginn. Guðs þjónusta var í gærmorgun í Ak- ureyrarkirkju og predikaði Pét- ur Sigurgeirsson. KI. 1.30 hóf- ust útihátíðahöld við Sund laugina. Séra Pétur Sigurgeirs- son hélt ræðu. Keppt var i boðsundi, björgunar- og stakki- sundi. Sigurvegari I björgunar- sundi var Björn Arason, þjónn, en I stakkasundi Bergur Aðal- steinsson. Piltar úr sundfélaginu Óðni kepptu í boðsundinu og synt var í skyrtum. Tveir gaml- ir sjómenn, Þorsteinn Stefáns- son og Kristján Sigurjónsson voru he'ðraðir. Eitt aðalatriði hátíðahald- anna á Akureyri var björgunar- sýning, sem fram fór á Akur- eyrarpolli. Nokkrir hermenn úr björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli sýndu björg- un úr sjó með þyrlu. Varðsitip- ið Óðinn lá úti á pollinum og . lenti þyrlan nokkrum sinnum á þilfari varðskipsins. Mikil þátt- taka var í hátíðahöldunum, Sjó mannadagsráðið sá um al)a framkvæmd hátíðahaldanna, en formaður þess er Ottó Snæ- björnsson. Framkvæmdastjóri ráðsins er Stefán Snæbjörns- son. wsemmtœmuammiiaBia^wqB&mamr™''

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.