Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 4
4 V í S IR . Mánudagur 8. j'úní 1964., ITINA ’ :/« >■ * Fjórum sinnum sterkbyggdari en venjulegt er.. CONSUL CORTINA hefur unnið yfir .IOO alþjóðlegar aksturskeppnir- sem er meira en nokkur önnur bifreiðategund hefur gert. M. a. vann CORTINAN SAFARIKEPPNINA. erviðustu keppnisþolraun sem fram fer í heiminum. :y*ss | í bók hoEis — Framh. at' bls. 9 hvað hlýtur brátt að sligast und- ir, heldur sé hér einnig mikil- vægt tækifæri safnaðarfðlki að vinna hagnýtt kærleiksstarf, og efla um leið safnaðartilfinning- una og bróðurandann meðal safnaðarmanna. Fyrir nokkrum árum snaraði ég á íslenzku fyrir Brynleif heitinn Tobíasson litl- um bækling eftir hinn mæta kirkjuhöfðingja Norðmanna, Karl Marthinussen biskup, er áfengisvarnaráð ’ gaf út undir nafninu Frelsi og ábyrgð. Þar eru færð ljós og skýr rök að skyldu og ábyrgð kristinna manna í þessu efni. 12. Góðtemplarareglan er á- hrifalítil eins og stendur. Hvers vegna? Getur hún sjálfri sér um kennt? Ég hygg að versti þröskuldur á vegi alla bindindisstarf nú sé áfengistízkan, sem áður var á minnzt. Vil ég í því efni vísa til gagnmerkrar greinar, er ný- lega birtist um það mál eftir Helga Ingvarsson yfirlækni. Það kostar meiri staðfestu og sjálfstæði að standa gegn þeirri tízku, en allur þorri fólks hef- FLUTTIR Erum fluttir á Skólavörðu- stíg 41. FILMUR OG VÉLAR Skólavörðustíg 41 Hann er gæddur dæmafáum styrkleika í bygg- ingu, eins og ótal akstursprófanir hafa sýnt — og því vel valinn fyrir íslenzkar aðstæ'ður. Hann er ótrúlega spameytinn, hefur rúmgóða farangursgeymslu, og er búinn margs konar þægindum, sem aðeins fæst í dýrari bílum. Ný tegund mælaborðs, fóðrað, stílhreint os bægilegt. UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMl 22470 ur á að skipa, og munu eiga um það óskipt mál bæði ungir og gamlir. Hvort Góðtemplara- reglan geti sjálfri sér um kennt áhrifaleysi sitt, fer eftir því, hvað í spurninguna er lagt. Að mínu viti eru starfshættir regl- unnar og skipulag svo fullkom- ið starfsform, að ekki hefði bet- ur tekizt til undir öðrum form- um. Það sannar starfsemi regl- unnar undanfarna átta áratugi hérlendis, og enn ber hún höf- uð og herðar yfir öll önnur bind indissamtök hér á landi. Hitt er annað mál, að félagar hennar hafa ekki allir notfært sér það form og þau tækifæri, sem þeim hafa boðizt til góðra verka, og á ég sjálfur í því efni sammerkt við flesta aðra. En því má held- ur ekki gleyma, að ríkisvaldið, sem eys eitrinu út yfir þjóðina, hefði átt að veita reglunni, og öðrum bindindissamtökum, margfalt rífiegri aðstoð til starf- seminnar en verið hefur. Að lokum spyr ég sr. Björn — og það er 13. spurningin: 13. Fyrir utan bindindi hvers einstaklings — hvað telur þú þá líklegast til góðs árangurs í áfengisvandamálinu? Þrettán hefur jafnan verið mín happatala. Nú vildi ég mega treysta því, að í þessari grein birtist sú lausn, er leysti allan vanda áfengismálsins, sem er að verða mesta heilbrigðisvanda- mál þjóðanna, fyrir utan það sem tekur til hamingju manna og fjárhagsafkomu. Ég veit hver sú lausn er. Það verður enginn áfengissjúkur, nema hann neyti áfengis. Bindindi er því algild lausn vandans fyrir einstakl- inginn. En sumir eru svo gerð- ir, að aðrir verða að hafa vit fyrir þehn. Frá þeim á að taka voðann. Því er lausnin fyrir þjóðina og þjóðirnar — bann gegn framleiðslu, innflutningi og sölu áfengis. Það sáu stofnendur Góðtemplarareglunnar fyrir meir en hundrað árum. Nú er um breytt að því leyti, að allur heimurinn er orðinn svo að segja ein þjóð, sé miðað við samgöngur. Skynsamlegast er því alheimsbann. En einstakt stórveldi, eins og Indland, hef- ur þó komið á banni hjá sér, og framkvæmt það með árangri. þess vegna ætti það jafrivel að vera framkvæmanlegt fyrir okk- ur, og það er trú mfn, að sú verði raunin, þótt bíða kunni enn um sinn. — G. Br. Verktakar — léttið vinnuna! ALCON mótordælurnar eru ómissandi eign fyrir sveitar- og bæja$élög, og flesta verktaka. Við byggingar- og hafnarframkvæmdir og ýmis önnur störf, þar sem miklu magni af vatni eða sjó þarf að dæla, eru ALCON mótor- dælurnar sjálfsagðar. ALCON 2” dælan er einmitt byggð fyrir mikil afköst við erfiðustu aðstæður. Afköst um 50.000 ltr. á klst. / ÚTVEGUM £ ALLAR GERÐIR OG % J STÆRÐIR AF DÆLUM® GiSLI JÓNSSON & GO.HF. SKÚLAGÖTU 26 SIMl 11740 Vegna hins glæsilega útlits og mörgu góðu eig- inleika, hefur CONSUL CORTINA verið met- sölubíll á Norðurlöndum. Hann er stærsti bíllinn í þessum verðflokki — rúmgóður og þægilegur, með góðu bili milli sæta, sem gefur gott rými fyrir fæturna. Val um gírskiptingu í gólfi eða á stýri. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.