Vísir - 31.08.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 31.08.1966, Blaðsíða 1
Kvöldferðir yfír SURT Flugsýn flýgur yfir gosstöövarnar í Ijósaskiptunum Meðán þýzkir filmarar gera eldfjall af sandöldu austur undir Eyjafjöllum magnar Surtur sinn svarta galdur, sem hann hóf 19. ágúst eftir alllanga hvíld. Hraun kvikan dansar um barma nyrzta gígsins eins og magnað kynja- lyf í seiðkatli. Af og til dregur örlítið niður í Surti, rétt eins og hann sé að safna kröftum í næstu gusu og sfðan magnar hann leikinn og glóandi hraun- slettumar hefja sinn darraðar- dans upp á gígbarmana og vella síðan niður í sjó með ógurlegu hvissi og gufumökkinn leggur hátt í loft upp. 10 rúmmetrum spýr Surtur úr sér á sekúndu, Framh. á 5. sföu. Ráðstefna Sam- bands ísl. sveitar- félaga sett í morgun í morgun kl. 10 var ráðstefna Sambands ísl. sveitarfélaga um gatnagerð og skólabyggingar sett í Tjarnarbúð í Reykjavík. Hófst ráð- j stefnan með því, að samgöngumála- ráðherra, Ingólfur Jónsson, flutti ávarp. 1 dag verður á ráðstefnunni eink | um fjallað um gatnagerð úr varan- Iegu efni í kaupstöðum og kaup- túnum. Framsö|uerindi flytja Sig- fús Örn Sigfússon, deildarverkfræð ingur, hjá Vegagerð ríkisins, Ingi 0. Magnússon gatnamálastjóri Reykjavíkurborgar og Stefán Her- vnannsson, verkfræðingur hjá borg- arverkfræðing'i. Síðdegis í dag munu fulltrúar á ráðstefnunni skoða malbikunarstöð borgarinnar og pípugerð Reykjavíkurborgar, en bæði þessi fyrirtæki eru í Ártúns- höfða. Fiskifluga í sjónvarpinu Menn hafa lengi velt fyrir sér hver muni fyrstur koma fram í íslenzka sjónvarpinu tilvonandi. — Fyrsta veran hefur þó þegar birzt. Var það fiskifluga, sem sprangaði um skertninn I rúmar þrjár mínútur skömmu eftir kl. 5 í gær. Birtist flugan á stilli- myndinni sem sjónvarpið hefur sent út undanfarið. Ritstjóraskiptí við Vísi Dr. Gunnar G. Schram. O itstjóraskipti verða við dag- blaðið Vfsi í dag. Dr. Gunn- ar G. Schram lætur af ritstjóm blaðsins og tekur viö nýjum störfum i Utanríkisráðuneytinu. Jónas Kristjánsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri. Dr. Gunnar G. Schram hefur verið ritstjóri Vísis siðan 1961 og var að ýmsu leyti brautryðj- andi í blaðamennsku hér á landi. Blaðið tók miklum stakkaskipt- um undir stjórn hans og jókst kaupendatala þess mjög. Vill út- gáfustjóm Vísis flytja dr. Gunn- ari hinar beztu þakkir fyrir vel unnin störf á undanfömum ár- um og óskar honum allra heilla í nýju starfi, sem hann mun taka við. Útgáfustjómin hefur ákveðið aö ráða tvo ritstjóra og hefur annar þegar verið ráðinn, Jónas Kristjánsson B.A., sem verið hefur fréttastjóri um nokkurt skeið. Jónas er fæddur í Reykjavík árið 1940, sonur hjónanna Krist- jáns læknis Jónassonar (Krist- jánssonar læknis) og öniiu Pét- ursdóttur. Hann er stúdent frá M.R. 1959 og hefur B.A.-próf í sögu og landafræði frá H.í. Þá hefur hann stundað nám i 2 ár í félagsfræði við háskólann í V-Berlín. Hann hefur stundað biaðamennsku um alllangt skeið og verið, eins og fyrr segir, fréttastjóri Visis að undanfömu. Útgáfustjóm Vísis. * Dr. Gunnar G. Schram ritar: „Margs er að minnast frá viðburðaríkum og ánægju- legum starfsárum við rit- stjórn Vísis, nú þegar ég hef störf við önnur verkefni, sem mér eru hugfólgin. Ekki sízt er það þáttur blaðsins í að vinna þeim mál- um brautargengi, sem rit- stjórn þess og lesendur hafa talið nokkurs virði. Jafn- framt minnist ég starfsins við að stækka Vísi og gera hann að nýtízkulegu dagblaði með vaxandi iesendahóp í Reykjavík og út um lands- byggðina. 1 því starfi, og öðrum ritstjórnarstörfum, hefi ég notið prýðiiegrar sam- vinnu starfsmanna ritstjórn- arinnar og ágæts stuðnings fjöimargra annarra vina Jónas Kristjánsson. minna og velunnara blaðsins um land allt. Eru mér efst í huga þakkir ti. þeirra allra þegar ég hverf að öðrurn verkefnum. Eftirmanni mínum í starfi óska ég góðs gengis og blað- inu velfarnaðar á komandi árum“. Gunnar G. Schram. SOL TUN 60 ÞUS. TUNN- UM MEIRIÍN í FYRRA Heildaraflinn orðinn 90 jbús. lestum meiri Sildaraflinn í vikunni sem leið var tæplega 50 þús. lestir oj> er þá heildaraflinn í sumar orðinn 299. 677 lestir, sem er 90 þús. lestum meira en í fyrra. Heildarsöltun nem ur nærri 190 þús. tunnum miðað yið miðnætti á laugardag og er það 60 þús. tunnum meira en í fyrra. — Þetta mun ein bczta veiði vikan í sumar. Fer liér á eftir skýrsla Fiskifélagsins um síldveið- amar: BLADID I DAG Bls. 2 Nýjar íþróttafréttir. — 4 Frá ungu fólki. — 5 Erlendar fréttir. — 7 Jóhann Hafstein ræð ir um iðnaðinn. — 8—9 Svipmyndir frá Iðnsýningunni. Síldveiðin sl. viku var afbragðs góð. Fyrstu fjóra daga vikunnar var sólarhringsaflinn frá 5.800 til 16.1000 lestum, þá kom brælá og næstu tvo daga var afli sáralítill en á laugardag var veður orðið sæmi- lega gott og var sólarhringsaflinn til sunnudagsmorguns 12.869 lestir. Veiðisvæðin voru tvö annað var 150 sjómílur NA af ' irhöfn en hitt 70—100 sjómíluur A og NA að N af Dalatanga. Aflinn sem barst á land í vik- j unni nam 49.843 lestum. Saltað var í 69.601 tunnu, frystar voru 117 lestir . > 39.464 lestir fóru í bræðslu. Heildarmagn komið á land sl. laugardagskvöld nam 299. 677 lestum og skiptist þannig eftir i verkunaraðferðum. í salt 189.064 uppsaltaðar tunn- ur (27.603 lestir). 1 frystingu 629 | lestir. í bræðslu 271.445 lestir. Auk þessa hafa borizt á land frá erlendum veiðiskipum 1030 upp- saltaðar tunnur og 4.263 lestir í I bræðslu, þar af 487 uppsaltaðar tunnur og 1.568 lestir í bræðslu síðastliðna viku. Ásama tíma f fyrra var heildar- aflinn sem hér segir: í salt 129.549 tunnur. í frystingu 7.592 tunnur. í bræðslu 1.407.143 mál. Samtals 209.698 lestir. Hæstu löndunarstaðir eru þessir: Raufarhöfn 49.435 lestir. Seyðis- fjörður 62.747 lestir. Neskaupstað- ur 39.526 lestir. Reykjavík 29.938 lestir. Eskifjörður 22.096 lestir þar af 455 frá erl. skipum. Siglufjörður 15.074 lestir. Krossanes 13.844 lest- ir. Fáskrúðsfjörður 12,751 lestir. Vopnafjörður 12.624 lestir. Borgarsfjórnar- fulltrúum boðið til Hafnar Dagana 3.—8. september munu fulltrúar frá borgarstjöm Reykja- víkur vera í opinberri heimsókn í boði borgarstjómar Kaupmanna- hafnar. Þeir sem taka þátt í heimsókn- inni eru: Geir Hallgrímsson borgar stjóri, frú Auður Auðuns forseti borgarstjórnar og Gísli Halldórs- son, Guömundur Vigfússon og Kristján Benediktsson, borgaráös- sett í Stokkhólmi í morgun Norræna lögfræðingaþingið hið 24. í röðinni var sett í Stokkhólmi I í morgun. AHmargir íslenzkir lög- fræðingar sitja þingið meðal þeirra dr. Bjarni Benediktsson forsætis- ráðherra. Þinginu lýkur þann 2. september og eru daglega flutt erindi og um- ræður fara fram. Á morgun flytur Páll S. Pálsson hæstaréttarlögmaður framsöguer-! indi er fjallar um rétt dómstólanna; til þes„ að athuga hvort lög brjóti í bága við stjórnarskrána og Þór Vilhjálmsson ræðir um gerð dóma. í morgun hófst þingið meö fyrir- lestri forseta hæstaréttar í Svíþjóð Sture Petrén um norræna og al- þjóðlega löggjöf. . tonn Á miðnætti síðastliðins laugar-| lestir, < en skipstjóri á honum er dags voru 160 skip komin yfirjEggert Gíslason. Skipstjóri á öðr- yfir 100 tonna afla á síldveiöun- utn aflahæsta bát.nurn er Þorst°inn um eystra. Aflahæsta skipið er, bróöir F.ggerts, Það er Jón Kjart- Gísli Árni, Revkjavík með 5.454! ansson, Eskifirði, með 5,196 lestir. Eru það einu skipin, sem komin. eru yfir 5 þúsund lestir. Sex skip önnur eru komín vfir 4 þúsund lestir eða sem svarar 28000 málum: Snæfell Akureyri 4.638 Óskar Halldórsson Reykjavík 4.236 Jón Garðar Garði 4.217 Sigurður Bjarnason Akureyri 4.192 Þórður Jónasson Akureyri 4.638 Ásbjörn Reykjavík 4.078

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.