Vísir - 11.06.1968, Blaðsíða 12

Vísir - 11.06.1968, Blaðsíða 12
12 VÍSIR . Þriðjudagur 11. júní 1968. — Vissi hann að þú ætlaðir að mæta, eins og umtalað var? spurði ég- — Já, hann vissi það. Ég sagði hanum berum orðum, að ég ætlaði ekki að sitja auðum höndum og athafnarlaus, og þá bauðst hann til að lána mér bílinn sinn. Lopez lofaði að gera lögreglunni og enska konsúlnum í Malaga aðvart, ef ég yrði ekki kominn aftur fyrir klukk- an tólf á miðnætti. — Vissi Carlos að Peter hafði fengið orð frá Roderiquez um að kæra ekki til lögreglunnar? — Já., en hann •skildi — alveg eins og ég — að það var ekki ann- að en blekking. Það fór hrollur um mig. — Ég er hraedd um að þér skjátlist, John. Ég... Allt 1 einu heyrðist mannamál fyrir utan gluggana. Ég hljóp að gluganum í skjól við gluggatjaldið og gaegðist út. Roderiquez og menn irnir tveir stóðu skammt frá hús- inu. Ég hafði tekið eftir að annar þeirra hét Juan og hinn Pedro. Þeir voru háværir, og auðheyrt að þeir voru að rífast. Það leyndi sér ekki að Juan og Pedro voru óánægðir með að á- form Roderiquez hafði farið út um þúfur, og áð prófessorinn hafði ekki verið framseldur, eins og um- talað var. Ég heyrði að Juan sagöi: — Hún er ensk, senor — hennar verður saknað f Torremolinos — vinir hennar fara til lögreglunnar og hún leitar um alla sveitina .. . — Og geri lögreglan það, þá finnur húri hvorki stúlkuna né Eng- lendinginn, tók Roderiquez fram i. — Það er nóg af gjám hérna nærri — og ef þau hrapa, veit enginn annað en þau hafi orðið fyrir slysi. Það verður aldrei hægt að sanna annað. Mér fannst blóðið frjósa i æðun- um. Ég reyndi að heyra meira, en hann hélt áfram, kuldalega. — Við höfum enn tveggja tíma umhugs- unarfrest. Ertu viss um að enginn hafi veitt þér eftirför hingað? —Alveg hárviss, senor, sagði Pedro ákveðinn. — Jæja, Ég hugsa að senor Pet- er kalli ekki á lögregluna eða leyfi nokkrum að gera það, fyrst um sinn. Og þó hann geri það verður enginn hægðarleikur að finna okk- ur. Nei, ég verð að finna ráð til að sannfæra senor Petér, um, að mér sé alvara. Or því að hann sannfærðist ekki í dag, verð ég að 1 tala betur við hann . .. I „SLYS". Ég sneri frá glugganum er ég ÝMISLE G T ÝMISLEGT Tökum að okkui hvers konai múrbroi og sprengivinnu I húsgrunnuro og ræs um. Leigjum út loftpressur og vfbra steða. Vélaleiga Steindórs Sighvats lonai Atfabrekku við Suðurlands brairt, slmi 10435 GlSLl JÓNSSON Akurgerði 31 Sfmf 35199 Fjölhæf jarðvinnsluvél, annast lóðastandsetningar, gref hús- grunna, holræst o. fL íl K.UR4ALI S KONAR KLA-ÐNINGAR kljót og vönquð vinna tiMVAL AF ÁKLÆÐIJM LAUöAVEO 62 - SlM' 10825 HEIMASlMI 83634 ÖLSTRUN Jj sá Roderiquez skilja við mennina og stefna inn í húsið — Hvað eru bófarnir að rífast um? sagði John. Ég sagði honum það skjálfandi og hann fölnaði. Ég sá að hann var eins hræddur og ég núna. Hann stóð með erfiðismunum upp af sófanum og ég fór til hans og studdi hann. — John, viö verðum að komast héðan strax. — Heldurðu að ég viti það ekki? — En ertu maður til þess? spurði ég kvíðandi. — Geturðu hlaupið, ef okkur tekst að komast út úr húsinu? —■ Ætli ég geti það ekki. Dyrnar opnuðust og Roderiquez kom inn. — Þér neyðist til að gista hjá mér í nótt, og það getið þér þakkað senor Cobbold. Það var leitt að hugur hans til yðar reyndist ekki nógu sterkur til þess, að hann héldi loforð sitt. Það hefur verið búið um yður í her- berginu, sem þér voruð í áðan. Hann leit á John með fyrirlitn- ingarsvip. — Þér, senor, getið leg- ið þarna í sófanum. Ég heyrði að John andaði titt. — Mér dettur það ekki í hug. Hann gekk að Roderiquez með kreppta hnefana og eldur brann úr augunum. En hann hefði getað sparað sér það. Roderiquez lagði hann kylliflatan. — Senorita? Sveitakonan stóð í dyrunum og benti mér. Ég horfði á John, sem var að reyna að brölta á fætur. Mig tók sárt að sjá hann í þessu niðurlægingarástandi, og ég fann að honum var illa við að ég sæi það. — Það er bezt að þú farir, Joyce, sagði hann. Ég neri hendurnar. — Ég vil ekki fara frá þér, John. Augu okkar mættust í svip, en svo feit ég undan. — ' Við sjáumst á morguh, sagði hann og réyndi að sýnast glaðleg- ur. — Já. sagði ég og sneri frá og fór á eftir konunni. Rúmið var uppbúið og náttkjóll lá á yfirsænginni. Diskur með köldu keti pg ávöxtum stóð á bakka við rúmið. Ég minntist þess að ég hafði ekkert borðað siðan í morgun. En mig langaði ekki i mat. Dyrunum var lokað eftir mér — og aflæst. Ég lét hendumar lafa og barðist við að missa ekki stjóra á mér. Ekki bætti það úr skák, ef ég hefði sleppt mér. Ég hlustaði og hlustaði en hvergi heyrðist hljóð. Ég leit á’ klukkuna. Hún var rúmlega ellefu. Ég gekk að glugganum og gægðist út. Bil- arnir tveir stóðu enn á hlaðinu. Hvar mundi Roderiquez veffa núna. Pedro og Juan höfðu liklega ver- ið settir á vörð, til þess að gæta þess að við John slyppum ekki. En þama var ómögulegt að sleppa. Ég reyndi að opna glugg- ann en hann var læstur. Allt var lokað kringum mig. Ég lagðist á rúmið og mun hafa sofnað, því að ég hrökk upp er ég heyrði að lyklinum var snúið 1 læsingunni. Það var sveitakonan sem stóð í dyrunum og benti mér. Ég staulað- ist á fætur og elti hana niður. Roderiquez tók á móti mér í stof unni. Jo'hn lá enn endilangur á sófanum. Hann brosti aðeins og ég gekk til hans og tók í höndina á honum, en hann þrýsti að henni. — Mér þykir leitt að þurfa að trufla svefninn yöar, sagði Spán- verjinn. — En nú er ég ráðiim í hvað gera skal. Ég sfmaði til senor Cobbolds til þess að gefa honum siðasta tækifærið. Mér var sagt að hann væri ekki beima, en ég hugsa fremur, að hann hafi ekki viljað tala við mig. Ég lét skila til hans, að hann ætti að hringja í á- kveðið númer fyrir miðnætti. Nú er klukkan yfir tólf og hann hefur ekki hringt. Líklega er hann að reyna að finna heimilisfang þessa númers. En þegar hánn hefur fund- ið það, er fuglinn floginn. Ég verð að fara úr þessu húsi þegar í stað Þess vegna ... Hann baðaði út höndunum. — þér skiljið vonandi nú, að þér eruð mér Þrándur í Götu, senorita. . .Þér og senor verðið sett f bfl senors.... Hann brosti. — Þér fáið ekki tækifæri til að mótmæla. Pedro og Juan sjá um það. Þessi bíll finnst i gjánni á morgun, senorita. Slys! Þetta er ekki f fyrsta skipti sem bfll hrapar fram af hengiflug- inu. Ég fann að John tók fastar um höndina á mér. Stofan hringsnerist fyrir augunum á mér og ég hélt að það væri að lfða yfir mig. Ég heyrði drungalega röddina áfram: — Ég sé lítið eftir þessum enska sauð, en það er sárt að þurfa að losa sig við svona tðfrandi -seno- ritu. BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ! Bónstöð, bifreiðoþjónusta LAUGAVEGI118 (ekið inn frá Rauðarárstig). Veitir yður aðstöðu til að þvo og bóna bif- reið yðar. einnig tökum við að okkur þvott, hreinsun á sætum, toppum, hurðarspjöldum Oeðurlíki). Bónum og ryksugum. SÍMl 21145. HOLPTIGHT. J4NE! NOTHING EUSE WE CAN v 00. NOW! ir EdGAJK RlCF tOBAOUGHS „Haltu þér fast, Jane, það er það eina sem við getum gert.“ UIIHURÐIR SVALAHURÐIR BÍLSKÚRSHURÐIR HURDAIDJAN SF. AUDBREKKU 32 KÓPAV. SÍMI 41425 Juðn\ngs^,nna dSEN SÍMI ®|Eííj fjr==mtA umm BAMOftRABSrte 31 SULH' 23022 BELTIog BELTAHLUTIR áBELTAVÉLAR BERCO Keðjur Spyrnur Framhjól Botnrúllur Topprúllur Drifhjól Boltar og Rær jofnan fyrirliggjandi BERCO er úrvals gæðavara ó hagstæðv verði EINKAUMBOÐ ALMENNÁ VERZLUNARFELAGIÐ f SKIPHOLT 15 — SÍMI 10199

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.