Alþýðublaðið - 27.05.1967, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.05.1967, Blaðsíða 1
Laugardagur 27. maí 1967 ~ 48. árg. 124. tbl. - VERÐ 7 KR, Framlög til skólabygginga hækkuð um 198% frá 1956 FRAMLÖG ruisins til skóiabygginga liafa aukizt stórkostlega á undanförnum áratug. Á fjárlögum ársins 1956 voru fjárfestingar til skólabygginga 18 milljónir kr. í fyrra var hliöstæS upphæð 143 millj kr. Ef talan er umreiknuS meS breytingu á vísitölu bygging- arkostnaSar, voru framlögin til skóiabygginga í fyrra 198% hærri en þau voru 1956. Veriö er aS semja allsherjar menntamálaáætlun fyrir íslend- inga, og annast Efnahagsstofnunin og menntamálaráSuneytiö þaS verk. Sett hefur veriS ný löggjöf um greiSslu kostnaSar viö skóla, sem byggSir eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum. Eru hinar nýju reglur miklu einfaldari en fyrri reglur. RíkiS mun greiöa fram lög sín á tveim til þrem árum í staS fimm ára áSur. Byggingar- tími skólanna mun styttast verulega og byggt mun verSa sam- kvæmt árlegum framkvæmdaáætlunum. Miklar byggingaframkvæmdir hafa veriS gerSar eSa standa yfir í þágu menniaskólanna. Reist hefur veriS nýtt hús fyrir gamla menntaskólann í Reykjavík, og er þaS stærra en gamla húsiS. Enn fremur er veriS aS byggja nýjan menntaskóla í Reykjavík, unniS er aS tvcföldun á stærS menntaskólans á Laugarvatni og ákveSiS hefur veriS aS byggja sams konar hús fyrir menntaskólann á Akureyri og byggt hefur veriS viS gðmla menntaskólann í Reykja- vík. Reist hefur veriS ný bygging fyrir Kennaraskóla íslands, sem ennfremur hefur veriS gerSur aS menntaskóla. Reykjavík, — KB. Landspróf miðskóla er um þessar mundir að ljúka. í einni náms- grein prófsins hefur nú risið deila milli skólastjóra og kennara landsprófsnemenda annars vegar og hlutaðeigandi prófdómara hins vegar, og er það raunar ekki í fyrsta skipti sem árekstrar verða milli þessara aðila. ER hér um að ræða landsprófið í dönsku, en nokkrir skólastjórar munu nú hafa kært til skólayfir- valda vegna prófverkefnisins í þéirri grein og leiðbeininganna um einkunnagjöf, sem með því fylgdu. Til landsprófs í dönsku mega kennarar ráða, hvort þeir kenna úr bók eftir Ágúst Sigurðsson, prófdómarann í greininni, eða bók eftir Harald Magnússon og Erik Sönderholm sendikennara. Skólamenn telja hins vegar að í prófinu í vor hafi kaflar þeir, sem teknir voru úr síðarnefndu bók- inni verið áberandi þyngri en hin- ir, sem teknir voru úr bók Ágústs, og sé þannig gert upp á milli nem enda eftir því hvora bókina þeir hafa notað. Þá var einnig í ólesn Fylgjendur Árna Gunnlaugs- sonar snúa við honum baki Alþýðublaðinu hefur borizt yfirlýsing frá 13 forystumönnum Fé- lags óháðra borgara í Hafnarfirði, þar sem tekið er fram, að fé- lagið eigi engan þátt í framboði stjórnmálasamtaka þeirra. sem kalla sig Óhóði lýðræðisflokkurinn, en helzti leiðtogi félagsins, Árni Gunnlaugsson hrl. hefur tekið sæti á framboðslista þessara samtaka og birti áróðursgreinar í þágu þeirra í blaðinu. Borgaranum, mál- gagni Félags óháðra borgara. Meðal þeirra, sem undirrita yfirlýs- ingu þessa, eru 9 af frambjóðendum óháðra við bæjarstjórnarkosn ingarnar í fyrra eða hálfur framboðslistinn. Yfirlýsingin fer hér á eftir: ,,Þar sem gætt hefir nokkurr ar tilhneigingar til þess að undan förnu hjá ákvðenum aðilum að færa starfsemi Félags óháðra borg ara í Hafnarfirði yfir á víðtæk- ara svið en félaginu var markað í upphafi í lögum þess og sam- þykktum svo og vegna þess, að vart hefur orðið misskilnings á til gangi þessa félags, má m.a. vegna nafngiftar og kynningar nýrra stjórnmálasamtaka á starfsemi sinni, viljum við undirrituð, sem á sínum tíma tókum þátt í stofn un og studdum framboð Félags óháðra borgara í Hafnarfirði við síðustu bæjarstjómarkosningjar, taka fram eftirfarandi: 1. Félag óháðra borgara í Hafn arfirði, sem stofnað var fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á sl. ári, var eingöngu stofnað í þeim tilgangi, að félagið léti til sín taka á sviði bæjarmála í Hafnar- firði. Félagið er ópólitískt, og tek ur ekki afstöðu til stjórnmála, enda var það beinlínis byggt þann ig upp, að fólk með ólíkar þjóð- málaskoðanir gæti tekið þátt í starfsemi þess og stutt félagið til áhrifa í bæjarmálum. 2. Stjórnmálasamtök þau, er nefnast Óháði lýðræðisflokkurinn, og kenna sig við bandalag óháðra borgara, eru Félagi óháðra borg Framhald á 15. síðu. um þýðingarköflum talsvert af orðum, sem hvergi hafa komið fyrir í námsefninu, minnsta kosti ekki í námsefni þeirra, sem lesið hafa bók Haralds og Sönderholms. í leiðbeiningum um mat á úr- lausnum kennir margra undar- legra grasa. Þar eru víða mjög ó- ljós fyrirmæii um einkunnagjöf, en þó mun gömul reynsla kennara vera sú, að þar fáist litlu haggað, þegar til matsins komi. í lok plaggsins er það tekið fram, að listi yfir meðaleinkunn í öllum landsprófsgreinum þurfi að fylgja með einkunnunum í dönsku, og það mun einkum vera þessi krafa, sem kært hefur verið yfir, auk sjálfs verkefnisins. Enda er vand- séð, hvernig þetta er framkvæman legt, nema dönskuprófið verði miklu síðar á ferðinni en önnur próf, og ekki mun lieldur liggja ljóst fyrir, hvaða heimild prófdóm arinn hefur til þess að gera þessa kröfu. Eftir að landsprófið í dönsku var kært, sendi prófdómarinn, Ágúst Sigurðsson, skeyti til flestra eða allra skóiastióra landsins, þar sem hann segir að leiðbeiningai'n ar um mat á úrlausnum séu og hafi alltaf aðeins verið tilraunir til samræmingar í einkunnagjöf, og virðist með því gefið í skyn að þær séu á engan hátt bindandi fyrir kennara og þeim þá í sjálfs vald sett, hvernig þeir liaga eink- unnagjöfinni. Öðruvísi virðist tæplega hægt að skilja þetta skeyti. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem ágreiningur verður milli próf dómarans í dönsku og einstakra skólamanna. Landspróf í dönsku hafa um langt skeiö verið ann- Framhald á 15. síðu. Fundur I dag Samning-afundur vegna verk- falls stýrimanna, vélstjóra cg loft skeytamanna stóð yfir í fyrrinótt og lauk ekki fyrr en kl. rúm- lega 4 um nóttina. Náðist ekki samkomiíl&g, en á fundinum kom fram hugmynd frá sáttasemjara ríkisins Ttu-fa Höart arsyni, sem deiluaðilar höfða til athugunar í gærdag. Samningafundur hefur verið boðaður kl. 17 í dag og verður þessari hugmynd þá væntanlega svarað. Stórkostlegar blekkingar Tímans afhjúpaBar Seðlabankin „frystir" ekki einn evri Hermann Jónasson flutti lögin, sem Tíminn gagnrýnir í FORYSTUGREIN blatísins í dag er flett meS eft- irminnilegum hætti ofan af einstæðum blekking- um Tímanieum „frystingu" SeSiabankans á starfs- fé bankanna. Þar er frá því skýrt, aS í fyrra hafi viffskiptabarikarnir „bundið" 337 millj. kr. í Seðia bankanum, sn á sama tíma hafi Seðlabankinn lát ið þeim í té 466 miilj. kr. eða 129 milij. kr. meira. Tíminn hefur því alger endaskipti á sannleikanum, og er það auðvitað ekki í fyrsta skipti. Því fór svo fjarri, að Seðiabankinn „frysti" fé, að hann gerði viðskiptabönkunum kleift að lána meira út en sparifjáraukningunni nam. Heildawt- lánin voru í fyrra 304 millj. kr. meiri en hcildar- innlánin. Samt skrifar Tíminn endalaust um iánsfjárfryst- ingu Seðlabankans! Og svo er eins og Tíminn viti ekki, að það var Hermann Jónasson, sem mæiti á Alþingi fyrir þeim lagafyrirmælum, sem Tíminn er ailtaf að lýsa sém þjóðhættulegum!!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.