Alþýðublaðið - 19.09.1968, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 19.09.1968, Blaðsíða 6
Hljómar úr Keflavífe, Hugleiðing um sigurför Hljóma Hljómar frá Keflavík hafa brátt staðið í sviðsljósinu í fimm ár, og er ferilí hljómsveitarinnar orðinn hinn viðburðaríkasti. Það hafa sannarlega skipzt á skin og skúrir — en þó hafa góðviðris dagarnir verið sýnu fleiri. í fyrravetur tóku Hljómar sér tveggja mánaða hvíld, og álitu þá' margir, að dagar þeirra í sviðs ljósinu væru taldir. En þeir komu aftur fram á sjónarsviðjð með betri lög en nokkru sinni, og þeir verðskulduðu fyllilega tit ilinn „hljómsveit unga fólksins 1967.“ í haust sem leið sendu Hljómar frá sér sína fyrstu ,,LP“ hljómplötu og slógu öll met', og á skemmtunum þeim, sem haldn ar voru í Austurbæjarbíói fyrir æskuna í vor, voru Hljómar enn valdir hljómsveit unga fólksins og að þessu sinni auðvitað fyrir árið 1968. Skömmu eftjr skemmt anir þessar var svo gefin út fjög. urra laga hljómplata með Hljómum á vegum S. G. — hljómplatna. Má því með sanni segja, að vinsældir Hljóma háfi aldrei verið meiri en þá. Hljómsveitin Hljómar var stofn uð 5. október, 1963. Var það þremur mánuðum áður en fyrsta plata bítlanna sló í gegn. í byrjun voru Hljómarnir fimm: Rúnar, Erlingur, Gunnar, Eggert Kristinsson, trymbill, og Einar Júlíusson, söngvari. í fyrstu léku Hljómar í Krossinum svonefnda, er var helzta samk0muhúsið á Suðurnesjum, þar til Stapjnn leysti hann af hólmi. — Einar Júlíusson lék með Hljómum í hálft ár, en síðan tók Karl Her mannsson við. Um það leyti hófu Hljómar að leika svo að segja eingöngu ,,beat“-tónlist, ertda féll hún í beztan jarðveg. Og þaS var líka um svipað leyti, sem þejr hófu að safna hári. Þessu næst léku Hljómar í Carvenklúbbnum fræga í Liverpool. Eftir heim- komuna tók Engilbert sæti Egg erts. Karl var nú líka hættur, Framhald á 14. síðu. SEM BREYTTIST MEST Tony Barrow, blaðafulltrúi Bítlanna, skrifar nú um þá í fyrsta sinn í sex ár. Þættir þessir um Bítlana hafa vakið mikla^eft'irtekt um víða veröld, sökum þess að þeir gefa mjög persónulega og frá bæra mynd af hinum 4 uppliafsmönnum beattónlistar. Hér birtum við nú annan þáítinn af fjórum, sem bSrtir verða, og fjallar s;(| um George Harrisson. George Harr'son, sem varð tuttugu og fimm ára hinn 25. febrúar, er yngstur Bítlanna. í ársbyrjun 1966 kvæntist hann hinni fögru sýningar- stúlku, Pattie Boyd. Þau búa í fallegu og tígulegu einbýlis- húsi í Surrey. Georg er snillingur á sviði tónlistar. Hann hugsar um það eitt að halda áfram æf- ingu, en John og Paul aftur á mót voru ánægðir, þegar þeir höfðu náð ákveðnu marki. Harrison segir, að menn séu aldrei nógu góðir til þess að hætta æfingu. Það er alltaf hægt að aulta við kunnáttu sína. Hann hefur geysimikinn áhuga á hljóðfær' sínu, og það var hann, sem reisti fullkom inn og fægðan stíl hljómsveit- arinnar. Hann rannsakaði tón- list þeirra niður í kjöilnn til þess að eiga auðveldara með að skapa hljómsveit'nni sér- stakan stíl, sem hann og gerði. Auk þessa var George vel að sér í öllu því, sem viðkom raf- magni, og ef eitthvað af tækj um þeirra fór í ólag, var hann alltaf maður til að laga það. Þannig kom hann í veg fyvr að aflýsa þurfti fjölda hljóm- leika. Þeir, sem þekktu Bítlana áð- ur en þe r öðluðust heims- frægð, minnast Georges sem hins hógværa Bítils. Þegar röð in kom að honum til að syngja, kom hann sér alltaf fyrir, þar sem ilítið bar á honum — •sjaldan sást brosi bregða fyr ir — hann var því sem næst fjörlaus og fráhrindandi í augum þeirra, sem þekktu hann lítið. George Harr son er einlæg- ur og nú í dag heilsteyptur persónuleiki. Félagar hans eru hreinskilnir, og menn geta á- vallt treyst því, að hann standi við gefjð loforð. í dag þekkja Bítlarnir alla Framhald á 14. síðu. UMSJÓNAMAÐUR: INGIMUNDUR SIGURPÁLSSON. tWMMMMMWWWWMMMWMMMWMWMWMMIMWWWMMWWMMWWWWtWW Okkar á milli sagt Við lifum í heimi spennu og æsinga. Spennu milli kyn- slóða; spennu milli lífsskoð- ana. Ólík sjónarmið hafa alltaf verið milli hinna yngri og eldri, ólík sjónarmið á því, sem gerist í kringum oss. En fjarlægðin m.lli kynslóðanna hefur aldrei ver ð meiri en ejnmitt nú. Víðs vegar um heim ikasta unglingar fram af sér beizlinu og mótmæla tilveru þjóðfélagsskipunar. Þe r mótmæla hinni óbifan- legu grundvallarreglu, sem hugmyndin um lýðræði bygg ir á. Nú í seinni tíð hafa stúd entar og málsvarar þeirra, auk eirðarlausra og ráfandi unglinga gert uppþot í mörg um löndum heims. Til allrar hamingju hefur þess' plága ekki kreppt að okkar þjóð hvað stúdenta snertir, en ó- hemjusamur og sem betur fer fámennur æskulýður virð' ist þó oft á tíðum notfæra sér friðsamlegar mótmæla- aðgerðir til að fá útrás, og er þar skemmst að minnast atburðanna við rússneska sendiráðið, þegar mótmælt var 'nnrásinni í Tékkósló- vakíu. Uppþot eru oft á tíðum nauðsynleg til að koma skriðu á viss málefni, — og það tilheyrir lýðræði að fá að hugsa og gera það, sem mann langar til. En' að sjálf- sögðu verður skynsemin að standa að baki aðgerðanna. A-fleiðingar uppþota eru oft válegar, og ber að hafa það í huga. En þegar uppþot er •gert gegn þjóðfélag'nu, er það í sjálfu sér ekki nóg. Menn verða fyrst og fremst að gera sér grein fyrir því, hverju 'þeir eru að mótmæla og hafa jákvæðar tillögur til breytinga. En sú mótmæla- alda, sem gengið hefur yíir Evrópu nú að undanförnu, virðist ekki gegna ne num skynsamlegum tilgangi. Mótmæli hafa komið fram mótmælanna vegna, og er það fremur vesalt. — Okkur ber öllum skylda til að ráða fram úr þeim vandamálum, sem við er að glíma. Þeim stjórnmálalegu jafnt sem hinum þjóðfélagslegu. En sú aðferð, sem v ð veljum öðr- um fremur, er mikilvæg, og þarf því að velja rétt. Vjð óskum án efa öll eftir því sama: FRELSI — FRIÐ. Þess vegna er sú ráðstöfun, sem grundvölluð er á ofbeldi, miður góð. Víð skulum ekki vinna að því að: brjóta niður og eyðileggja, heldur byggja upp og lagfæra, — eftir fr'ð- samri leið eins og einkennt hefur okkar fámenna þjóðfé- lag. -‘"•m WWWWWWWMWWWWMWWMWWMMWtWWV WMWWWWWWWWWWMMWWWWtWWMWWI 6 19. sept. 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.