Dagur - 27.05.1986, Blaðsíða 1

Dagur - 27.05.1986, Blaðsíða 1
Filman þín á skiliö þaö besta1 FILMUHÚSIÐ Hafnarstrœti 106 Sfmi 22771 Pósthólf 198 gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar kl. 16.30. Op'iö á laugardögum frákl. 9-12. Eyfirskir verktakar: Athuga með stórverkefni á Grænlandi „Það er rétt að Eyfirskir verk- takar h.f. er að kanna mögu- leika á því að bjóða í verkefni á Grænlandi. Þar er um fleiri en eitt og fleiri en tvö verkefni að ræða og sum þeirra stór,“ sagði Franz Arnason hjá Norðurverki í samtali við Dag. Eyfirskir verktakar h.f. er samsteypa 5 byggingarfyrir- tækja á Akureyri en þau eru: Norðurverk h.f., Slippstöðin h.f., Möl og sandur h.f., Aðal- geir og Viðar h.f. og Híbýli h.f. Jón Sigurðarson formaður atvinnumálanefndar Akureyrar hafði milligöngu um að viðræður kæmust á milli þessara aðila og héldu fulltrúar frá Eyfirskum verktökum til Grænlands í morg- 'un til að líta á aðstæður og kynna sér málin nánar. Margvíslegar framkvæmdir standa fyrir dyrum á Grænlandi og er um nokkur stór verkefni að ræða. Þar má m.a. nefna byggingu sútunar- verksmiðju. Vart þarf að fjölyrða um hvílík lyftistöng það yrði fyrir norð- lenskan byggingariðnað ef Ey- firskum verktökum tækist að ná fótfestu á grænlenskum markaði en það mun væntanlega koma í ljós á næstu dögum og vikum. BB. Flugvél Mýflugs hf: Mikið skemmd „Leltum að nýrri vél,“ segir Leifur „Það sem mest skemmdist í vélinni er burðarbiti í stjórn- klefa og er mjög mikið verk að skipta um hann,“ sagði Leifur Hallgrímsson framkvæmda- stjóri hjá flugfélaginu Mýflugi h/f í Mývatnssveit, en eins og kom fram í blaðinu s.l. fimmtudag fauk flugvél félags- ins á flugvellinum við Reykja- hlíð og skemmdist mikið. Til að skipta um bogna bitann, þarf nánast að rífa vélina til grunna. Um aðrar skemmdir sagði Leifur að mögulegt hefði verið að koma vélinni í gagnið á Hallgrímsson einum mánuði. Svo virðist sem mjög snörp vindhviða hafi tekið vélina og þeytt henni á bakið með þessum afleiðingum. „Þetta er stórmál fyrir okkur, en við ætlum að halda áfram flugrekstri og erum þegar byrjaðir að leita að nýrri vél, innanlands og utan. Þarna fór mjög góð flugvél fyrir lítið og er geysileg eftirsjá í henni,“ sagði Leifur. Hann sagði að flugvirki á vegum tryggingafélagsins hefði komið að skoða vélina og væri málið nú í höndum hans og trygg- ingafélagsins. gej- Það þurfti mikið spark til að mölva rúðuna svo hægt væri að komast inn í íbúðina, en talið var líklegt að kona væri þar inni. Það var Tómas Búi, slökkviliðsstjóri, sem ruddi þessari hindrun úr vegi og sem betur fer kom í Ijós að eng- inn var í íbúðinni. _ m y- F 1L. J M ■ ■ Mynd: KGA. Eldur i ibuð a Akureyri Slökkviliðið á Akureyri var í gærmorgun kallað út vegna elds í íbúð í Smárahlíð 7. íbúðin er á jarðhæð og fóru slökkviliðsmenn inn um svalar- I dyr. Ekki var mikill eldur í íbúð- inni en miklar skemmdir urðu af völdum sóts og reyks. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom | upp og tókst að komast hjá því að skemmdir yrðu á gangi eða í öðrum íbúðum þar sem hurðinni á íbúðinni var lokað og reyknum blásið út um svalardyrnar. Elds- upptök eru ókunn. gk-. Akureyringar ánægðir með ríkisstjórnina Greinilegt er að Akureyringar þeirra sem náðist í. Óákveðnir laugardag. Þegar skoðuð er af- eru ánægðir með ríkisstjórn- ina, því 65,3% þeirra sem afstöðu tóku til hennar í skoð- anakönnun Dags sögðust vera fylgjandi stjórninni, en 34,7% sögðust vera andvígir. Afstöðu með eða á móti ríkis- stjórninni tóku 329 eða 65,2% varðandi afstöðu til ríkisstjórnar- innar reyndust 27,7% aðspurðra og 7,1% neituðu að svara spurn- ingunni. Eins og fram kom í frétt í gær voru 32,3% þeirra sem náðist í í skoðanakönnuninni óákveðnir varðandi afstöðu til flokka í bæjarstjórnarkosningunum á staða þessara óákveðnu til ríkis- stjórnarinnar kemur í ljós að 32,7% þeirra eru fylgjandi ríkis- stjórninni, 20,4% andvígir stjórninni, 38,9% voru bæði óákveðnir varðandi ríkisstjórn- ina og bæjarstjórnarkosningarnar og 8% neituðu að svara spurning- unni um ríkisstjórnina. HS Boðveita á Akureyri: Leiðslur lagðar í sumar - í nýjar götur Allt bendir til þess aö Póstur og sími muni leggja ídráttarrör fyrir boðveitu í þær gangstéttir sem áætlað er að malbika og vinna við á sumrin á Akur- eyri. Á fundi bæjarráðs Akureyrar í síðustu viku var gatnagerð bæjar- ins heimilað að taka þátt í greftri og og frágangi ídráttarröranna þar sem fyrir liggur að Póstur og sími er reiðubúinn að kosta og leggja þau og kemur til með að eiga stofnkerfi boðveitu í gang- stéttum og götum. Boðveitunefnd undir forystu framsóknarmanna hefur haft frumkvæði að viðræðum við Póst og síma um þessi mál. Að sögn Ársæls Magnússonar umdæmis- stjóri Pósts og síma á Norður- landi hefur stofnunin þegar ákveðið að leggja rör fyrir boð- veitu í allar þær gangstéttir sem eru ófrágengnar svo og í þær göt- ur sem veitustofnanirnar þurfa að hrófla við vegna lagna. „Boðveitukerfi kostar mikla peninga og því er mikilvægt að finna eins ódýra lausn á málinu og hægt er og forðast allan tví- verknað. Það er skylda okkar og öll viðleitni hingað til hefur verið í þá átt,“ sagði Ársæll. og gangstéttir „Þar sem malbika á mikið af götum og gangstéttum í sumar, taldi ég sem formaður boðveitu- nefndar ekki annað fært en að taka á þessu máli. Nefndin útbjó greinargerð þar sem hún lagði fram sundurliðaðar tillögur um það sem hún telur rétt að verði gert í þessu máli. Lagning ídrátt- arröra í nýjar götur og gangstéttir er ein tillagan," sagði Jónas Karl- esson formaður boðveitunefnd- ar. „Með þessari ákvörðun er ekki verið að marka endanlega stefnu um kapalvæðingu eða dreifingu sjónvarpsefnis á vegum bæjarins. En að okkar mati er hér um nauðsynlega aðgerð að ræða og það er mat sérfræðinga að kap- alkerfi sé það sem koma skal þeg- ar fram líða stundir. Með þessari ákvörðun sýna bæjaryfirvöld mikla framsýni sem á eftir að koma bæjarbúum til góða. Þá verður minna um það en ella að brjóta þurfi upp gangstéttir og leggja kapla þegar þar að kemur og verulegar fjárupphæðir munu sparast. Kostnaðurinn í leiðslun- um er sáralítill og jafnvel þótt ekki yrði lagt út í kapalvæðingu eru allar líkur til þess að rörin nýtist fullkomlega fyrir Póst og síma,“ sagði Jónas. BB. Alvarlegt slys á Dalvíkurvegi Mjög alvarlegt umferðarslys varð í fyrrakvöld á veginum á milli Akureyrar og Dalvíkur, nánar tiltekið á svo kölluðum Hillum sem eru á milli Fagra- skógar og Rauðuvíkur. í bifreiðinni sem fór út af veg- inum voru hjón á leið til Dalvík- ur. Bifreiðin mun hafa farið um 100 metra áður en hún stöðvaðist og fallið var mikið. Maðurinn var mikið slasaður og var fluttur til Reykjavíkur eftir að farið hafði verið með hann fyrst á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Konan var mun minna slösuð og henni tókst að komast upp á veg- inn og gera viðvart um slysið. gk--

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.