Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995
31
Vaskhugi
fimm ára
Fimm ár eru liöin síðan bók-
haldsforritið Vaskhugi kom á
markað frá samnefndu íyrirtæki.
Forritið hefur tekið nokkrum
breytingum á þessum tíma en
upphaflega var það búið til vegna
tilkomu virðisaukaskattsins,
þaðan er orðið „vask“ komið. í
dag eru notendur forritsins um
eitt þúsund talsins úr flölda at-
vinnugreina.
í nýjustu útgáfu Vaskhuga eru
m.a. útreikningar og bókhald fyr-
ir neytendalán, lásakerfl á ýmsa
þætti forritsins, stór klukka,
dagatal og margt fleira.
Microsoft
Home fyrir
fjöl-
skylduna
Microsoft hefur sett á markað
syrpu af forritum ætluðum heim-
ilum sem nefnast Microsoft
Home. Þetta eru forrit fyrir alla
aldurshópa, flest á geisladiskum
sem innihalda Ijósmyndir, teikn-
ingar, hreyfimyndir, tónlist og
talað mál. Til að nota þessi forrit
þurfa tölvurnar að vera með
geisladrifl, hljóðkorti og hátölur-
um.
Sem dæmi um Mícrosoft Home
má nefna alfræðiorðabókina
Encarta, Ancient Lands (sagn-
fræði), Musical Instruments
(tónlist), Art 'Gallery (listir),
Cinemania (kvikmyndir) og NBA
Basketball.
Macintosh
hjáTölvu-
setrinu
Tölvusetrið við Sigtún í Reykja-
vík er sölu- og þjónustufyrirtæki
með það aðabnarkmið að þjón-
usta Macintosh-tölvueigendur.
Eigandi Tölvusetursins er Axel
Gylfason. í samtali við hann kom
jafnframt í ljós að hann hefur
unnið aö hugbúnaðargerö fyrir
ýmsa aðila, þ.á m. fyrir ABC-
hjálparstarf. Þá hefur Axel unnið
að gerð forrita fyrir sölu- og bók-
haldskerfl.
Tölvusetrið býður upp á nokkr-
ar tegundir PowerMac tölva auk
fylgihluta eins og prentara,
skanna, skjáa, mótalda, ether-
net-tenginga, mipnisstækkana,
skiptidrifa, DAT segulbanda og
ytri og innri harðdiska.
Lotus á
leiðinni
með Org-
anizer 2.0
Ný og endurbætt útgáfa af dag-
bókar- og skipulagsforritinu Org-
anizer frá Lotus er væntanleg á
markað um koraandi mánaöa-
mót, Organizer 2.0. Nýheiji hf. er
umboðsaðili fyrir Lotus hugbún-
að á íslandi. Guðmundur Hann-
esson hjá Nýherja sagði við DV
aö fjölmargir aðdáendur Lotus
Organizer myndu án efa fagna
nýju útgáfunni.
1 nýju útgáfunni eru meira en
100 viðbætur og nýjungar. Þeim
er öllurn haganlega komið fyrir
„án þess að hinum einföldu og
gegnsæju notendastólum Lotus
sé kastað fyrir róða," segir Guð-
mundur.
Tæknival selur ekki bara Hyundai-tölvur:
Hannar gæða-
kerfi fyrir Bakka
M. í Hnífsdal
- sérhannaður hugbúnaður fyrir útgeröina
Flestir þekkja Tæknival fyrir Hy-
undai-tölvurnar og Novell-stýrikerf-
in en færri vitan að innan Tæknivals
eru starfandi öflugar iðnstýri- og
hugbúnaðardeildir. í raun var fyrir-
tækið stofnað fyrir 11 árum í kring-
um um ýmsar iðnstýrilausnir sem
hafa verið einn af hornsteinum þess
allt frá upphafi.
Nú hafa þessar deildir í sameiningu
hannað og smíðað vinnslu- og gæða-
eftirlitskerfi í náinni samvinnu við
fiskvinnslufyrirtækið Bakka hf. í
Hnífsdal sem rekur eina stærstu
rækjuverksmiðju landsins. Miklar
kröfur eru gerðar til slíks kerfis en
eins og önnur í matvælaiðnaði þarf
gæðakerfið að vera byggt upp í
kringum HACCP áhættugreining-
una. Samkvæmt reglugerð frá síð-
asta ári er það orðin skýlaus krafa á
fyrirtæki í matvælaiðnaði að þau
komi sér upp innra eftirliti sem bygg-
ist á áhættugreiningu samkvæmt
HACCP-staðlinum fyrir árslok 1995.
Gæðakerfi Tæknivals er hluti af
Hafdísi II, sem gefur fiskvinnslufyr-
irtækjum tækifæri til að halda skipu-
lega utan um veitt eða aðkeypt hrá-
efni, sjómannalaun og bónuskerfi
ásamt nauðsynlegum framlegðar-
reikningi. Þegar nú bætist við
vinnslu- og gæðaeftirlitskerfi er hægt
að fylgjast með hráefni frá því það
kemur í vinnslu og allt þar til það
verður fullfrágengin neysluvara í
neytendapakkningum. Fiskikör eru
skráð inn í kerfið í upphafi með að-
stoð handtölva og strikamerkinga.
Með sama hætti er fylgst með hvern-
ig framleiöslan gengur og hvar ein-
staka kar er statt í verksmiðjunni.
Flutt yfir í Windows
Helstu nýjungar við Hafdísi II eru
að kerfið hefur nú verið flutt yfir í
Windows-umhverfið og er uppbygg-
ing ýmissa skýrslna gerð með því að
draga viðkomandi svæði á rétta staði
á blaðsíðunni. Þar er hið auðvelda
Windows notendaviðmót notað til
hins ýtrasta. Nánari upplýsingar um
Hafdísi II má fá hjá hugbúnaöardeild
Tæknivals.
Uppaetiilng
JIMstnlr
ýppsetning
Skjámynd af Hafdísi II, vinnslu- og gæðaeftirlitsforritinu frá Tæknivali
Fartölvur tengdar þráðlausum netkerfum:
Mesta aukningin
fram ad aldamótum
- segir Emil G. Einarsson hjá Nýherja
Tölvuvæðingin hefur verið mjög
ör á undanfornum 10-15 árum eftir
að einmenningstölvumar komu á
markaðinn. Nú er svo komið að flest-
ir starfsmenn hafa tölvu á borði sínu
og þessar tölvur eru tengdar saman
í net og netin síðan tengd öðrum
netum og þar með umheiminum.
En því er ektó svo farið að allt vinn-
andi fólk sitji stöðugt við borð sitt í
vinnunni. Mjög margir eru á stöð-
ugri hreyfingu eða ferð og flugi í
vinnutíma sínum. Það er t.d. talið að
um 40% vinnuaflsins í Bandaríkjun-
um stundi störf sín utan veggja
vinnuveitenda. Um helmingur þeirra
er verkafólk og helmingur hvítflibb-
ar.
Því hefur skapast mikill markaður
fyrir fartölvurnar. Þær hafa bætt úr
brýnni þörf en jafnframt orðið þess
valdandi að komið hafa fram kröfur
um aö þær geti tengst þráðlausum
netkerfum.
Emil G. Einarsson, deildarstjóri hjá
Nýherja, telur að mesta aukningin
verði í þessum geira tölvmðnaðarins
fram að aldamótum, þ.e. í fartölvum
og þráðlausum netkérfum.
„Um ein milljón fartölvur voru í
notkun í Bandaríkjunum árið 1994.
Aætlað er að þær verði um 10 millj-
ónir árið 2000. Þá er talið að þráðlaus-
um netkerfum muni fiölga þar úr 50
þúsund árið 1994 í um tvær og hálfa
milljón árið 1996. Árið 2000 er tahð
að um 65% allra fartölva muni hafa
tengimöguleika við þráðlaus net-
kerfi. Ávinningurinn af þessari þráð-
lausu netvæðingu verður betri og
hraðari þjónusta við viðskiptavini,
aukin afköst starfsfólks og sparnað-
ur,“ segir Emil.
Sem dæmi um notkunarsvið fyrir
þráðlaus netkerfi nefnir Emil heil-
brigðisþjónustuna. Bæði innan
veggja sjúkrahúsanna, þar sem tölv-
an fylgir hjúkrunarfólkinu milh
sjúkhnga, sem og utan veggja sjúkra-
stofnana, t.d. þegar heimihslæknar
fara í vitjanir.
„Annað dæmi um notkunarsvið er
vörudreifing, bæði móttaka og af-
hending vara á lager. Þriðja dæmið
er ýmiss konar þjónusta hjá við-
skiptavini. Starfsfóltóð þarf aö skrá
upplýsingar í sameiginlegan gagna-
grunn og/eða leita að upplýsingum
eða fróðleik um viðkomandi aðila eða
atriði, eiga samstópti eða stefnumót
við aðra og þar fram eftir götunum,"
segir Emil.
Tækni - tölvur
: vt * * a * f* ■ á** : * ■ 'wir ' á*** "i. ?
Ny utgafa fra Kerfisþroun
Kerfisþróunhf.sendifrásérnýja nefni dæmi um nýjmigar. AUir
útgáfu af viðskiptahugbúnaðinum notendur Stólpa, sem þess óska,
Stólpa fyrir Windows um sl. ára- geta fengið nýjungar sendar á
mótogfékkhúnútgáfuheitiðStólpi þriggja th sex mánaða fresti. Það
95. Helstu einkenni þessarar útgáfu þarf ekki neina tölvukunnáttu til
eru ný súlurit eða stólparit í fiár- aö sefia breytingarnar inn á tölv-
hagsbókhaldinu, skuldunauta- og una," segir Bjöm.
birgðakerfinu. Einnig kom fram i máli Björns
Að sögn Björns Viggóssonar hjá aö Kerfisþróun hefði nýlega lokið
Kerfisþróun er i nýju útgáfunni við gerð beinlínutenginga við
hægt aö sjá á myndrænan hátt þró- banka sem gerir m.a. mögulegt að
un síðustu sex ára, samanburð eft- sækja færslur af bankareikningi
irmánuðumlíðandiárseðasaman- og flytja beint inn í Stólpa. Björn
burð eftir mánuðum síðustu segir þetta auka öryggi og spara
þriggja ára. mikla vinnu. Auk bankareikninga
„Nýir hjálpartextar hafa verið gefast möguleikar á núllifærslu
gerðir fyrir flest kerfin svo að ég launa og greiðslu reikninga.
Internetþjónusta
mr mmm m
i 5 ar
LIISKA
sími: 568 3230 og 96-12286
fax: 588 6610 netfang: info@ismennt.is
vefur: http://www.ismennt.is/
BESTU TÖLVUKAUPIN
ÞAR SEM GÆÐI OG
NÝJUNGAR FARA SAMAN.
Í486
66-DX4100MHZ
vélar á verði frá
VL:kr. 112.900
PCI: kr. 122.900
540 MB harður
diskur, kr. 29.000
• Enhanced IDE diskstýring, 4 x hraðvirkari.
• 66 MHz Örgjörvinn, 164% hraðvirkari en
25 MHz.
• 32 bita skjákort, 60% hraðvirkara.
• PCI local bus tengibraut, 26 sinnum
hraðvirkari.
• EPP, SPP og ECP hliðartengi (Parallel part).
• UART raðtengi, 16.550 kr., 19.200 bit/sek.
Uppgr. DX2-80 DX4-75
DX$-100 (Pentium ?)
P24s,DT.
TÆKNIBUNAÐUR
Suðurlandsbraut 12 - sími 91 -813033 - fax 91 -813035