Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 199. 21 i> v Tækrii - tölvur Útflutningur á versiunarkerfí Hugbúnaðar Tölvufyrirtækið Hugbúnaður hf. í Kópavogi hefur hafið útflutn- ing á verslunarkerfinu HB-GPoS. Kerfið hefur fengið sérstaklega góðar viðtökur í Englandi og Danmörku. Búið er aö gera samninga um uppsetningar í um 200 verslunum í 5 löndum, þar af um 120 verslunum í Dan- mörku. í bígerð er að sýna versl- unarkerfið í sýningarbás jap- anska stóríyrirtækisins Casio á alþjóða tölvusýningunni sem haldin er árlega í mars í Hanno- ver í Þýskalandi. Hugbúnaður hf. framleiðir einnig samskiptakerfið HBX- PAD. Notendum þess erlendis fjölgar stöðugt og eru þeir í yfir 50 löndum í 6 heimsálfum. Mörg fjölþjóða- og stórfyrirtæki sem hafa rekstur í fjölda landa og hafa sett upp net tölvukerfa, setja sem skilyrði að samskipti verði með HBX-PAD forritínu. Má þar nefha Ford Motor Company, GTE símafyrirtækið, City Bank og Anhoucer Bush. Að sögn forráða- manna Hugbúnaöar hf. verða fleiri forrit kynnt erlendis á þessu ári. EJS með mót- öld frá Hayes Einn af helstu framleiðendum mótalda í heiminum er Hayes. Einar J. Skúlason, EJS, hefur nú gerst umboðsaðili Hayes á íslandi og selur einkum þrjár tegundir mótalda af gerðinní Accura. ÖIl þessi mótöld eru meö innbyggðu faxmótaldi og algengustu þjöpp- unarstaðla. Faxforrit fyrir Windows fylgir með. Hayes Accura mótöld voru val- in „Editor’s choice" í PC Magaz- ine nú ekki alls fyrir löngu og eru samþykkt af Fjarskiptaeftirlitinu til sölu á íslandi. Að sögn Amar Arasonar hjá EJS henta mótöldin vel til að tengjast Internetinu. Margmiðlun- artölva frá MORE Boðeind á Seltjarnamesi hefur nú hafið sölu á nýjum margmiðl- unartölvum frá MORE. Tölvum- ar eru í sérstaklega hönnuðum kössum sem líta út eins og hljóm- flutningstækí með innbyggðum öflugum Hi Fi PMPO 20 W hátöl- urum. Tölvumar fást bæöi í 486 og Pentium útfærslum. Meö tölv- unum fylgir geisladrif og 16 bita víðóma Sound Blaster Pro hljóð- kort. Jónas R. Sigfússon hjá Boðeínd segir aö þessi útfærsla á margm- iðlunartölvum sé nýjung á ís- landi því hingað til hafi menn notast viö venjulegar tölvur og „troðið" í þær geisladrifum og hljóðkortum. Að sögn Jónasar hefur tölvunum verið vel tekið og hátt í 200 stykki selst frá því í desember sl. VIÐSKIPTAKERFI Frá kr. 22.410.- g] KERFISÞRÓUN HF. FÁKAFEN111 - SÍMI S68-8055 People to People Technology Tæknival hf, Skeiíunni 17, sími 681665 ACO hf, Skipholti 17. Sími 627333 Einar J. Skúlason hf, Grensásvegur 10, Sími 633000 Heimilistæki hf, Sætúni 8, Sími 691500 Tölvumiðlun. Grensásvegi 8, sími 688517 Tölvutæki - Bókval, Furuvöllum 5, sími 96-26100, Akureyri Tölvuþjónustan á Akranesi, Kirkjubraut 40, sími 93-13111 Bókabúð Jónasar Tómassonar Hafnarstræti 2. sími 94-3123, Isafirði Tölvun hf, Strandvegi 50. sími 98-11122, Vestmannaeyjum RISC örgjörvi sem er feikna öflugur, fryggir hraða úrvinnslu gagna, þannig að það tekur aðeins 25 sekúndur að fá fyrstu síðu. Örgjörvinn nýtir enn betur innra minni prentarans þannig að 1 Mb. nýtlst rétt eins og 3 Mb í eldri prenturum. Lítill og nettur OL 400ex er mjög nettur, lítið stærri en A-4 blað (36 x 32 x 16 cm). LE.D. tækni sem OKI hefur þróað kemur þér til góða í prentara sem hefur fáa hreyfanlega hluti sem þýðir minna viðhald. 2500 Ijósdíóður tryggja þér hnífskarpa prentun. Ekkert óson eða ryk OL 400ex gefur ekki frá sér neitt óson eins og flestir aðrir geislaprentarar gera. Það ryk sem kemur frá prentaranum er næsta ómælanlegt. Þess vegna eykur hann vinnugleði þína. Ótrúlega lágt verð Líttu aftur á verðið hér til hliðar. Það er hreint ótrúlegt. Hafðu samband við næsta söluaðila og fáðu að vita hvernig þú getur eignast þennan frábæra prentara. OL 410ex Fyrir þá sem vilja enn meiri upplausn og prentgæði bjóðum við nýja útfærslu sem prentar allt að 600 pát, Þessi prentari kostar aðeins 69.900,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.