Þjóðviljinn - 21.10.1971, Blaðsíða 1
Willy Brandt hlaut friðar-
verilaun Nobels árið 1971
fyrir skerf sinn til að forsendur skapizt fyrir
friði í Evrópu, sáttastefnu í garð A-Evrópuríkja
OSLÓ 20/10 — Nóbelsverðlaunanefnd norska stór-
þingsins hefur í dag úthlutað Willy Brandt, kansl-
ara Vestur-Þýzkalands, friðarverðlaunum Nóbels.
Segir í greinargerð nefndarinnar að Brandt hafi
lagt fram frábæran skerf til þess að skapa forsend-
ur fyrir friði í Evrópu með því að fylgja sem vest-
urþýzkur stjórnarleiðtogi sáttastefnu í garð fyrri
óvinaríkja. Þessi veiting hefur hvarvetna mælzt
vel fyrir.
40 TILNEFNDIR.
Nóbelsverðlaunanefnd stór-
þingsins tilkynnti um veitinguna
um tvöleytið í dag og var þess
PEKING — NEW YORK 20/10
Henri Kissinger, aðalráðgjafi
Nixon forseta í öryggismái-
um, hóf viðræður sínar við
Á Allsherjarþingi
Fuiltrúar Norðurlandanna á
Allsiherjariþingi SÞ hafa allir
lýst stuðningi sínum við tillögu
Albaníu um að stjórn Alþýðu-
lýðveldisins taki sæti Kína hjá
SÞ. Þeir hafa beint og óbeint
hafinað hugmyndum Bandaríkja-
marma um „tvö kínversk ríki“
— það sé alls ekki um það að
ræða, að víkja Formósu úr sam-
tökunum heldur að ákveða hvor
kínverska stjómin eigi að fara
með umboð Kína. Fulltrúi Frakk-
lands tök í sarna streng og mælti
pieð tilögu Albaníu.
þá getið að alls hefðu um 40
manns kom.ið til greina. End-
anleg ákvörðun var tekin í
kínverska forystumenn með
mikilli leynd í dag. Um leið
blæs æ óbyrlegax fyrir viðleitní
Bandaríkjamanna til að halda
Formósustjóm innan SameinUðu
þjóðanna.
Engir blaðamenn fengu að
koma nálægt ilugvél Kisisingers,
og þeim var haldið í a.m.k.
kílómeters fjarlægð meðan hann
ók ásamt fylgdarliði sínu til
gistihúss þess sem hann mun
dveljast í. Gistihússins er strang-
lega gætt af hermönnum.
Kínverskir fjölmiðlar hafia
ekki minnzt á ko.nu Kissingers
með einu orði, en í verksmiðj-
um og kommúnum hafa verið
haldnir margir fiundir að undan-
fömu þar sem fulltrúar komm-
únistaflokksins hafa útskýrt
væntanlegar heimsóknir fulltrúa
bandarískrar íheimsvaldastetfnu.
Verðlaunin, sem nema 450.000
sænskum krónum, verða afhent
í Osló 10. desember. Verða þá
70 ár síðan þeirn var úfhlutað
fyrst. Verðlaunajveitlngin hefur
oát verið mjög umdeild og all-
oft hefur veiting þeirra fallið
niður. Meðal verðlaunahafa vom
stofnandi Rauða krossins, Henri
Dunant (1901), Hjalmar Brant-
ing, leiðtogf sænskra sósíaldemó.
krata, Friðþjófur Nansen, þýzld
friðarsinninn Ossietzky, Albert-
Schveitzer — og ýmsar mann-
úðarstofin’amir haifa og hlotið’
verðlaumin.
Brandt frétti um verðlauna-
veitinguna í miðri kappræðu á
þimginu í Bonn. Þegar var skot-
ið á aukaifund stjómarinnar til
að óska hlonum til hamingju.
Brandt brást sjállfiur mjög
glaður við tíðindunum. Sagði m.
a. að hanm væri mjög þakklát-
ur og vissi að heiðri þeiim sem
honum hefði hlotnast fylgdi mlk-
ill vandi og mundi hann leit-
ast við að reynast hans verð-
ugiur í sterfum sínum í framtíð-
inni.
Elkkl hefur Brandt skýrt frá
því hvað hanm hyggist gera við
verðlaunafiéð.
Rakinn er æviferill Brandts á
12. síðu blaðsins í dag.
ÍRAR UNNU
íslenzka umglinigailandsliðið í
ikinattspyrmu tapaði fyrir Irum í
Dyfliinind í giser — 5:2 og er þar
■með úr keippmiinnL
★
Valur varð Reykjavfkurmeistari
í handknattlejk í gærtkvöild er lið-
ið sigraði Fram — 11:6. Á þó
Valur eftir einn leik.
Seinkun vegna
upplýsinga
um sprengju
Þegar Sólfaxi var í gær að
taka sig upp frá Glasgow í
áætlunarflugi tii London og
Kaupmannahafnar var hringt og
sagt að sprengja væri um borð
í vélinni. Vélin lénti þess vegna
í Edinborg og þar var allur
farangur rannsakaður en ekkert
reyndist athugavert. Vegna þessa
atburðar seinkaði flugáætlun um
eina og hálfa klukkustund. At-
burður af þessu tagi hefur ekki
áður hent Flugfélag Islands.
Ráðherrænefnd nm
herstöðvamálið
Það kom fram á fundi Al-
þýðubandaiaigsins í fyrrakvöld
að sett hefði verið á laggimar
ráðherranefnd tii að fjalla um
herstöðvamálið og fyrirhugaða
brottvísun hersins.
I ncfndinni eiga sæti ráðherr-
arnir Einar Ágústsson, utanrík-
isráðherra, Magnús Torfi Ölafs-
son, menntamálaráðherra og
Magnús Kjartansson, iðnaðar-
ráðherra.
WiIIy Brandt kanslari V-Þýzkalands .
Mikil leynd er yf-
ir ferð Kissingers
Því á þetta fólk ekki að búa eins og aðrír?
Verður þetta skjól fyrir þá sem minna mega sín í þjóófélaginu?
HLEYPIDOMARNIR
NÁENGRIÁTT
□ Furðulegt mál er risið upp vegna húsakaupa
;þess opinbera við Laugarásveg í Reykjavík. Ætl-
unin er að húsið verði notað fyrir vistfólk frá
Kleppsspítala, sem útskrifast hefur þaðan, og þarf
nú á samasfiað að halda. Fjölmargir íbúar við
Laugarásveg hafa risið öndverðir gegn þessum
húskaupum og hafa gert tilraunir til að skjóta
saman til að yfirbjóða það opinbera og kaupa húsið
sjálfir.
íbúarnir viróast hakia, aö væmt-
anlegir ibúar hússins no. 71 við
Laufásveg séu umlhverfi sámu
haettulegir og bena því helzt við,
að mörg böm sóu við Laufásveg
og siumir bæta því við, að hús-
eignir í nógrenminu gieti lækikað
i verði, en eirns og flestir skilja
þá eru það sárafáir sem hugsa
þannáig!!
Þetta er ekki í fyrsta sinn að
„eimkahúsnæði" er keypt í Rvík
í beim tilgangi að reka þar heim-
ili fyrir fymvenamdi visitlfóQk frá
Kieppssipitala. Það ætti að vera
hverjum manni skiljamlegt að það
fólk sem útskrifast þaðam þarf á
góðum samiastað að halda, þegar
það leggur út í líisbaráttuna að
nýju.
Furðuleg viðbrögð hjá
fólki á 20. öldinni
Við náðum tali af Guöríði
Jónsdóttar, fyrimm forstöðukomu
Kleppsspítal’ams, em hún hefur
haldið heimóli fyrir . fyrrveramdi
vistmenn á Kleppsspítala um
áraibdiL
— Hviað vilt þú segja um við-
tökiur þær sem væntamQegir ná-
grannar vistfólksins við Laufás-
veg hafa veitt því? *
— Mér finnst þetta vera fiurðu-
leg viðbrögð hjá fólki, á 20. öld-
imni. Ef við, lifðum á 17. eða
18. öld, þá væru viðbrögð þessa
fiólks kammski ek’ki sivo furðuleg.
— Hafa íbúar vr@ T-^iurtSsvegi
einhver.ia ástæðu ra aö óttasit
væntainlega nágranna sína?
— Ekki nokkra ástæðu. Það
sagði koma sem býr við Laufás-
veg við eitt dagblaðamma í gær,
að það væm bömin sem hún
væri fyrst og fremst að hugsa
um, en í því sambandi mætli
benda á, að á Ki eppsspítalanum
starfa margar hjúkrumarkonur,
sem búa í húsum sem eru á spít-
alalóðinni og þessar komur eiga
mörg böm. Einmig mastti benda
á, að stór sambýlisQiús eru í
næsta nágrenni við spítaianm og
þar eiga mörg biörm heima og
aldrei hefur heyrzt getið um að
vandræði hafi skapazt vegna ná-
lægðarimnar við spítalamm. Það
fólk, sem kemur til með að búa
í húsinu við Laugarásveg, yrði á
engam hótt hættalegt umhverfi
sínu,, né mymdi það valda óróa.
— Hefiutr fólkið sem er hjá þér
stundað vinmu?
— Það staindar tflestaQlt vinnu,
á vemjulegum vinnumarkaði.
— Hvað heflur þú haldið þetta
hedmili lengi, Guðríður?
— I fjögur og hállft ár. 6g
byrjaði í marz 1967.
— Hafa orðið árekstrar við
nágrannana?
— Það hefur aldrei komið fyr-
ir. Ég hef aldrei fengið kvartan-
ir, enda aldrei verið ástæður til.
Fólkið, sem -hefur verið hjá mér,
'hefur verið það dagifarsprútt að
það heflur aldrei lent f árekBtrum
við umhverfi sitt Ég hefi heldur
aldrei crðið vör við mokkra and-
úð frá nágrömnum mímum.
— Nú bar einn fbúamma við
Laugarás þvi við, að það væri
svo stutt á miUi húsa þar.
— Nú, var það já? Ætli það sé
nokkru nær'en hér. Nú er hgim-
iMð hér byiggt við annað hiús,
svo ég held að það geti varla ver-
ið naar í Laiugarásnum.
Heimilislausir
einstaklingar
Blaðið hafði tal af Tómasi
Helgasymi, yfirlækni á Klepps-
spítalamum:
— Kemur fól-kið sem væntan-
iega Dytur í 'húsið við Laugarás-
veg, til með að stunda virtnu útí
í bœ, Tómas?
— Sumt af því standar virnnu
úti í bæ, annað er orðið það flull-
orðið að það getar ekki stundað
vimmu af þeim sökum, eða eru
öryrkjar, en eru jafmframt ein-
staklingar sem eiga- hvergi höfði
sinu að að halla og eru hér í
kjallaralholu í- spítalamum að
parti, og að parti taka þeir plás-s
á spítalamum frá öðrum sem
þurfa að komast að. Þessar að-
gerðir eru sem sagt þáttur í að
rýmai garnila spítalann, sem flestir
eru samdóma um að teljist hlátt
áfram til heilsuspillandi húsnæð-
is og himsvegar skapast aukið
pláss fyrir þá sern þurfa á vist
að hailda hér. Það fólk, sem héð-
en útskrifiast getar búið hvar sem
er í baenum, em vantar bara hús-
næði. Vandinm hefur verið sá, að
fimna hæfilega stórt húsnæði,
sem sameinaði þá kosti að vera
Framhald á 9. síðu.
Fjölmennur og
fróðlegur
fundur ABL
1 fyrrakvöld hélt Alþýðu-
bandalagið í Reykjavík fund
i Tjamarbúð þar sem Lúðvík
Jósepssom og Magnús Kjart-
.ansson gerðu grein fyrir
’ stjórnarsamvinnunni og svör-
uðu , spurmimgum fundar-
mamna.
Fumdurinn var mjög fjöl-
menmur og bedndu margir
spufningum til réðherranna.
Kom márgt athyglisvert fram
hjá fundarmönnum og ráð-
herrum. Verður nánar sagt
ftá fundimum í blaðinu é
morgum.
í Þjóðviljanum í gær. hófst flokkur viðtala við iðnnema, iðn-
meistara og forráðamenn iðnfræðsluráðs um iðnnám á ísiandi,
sem Sigurdór Sigurdórsson, blaðamaður Þjóðviljans, hefirr tekið
saman. I dag birtum við viðtöl við Jónas Sigurðsson formann
INSÍ, -Stefám Jónsson veggfóðrarameistara og Torfa Geirmunds-
son, rakaranema. Svo veröur haldið - áfram að blrta viðtöl við
menn um iðnnám á íslandi í blaðinu á laugardag og sunnudag.
Þing Iðnnemasambands íslands hefst um næstu helgi og verð-
ur þingið sett á föstudaginn 22. okt. n.k. kl. 16. Eitt aðalumræðu-
efnið á þinginu verður einmitt iðnfræðslan á íslaiuli. Auk þess
verður rætt um kjaramál iðnnema, félagsmál þeirra og almenn
þjóðmál.