Þjóðviljinn - 01.08.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.08.1984, Blaðsíða 1
Forsætisráðherra Þorsteinn í stað Steingríms Sjálfstœðisflokkurinn gerir kröfu um að fá forsœtisráðherraembœttið í kjölfar nýs stjórnarsáttmála Mikil ókyrrð er innan Sjálf- stæðisflokksins gagnvart framtíð ríkisstjórnarinnar. Þær kröfur magnast nú að Þorsteinn Pálsson verði að taka við forsæt- isráðherraembættinu til að Sjálf- stæðisflokkurinn geti treyst því að stjórnin nái árangri. 'Þess vegna verði ný skipting á ráð- herraembættum að eiga sér stað þegar viðræðunum um nýjan Atlavík Ringo Starr kemur Ringo Starr verður sérstakur heiðursgestur hátíðarinnar í Ati- avík. Hann kemur á föstudags- kvöld til Reykjavíkur og fer beint austur. Ringo mun ekki taka nein laun fyrir að koma fram á skemmtuninni. í samtali við Gunnar Baldurs- son hjá UÍA sagði hann að rétt í þessu (í gær) hefði verið gengið endanlega frá því að Ringo kæmi. Hann mun verða sérstakur heiðursgestur, erlendur, á hátíð- inni í Atlavík, en Jón Hjartarson leikari sá innlendi. Ringo Starr mun ekki taka nein laun fyrir að koma fram, sagði Gunnar, aðeins ferða- og uppihaldskostnað þarf að greiða. Hann mun koma á föstudags- kvöld tii Reykjavíkur og fara beint til Hallormsstaðar. Hann mun afhenda „Hringstjömu“- verðlaunin á sunnudag, þ.e. í hljómsveitarkeppninni sem hald- in verður á hátíðinni. Að sjálf- sögðu mun hann taka lagið sér og öðmm til yndis og ánægju, sagði Gunnar að lokum. hs Loksins, loksins, sögöu margir þegar staðfest var að stjarnan kæmi. I stjórnarsáttmála lýkur með haustinu. Síðari hluta vetrar settu maTgir Sjálfstæðismenn fram þá kröfu að Þorsteinn Pálsson færi inn í ríkisstjórnina. Friðrik Sophusson flutti þennan boðskap í Seltjarn- arnesræðunni. Nú er komið í ljós að enginn ráðherra Sjálfstæðis- flokksins viil standa upp fyrir Þorsteini. Margir forystumenn Miklar torfur af laxi hafa verið í Teljarastrengnum neðan- undir teljarakistunni í Elliðaán- um, og talsvert hefur borið þar á fiskum sem eru særðir á skoltun- um. Um helgina mátti þannig telja hátt í tuttugu skoltsærða laxa í strcngnum og í gær, þegar laxinn var farinn að ganga upp ánna, eftir að búið var að kippa upp teljargrindunum einsog greint er frá annars staðar í blað- inu í dag, þá gengu við Efri-Stíflu fimmtán laxar á skömmum tíma og að minnsta kosti fjórir voru flokksins eru og þeirrar skoðunar að jafnvel þótt Þorsteinn kæmi inn fyrir Matthías Bjarnason, Matthías A. Mathiesen eða Geir Hallgrímsson væru þau ráðuneyti svo veik hvað mótun stefnunnar í efnahagsmálum snertir að slík brevting myndi ekki duga. A sama tíma og andstaða gegn stjórninni fer vaxandi innan Sjálfstæðisflokksins þurfi róttæk- með greinileg sár. Veiðimenn sem haft var sam- band við töldu að sárin stöfuðu af því að laxinn stykki á járngrind- umar við teljarann og særðust af því. En straumurinn úr teljara- kistunni virðist vera mjög lítill og. þar sem laxinn gengur í straum- inn þá er mögulegt að hann rati hreinlega ekki á kistuna en stökkvi á grindurnar. Einn við- mælandi blaðsins kvaðst þannig oft hafa séð fjölda laxa vera að „nudda trýninu í grindurnar". „Ég sá sjálfur um tíu til tólf iaxa ari breytingu ef stjórnin eigi að öðlast tiltrú. Einnig verði að gefa Þorsteini valdastöðu. Hann sé nú mjög áhrifalítill á gang mála. Slíkt ástand þoli Sjálfstæðisflokk- urinn ekki. Sumir áhrifamenn innan Fram- sóknarflokksins hafa talið koma til greina að Þorsteinn yrði for- sætisráðherra í staðinn fyrir Steingrím því það negli Sjálfstæð- í Teljarastrengnum um helgina sem vom með einhvers konar sár á skoltinum", sagði Garðar Þór- hallsson formaður Elliðaár- nefndar. „Það kemur fyrir í miklu vatni að hann finnur ekki opið á teljaranum, þá er hann að hamast á grindunum og jafnvel stökkva á þær“. Þess má geta að þegar nær dregur kynþroska laxa minnkar mótstöðuafl þeirra gegn sjúk- dómum og öll sár, sem ella myndu lítið mein gera, geta leitt til dauða. -ÖS isflokkinn inn í stjórninni. Ann- ars gæti hún liðast í sundur næsta vetur. Af hálfu Framsóknar- flokksins gæti samningsgrund- völlurinn falist í því að fá fjármál- aráðherraembættið og utanríkis- ráðherraembættið í staðinn fyrir forsætisráðherraembættið. Slíkt gæti hentað Þorsteini vel í valda- baráttunni innan Sjálfstæðis- flokksins. 6g/ór Steindór: Fær tveggja mánaða frest Bflstjórar á bifreiðastöð Steindórs hafa fengið tveggja mánaða frest og fá að stunda leiguakstur fram til 11. október. Hæstiréttur kvað upp dóm 11. júlí, en samkvæmt honum eru atvinnuleyfi leigubílstjóranna, 45 að tölu, ógild. Samgönguráðuneytið véitti bílstjórunum í gær þennan frest. Hvað verður eftir 11. október veit enginn. Ljóst er að stöðin verður ekki stafrækt, að minnsta kosti ekki með óbreyttum hætti, þar sem atvinnuleyfin skortir. Ný atvinnuleyfi til leigubflstjóra verða veitt 1. október. „Við erum í sjálfu sér ekkert ánægðir með að þeir, sem hafa ekið í leyfisleysi í 2Vi ár, skuli fá að gera það 2 mánuði í viðbót“, sagði Guðmundur Valdimars- son, formaður Frama, stéttarfé- lags leigubflstjóra. „En auðvitað er misjafnt hvenær dómar eru fullnustaðir og við teljum ekki ástæðu til að aðhafast í málinu". J.H. Megn óánægja SH Gagnrýnir vaxtahækk- unina og aðgerðir ráð- herranna Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna sendi Halldóri Ásgrímssyni í fyrrakvöld ítarlegt bréf þar sem stefna stjórnvalda gagnvart sjáv- arútveginum er harðlega gagnrýnd. Sérstaklega er bent á það að vaxtahækkunin sé ekki í neinu samræmi við verðbólgu- þróunina og gengisstefnuna. Eng- in útflutningsgrein geti borið siíka vexti. í viðvörunarbréfi SH er einnig rakið hvernig öll þjónustuútgjöld sjávarútvegsfyrirtækja hafi hækkað mun meira en tekjur frá sölu afurða. Fyrirtækin séu því mun verr á vegi stödd en áður vegna þess að verðaðhald stjórnvalda í þjónustugreinunum hafi brugðist. Stjórn Sölumiðstöðvarinnar varar ríkisstjórnina alvarlega við afleiðingum stjórnarstefnunnar. Atvinnulífið og uppbygging fyrir- tækjanna verði fórnarlömb þess- arar röngu stefnu. SH hafi búist við því að ríkisstjórnin myndi grípa til annarra og raunhæfari _ aðgerða. ór Þessi grátt leikni lax varð á vegi sendimanna Þjóðviljans í Veiðihúsinu við Elliðaárnar í gærmorgun. Hann var með mjög stórt sár á neðra skolti og líklegt að hann hafi upphaflega hlotið einhvers konar sár þar - ekki endilega af völdum járngrindanna við teljarann - og síðan hafi hlaupið áta í sárið með þessurri illu afleiðingum. Ljósm. Loftur. Elliðaárnar Særðir laxar Neðan við teljara hefur borið á löxum með sár á skolti. Stökkva laxarnir á járngrindurnar af því þeir rata ekki á teljarann?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.