Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 29
37
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000___________________________________________________
DV ___________________________________________Helgarblað
textabút upp úr einhverri bók. Ég las
textann með þvílíkum leikrænum til-
burðum að mér var boðið að leika í
útvarpsleikritinu „Elín fermist ekki í
vor“, segir Þorvaldur en þeir félag-
arnir fengu einnig að taka einhvern
þátt í dagskrárgerðinni á bamaút-
varpinu.
Eftir reynsluna af útvarpsleikrit-
inu benti Elísabet Brekkan á Þorvald
fyrir talsetningu á Disney-myndinni
Lion King, betur þekkt undir nafninu
Konungur ljónanna. Þorvaldur fór í
prufu og fékk það hlutverk að ljá að-
alpersónunni, ljónsunganum Simba,
rödd sína.
„Ég gerði mér varla grein fyrir því
hversu stór þessi teiknimynd var þar
sem ég var svo ungur. Sjálfur er ég
mjög hrifinn af myndinni, hún er vel
gerð og sagan um hringrás lífsins er
góð,“ segir Þorvaldur sem talaði þó
ekki inn á Lion King 2 þar sem hann
var þá orðinn of gamall.
„Ef þú gerir eitthvað sem tekið er
eftir þá einhvern veginn opnast fyrir
þér fleiri dyr,“ segir Þorvaldur sem
eftir talsetningu á Lion King hefur
haft nóg að gera.
Hann hefur ekki bara talsett fleiri
teiknimyndir heldur einnig leikið í
auglýsingum, sungið inn á geisla-
diskinn Barnabros og leikið í mörg-
um útvarpsleikritum. Að auki hefur
hann leikið í nokkrum sjónvarps-
myndum og leikritum. Hann lék
landi," segir Þorvaldur, ákveðinn.
Þrátt fyrir uppbókaðar helgar í
sumar ætlar Þorvaldur þó að gefa sér
tíma til að fara á þjóðhátíðina í Vest-
manneyjum og helst einnig heim-
sækja fallegasta stað íslands. „Borg-
arfjöröur eystra er fallegasta þorp á
íslandi og það hefði verið gaman að
geta heimsótt ættingjana þar. í góðu
veðri er nefnilega svo ótrúlega fallegt
þama,“ upplýsir Þorvaldur, greini-
lega gjörsamlega heiflaður af staðn-
um.
Salka lærdómsrík
Aðspurður hvað sé skemmtilegasta
verkefnið sem hann hafur tekið að
sér til þessa segist hann eiga erfítt að
gera þar upp á milli.
„Salka-ástarsaga fannst mér vera
stökkpallur þar sem mér fannst ég
þroskast mikið á því að taka þátt í
því leikriti. Ég hef venjulega verið að
taka þátt í sýningum meö fólki á
mínum aldri en þarna var ég yngstur
í leikarahópnum. í þeirri sýningu
var maður alltaf að finna eitthvað
nýtt og læra eitthvað af hinum eldri.
Ætli það hafi ekki verið reynslurík-
asta verkefnið sem ég hef fengist
við,“ segir Þorvaldur sem neitar því
ekki að þetta leiklistarstúss hafi tek-
ið mikinn tíma frá náminu en hann
var að.klára fyrsta árið i Verzló síð-
astliðið vor.
„Prófin gengu upp hjá mér og ég sé
málaflokkunum hér heima. Ég sé
engan sem á við mig. Alþýðuflokkur-
inn var reyndar góður, a.m.k þegar
Jón Baldvin stýrði honum,“ segir
Þorvaldur hugsi.
Það eru ýmis fleiri plön í kollinum
á Þorvaldi og greinilega margt sem
hann langar til þess að gera. Verzló
bíður hans næsta haust en hann er
einnig að hugsa um að byrja í ballett-
tímum og halda áfram að læra á
trompet. Og svo gæti hann jafnvel vel
hugsað sér að gerast rithöfundur ein-
hvern tíma í framtíðinni.
„Ég stefni á að fara sem
skiptinemi til Japans á næstu árum.
Ég hef nú þegar farið á japönskunám-
skeið og þetta land hefur alltaf heill-
að mig. Það er mikill agi þarna og
þetta er allt öðruvísi en hér. Ég held
að það sé nauðsynlegt að fá aðeins
víðari sýn á heiminn," segir Þorvald-
ur sem á örugglega eftir að plumma
sig fint í landinu þar sem hann hefur
nú þegar komist upp á lagið með að
borða Sushi.
Nýtur kvenhylli
Það er ekki hægt að taka viðtal við
Þorvald án þess að enda á að minnast
á kvenhylli hans því frá því að hann
var bara smágutti hefur hitt kynið
sýnt honum mikinn áhuga. Kannski
ekki nema von þar sem drengurinn
er með óvenjusjarmerandi bros og
sérstök skásett augu með löngum
Leikarar í sýningunni Salka-ástarsaga sem sýnd var í Hafnarfjarðarleikhúsinu í
hann fór með hlutverk Arnalds yngri.
Tommy í Kardimommubænum í
Þjóðleikhúsinu 12 ára gamall og fékk
14 ára hlutverk Bugsy í söngleiknum
Bugsy Malone sem sýndur var í Loft-
kastalanum. I vetur hefur hann svo
leikið í sýningunni Salka-ástarsaga
hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu og í
Thrifler-sýningu Verzlunarskólans
sem gengur í Loftkastalanum um
þessar mundir.
Hrifinn af Borgarfiröi eystra
Það verða ekki miklar útilegur hjá
Þorvaldi í sumar eða öllum hinum
leikurunum í Thriller-sýningunni
þar sem söngleikurinn er sýndur svo
til aflar helgar í Loftkastalanum í
sumar en Leikfélag íslands keypti
sýninguna af skólanum.
„Það er mjög sérstakt að leikhús
kaupi framhaldsskólasýningu. Við
sýndum sjáif 15 sinnum í vetur sem
er í meira lagi og á síðustu sýning-
arnar urðum við að visa frá 900
manns. Þannig að ekki er hægt að
segja annað en að sýningin hafi geng-
ið vel,“ segir Þorvaldur, ánægður
með þessa sumarvinnu.
Fyrir utan að vera í Thriller i sum-
ar er Þorvaldur að stússast í ýmsum
smáverkefnum og tók t.d þátt í leik-
þætti á Kristnihátíðinni á Þingvöll-
um á vegum Hafnarfjarðarleikhúss-
ins og leikhópsins Æsis.
„Mín skoðun er sú að peningamir
sem fóru í þessa hátíð hefðu frekar
átt að renna til fátækra hér á ís-
heldur afls ekki eftir þeirri reynslu
sem ég hef öðlast í öllum þessum
leikritum í gegnum tíðina þó þetta
hafi verið tímafrekt."
Stjórnmál og heimspeki
Þrátt fyrir að leiklistin heilli Þor-
vald Davíð þá er það ekki endilega
hún sem hann ætlar að leggja fyrir
sig í framtíðinni.
„Ég ætla alla vega ekki að verða
viðskiptafræðingur þó svo flestir í
Verzló lendi í þeim geira. Mér finnst
leiklistin spennandi en stjórnmál eða
heimspeki lokka líka,“segir Þorvald-
ur sem gæti vel hugsað sér að skella
sér í þessar greinar í Háskólanum að
stúdentsprófi loknu.
„Heimspeki er hugsun og hver
maður hefur gott af því að hugsa og
pæla. Ég hef trú á því að heimspekin
opni manni leið til að standa sig vel
í öllu því sem maður gerir,“ segir
Þorvaldur sem er reyndar með bók-
ina Pælingar II eftir Pál Skúlason á
náttborðinu en hún er einmitt einn
stærsti hluti námsefnisins í heim-
spekilegum forspjallsvísindum í Há-
skólanum.
Þorvaldur er líka, þrátt fyrir að
hann sé ekki kominn með kosninga-
rétt, farinn að spá í stjómmál, bæði
hér heima og erlendis, og er maður á
hálum is ef minnst er á Palestínu við
hann.
„Eins og staðan er í dag þá lýst
mér eiginlega ekki á neinn af stjórn-
vetur. Þorvaldur er lengst til hægri en
uppbrettum svörtum augnhárum.
„Það hafa verið að hringja í mig
ókunnar stelpur á öllum tímum sól-
arhringsins. Fyrst fannst mér þetta
bara verið fyndið en með tímanum
hefur þetta orðið mjög truflandi og
leiðinlegt. Svo ekki hringja í mig oft-
ar, stelpur, ef þið lesið þetta,“ segir
Þorvaldur og hlær.
En hvað eiga þœr stelpur þá að
gera ef þœr vilja kynnast þér?
„Þær geta skrifað mér bréf, mér
finnst það miklu betra en að þær séu
að hringja í mig kl. 2 á nóttunni og
halda einhverja ræðu. Það er frekar
hallærislegt,“ segir Þorvaldur.
Aðspurður um draumadísina þá er
hann ekki með neinar sérstakar kröf-
ur aðrar en þær að hún verði að vera
greind og hafa vissan sjarma til að
bera.
„Ég held að það sé engin viss týpa
fyrir hvem og einn. Maður bara
smellur ef maður smellur.“
Þannig aö þú trúir á ástina?
„Já, ég geri það. Ég held að hún sé
alveg frábært fyrirbæri. Og þrátt fyr-
ir alla þessa skilnaði og vesen á fólki
þá held ég að því verði ekki sleppt að
elska.“
Þú sagðir í viötali á Stöó 2 um dag-
inn aö þú vœrir á lausu. Ertu það
ennþá?
„Já, ég er enn á lausu,“ segir Þor-
valdur og roðnar aðeins en bætir við:
„Það breytist ekkert um hverja
helgi.“ -snæ
Þorvaldur er Þróttari af lífi og sál og var aö æfa fótbolta meö félaginu frá 5
til 15 ára. Þessi mynd er tekin gullaldarsumariö 1993.
SfiSli
Röddin hans Simba í Disney-teiknimyndinni um Konung Ijónanna er frá Þor-
valdi komin.
Þorvaldur meö þjófunum í Kardimommubænum en þar fór hann með hlut-
verk Tommys.
Þorvaldur fór meö hlutverk Bugsy í söngleiknum Bugsy Malone. Hér er
hann ásamt öörum leikari í sýningunni, Hannesi Þórði Þorvaldssyni.