Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
55
I>V
Tilvera
Níræður
Sigurður Þ. Tómasson
fyrrv. kaupfélagsstjóri
Sigurður Þ. Tómasson, fyrrv.
kaupfélagsstjóri og forstjóri, Ból-
staðarhlíð 45, Reykjavík, verður ní-
ræður á morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Miðhóli í
Fellshreppi í Skagafirði og ólst þar
upp. Hann var afgreiðslumaður á
unglingsárunum hjá Kaupfélagi
Fellshrepps og reri til Drangeyjar
til fuglaveiða á ílekum þrjár vorver-
tíðir.
Sigurður lauk Samvinnuskóla-
prófi 1930 og var í bóklegu og verk-
legu námi á vegum Kooperativa
Förbundet í Stokkhólmi 1931-32.
Sigurður var forstjóri Kjörbúðar
Siglufjarðar 1932-36, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Siglfirðinga
1937-45, vann við aðalbókhald SlS í
Reykjavík 1945-48 og var skrifstofu-
maður hjá Skeljungi hf. í Reykjavík
1949-51.
Sigurður stofnaði síðan Efnagerð
Laugarness en seldi hana eftir rúm-
lega tuttugu ára rekstur. Þá stofnaði
hann fyrirtækið S.Þ. Tómasson hf.
Sigurður starfaði mikið í
Kiwahishreyfingunni og gegndi
trúnaðarstörfum á vegum hennar.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 2.6. 1935
Maggý Flóventsdóttur, f. 1.9. 1910,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Flóvent Jóhannsson og k.h., Mar-
grét Jósepsdóttir.
Börn Sigurðar og Maggýjar: Ebba
Guðrún Brynhildur, f. 5.12. 1935,
húsmóðir, gift Ólafi Skúlasyni bisk-
up; Tómas, f. 7.12. 1938, d. 17.1. 1975,
verkfræðingur í Reykjavík.
Börn Ólafs og Ebbu eru Guðrún
Ebba, f. 1.2. 1956, formaður Félags
grunnskólakennara, gift Stefáni Ell-
ertssyni stýrimanni og eiga þau
tvær dætur; Sigríður, f. 9.8. 1958,
húsmóðir i Reykjavík, gift Höskuldi
Ólafssyni, framkvæmdastjóra hjá
Eimskip, og eiga þau þrjú börn;
Skúli Sigurður, f. 20.8. 1968, prestur
íslendinga í Svíþjóð, kvæntur Sig-
ríði Björk Guðjónsdóttur lögfræð-
ingi og eiga þau tvö börn.
Systkini Sigurðar: Guðrún, f.
1909, nú látin, lengst af búsett á Miö-
hólum; Jónasína, f. 1913, nú látin,
húsmóðir í Reykjavík; Anton, f.
1915, nú látinn, lengst búsettur á
Hofsósi; Björg, f. 1917, nú látin, hús-
móðir í Reykjavík; Hallfríður, f.
1919, nú látin, húsmóðir í Reykja-
Fimmtugur
Þorvaldur Gunnlaugsson
stærðfræðingur í Reykjavík
80 ára_________________________________
Ásta S. Hannesdóttir,
Skálagerði 13, Reykjavík.
75 ára
Haraldur Þórðarson,
Hólmagrund 9, Sauðárkróki.
70 ára_________________________________
Anna Egilsdóttir,
Sléttuvegi 7, Reykjavík.
Guðmundur H. Gíslason,
Meistaravöllum 31, Reykjavík.
Guðrún Jóhanna Lárusdóttir,
Boðagranda 7, Reykjavik.
Sigurbjörg Oddsdóttir,
Vesturbergi 78, Reykjavík.
Sigurborg Ólafsdóttir,
Háaleitisbraut 56, Reykjavík.
Stefán B. Gíslason,
Framnesvegi 33, Reykjavík.
Vilhjálmur Stefán Guðlaugsson,
Meðalbraut 4, Kópavogi.
60 ára_________________________________
Pétur Brynjólfsson,
framkvæmdastjóri Hólalax
hf., Hvammi, Hjaltadal,
verður sextugur mánud.
17.7.
Eiginkona hans er
Sigfríður L. Angantýsdóttir
skólastjóri.
Þau taka á móti vinum og
vandamönnum í Grunnskólanum á
Hólum laugardagskvöldið 15.7. kl.
20.00.
Steinunn Sigurgeirsdóttir,
Hrismóum 1, Garðabæ.
50 ára_________________________________
Friðrik Guðbrandsson,
Frostaskjóli 32, Reykjavík.
Hallur Albertsson,
Skógarhjalla 8, Kópavogi.
Hannes A. Ragnarsson,
Hamragarði 3, Keflavík.
Helgi Valdimarsson,
Hverfisgötu 57, Reykjavík.
Sverrir Þórólfsson,
Þinghólsbraut 58, Kópavogi.
Valur Lýðsson,
Gýgjarhóli 2, Selfossi.
40 ára_________________________________
Einar Gautur Steingrímsson,
Kirkjubraut 11, Seltjarnarnesi.
Guðjón Kárason,
Seilugranda 7, Reykjavík.
Helga Óladóttir,
Asparfelli 4, Reykjavík.
Hilmar Þór Hilmarsson,
Suðurhvammi 22, Hafnarfirði.
Hjaiti Sigurjón Hauksson,
Miklubraut 46, Reykjavík.
Ragnar Hinrik Einarsson,
Keilufelli 7, Reykjavík.
Steinvör Ingibjörg Gísladóttir,
Hlíðarhjalla 63, Kópavogi.
Þorvaldur Hannesson,
Heiöarbrún 6, Hveragerði.
Smáauglýsingar
Þorvaldur Gunnlaugsson stærð-
fræðingur, Marargötu 3, Reykjavík,
verður fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Þorvaldur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í foreldrahúsum en
dvaldi á sumrin í Skáleyjum á
Breiðaflrði, í Hólmi i Vestur-Skafta-
fellssýslu og á Gunnsteinsstöðum í
Langadal.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1969, BS-prófi í stærðfræði og líf-
fræði við HÍ 1973 og stundaði fram-
haldsnám við Stokkholms Uni-
veritet 1974-75.
Þorvaldur hefur stundað kennslu,
unnið við hugbúnaðargerð og vef-
hönnun hjá skrifstofu Alþingis og
við Ríkisspítalana og stundað hvala-
rannsóknir á vegum Hafrannsókn-
arstofnunar. Hann starfar nú hjá
Halo ehf.
Fjölskylda
Kona Þorvalds er Ágústa Hrefna
Lárusdóttir, f. 16.10. 1957, verkefna-
og gæðastjóri Verðbréfaþings ís-
lands. Hún er dóttir Lárusar
Ágústssonar málara, sem er látinn,
og Önnu Hjördísar Jónsdóttur hús-
móður.
Böm Þorvalds frá fyrri sambúð
eru Herdís Anna Þorvaldsdóttir, f.
2.10. 1974, stúdent, dóttir hennar er
Gabríela Jóna Ólafsdóttir, f. 18.11.
1992, sambýlismaður Herdísar
Önnu er Davíð Björnsson tannsmið-
ur; Gunnlaug Þorvaldsdóttir, f. 23.4.
1976, læknaritari, sambýlismaður
hennar er Guðmundur Pétursson
gítarleikari; Jón Þórarinn Þorvalds-
son, f. 7.12. 1977, nemi, sambýlis-
kona hans er Hólmfríður Rós Rún-
arsdóttir nemi; Hannes Þórður Þor-
valdsson, f. 13.4. 1983, nemi.
Systkini Þorvalds eru Hrafn, f.
17.6. 1948, kvikmyndagerðarmaður
og rithöfundur í Reykjavík; Snædís,
f. 14.5. 1952, sýslufulltrúi á Húsavík;
Tinna, f. 18.6. 1954, leikkona í
Reykjavík.
Foreldrar Þovalds: dr. Gunnlaug-
ur Þórðarson, f. 14.4. 1919, d. 20.5.
1998, hrl. i Reykjavík, og Herdís Þor-
valdsdóttir, f. 15.10. 1923, leikkona.
Ætt
Gunnlaugur var sonur Þórðar, yf-
irlæknis á Kleppsspítala, Sveinsson-
vík; Ólöf, f. 1922, nú látin, lengst af
starfsmaður við Hagstofuna í
Reykjavík; Þórný, f. 1922, húsmóðir
í Reykjavík; Eggert, f. 1924, nú lát-
inn, lengst af á Miðhóli; Margrét, f.
1926, húsmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar voru Tómas
Jónasson, f. 5.8. 1887, d. 7.2. 1939,
kaupfélagstjóri Kaupfélags Fells-
hrepps, og k.h., Ólöf Þorkelsdóttir, f.
30.7. 1885, d. 26.11. 1963, húsfreyja.
Ætt
Tómas var sonur Jónasar, b. í
Beingarði, Árnasonar, b. i Þverá í
Blönduhlíð, Árnasonar. Móðir Áma
var Sigríður Magnúsdóttir, b. í Lýt-
ar, b. á Geithömrum í Svínadal, Pét-
urssonar. Móðir Þórðar var Stein-
unn Þórðardóttir, b. í Ljótshólum í
Svínadal, Þórðarsonar, b. á Kúfu-
stöðum í Svartárdal, Þóðarsonar, b.
á Kúfustöðum, Jónssonar, b. á
Lækjamóti í Víðidal, Hallssonar, b.
á Þóreyjarnúpi, Björnssonar, b. á
Guðlaugsstöðum í Blöndudal, Þor-
leifssonar sem Guðlaugsstaðaættin
er kennd við.
Móðir Gunnlaugs var Ellen Jo-
hanne, náfrænka Ludvigs Kaabers,
bankastjóra Landsbankans. Ellen
Johanne var dóttir Jens Ludvigs
Joachims Kaaber, framkvæmda-
stjóra í Kaupamannahöfn.
Herdís er dóttir Þorvalds, bóksala
í Hafnarfirði, Bjamasonar, b. og for-
manns á Fagurhóli í Höfnum, Tóm-
assonar, frá Teigi í Fljótshlíð, og
Herdísar Nikulásdóttur.
Móðir Herdísar var María Jóns-
dóttir Þveræings, b. á Þverá í Laxár-
dal, Jónssonar, bróður Snorra á
Þverá, fóður Áskels tónskálds. Ann-
ar bróöir Jóns Þveræings var Bene-
dikt á Auðnum, faðir Huldu skáld-
konu. Jón Þveræingur var sonur
Jóns, b. á Þverá, Jóakimssonar, b. á
Mýlaugsstöðum, Ketilssonar, b. á
Sigurðarstöðum i Bárðardal, Tóm-
assonar. Meðal afkomanda Ketils á
Sigurðarstöðum voru þeir bræður
ingsstaðakoti, Eirikssonar, hrepp-
stjóra á Lýtingsstöðum, Jónssonar,
b. á Syðri-Mælifelli, Stefánssonar, b.
á Lýtingsstöðum, Sigurðssonar,
lrm. á Þorleifsstöðum, Eiríkssonar,
lrm. i Djúpadal, Magnússonar, lrm.
á Ljósavatni, Bjömssonar, officialis
á Mel, Jónssonar, biskups Arason-
ar. Móðir Jónasar var Sigríður Jón-
asdóttir, b. á Þverá, Jónssonar, b. á
Þverá, Illugasonar. Móðir Jóns var
Guðrún Steingrímsdóttir, systir
Jóns eldprests. Móðir Tómasar var
Guðrún Tómasdóttir, b. á Ystahóli,
Jónssonar. Móðir Guðrúnar var
Guðrún Tómasdóttir, b. í Hvanneyr-
arkoti, Andréssonar og Hólmfríðar
Guðbrandsdóttur. Móðir Guðrúnar
frá Ystahóli var Anna Bjamadóttir,
b. á Mannskaðahóli, Jónssonar og
Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Ólöf var dóttir Þorkels, b. í Lón-
koti, Dagssonar, b. á Karlsstöðum í
Ólafsfirði, Bjamasonar, b. á Karls-
stöðum, Sigfússonar. Móðir Bjarna
var Guðný Jónsdóttir, b. í Brimnesi,
Arnórssonar, Þorsteinssonar, ætt-
fóður Stórubrekkuættar, Eiríksson-
ar. Móðir Guðnýjar var Þóra Jóns-
dóttir, b. á Auðunnarstöðum, og
Ingibjargar Jónsdóttur, b. á Melum,
Jónssonar, ættföður Melaættar,
Oddssonar.
Hallgrímur og Sigurður Kristins-
synir, forstjórar SÍS, og Aðalbjörg
Sigurðardóttir, móðir Jónasar
Haralz, fyrrv. bankastjóra. Bróðir
Jóns Jóakimssonar á Þverá var
Hálfdán, faðir Jakobs, stofnanda
Kaupfélags Þingeyinga, fyrsta kaup-
félagsins.
Móðir Maríu var Halldóra Sigurð-
ardóttir frá Amheiðarstöðum Gutt-
ormssonar.
Þorvaldur tekur á móti gestum að
Elliðavatnsbletti 101 í Rauðhólum v.
Helluvatn sunnud. 16.7. kl. 16.00.
DV
Þjónustu-
auglýsingar
►I 550 5000
Astrid Þorsteinsson hjúkrunarfræðingur,
sem lést laugard. 1.7., verður jarösung-
in frá Hafnarfjarðarkirkju mánud. 17.7.
kl. 13.30.
Guöfinna Guömundsdóttir, Vorsabæ,
Gaulverjabæjarhreppi, Flóa, veröurjarö-
sett frá Gaulveijabæjarkirkju miðvikud.
19.7. kl. 14.00.
Jóhann Kristinn Rafnsson, heiðursborg-
ari Stykkishólms, veröur jarðsunginn frá
Stykkishólmskirkju laugard. 15.7. kl.
14.00.
Hanna Sigurrós Hansdóttir, Klausturhól-
um, Grímsnesi, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju laugard. 15.7. kl. 10.30.
Útför Pálínu Gísladóttur, Hrísalundi 4e,
Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju
mánud. 17.7. kl. 13.30.
Sextugur
■■i
Guðmundur Marinósson
skrifstofumaður á ísafirði
Guðmundur Marinósson, skrif-
stofumaður á Skattstofu Reykja-
ness, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp til tíu ára aldurs,
en var síðan í þrjú ár hjá móður-
systur sinni í Álftafirði við ísa-
fjarðardjúp eftir lát móður sinnar
og því næst önnur þrjú ár hjá syst-
ur sinni á Selfossi.
Guömundur lauk prófl frá Mið-
skóla Selfoss 1955. Sextán ára hóf
hann störf sem sölumaður, fyrst
hjá Rolf Johansen og síðar hjá ís-
lensk erlenda verslunarfélaginu.
Sumarið 1960 flutti Guðmundur til
ísafjarðar. Þar vann hann m.a. hjá
Vélsmiðjunni Þór, Skattstofu Vest-
fjarða og ísafjarðarkaupstað, m.a.
sem forstöðumaður skíðasvæðisins
og sem bæjargjaldkeri. Hann var
jafnframt umboðsmaður Stefs á
Vestfjörðum, hafði umboð fyrir
hljóðfæraverslanirnar Rin og Poul
Bemburg og rak Sjálfstæðishúsiö
ásamt hljómsveitinni B.G. og
Áma. Árið 1982 varð hann fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins og Heilsugæslustöðvarinn-
ar á ísafirði og gegndi því starfi í
tíu ár. Þá hóf hann störf hjá Póls
rafeindavörum, fyrst sem fjármála-
stjóri og síðar sem framkvæmda-
stjóri. í ársbyrjun 1997 gerðist
hann rekstrarstjóri veitingastaðar-
ins Á Eyrinni og Gallerys Pizza.
Árið 1998 starfaði hann um skeið
sem fjármálastjóri hjá Auglýsinga-
stofu Reykjavíkur en hóf störf á
Skattstofu Reykjaness í janúar
1999 og starfar þar nú.
Guðmundur hefur tekið virkan
þátt í félagslífi á Isafiröi og gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
félög þar í bæ. Hann starfaði m.a.
fyrir Skíðafélag ísafjarðar og sá
um Skíðavikuna í mörg ár, hann
var í Lionsklúbbi ísafjarðar og
gegndi þar formennsku í tvígang.
Þá er hann félagi í Frímúrara-
stúkunni Njálu og starfaði árum
saman ötullega fyrir Sjálfstæðisfé-
lögin á Isafirði, sá um fjármál full-
trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
mörg ár og var um tíma formaður
þess. Enn fremur var hann vara-
bæjarfulltrúi fyrir flokkinn og sat í
ýmsum nefndum og ráðum á veg-
um hans fyrir bæjarfélagið. Á
yngri árum starfaði Guðmundur
með hljómsveitinni V.V. og Barði
og var umboðsmaður hljómsveitar-
innar B.G. og Ámi þegar hún var
sem þekktust.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 24.12. 1960
Þorgerði S. Einarsdóttur, f. 6.1.
1940, þjónustufulltrúa hjá Lands-
símanum á ísaflrði. Foreldrar
hennar voru Björg A. Jónsdóttir og
Einar I. Guðmundsson.
Dætur Guðmundar og Þorgerðar
eru Ingibjörg, f. 22.12. 1959, starfs-
maður Sparisjóðs Reykjavíkur, gift
Gisla Blöndal vélsmið og á hún
þrjá syni, Christian Marinó Friis
Nielsen, f. 8.7. 1982, Arnar Má
Brynjarsson, f. 27.6. 1987, og Guð-
mund Ragnar Brynjarsson, f. 18.7.
1988; Guðrún, f. 12.5. 1961, fram-
kvæmdastjóra JPV forlags, gift
Rúnari Helga Vignissyni rithöf-
undi og eiga þau tvo syni, ísak Ein-
ar, f. 20.4. 1992, og Þorra Geir, f.
24.4. 1995.
Guðmundur á tvær systur. Þær
eru Sigríður Ólína, f. 6.10.1932, hús-
móðir á Selfossi; Ingu Randolph, f.
6.6. 1934, húsmóðir í Orlando í
Bandaríkjunum,
Foreldrar Guðmundar voru Mar-
inó B. Valdimarsson, f. 15.4. 1906,
d. 3.3.1979, farmaður, og k. h., Guð-
rún Guðmundsdóttir, f. 10.5. 1898,
d. 16.5.1951, húsfreyja.
Guðmundur verður að heiman á
afmælinu.