Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Blaðsíða 27
31
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
I>V Tilvera
Hillary á
afmæli í dag
Forsetafrú Banda-
ríkjanna, Hfllary Rod-
ham Clinton, verður
fimmtíu og þriggja ára
gömul í dag. Nú þegar
seta eiginmanns hennar í Hvíta hús-
inu er að renna sitt skeið hefur Hill-
ary gert lýðnum ljóst að hún ætli að
taka við af eiginmanninum og vera
pólitíkusinn í fjölskyldunni og býður
sig fram sem öldungardeildarþing-
maður fyrir New York. Hillary, sem
er lögfræðingur að mennt, hefur ekki
haldið sig í skjóli eiginmannsins og
hefur á forsetaferli hans látið til sín
taka í mörgum málum.
Gildir fyrir föstudaginn 27. október
Tvíburarnlr (2
>ví
~s( !
Taktu Kvöld
Vatnsberinn (20. ian.-ts. fehr.i:
. Einhver biður þig um
‘ að lána sér fjármuni.
Það kann að vera ailt í
lagi ef vel er gengið
fra málunum. Fjárhagur þinn fer
batnandi.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
[ Gerðu þér far um að
Ikoma vel fyrir og
vandaðu þig í sam-
skiptum við annað
fólk. Þú munt fá það margfalt
endurgreitt.
Hrúturinn (21. mars-19. apríH:
j Þú hefur óþarflega miklar
fjárhagsáhyggjur. Fjár-
^ málin standa ekki eins
iila og þú heldur. Þú ættir
að bregða út af vananum og sletta ær-
lega úr klaufunum einu sinni.
Nautið (20. aoríl-20. maii:
Ástin blómstrar þessa
dagana og það er
greinilegt að sumarið
er komið hjá þér. Það
væri ékki svo vitlaust að fara í
smáferðalag.
Tvíburarnlr (21. maí-2i. iúníi:
Gefðu þér betri tíma
' fyrir sjáifan þig en þú
hefur gert undanfarið.
Þú þarfnast þess.
Taktu'kvöldinu rólega í faðmi
fjölskyldunnar.
Krabbinn <22. iúní-22. íúitu
Þér lætur betur að
| vinna með öðrum en
' einn í dag. Þú nærð
_____ góðum árangri í vinn-
unm og sjálfstraust þitt eykst til
muna.
Uónlð (23. iúlí- 22. áeúst):
Þeir sem eru ástfangnir
gætu lent í smávægi-
legri deilu. Þeir sem
eru ekki ástfangnir
verða það von bráðar. Næstu dagar
verða fjölbreyttir og skemmtilegir.
Mevian (23. ágúst-22. seot.l:
/t. Misskilningur gæti
Ayft orðið á milli manna og
y^röng skilaboð borist.
™ F Fjölskyldan stendur
þétt saman ef erfiðleikar koma
upp.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
Þú færð nýtt áhugamál
sem á eftir að færa
mikla gleði inn í líf
þitt. Þú kynnist áhuga-
verðri persónu í tengslum við
þetta áhugamál.
Sporðdreki (24. okt.-2i. nóv.l:
| Vinur þinn er eitthvaö
niðurdreginn þessa
jidagana og þarf á þér
Jað halda. Talaðu við
harin og reyndu að benda honum
á björtu hliðamar á tilverunni.
Bogamaður (22. nnv.-?i. dfis.h
JNiðurstaða fæst í dag eða
fnæstu daga í máli sem
hefur lengi beðið
úrlausnar. Niðurstaðan
er þér mikill léttir og er svo sannar-
lega tilefni til að halda upp á það.
steingeltin (22. des.-19. ian.l:
Þú tekur þér eitthvað
nýtt fyrir hendur í
dag. Það er ekki víst
að þér lítist vel á það í
byrjun en líklega venst þú þessu
fljótt.
wu5m
ý
Heimasíða á að færa I jörna fulltrúa nær íbúunum og öfugt:
Einn af í yrstu
íbúunum
opnaði h|eima-
síðuna
Óboðinn gestur í
baðkeri Britney
Feit af því að
hún gat ekki
farið í ræktina
Kryddpían Mel C viðurkennir að
hún hafi þyngst svolítið. „Ég meiddi
mig í mjöðminni í janúar síðastliðn-
um og einni viku fyrir tónleikaferða-
lagið datt ég í stiga og braut á mér fót-
inn. Það er því svolítið langt síðan ég
hef getað farið í líkamsrækt," segir
Mel C í nýlegu viðtali.
Það hefur ekki farið fram hjá
bresku pressunni að Mel C hefur ekki
stundað líkamsræktina af krafti. Slúð-
urblöðin í Bretlandi hafa keppst við
að segja fréttir af holdafari Mel C og
uppnefnt hana fitubollu.
Reyndar hefur athygli fjölmiðla
einnig beinst að holdafari annarrar
Kryddpíu, Victoriu, sem er orðin
grindhoruð. Victoria viðurkenndi síð-
astliðinn vetur að hún hefði lést og
ætti við átröskun að stríða.
Gamall grínisti heiðraður
Bandaríski grínistinn og leikstjórinn Carl Reiner fékk gamanverölaun sem
kennd eru viö háöfuglinn Mark Twain vestur í Washington um daginn.
Sonur verðlaunahafans, leikarinn og leikstjórinn Rob Reiner, stendur hjá.
DV, EGILSSTODUM:_____________________
„Heimasiða getur fært kjörna
fulltrúa nær íbúum sveitarfélagsins
og íbúana nær okkur og það er
geysilega mikilvægt," sagði Katrín
Ásgrímsdóttir, forseti bæjarstjórar
Austur-Héraðs, þegar opnuð var
viðamikil heimasíða sveitarfélags-
ins með.pomp og prakt.
Það var Bjarghildur Sigurðardótt-
ir ásamt langömmubarni, Brynjari
Þórhallssyni, sem opnaði síðuna
formlega. Bjarghildur var einn af
allra fyrstu ibúum Egilsstaðaþorps,
flutti inn í hús sitt 1946. Á heima-
síðu Austur-Héraðs er að finna allt
um stjóm og starfsmenn sveitarfé-
lagsins, fyrirtæki, fréttir og jafnvel
er hægt að komast inn á heimasíður
vinabæja Egilsstaða á Norðurlönd-
um. Heimasíðan verður færð upp
daglega. -SB
Óboðnum gesti tókst nýlega að
komast inn í nýbyggða 300 milljóna
króna lúxusvillu söngkonunnar Brit-
ney Spears þrátt fyrir öflugt öryggis-
kerfi. Gesturinn gekk úr einu her-
berginu í annað og lauk heimsókninni
með þvi að leggajst í baðker söngkon-
unnar. Þar tók hann myndir af sjálf-
um sér og sendi Britney.
„Honum tókst einnig að reikna út
hvaða herbergi verður svefnherbergið
hennar. Það er óhugnanlegt," segir
Britney Spears
Óboöni gesturinn sendi Britney
myndir frá heimsókn sinni.
umboðsmaður Britney, Johnny
Wright, í viðtali við breska blaðið The
Sun.
Söngkonan hefur að undanfórnu
verið á tónleikaferðalagi í Þýskalandi.
Hún er ekki hrifm af því að vera um-
kringd lífvörðum en neyðist til þess.
Að sögn Johnnys hafa aðdáendur tán-
ingastjörnunnar falið sig á salerninu í
rútunni sem Britney og samstarfs-
menn ferðast í.
Nýtt hús átti að veita Britney meira
öryggi. Hinum óboðna gesti tókst þó
að komast fram hjá vörðunum og
skríða inn um baðherbergisgluggann.
LúxusviOan er í heimabæ Britney,
Kentwood í Louisiana. Gert er ráð fyr-
ir að söngkonan flytji í húsið ásamt
foreldrum sinum um jólaleytið.
Innbrotið er ekki eini atburðurinn
sem hrætt hefur Britney að undan-
fómu. Fjölmiðlar greindu nýlega frá
því að 17 ára pfltur hefði hótað að
myrða kærasta Britney, Jstin Timber-
lake, og aðra meðlimi hljómsveitar-
innar N’Sync þar sem þeir lokkuðu tfl
sín svo margar faOegar stúlkur. Móð-
ir pfltsins gerði lögreglu viðvart.
Sharon og
Phil ekki
sammála
Leikkonan Sharon Stone og eig-
inmaður hennar, ritstjórinn Phil
Bronstein, eru ekki alveg sam-
mála um hvar hann er í pólitík-
inni.
„Ég er gift repúblikana," sagði
Sharon um daginn. Hún er aftur á
móti eldheitur demókrati og
stuðningsmaður Als Gores vara-
forseta í forsetakosningunum í
næsta mánuði.
Phil neitar hins vegar að gefa
upp stjórnmálaskoðanir sínar.
„Ég tel ekki að Sharon hafi sagt
þetta vitandi vits um hvernig ég
er skráður né hverjum ég greiði
atkvæði mitt,“ sagði ritstjórinn í
samtali við bandaríska slúður-
dálkahöfunda.
Phil hefur mikið álit á gáfnafari
eiginkonunnar, segir hana skarp-
greinda og með einarðar skoðanir.
Það er eflaust rétt hjá honum.
Sharon segir til dæmis um George
W. Bush, forsetaefni repúblikana,
að hann sé ekki enn tilbúinn til að
gegna forsetaembættinu. „Hann er
greindur og íhugufl stjómmála-
maður sem er að byrja andlegan
þroska sinn.
„Ég segi ekki að hann verði
aldrei tilbúinn til að gegna for-
setaembættinu en hann er ekki
tilbúinn til þess núna,“ sagði
Sharon á dögunum.
Þá vitum við það. Vonandi kost-
ar þetta þó ekki miklar erjur á
heimili leikkonunnar og ritstjór-
ans sem ættleiddu ungan dreng í
sumar.
Viltu vekja athygli!
Ódýr lausn fyrir verslanir og
veitingahús.
Falleg Ijósasýning úti eða inni.
i Ljósafossar, Ijósanet, Ijósaslöngur
með stilli (kveikt/slökkt/blikk).
Englar, stjörnur, bjöllur, hjörtu, blóm,
snjókarlar, hreindýr o.fl.
Allt búið til úr Ijósaslöngum.
Úrval Ijósaskreytinga í glugga.
Útbúum Ijósaskilti og húsnúmer.
Dalbrekku 22 - sími 544 5770
■<
t