Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 15
15 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 PV________________________________________________ Útlönd Huggulegt í Danmörku Danir lifa óheilbrigöara lífi en aðrar þjóöir á Noröurlöndunum. Danir eru svartir sauðir norðursins Þótt Danir kunni Norðurlanda- þjóða best að hafa það huggulegt, verður ekki sama sagt um heilsufar frænda okkar. Þegar heilbrigðir lifnaðarhættir eru annars vegar eru þeir svo sannarlega svarti sauður- inn meðal Norðurlandaþjóðanna. Danir reykja meira og drekka en aðrir, þeir lifa skemur, deyja meira af völdum alnæmis. Þá er tölvueign í Danmörku minni en annars stað- ar, hjónaskilnaðir eru fleiri og Dan- ir eru verr menntaðir en bæði Norð- menn, Svíar og Finnar. Það eru bara Grænlendingar sem slá þeim við í óheilbrigði. Þetta kemur fram í tölfræðihand- bók Norðurlanda fyrir árið 2002 sem nýkomin er út á vegum Norður- landaráðs. í bókinni er dregin upp nærgöngul mynd af þeim liðlega 24 miUjónum manna sem búa á Norð- urlöndum. Þar kemur meðal annars fram að öldungar eru flestir í Sví- þjóð þar sem rúm fimm prósent íbú- anna eru yfir áttrætt. Roh Moo-hyun kjörinn forseti Norður-Kóreu: Færeyingar brátt í Norðurlandaráð Hogni Hoydal, ráðherra í fær- eysku landstjórn- inni, sagði eftir fund samstarfs- ráðherra Norður- landanna í Stokk- hólmi í vikunni að Norðurlanda- ráð ætlaði að setja á laggirnar sérstaka nefnd þar sem fjalla á um fulla aðild Færeyja að ráðinu. Færeyska stjórnin hefur sett sér það markmið að eyjarnar fái sjálfstæða aðild. Á 50 ára afmælisfundi Norður- landaráðs í Helsinki í haust var vel tekið í óskir sjálfstjórnarhéraðanna um fulla aðild. Slæmur aðbúnað- ur fyrir múslíma Yfirvöld í Bandaríkjunum halda allt að hálfu þriðja þúsundi ís- lamskra karla og pilta í ísköldum og þéttsetnum varðhaldsfangelsum í sunnanverðri Kaliforníu þar sem þeim er gert að afklæöa sig svo leita megi á þeim. Mennirnir voru hand- teknir eftir að þeir gáfu sig fram til að láta skrá sig, í samræmi við nýj- ar reglur um baráttu gegn hryðju- verkum. Mennimir reyndust ekki vera með löglega pappíra. Mannréttindalögfræðingar segja að mönnunum, sem flestir eru iranskir, sé haldið við ómannúðleg- ar aðstæður. Embættismenn dómsmálaráðu- neytisins í Washington, sem þögðu um málið í heila viku, sögðu að 227 menn hefðu verið handteknir í Kali- fomíu fyrir að vera lengur í landinu en vegabréfsáritun þeirra leyfði. Handtökumar hafa verið harð- lega gagnrýndar. Vill breyta sam- bandinu við BNA Roh Moo-hyun, nýkjörinn forseti Suður-Kóreu, hvatti í morgun til þess að breytingar yrðu gerðar á hálfrar aldar gömlu bandalagi við Bandaríkin. Hann hét þó að vinna með ráðamönnum í Washington að því að hafa hemil á kjamorku- vopnaáformum Norður-Kóreu. Roh, sem er 56 ára gamall mann- réttindalögfræðingur, sigraði í for- setakosningunum í gær. í kosninga- baráttunni lagðí hann áherslu á aukið sjálfstæði frá Bandaríkjun- um. Hann sagðist í morgun myndu leggja fram tillögur að breytingum á samningi um vera bandarískra her- sveita í landinu þar sem þær hafa verið frá lokum Kóreustríðsins. „Hefðbundin vinátta og bandalag Suður-Kóreu og Bandaríkjanna verður að þróast og hojfa fram á veginn á 21. öld,“ sagði Roh á fundi með fréttamönnum. Sigur Rohs er einnig talinn vera traustsyfirlýsing á þá stefnu fráfar- andi forseta að leita eftir samskipt- um við grannann í norðri sem Geor- ge W. Bush Bandaríkjaforseti hefur lýst sem einu þriggja „öxulvelda hins illa“. Roh hefur heitið að halda áfram á sömu braut. Stjómvöld í Washington reyndu að bera sig mannalega þegar úrslit- in lágu fyrir, enda eru þau enn ein vísbendingin um þverrandi vin- sældir Bandaríkjanna meðal ann- arra þjóða. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði að nú REUTERSMYND Glaöbeittur sigurvegari Roh Moo-hyun heldur brosandi á heföbundinni kóreskri grímu eftir aö Ijóst varö í gær aö hann heföi boriö sigur úr býtum í forsetakosningunum í Suöur- Kóreu. Roo þykir frjálslyndur og vill gera breytingar á samskiptunum viö BNA. væri tækifæri að endurnýja sam- skiptin við gamlan bandamann. Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans, óskaði Roh til ham- ingju með sigurinn og sagðíst hlakka til að vinna með honum að því að koma á friði og hagsæld í norðaustanverðri Asíu. Roh sótti fylgi tO svokallaðrar netkynslóðar til að sigra íhaldssam- an andstæðing sinn, Lee Hoi-chang, sem vill hörkulegri stefnu gagnvart Norður-Kóreu og stendur þess vegna nær Bandaríkjunum. Þrír gullsmiöir sem reka saman vinnustofu og verslun aö Laugavegi 37 þar sem þeir hanna og smíöa einstaka hluti. Hlutir frá okkur fást einnig á Listasafni íslands. or HLUTAGERÐARFÉLAGIÐ LAUGAVEGI 37 sími 511 6262 n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.