Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
JOV
Fréttir
hún fer fram - hún fer ekki fram
Á föstudagsmorgni er „stál í stál“ innan Reykjavíkurlist-
ans: Annars vegar standa Framsókn og Vinstri-grænir á því
fastar en fótunum að Ingibjörg Sólrún Gisladóttir geti ekki
verið borgarstjóri R-listans og jafhframt farið í framboð fyr-
ir Samfylkinguna, og á hinn bóginn segist Ingibjörg Sólrún
hvorki ætla að hætta við framboð né gefa eftir borgarstjóra-
stólinn. Hvemig kom þessi staða upp?
Á þriöjudagskvöld fékk DV veður af því að Ingibjörg Sól-
rún hefði fyrr um daginn samþykkt að taka 5. sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Snemma á miðvikudagsmorgun fékkst staðfest að henni
hefði verið boðið sæti, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í Ingibjörgu Sólrúnu til að fá staðfest að hún hefði
þegið boðið. DV og aðrir fjölmiðlar sögðu frá þvi þennan
ið jákvætt í óskir um framboð en ekki hafa gefið endanlegt
svar. Það myndi hún gera eftir einn til tvo daga. í Kastljós-
inu þá um kvöldið tók hún hins vegar af öll tvímæli. Hún
sagðist reiöubúin til að vera áfram borgarstjóri samhliða
framboði til Alþingis.
Síðar um kvöldið brást Halldór Ásgrímsson við tíðindum
dagsins í viðtali við DV. Hann sagði að flestir framsóknar-
menn teldu að með ákvörðun sinni um framboð hefði Ingi-
björg Sólrún gengið á bak orða sinna. Þetta væri alvarlegt
mál sem þyrfti að ræða. Raunar hefðu framsóknarmenn
einnig miklar áhyggjur af andstöðu borgarfulltrúa Samfylk-
ingarinnar við virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir.
Morguninn eftir - í gærmorgun - mótuðu helstu forystu-
menn Framsóknar og Vinstrigrænna viðbrögð viö málinu.
morgun að henni stæði þetta til boða.
Upp úr klukkan þrjú staðfesti Össur Skarphéðinsson svo
við DV - og væntanlega aðra fjölmiðla - að Ingibjörg Sólrún
hefði samþykkt að taka 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í
ReykjavíkurKjördæmi-norður.
Þeir liðsmenn Framsóknar og Vinstri-grænna sem DV
hafði sambandi við í kjölfarið komu af fjöllum - og var
hreint ekki skemmt. Klukkan 16.45 sagðist Ámi Þór Sig-
urðsson, forseti borgarstjómar, ekkert geta tjáð sig um mál-
ið enda hefði hann ekkert heyrt um það frá borgarstjóra.
Um klukkan 17 á miðvikudag hófst reglubundinn fundur
borgarfulltrúa R-listans í Ráðhúsi Reykjavíkur í aðdrag-
anda borgarstjómarfúndar daginn eftir.
Ingibjörg Sólrún segist hafa greint félögum sínum frá því
á þessum fúndi, að hún hefði tekið jákvætt í óskir um að
hún byði sig fram.
Staðfest er að forystumenn Framsóknar og Vinstri-
grænna gerðu henni þegar á þessum fundi grein fyrir því
að þeir teldu óhugsandi að hún færi í framboð sem borgar-
stjóri. Alfreð Þorsteinsson vék fyrstur manna af fundinum,
um það bil stundarfjórðungi eftir að hann hófst. Hvorki
hann né aðrir borgarfúlltrúar tjáðu sig einu orði um tíðindi
dagsins við fréttamenn sem biðu fyrir utan fundarherberg-
ið.
Um klukkan 18.15 lauk fimdinum og fréttamenn svifú óð-
ar á Ingibjörgu Sólrúnu. (Myndir 1-3) Hún sagðist hafa tek-
Þefr boðuðu til sameiginlegs blaðamannafundar (4) i Ráð-
húsinu - í sama herbergi og R-listinn hafði fundað daginn
áður - klukkan 12.30. Alfreð Þorsteinsson og Ámi Þór Sig-
urðsson töluðu máli sinna flokka. Þeir lýstu yfir því, að það
gæti að þeirra mati alls ekki farið saman að sinna hlutverki
borgarstjóra R-listans og frambjóðanda eins af flokkunum í
þingkosningum.
Eftir blaðamannafundinn (5) gengu borgarfulltrúamir
fjórir rakleiðis á fund borgarstjóra (6) og færðu
honum undirritaða yfirlýsingu um þessa afstöðu
þeirra. (7) Fréttamenn fylgdu í humátt á eftir.
Fundur þeirra með borgarstjóra stóð fremur
stutt. (8) í kjölfarið bauð borgarstjóri fréttamönn-
um inn á skrifstofu sina (9) og lýsti því þar yfir, að
hún teldi ekki að sér hefðu verið settir afarkostir.
Hún myndi hvorki hætta við frámboðið né gefa eft-
ir borgarstjórastólinn. Menn myndu „anda með nef-
inu“ og ræða málið í sameiningu.
Borgarstjóri fór beint af þessum óformlega
„blaðamannfundi" upp í ræðupúlt á fundi borgar-
stjórnar (12-16), til að halda langa ræðu um fjár-
hagsáætlun borgarinnar.
Óhætt er að fullyrða að fjárhagsáætlun borgar-
innar hafi ekki verið efst í huga neins borgarfulltrúa á
þeirri stundu.
-ÓTG
Pólitík í ráðhúsi
Garri
Það gerist í Reykjavík
Garri hefur aldrei kunnað að meta málflutn-
ing þeirra sem gagnrýna Reykjavíkurlistann fyr-
ir að standa ekki við gefin kosningaloforð. Enda
hefur gagnrýni þeirra núna verið rekin rækilega
ofan í þá.
Reykjavíkurlistinn gekk til síðustu sveitar-
stjómarkosninga með eitt yfirloforð allra loforða:
Það gerist í Reykjavík. Hverjum dettur í hug -
eftir hamaganginn síðustu daga - að halda því
fram að R-listinn standi ekki við gefin loforð?
Eitt stórt
Það má vel vera að R-listinn hafi um það bil
verið að komast á þá skoðun, að erfitt yrði að
standa við hvert einasta atriði í stefnuskrá sinni
frá því í vor. En Ráðhúsiö stendur undir nafni:
þar má nefnilega finna ráð undir rifi hverju.
í Ráðhúsinu hafa menn sennilega ráðið ráðum
sinum, seilst undir rifin og rifjað upp gamlan
málshátt: Margt smátt gerir eitt stórt. Málshátt-
urinn felur í sér dýpri sannleik, þvi að með
sama hætti hlýtur að mega fullyrða, að eitt stórt
geri margt smátt. Garri fullyrðir að sjálfur faðir
rökfræðinnar, Aristóteles, hefði skrifað upp á
þessa röksemdafærslu, svo augljós er hún.
Og ef eitt stórt gerir margt smátt er allt eins
Og það mun ENN gerast í Reykjavík. Ekki fer
sögum af slíkum og öðrum eins efndum í sögu
íslenskra stjómmála.
Garri telur litla spurningu hvem hann kýs í
næstu borgarstjómarkosningum.
Cy&ffi
gott fyrir stjómmálamenn að efna stærsta
loforð sitt eins og að efna öll litlu loforðin.
Það má skipta á þessu tvennu - allt eftir
þvi hvað hentar hverju sinni.
Hvaö viljiöi meira?
Það sem R-listinn ákvað var aö efna
stærsta loforð sitt: Það gerist í Reykjavík.
Og til þess þurfti, eðli málsins samkvæmt,
að láta eitthvað gerast í Reykjavík. Eitt-
hvað stórt. Eitthvaö magnað. Eitthvað sem
allir myndu sýna áhuga, taka eftir og tala
um.
Lausnin fólst auðvitað i því að lýsa van-
trausti á borgarstjórann í Reykjavík. Hví-
lík atburðarás! Hvílíkir atburðir! Allt und-
irlagt í fréttum, enda allt lagt undir.
Og núna er komin upp yndislega flókin
staða sem engin leið er að ráða í. Niður-
staðan er því að þetta risastóra kosningaloforð
verður efnt nánast á hverjum degi næstu daga.
Hvað gerir Framsókn? Hvað gerir Solla? Hvað
gera Vinstrigrænir? Nást samningar? Verður allt
dregið til baka eða standa allir fast á sínu? Hvað
þýðir það?
Það er sem sagt BÚIÐ að gerast í Reykjavík.