Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
55
Bubbi Morthens heldur sína ár-
Bubbi messar
á Þorláki
legu Þorláksmessutónleika á Hótel
Borg kl. 22.00 á mánudagskvöld.
Flestir þekkja orðalagið: fastir liðir eins og venju-
lega, með vísan til einhvers sem alltaf er á sínum
stað i föstu formi. Það mætti nota þetta um Þorláks-
messutónleika Bubba Morthens þvi þeir verða vissu-
lega á Þorláksmessu eins og venjulega þvi þar eru
þeir fastir liðir. En það er ekki endilega víst að þeir
verði venjulegir samt.
Bubbi hefur árlega í ég man ekki lengur hvað mörg
ár sest niður á Hótel Borg og sungið og leikið fyrir
aðdáendur sína. Árum saman var tónleikunum út-
varpað í Ríkisútvarpi allra landsmanna en á síðasta
ári var sá siður niður felldur og mun ástæðan hafa
verið málílutningur Bubba árið
þar á undan um nafntogaða menn
í samfélaginu. sérstaklega Hannes
Hólmstein Gissurarson prófessor.
Þannig er Bubbi nefnilega.
Hann hikar ekki við að tala um-
búðalaust við þá sem vilja hlusta og það hefur hann
alltaf gert. Bubbi hefur átt gott ár en plata hans, Sól
að morgni, hefur selst gríðarlega vel og verið á eða
við toppmetsölulista í margar vikur í aðdraganda jól-
anna.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 með því að Rósa Guð-
mundsdóttir fær það erfiða hlutverk að hita upp fyr-
ir meistarann. Síðan stígur Bubbi á svið um kl. 22.00
og kannski verður þetta hugljúfur kertaljósakonsert
og kannski verður þetta ógleymanleg eldmessa á Þor-
láki, atburður sem enginn hefði viljað missa af. Mað-
ur veit aldrei þegar Buhbi er annars vegar. -PÁÁ
Helgarblacf 1OV
nir Fitness sport sem
versla fyrir kr. 3000 eða meira
fara í LUKKUPOTT þar sem
dregið verður um vöruúttektir.
50.000/30.000/20.000, samtals:
.100.000
FiTNESS
FAXAFENI 8 REYKJAVÍK
wuww.fitnesssport.is
SKÓRAGÓÐU ViRBI
Islensku spádómsspilin
A
<
m^með (Mq
þegar vanda skal til veislu
aupHtaHHSOuoinuM
Seljabraut Reykjavfk Tryggvagötu Selfossf
Hagamel Reykjavfk Hótmgaröi Keflavfk
Brelóumörk Hveragerðl Ólafsbraut Ólafsvfk
tytteha-r
fr BMfcecs
AamöoeQarAryýi
BUTTERBAU
osfvnp
Stuffing
TURKEY,