Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 113
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
113
bibliothek, Frankfurt am Main. - Lára K. Stanton, Ithaca. — The State Library,
Pretoria. - State Republican Library of the Ukrainia SSR, Kiev. - Statens
Museum for Kunst, Kobenhavn. - Stockholm International Peace Research
Institute (SIPRI). - Stockholms Stadsarkivs bibliotek. — Svenska litteraturselska-
pet i Finland, Helsingfors. — Svenska Vitterhetssamfundet, Stockholm. -
Tampereen yliopisto. - P.B. Taylor prófessor, Genf. - Tekniska högskolan,
Lund. - Umweltbundesamt, Berlin. — UNESCO, Paris. - United Nations, New
York. - United Nations University, Tokyo. - United States Government,
Washington. - Die Universitát, Hamburg. - Universitátsbibliothek, Kiel. -
Universitetet i Bergen. - Universitetet, Helsingfors. - Universitetet, Kobenhavn.
- Universitetet, Lund. - Universitetet, Odense. - Universitetet, Umeá. - Uni-
versitetet, Uppsala. - Universitetsbiblioteket, Bergen. - Universitetsbiblioteket,
Göteborg. - Universitetsbiblioteket, Helsingfors. - Universitetsbiblioteket,
Lund. — Universitetsbiblioteket, Odense. — Universitetsbiblioteket, Oslo. - Uni-
versitetsbiblioteket, Trondheim. - Universitetsbiblioteket, Umeá. - Universitets-
biblioteket, Uppsala. — University Library,University of Illinois, at Urbana-
Campaign. - University of California, Berkeley. - University of Hull. - Uni-
versity of Leeds. - Utrikesdepartementet, Stockholm. - Paula Vermeyden
háskólakennari, Amsterdam. - Ernst Walter prófessor, Greifswald. - World
Health Organization. - Þjóðbókasafnið, Peking. - Þjóðbókasafnið, Pyongyang. -
Þjóðbókasafnið, Taiwan.
STJÓRNDEILD Landsbókavörður vann auk stjórn-
starfa að ýmsum verkefnum, svo sem
vali erlendra rita, sem aflað er til safnsins, ýmist keypt eða fengin í
skiptum. Þá sá hann sem fyrr um útgáfu Árbókar Landsbókasafns,
en hún liggur nokkuð eftir, eins og sést á því, að þessi Árbók,
Árbók 1990, skilar sér ekki fyrr en árið 1992.
Landsbókavörður vann á árinu að málefnum Þjóðarbókhlöðu
sem formaður byggingarnefndar og liðsmaður í nefnd, er vann að
endurskoðun forsagnar um bókhlöðuna vegna lokahönnunar
hennar.
Dr. Þorleifur Jónsson, er ráðinn var fyrir nokkrum árum í hálft
starf sem aðstoðarmaður landsbókavarðar, vann á árinu sem fyrr
að ýmsum sérverkefnum, svo sem samskrá um erlend tímarit í
íslenzkum bókasöfnum og stofnunum, en nýtt bindi tölvuunninn-
ar skrár kom einmitt út á árinu. 57 bókasöfn og stofnanir lögðu til
efni í skrána, og var samanlagður fjöldi tímarita þeirra 13.965. Af
þeim eru 9.724 tímarit opin, þ.e. þau berast enn í söfnin. Titlar eru
alls 10.289, þar sem allalgengt er, að sama ritið berist í tvö eða fleiri
söfn.
8