Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 92
92
FINNBOGI GUÐMUNDSSON
um íslenzkt þjóðerni og þykir enn, sem betur fer; og þykir mér því
kátleg og næstum því brjóstumkennanleg skoðun sú, sem bryddi á
í Bjarka, að líkindum runnin undan rifjum á Porsteini Gíslasyni og
sem Lögberg lapti upp.
Að svo mæltu hætti ég þessu rugli og bið þig að taka viljann fyrir
verkið. Betra bréf skal ég senda þér einhverntíma seinna, þegar ég
hef tóm til þess.
Með vinsemd og virðing,
Stephan Guttormsson
P.S. Utanáskrift mín verður um næstu 6 mánuði:
Cold Springs,
Man.
Stephan G. sendi nokkur kvæði til birtingar í Eimreiðinni, en ekki varð af því, að í
henni birtist grein Guðmundar Friðjónssonar um hann. Guðmundur samdi
löngu síðar alþýðuerindi um lífsskoðun Stephans G. Stephanssonar, og var það
prentað í Skírni 1912.
Cold Springs P.O., Man.
9. ágúst, 1901.
Stephan G. Stephansson, Esq.
Tindastóll, Alta.
Góði vinur!
Beztu þakkir fyrir bréf þitt, dags. 8. júní. Nú ætla ég að sýna lit á
að svara því bréfi, þó helzt líti út fyrir, að heilinn í mér sé að verða
að „andlegu þrotabúi". Reyndar hefur aldrei verið um auðugan
garð að gresja í honum, en nú mun hann þó vera með fátæklegasta
móti. Eg hef verið að hugsa mér að lappa upp á hann; en svo hef ég
horfið frá þeirri ætlan og heldur kosið að láta garminn eiga sig, ef
ske kynni að honum skánaði óvænt og upp úr þurru. Ég hef hvort
sem er óbeit á andlegum skottulækningum.
I síðasta bréfi drap ég á eitthvert ævintýri í lífi mínu. Það er nú
langt frá því að ég sé jafngóður enn; því það sem er fjögur ár að
búa um sig í huga manns, rýkur ekki burt á einni svipstund. En svo
er til lítils að láta það fá á sig. „Oft verður slíkt á sæ, kvað selur- var
skotinn í auga.“ - Sigurður Pétursson (langafabróðir minn) kvað:
„Fyrst er sjón og svo er tal, svo kemur hýrlegt auga; þar næst ástar
fagurt fal Freyju hefst við bauga.“ En hjá mér, ættleranum, kom
allt á afturfótunum, og því fór eins og raun varð á. En svo ekki
meira um þetta efni í bráð.