Vísir - 09.06.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 9. Júni, 1979
3
,,Eg hef ætíð
verið á eft-
ir tímanum”
Visir ræðir við Odd Jónsson á Ahureyri en hann
hefur verið starfandi skósmiður i 55 ár
talsverö breyting á efnum sem
eru notuð i skógerð. Margt af
þessu er lélegt. Engu að siður er
til vandaö skótau.en þaö er lika
dýrt.
Og svo verðlagið. Þegar ég
byrjaði i þessu var algengt verð
á sólun á karlmannaskóm 5,50
krónur en minnsta viðgerð kost-
aði 10 aura.
Gamli tfminn var ekkert likur
þvi sem nú er. Þá ólust menn
upp við harðræði. 011 verk voru
vandaðri og ekkert fúsk til. Eg
hef alltaf reynt að fylgja þeirri
reglu aö verkið entist vel.
Ég tók þetta starf út úr neyö,
ég ætlaöi aldrei I það en þá voru
erfiðir timar. Égætlaði 1 Versl-
unarskólann en það fórst nú fyr-
ir,en ég sé nú ekkert eftir þvi að
hafa farið I skósmiðina”.
Oddur sagði að viðskipta-
svæði hans næði alveg frá
Blönduósi til Seyðisfjarðar.
Talsvert væri um það aö feröa-
fólk frá Norður- og Austurlandi
sem ætti leið um Akureyri kæmi
með slitna skó og fengi þá siðan
senda viðgerða i póstkröfu.
,,Ég hef ekki unnið fullan
vinnudag i veturen yfir sumarið
vinn ég aldrei skemur en 14
tima á dag. Ég tek mér ekki
sumarfri en hins vegar hef ég
alltaf farið i fri um verslunar-
mannahelgina”, sagði Oddur.
—KS
,,Ég hef alltaf verið á eftir timanum. Ég er i
gamla timanum og verð þar sjálfsagt áfram”,
sagði Oddur Jónsson skósmiður á Akureyri i
samtali við Visi. Oddur er búinn að vera skó-
smiður i rúma hálfa öld og rekur ennþá skó-
verkstæði i Brekkugötunni.
Oddur hafði verið minntur á
að fyrir nokkrum árum haföi
hann tekið 10 krónur fyrir
minnstu viðgerö en hvað kostar
sllk viðgerð núna?
„Þaöskiptir ekki máh. Ég hef
veriö utan við allan rétt og lög.
Ég hef unnið við þetta undan-
farin ár meir f fristundum og
mér tilánægju. Ég get ekki unn-
ið þetta að öllu leyti eins og af
mér er krafist”, sagði Oddur.
Sá fjöldi viðskiptavina sem
kom á skóverkstæðið þann
stutta ti'ma sem við dvöldum
þar hefur þó bersýnilega verið
ánægður með handbragð skóar-
ans og þar kom að þvi' að Oddur
sagði að hann tæki nú 100 krónur
fyrir minnstu viðgerð.
,,Ég ætlaði að hætta um siö-
ustu áramót, en nýr skósmiður
kom til Akureyrar i fyrrahaust.
Ég hafði engan frið og neyddist
til að opna aftur. Ég verð
áttræður á þessu ári og þá er
þessu sjálfhætt”, sagði Oddur.
Oddur hefur verið á Akureyri
siðan árið 1932 en áður var hann
skósmiður á Dalvik I tiu ár og á
þessu ári er hann búinn að vera
55 ár i skósmiöinni.
, ,Ég hef verið með sömu vél-
arnar aö mestu leyti frá þvi ég
byrjaði á Akureyri”, sagöi Odd-
ur”, en ég keypti þær af
Magnúsi Lindal. Þær þurftu
smá endurnýjunar við en þær
hafa reynst mér vel.
Þegar ég kom til Akureyrár
voru 6 skóviðgerðarverkstæði á
staðnum en siðustu árin var ég
bara einn hér þar til sá nýi
kom”.
Ætlaði i Verslunarskól-
ann
— Hafa orðiö miklar breyt-
ingar i faginu?
,,Það hafa ekki oröið miklar
breytingar nema kúnnunum
hefurfjölgaö. Einnighefur orðið
Oddur Jónsson skósmiður á Akureyri, en hann hefur verið skósmið-
ur i yfir hálfa öid, og starfar enn, á áttræðisaldri. Visismyndir
G.V.A.
Oddur við Singer saumavél sem hann keypti árið 1934 og hefur hún
aldrei biiað siðan. „Þetta er einfalt og sterkt og endist mannsald-
ur”.
Nú getið þér valið um 12 tegundir
eldhúsinnréttinga og skoðað 9 þeirra í
húsakynnum okkar að Háteigsvegi 3. Við viljum
benda sérstaklega á hina nýju virðulegu
eikarinnréttingu sem er nýuppsett.
Innréttingar við allra hæfi og
möguleikarnir fjölmargir.
Við veitum yður allar ráðleggingar
||*|%|pA,t+jMC|2|..varðandi innréttingarnar, og gerum
Hi'iCÍA C11 yður tilboð að kostnaðarlausu
nUSEO og án nokkurra skuldbindinga.
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
Verslun simi 27344
höfum opið um helgina
laugardag 10-18 sunnudagl- 8