Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í AFTAKAVEÐRI sem gekk yfir Vest- mannaaeyjar sl. föstudagskvöld varð mikið hrun austast í Herjólfsdal innst við Eggjar sem eru norðan af Molda. Það var athugull vegfarandi sem til- kynni um hrunið til lögreglu aðfaranótt laugardags. Mikil skriða féll og tölu- vert magn af grjóti féll alla leið niður á tjaldstæði Vest- manneyinga í Herj- ólfsdal. Ástæður hrunsins er talin vera mikil úrkoma á frosna jörð. Vestmannaeyjar Morgunblaðið/Sigurgeir Morgunblaðið/Sigurgeir Hrun í Herj- ólfsdal GRÍÐARLEGT tjón varð á bygg- ingum á bænum Skarðaborg í Reykjahverfi sl. föstudagskvöld er fárviðri gekk yfir svæðið. Fjárhús með 510 kindum inni nán- ast splundruðust og féll stafninn að stórum hluta yfir féð sem forðaði sér inn krærnar undan glerbrotum og timbri sem féll niður yfir skepnurn- ar, en þakið sjálft tvístraðist marga kílómetra frá bæ. Þá fuku nánast all- ar járnplötur af öðrum eldri fjárhús- um á bænum þar sem einnig voru kindur og járn fór af gamalli hlöðu við þriðju fjárhúsin. Dráttarvél skemmdist einnig. Bárður Guðmundsson dýralæknir gerir að sárum kindanna. Þakið á fjárhúsunum tættist nánast alveg í veðrinu. Laxamýri komu hjálparsveitarmenn og sveit- ungar til þess að tína upp járnplötur og brak sem var víða við bæjarhúsin og til þess að koma kindunum í skjól. Þá kom einnig Bárður Guðmunds- son dýralæknir til þess að gera að sárum þeirra sem höfðu skaddast af glerbrotunum og þurfti að sauma allmargar kindur. Einni á var lógað þar sem hún var mjög illa farin og einni kind annarri er ekki hugað líf. Þá var farið í það að koma fénu í annað skjól og var brugðið á það ráð að flytja það í Einarsstaði sem er næsti bær sunnan við og setja það þar inn í stóra hlöðu, en bóndinn þar, Jón Þór Guðjónsson, rýmdi til og setti út rúllur og vélar sem þar voru inni. Var farið þangað með 360 ær, en 150 lömb urðu eftir sem voru sett inn í hlöðuna í Skarðaborg. Á Einarsstöðum varð einnig tjón þar sem járnplötur fuku af skemmu og varð töluvert mikið tjón á hey- rúllum sem rifnuðu er þær urðu fyr- ir plötum og braki. Plöturnar sviptust af þökunum og yfir staðinn, á heyrúllur sem standa nú rifnar og tættar í stórum stíl norðan við bæjarhúsin sem og á girðingar og önnur mannvirki. Tjónið skiptir milljónum, en gríð- arlegt verk verður að byggja upp aftur. Í Skarðaborg búa hjónin Sigurður Ágúst Þórarinsson og Helga Helga- dóttir ásamt sonum sínum og föður Sigurðar, Þórarni R. Jónssyni. Málsatvik voru þau að mjög hvasst hafði verið um kvöldið og hélt fólk sig innan dyra vegna veðursins. Á ellefta tímanum gerði miklar hryðj- ur þannig að nánast var um fárviðri að ræða. Sú stærsta gerði útslagið og var eins og um sprengingu að ræða, en ábúendur telja mildi að íbúðarhúsið skyldi ekki fara líka. Ein járnplata hæfði húsið en hitti ekki á glugga. Í fyrstu var talið óráðlegt að fara út en kallað var á hjálparsveitina í Aðaldal og komu menn til þess að aðstoða við að hlúa að fénu sem hafði hópað sig saman og var sumt við það að troðast undir. Þá voru nokkrar kindur særðar af glerbrotum sem höfðu stungist í þær. Veðrið lægði nokkuð þannig að ákveðið var að flytja ekki féð fyrr en daginn eftir. Fé komið í skjól Í birtingu var hafist handa og Eyðileggingin séð að utan. Stórtjón er fjárhús splundruðust í fárviðri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.