Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.12.2001, Blaðsíða 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001 21 KOMDU BÍLNUM Í HÁTÍÐARSKAP PLASTIKOTE úðalakk í miklu úrvali t.d. gull-, kopar- og silfurlakk. 25% afsláttur CRAFTSMAN hágæðaverkfærasett, 144 hlutir Verð áður Tilboðsverð 30.941 kr. 23.590 kr. DRAPER verkfærasett, 52 hlutir Verð áður Tilboðsverð 18.964 kr. 12.990 kr. Verð áður Tilboðsverð 13.627 kr. 8.990 kr. Verð áður Tilboðsverð 13.160 kr. 6.990 kr. HELLA HELLA ljóskastari Tilboðin gilda til 31. des. á meðan birgðir endast. Einnig 25% afsláttur af GSM fylgihlutum METABO höggborvél 560W Verð áður Tilboðsverð 14.091 kr. 8.990 kr. DRAPER handkastarar 6V, 2 stærðir Verð áður Tilboðsverð 5.799 kr. 3.990 kr. Verð áður Tilboðsverð 6.601 kr. 4.990 kr. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Uppbygging er þegar hafin í Skarðaborg, en fyrir utan að byggja upp stóru fjárhúsin þarf að endur- nýja að öllu leyti þakið á eldri hús- unum. Þá þarf að laga hlöðuna við þriðju fjárhúsin auk þess sem tvö hesta- skjól skemmdust. Í rokinu fóru járnplöturnar víða og var mikið verk að tína þær upp á heiðinni enda hafa plötur fundist allt að tíu kílómetra frá bænum. Allar byggingarnar voru foktryggðar. BYGGÐASTOFNUN hefur ráðið at- vinnuráðgjafa til Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Til starfsins hefur verið ráðinn Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur og mun hann vinna í samstarfi við sveitarfélögin, opinberar stofnanir og félagasamtök að eflingu atvinnu og búsetuþátta á svæðinu. Jafnframt mun hann veita einstaklingum og fyrirtækjum ráð- gjöf við stofnun og rekstur fyrir- tækja og er þá sérstök áhersla lögð á nýsköpunarverkefni. Nú þegar er starfandi ráðgjafi frá atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða á Patreksfirði og mun tilkoma starfs- manns Byggðastofnunar óneitan- lega styrkja starf AtVest á svæðinu. Jón Örn hefur aðsetur í Ólafshúsi á Patreksfirði frá miðvikudegi til föstudags og á sveitarskrifstofu Tálknafjarðarhrepps mánudaga og þriðjudaga. Viðvera á Bíldudal er samkvæmt nánara samkomulagi. Atvinnuráðgjafi til Vesturbyggðar Patreksfjörður LANDGRÆÐSLA ríkisins efndi á fimmtudaginn til móttöku í Gunnarsholti fyrir fulltrúa nokkurra fyrirtækja í Þorláks- höfn. Tilefnið var að sýna þeim þakklætisvott fyrir þátttöku í uppgræðslu lands við Þorláks- höfn. Kynnt var starfsemi Land- græðslunnar, m.a. fór Guðjón Magnússon, sviðsstjóri al- mannatengsla, yfir sögu upp- græðslunnar í Þorlákshöfn í máli og myndum. Langt er síð- an hafist var handa við verk- efnið en þarna var á árum áður sandmelur og gríðarlegt sand- fok yfir þorpið. Sagði Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri að ýmsum aðferðum hefði verið beitt við uppgræðsluna, m.a. lúpínuræktun og landgræðslu- flugi með áburð og grasfræ. Á undanförnum árum hafa birki- plöntur verið gróðursettar í skjóli lúpínunnar og virðast þær ætla að dafna vel. Á þessu ári tóku sex fyr- irtæki í Þorlákshöfn þátt í átaki til landgræðslustarfanna en þau eru Auðbjörg hf., Frostfiskur hf., Hafnarnes hf., Hitaveita Þorlákshafnar og Orkuveita Reykjavíkur, Humarvinnslan Portland ehf. og Þormóður Rammi-Sæberg hf. Sveinn land- græðslustjóri færði fulltrúum þessara fyrirtækja fagra gripi sem voru hannaðir og smíðaðir hjá Eik – listiðju, Miðhúsum við Egilsstaði. Góðir gestir hjá Landgræðslunni Hella Morgunblaðið/Anna Ólafsdóttir Fulltrúar fyrirtækjanna sex frá Þorlákshöfn ásamt Sveini Runólfssyni landgræðslustjóra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.