Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 B 5
var fljót til svars og hnyttin í til-
svörum. Hún sagðist til dæmis vera
mjög hávaxinn eskimói, og þegar
hún var spurð hvers vegna hún hefði
svo stuttar hendur svaraði hún því
til að hún hefði verið látin sitja með
þær krosslagðar í tíma og ótíma sem
barn og það hefði hindrað eðlilegan
vöxt þeirra,“ segir Inga Dóra sem
hefur flestar upplýsingar um Ólöfu
og lygasögur hennar úr ævisögu
hennar.
Helstu heimildir úr ævisögu
Ólafar Krarer
Saga „Ólafar Krarer eskimóa“,
var skráð af Albert S. Post og kom
út árið 1887. Ólöf gekk undir nafninu
Ólöf Krarer frá því hún fór að
bregða sér í gervi eskimóakonu. Ári
eftir að ævisaga hennar kom út
kynntist hún manni að nafni Henry
L. Slayton. Hann rak umboðsskrif-
stofu fyrir leikara, skemmtikrafta,
fyrirlesara og fræðimenn og réð
hana til sín. Fljótlega varð Ólöf eft-
irsóttur fyrirlesari en á þessum ár-
um var mikill áhugi fyrir öllu sem
tengdist norðurslóðum. Á þessum
tíma voru fjölmiðlar eins og útvarp
og sjónvarp ekki til svo fyrirlesarar
voru mjög vinsælir og nokkurs kon-
ar fjölmiðlar þess tíma.
Robert Peary komst fyrstur á
Norðurpólinn árið 1909 og Græn-
lands- og Norðurpólsferðir hans
vöxtu mikla athygli. „Þrátt fyrir að
menn eins og Peary og Vilhjálmur
Stefánsson hefðu komið á norðlægar
slóðir og hitt alvöru eskimóa komst
ekki upp um Ólöfu. Þeir vissu hið
sanna um hana en kusu að þegja. Ég
held að þeir hafi vorkennt henni og
þess vegna ekki kjaftað frá. Hvað
Peary varðaði þá var Ólöf mikilvæg.
Hún var vinsæl og hélt áhuganum á
Norðurslóðum gangandi. Hvað Vil-
hjálm Stefánsson varðaði þá held ég
að það hafi farið í taugarnar á hon-
um hvað hún hafði mikil áhrif. Á
meðan menntaða fólkið las bækurn-
ar hans, las hvert einasta grunn-
skólabarn ævisögu Ólafar sem var
hluti af kennslubók um eskimóa. Ég
held það hafi verið þess vegna sem
Vilhjálmur hafi farið að rannsaka
bakgrunn hennar,“ segir Inga Dóra,
sem segist hafa fundið ýmsar heim-
ildir um Ólöfu í gögnum Vilhjálms.
Einstök kona
Vinsældir Ólafar sem fyrirlesara
eru merkilegar í ljósi tíðarandans að
sögn Ingu Dóru. Hún segir að hafa
verði í huga að á þeim tíma sem Ólöf
starfaði sem vinsæll fyrirlesari hafi
konur t.a.m. ekki haft kosningarétt
hvað þá tjáð sig opinberlega um
þjóðmál.
„Hún var bæði kona og dvergur
og í ljósi þess eru vinsældir hennar
og frami mjög merkileg. Það var
mjög óalgengt á þessum tíma að
konur héldu fyrirlestra. Ég held
ekki að hún hafi verið lygasjúk en
hún var klók, sniðug og skemmtileg
og komst áfram á því. Hún bjó við
kúgun sem dvergur og gervi hennar
sem eskimói var leið til að brjótast
út úr því. Hún sneri vörn í sókn og
um leið og hún fór að tala sem
eskimói hætti hún að vera dvergur í
augum fólks. Hún sjálf og líkami
hennar voru ekki lengur það sem var
til sýnis. Líflegar frásagnir hennar
voru aðdráttaraflið og það var mikill
sigur fyrir hana að brjótast út úr að-
stæðum sínum með þessum hætti.
Sem Ólöf Krarer eskimóakona hafði
hún mikið vald og vægi í umræðu um
heilt menningarsvæði. Velgengni
hennar sýnir hvað hugmyndir okkar
um dverga eru menningarbundnar,
þegar hún varð að eskimóa sá fólk
hana í allt öðru ljósi,“ segir Inga
Dóra.
Inga Dóra stundar rannsóknir í
mannfræði við Háskólann í Kaliforn-
íu í Santa Barbara. Hún er nú stödd
hérlendis meðal annars til að leita
frekari heimilda um Ólöfu og hugs-
anlega til að komast í kynni við ætt-
ingja hennar hérlendis. Ólöf giftist
aldrei svo vitað sé og hún eignaðist
ekki börn. Hún lést árið 1934, þá 76
ára gömul, átta árum eftir að hún
hætti störfum sem fyrirlesari. Frétt
um andlát hennar birtist í hinu
virðulega blaði Chicago Tribune og
sýnir ef til vill stöðu hennar og
frægð í Bandaríkjunum á sínum
tíma.
Ólöf var dvergvaxin, skolhærð og með blá augu. Þrátt
fyrir það var hún álitin líkleg til að vera eskimói sem sýn-
ir ef til vill hve lítið Bandaríkjamenn vissu á þessum tíma
um líf og menningu á norðurslóðum.
Ólöf í gervi eskimóakonunnar Ólafar Krarer. Hún varð fljótt
eftirsóttur fyrirlesari í Bandaríkjunum og í 30 ár hélt hún
fyrirlestra um líf sitt sem eskimóa á Grænlandi, þrátt fyrir að
vera sjálf fædd og uppalin á Íslandi.
rsj@mbl.is
Hún og fjölskylda hennar höfðust við
í snjóhúsi sem var einangrað með
dýraskinni. Fjölskyldan lifði á hráu kjöti
og drakk saltvatn.
„Hún bjó við kúgun sem dvergur og gervi
hennar sem eskimói var leið til að brjótast
út úr því. Hún sneri vörn í sókn og um
leið og hún fór að tala sem eskimói hætti
hún að vera dvergur í augum fólks.“
...til Portúgals
...til Krítar
...til Billund
53.760kr.
58.780kr.
43.240kr.
...til Mallorca
Verðdæmi á mann með SólarPlús
2. september. Innifalið: Flug, gisting
í 2 vikur (ekki fyrirfram vitað um nafnið),
ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk
fararstjórn og allir flugvallarskattar.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Ef 2 ferðast saman, 58.630 kr. á mann.
Flugsæti á mann. Flogið alla mánudaga
frá 27. maí - 2. september.
Innifalið: Flug og allir flugvallarskattar.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Verð fyrir einn fullorðinn, 30.440 kr. á mann.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Skala í 2 vikur,
ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk
fararstjórn og allir flugvallarskattar.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Ef 2 ferðast saman, 73.270 kr. á mann.
Verðdæmi á mann með SpariPlús.
Innifalið: Flug, gisting á Sol Dorio
í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli
erlendis, íslensk fararstjórn og allir
flugvallarskattar.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Ef 2 ferðast saman, 72.155 kr. á mann.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
27.050kr.
...til Alicante
Flugsæti á mann m.v. brottför 22. maí.
Innifalið: Flug og allir flugvallarskattar.
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára.
Verð fyrir einn fullorðinn, 34.630 kr.
30.240kr.
Ó
tr
úl
eg
t
ve
r›
tr
l
gt
v
r
í sólin
a