Tíminn - 03.07.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.07.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Þriöjudagur 3. jilll 1973. . . . en þegar sýnt var, aft Baldvin hafnaði lampanum góða,þyngdist brúnin á Þorvarði. Það er mikið meyjaval f Kabarett! Eftir sýninguna kepptust þær um að fá að kyssa Baidvin, svo að það erekkinema von að hann sé hýr á svip. (Tlmamynd Gunnar) Baldvin hefur ávarp sitt — áhorfendur og Þorvarður Helgason, leikdómari Morgunblaðsins áttu sér ekki annars von en venjulegrar þakkarræðu...(Þorvarður lengst t.h. þá Edda Þórarinsdóttir og Herdis Þorvaldsdóttir á milli hans og Baldvins.) r \ SAAAVIZKU MINNAR VEGNA SEGI ÉG NEI TAKK — sagði Baldvin Halldórsson og þá slokknaði á kolunni V______________________) HHJ-Rvik. A sunnudagskvöld var scngleikurinn Kabarett sýnd- ur i sfðasta sinn á leikárinu. Þjóð- leikhúsið var fullsetið og leikend- um óspart klappað lof I lófa. Að leiknum loknum steig Þor- varður Helgason formaður I Fé- lagi islenzkra leikdómenda og leikdómandi Morgunblaðsins, fram á sviðið og tilkynnti, að leik- listarverðlaun Félags íslenzkra leikdómenda — Siifurlampinn — hefðu að þessu sinni fallið Bald- vini Ilalldórssyni i skaut. Þá steig Baldvin fram nr hópi leikenda og tók til máls. Þegar nokkuð var liðið á ræðu Baldvins, varð ljóst, að til tiöinda mundi draga, enda lauk hann máli sinu með þvi að afþakka verðlaunin. Baldvin sagði: Nei takk . . . Baldvini fórust svo orð: Virðulegu leikhúsgestir, leik- listargagnrýnendur! Frá alda öðli hefur leikhúsið verið snar þáttur i menningu og lifi þjóðanna i gleði og harmi. Það hófst með þvi, að einn maður tók sig út úr hópnum og hóf andsvar við hrópum hópsins. Þannig varð leikhúsið til, og það varð eins og Shakespeare orðar það i Hamlet, i þýðingu snillingsins Helga Hálf- dánarsonar, „ágrip aldarinnar og spegill dagsins”. A seinni timum kemur svo gagn rýnandinn til sögunnar og gagn- rýnir eða dæmir það, sem fram fer I leikhúsinu. Það eru mörg dæmi um það, að gagnrýnandinn hafi haft mikil á- hrif á framvindu leikhússins og þroska áhorfendanna, en ég held, að það hafi ekki getað gerzt, nema hann hafi borið virðingu fyrir og þótti vænt um leikhúsið og unnið starf sitt af alúð og al- vöru. Hin dæmin eru fleiri, að gagn- rýnandinn hafi engin áhrif haft, nema kannski til tjóns. Flest okkar.sem höfum valið okkur lifsstarf innan veggja leik- hússins, gerðum það, af þvi að okkur þótti vænt um starfið og við viljum, að leikhúsið sé og haldi á- fram að vera „spegill dagsins”, og við reynum að vinna starf okk- ar eftir beztu getu. Það hefur lengi verið skoðun min, að islenzkir leiklistargagn- núendur hafi á undanförnum ár- um skrifað af miklu ábyrgðar- leysi og oft af litlum rökum um Is- lenzkt leikhús. Og þó sérstaklega þessa stofnun, sem ég hef starfað við I 23 ár. Þess vegna get ég hvorki né vil, verið svo ósam- kvæmur sjálfum mér að taka við þessari viðurkenningu ykkar. Ég tek það fram, að ég geri þetta algerlega á eigin ábyrgð, ó- háður öllum umræðum og sam- þykktum um leiklist og leiklistar- gagnrýni. Þorvarður minn Helgason, mér þykir það leitt, en samvizku minnar vegna segi ég nei takk”. . . . og Silfurlampinn var allur. Ekki hafði Baldvin fyrr lokið máli sinu en feiknamikið lófa- klapp og fagnaðaróp kváðu við I leikhúsinu, svo að ekki fór milli mála, hver hugur áhorfenda og leikenda var, þótt ræða Baldvins kæmi mönnum sýnilega á óvart. Þá tók Þorvarður til máls á nýjan leik og sagði, að nú væri saga Silfurlampans öll — hann yrði ekki veittur oftar. Blaðamaður Timans kom að máli við þá Þorvarð Helgason og Halldór Þorsteinsson leiklistar- gagnrýnendur að sýningunni lok- inni og spurði, hvernig þeim hefði orðið við. Þeir sögðu, að i raun- inni hefði mátt búast við ein- hverju af þessu tagi — ekki sizt eftir þá ályktun Félags islenzkra leikara um leikgagnrýni, sem Haraldur Björnsson hlaut Silfurlampann fyrstur manna árið 1954.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.