Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 11

Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 11
Miövikudagur 10. september 1980 IÞROTTIR 15 ..Mun byggia liðið á reyndum mönnum” — segir Hilmar Björnsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik en framundan eru landsleikir gegn Norðmönnum Negri til Fram „Þaö er alveg Ijóst að undirbúningur landsliðsins i handknattleik fyrir leik- ina gegn Norðmönnum verður alveg í lágmarki," sagði Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari og ein- valdur er við slógum á þráðinn til hans í gær- kvöldi. Tilefnið var að islendingar eiga að leika landsleiki i handknattleik gegn Norðmönnum 27. og 28. þessa mánaðar og fara leikirnir fram hér á landi. „Ég verö aö biða eftir að Reykjavikurmótið byrji 17. sept. Það er eina tækifærið sem ég hef til að sjá leikmennina i leik fyrir landsleikina,” sagði Hilmar. Hefur þú hugsað þér að hafa einhverja „útlendinga” með i landsliöinu meðan þú stjórnar þvi? „Já ég hef hugsað mér það. Ég hef þá bjargföstu trú að reynslan hafi mikið að segja en aö sjálfsögðu mun ég einnig velja unga og efnilega leikmenn i hóp- inn enda eigum við nóg af þeim.” Hilmar sagði einnig að hann væri nú þegar búinn að tala við nokkurn hóp leikmanna og meðal leikmanna sem væri i þessum kjarna, eins og Hilmar orðaði það, væri Axel Axelsson sem leikur meö Fram i vetur eftir nokkurra ára dvöl i Þýskalandi. Gifurleg verkefni eru framund- an hjá islenska landsliöinu. Aformaðir eru 30 landsleikir viö flestar af sterkustu handknatt- leiksbióðum heims. Hilmar sagöi að hann myndi bygga liðið upp á leikmönnum með mikla reynslu og einnig ungum leikmönnum en ekki yngja liðið mikið upp. Hann sagöi að það væri sterkasti leik- urinn að sinu mati. Næstu verkefni landsliðsins eftir leikina við Norðmenn er Norðurlandamótiö og siöan landsleikir gegn Þjóöverjum en aöspuröur sagði Hilmar aö hann yrði ekki búinn að móta liðið fyrr en um áramótin. Hilmar Björnsson landsliðsþjálf- ari segir aö hann verði ekki búinn aö móta íslenska landsliöiö I handknattleik fyrr en um ára- mótin. í körfu Þaö er loks Ijóst að Framarar hafa ráöið sér erlendan leikmann sem mun leika með liðinu í komandi Islandsmóti í körfuknattleik. Ekki er enn vitaö um nafn hans en hann er 1,91 metr ir á hæð og negri og leikur stööu bakvarðar. Að sögn Framara er hann mjög sterkur leikmaður sem mun örugglega koma til með aö styrkja lið þeirra mikið i vetur en Framarar leika sem kunnugt er i 1. deild. Axel Axelsson ereinn þeirra leik- manna sem Hilmar hefur valið i iandsliðshópinn sem . valinn er fyrir landsleikina gegn Norð- mönnum. Stórleikur í Körfunni annað | kvöld þegar Stúdentar leika j gegn íslandsmeisturum Valsj Eins og flestir körfu- knattleiksunnendur muna, lék Bandarikjamaðurinn Dirk Dunbar með liði IS fyrir tveimur árum. Vegna meiðsla varð hann að halda til sins heima og læknar skipuðu honum að hætta öllu körfubolta- sprikli að viðlögðum staur- fótum og öðrum álíka skemmtilegheitum. Síöan hefur hann haft hægt um sig en þó stolist i boltaleik við og við. t sumar fór hann i keppnis- ferð til Mexikó meö liöi frá heimafylki sinu. Liðiö lék átta leiki á jafnmörgum dögum og kappinn Dunbar lét sig ekki muna um að skora 35 stig að meöaltali i leik. Nú er Dirk á förum til Þýska- lands þar sem hann mun þjálfa 1. deildarliðiö Darmstadt. A leiðinni þangað heilsaði hann upp á vini og kunningja hér á landi, og ætlar Dirk Dunbar var vinsæll hjá yngri kynslóðinni þegar hann dvaldi hér á landi og lék körfuknattleik með Stúdentum. Þessi mynd er tekin eftir leik tS og KR og eins og sjá má á svip Einars Bollasonar sigraði tS I þessum leik og skoraði Dunbar fjöldann allan af stigum á stórkostlegan hátt. Veröur fróðlegt aö sjá hvernig honum tekst upp gegn tslands- meisturum Vals en liðin leika saman annað kvöld i tþróttahúsi Kenn- araháskólans og hefst leikurinn kl. 20.00. að leika einn leik meö sinum gömlu félögum 11S. Ekki er ráðist á garöinn þar sem hann er lægst- ur þvi að mótherjarnir veröa Is- lands- og bikarmeistarar Vals. Bæðu liöin tefla fram öðrum bandariskum leikmönnum en slð- astliðið ár. Með Val leikur Roy Johns, fjallgrimmur miöherji, en meö stúdentum Mark Coleman, eldsnöggur og skæður framherj:. Full ástæða er til aö hvetja fólk að sjá allar þessar kempur eigast við. Leikurinn fer fram i tþrótta- húsi Kennaraháskólans annað kvöld og hefst kl. 20.00. rsví” ^ I unnu i JSkota ! Sviþjóð sigraði Skotland i I “landsleik i knattspyrnu H B| undir 21 árs i gærkvöldi mm H 2:C. Mörk Svia skoruðu þeir H Hltaakan Sandberg og ■ Torbjoern Nilson. Þá sigraði EnglandH HNoreg undir 21 árs 3:0. .Stjörnuleikmenn” ÍBK-Valur ..................................1:2(1:2) Mörk Vals skoruðu þeir Magnús Bergs og Magni Pétursson. Mark IBK skoraði Ragnar Margeirsson. + Magni Pétursson Val h Magnús Bergs Val, Guðmundur Þorbjörnsson Val, Hermann Gunnarsson Val og Guðjón Guðjóns- son IBK. UBK-ÍA......................................2:0(1:0) Mörk UBK skoruðu þeir Hákon Gunnarsson og Vignir Baldursson. 1 ★ ★ Einar Þorhallsson UBK ★vignir Baldursson UBK, Guðmundur Asgeirsson UBK, Ólafur Björnsson UBK, Jón Gunnlaugsson 1A. i i Fram-KR...............................1:0(0:0) ★ ★Guömundur Baldursson Fram ★ Jón Oddsson KR, Trausti Haraldsson Fram, 1 Gústaf Björnsson Fram, Stefán Jóhannsson KR. Víkingur-Þróttur.................................2:1 Mörk Vikings skoruðu þeir Heimir Karlsson og Helgi Helgason. 1 ★ ★ Jóhannes Bárðason Víkingi ★ Sverrir Einarsson Þrótti, Þórður Marelsson Vikingi, Halldór Arason Þrótti, Jóhann Hreiðarsson Þrótti. i FH-ÍBV...........................................1:1 Mark FH skoraði Viðar Halldórsson en fyrir IBV skoraði Sveinn Sveinsson. ★ ★ Viðar Halldórsson FH ) ★ Guöjón Guðmundsson FH, Páll Pálmason IBV, Sigurlás Þorleifsson IBV og Ómar Jóhannsson IBV. «•—— ,1 Dunbar leikur listir sínar gegn Valsmönnum Björgvin brotnaði Björgvin Björgvinsson linumaðurinn snjalli úr Fram mun ekki leika meö Fram I R.vik-mótinu i llandknattleik. Hann hand- arbrotnaöi á æfingu fyrir stuttu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.