Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 6
Þórarínn Þórarinsson: Erlent^yfirlit Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jon Sigurösson. Ristjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri Kristinn Hallgrimsson. Aug- lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Sími 86300. — Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20: 86387. Verö f lausasölu kr. 280. Askriftargjald kr. 5500 á mánuöi. Prentun: Blaöaprent. Ályktun SUF Á fjölmennu þingi Sambands ungra Framsóknar- manna, sem haldið var um sl. mánaðamót að Hall- ormsstað, var fjallað um stjórnmálaviðhorfin og hagsmunamál ungs fólks i landinu. Full ástæða er til að itreka það sem fram kemur i stjórnmálaá- lyktun þeirri sem þetta þing ungra Framsóknar- manna gerði. Þar segir: . „Hlutverk núverandi rikisstjórnar er fyrst og fremst barátta gegn rikjandi óðaverðbólgu með til- heyrandi þjóðfélagsmisrétti. Á þeim tima sem rikisstjórnin hefur starfað hefur ekki náðst samkomulag um varanlegar aðgerðir gegn verðbólgu, þrátt fyrir ákvæði stjórnarsátt- málans um það efni. Samband ungra Framsóknarmanna telur að samstarfinu skuli haldið áfram, en aðgerðaleysi i efnahagsmálum muni sjálfkrafa eyðileggja st jórnarsamstarf ið’ ’. Einhverjir stjórnarandstæðingar hafa reynt að túlka þessa ályktun á þá lund að ungir Fram- sóknarmenn séu farnir að krefjast stjórnarslita. Slikt er augljóslega út i hött og andstætt orðum ályktunarinnar. Á hinn bóginn virðist tvennt liggja alveg ljóst fyrir: Annars vegar stenst engin rikisstjórn til lengdar ef ekki er að gert i efnahagsmálum. Hins vegar getur rikisstjórn, sem mynduð er til að vinna á verðbólgunni, með engu móti setið mánuðum saman aðgerðalitil i sliku stórmáli, aðalatriði sjálfs st jórnarsáttmálans. í þvi sambandi ræður það ekki úrslitum hvað mönnum liður, heldur hitt að stjórnarforystu verð- ur hvorki sætt né stætt i sliku ástandi. í stjórnmálaályktun Sambands ungra Fram- sóknarmanna segir enn fremur: „Samband ungra Framsóknarmanna krefst þess að allir samstarfsaðilar sýni festu i áfangahjöðnun verðbólgunnar. Þeir sem draga lappirnar i þeim efnum hafa ekki aðeins stjórnarsamstarfið á sam- viskunni — heldur einnig undirstöðu þjóðarinnar og farsæld. Höfuðatvinnuvegir okkar berjast nú i bökkum og unga fólkið ræður ekki við að koma sér upp heimili vegna vaxta og verðbótagreiðslna. Ef menn sætta sig við núverandi ástand mun tap atvinnuveganna leiða til samdráttar og atvinnu- leysis. Það verður þvi að skapa þeim viðunandi af- komu. Áframhaldandi framleiðsla og öflug fram- leiðslustefna er mesta hagsmunamál launafólks og undirstaða heilbrigðs efnahagslifs.” Loks segir i stjórnmálaályktuninni: „Þjóðin krafðist þess i siðustu kosningum að stefnu Framsóknarflokksins i efnahagsmálum yrði hrundið i framkvæmd. Aldrei hefur nauðsyn þess verið ljósari, og frekari frestun mun leiða til mikilla erfiðleika”. Þvi má bæta við að það er einmitt brýnt að tekið verði á málunum þegar við upphaf þings nú i haust, ef unnt á að verða að nýta út i æsar þá gjaldmiðils- breytingu sem fyrirhuguð er um áramót. Og þann áfanga verður að hagnýta að fullu. JS nmrm Miövikudagur 10. september 1980 Sviar reyna að draga úr vöruskiptahalla Aukaþing samþykkir verulegar skattahækkanir Frá setningu aukaþingsins. ÞAÐ vakti að vonum athygli i Sviþjóð, þegar sænska þingið var kvatt saman til aukafundar 26. ágúst siðastliöinn. Þingið hefur ekki veríð kvatt saman til aukafundar nema fimm sinnum á þessari öld. Þetta var fyrsti aukafundur þess eftir siðari heimsstyrjöldina. Yfirleitt hefur þingið ekki verið kvatt saman til aukafund- ar, nema i sambandi við óvenju- lega erlenda atburði. T.d. var það kvatt saman til aukafundar i sambandi við aðskilnað Svi- þjóðar og Noregs. I þetta skipti var þingið ekki kvatt saman vegna utanrikis- mála. Ástæðan var sú, að rikis- stjórnin hafði ákveðið að hækka virðisaukaskattinn úr 20.6% i 23.5%. Jafnframt hafði hún ákveðið að hækka skatt á áfengi, tóbaki, sælgæti, oliu og bensini. Stjórnin þurfti ekki að kalla saman þingið til að koma á þessum skattahækkunum. Hún gat sett bráðabirgðalög um hækkun virðisaukaskattsins eft- ir að fjárveitinganefnd þingsins hafði fjallað um málið. Hún hafði lagaheimild til hinna ska ttahækkananna. Ástæðan til þess, að auka- þingið var kallað saman, vár i upphafi sú, að stjórnarand- stæðingar höfðu látið i ljós, að slikt væri eðlilegt sökum þess hversu veikur þingmeirihluti stjórnarinnar væri. Stjórnin tók strax undir þetta, en fyrir henni mun hafa vakað, að stjórnar- andstæðingar væru þá knúðir til að gera grein fyrir þvi, hvernig þeir vildu bregðast viö þeim vanda, sem hún taldi orsaka skattahækkanirnar. SA vandi, sem hér var um að ræða var sá, að bersýnilegt var, að hallinn á vöruskiptajöfnuðin- um ýrði mun meiri á þessu ári en áætlað hafði verið. Hallinn hafði verið áætlaður um 18 milljaröar sænskra króna, en fyrirsjáanlegt þótti, að hann yrði 21 milljarður, ef ekkert væri að gert. Til að sporna gegn þessu taldi rikisstjórnin það helzt til ráða að leggja á skatta, sem drægju úr kaupmættinum. Samkvæmt tillögum hennar var áætlað, að draga myndi úr kaupmættinum, sem næmi 6500 milljóna sænskra króna á árs- Falldin forsætisráöherra. grundvelli eða um 2000 milljónir það sem eftir er á þessu ári. Reiknað var með að þetta myndi lækka hallann á við- skiptajöfnuðinum um einn milljarð króna á þessu ári, en tiltölulega meira á næsta ári. Stjórnarandstæðingar and- mæltu strax þessum tillögum. Þeir töldu, að kaiipmátturinn væri ekki eins mikill og stjórnin vildivera láta. Aðrar ráðstafan- ir mætti lika gera til að draga úr innflutningi. Skattahækkun væri þvi óþörf af þessum ástæðum. Þá héldu þeir þvi fram, að nýju skattarnir myndu valda samdrætti og draga bæði úr at- vinnu og framleiðslu. Þannig myndu þeir gera illt verra. Sósialdemókratar gerðu það að tillögu sinni, að svokölluð kreditkort eða lánskort yrðu takmörkuð, en kommúnistar vildu banna þau alveg. Þá lögðu sósialdemókratar til, að innflytjendur yrðu skyldaðir til að leggja nokkurn hluta innkaupsverðsins inn á bankareikning, sem væri bund- inn til nokkurs tima. Rikis- stjórnin taldi þetta i reynd ekki annað en innflutningsskatt, sem myndi hækka verðlagið. AUKAÞINGIÐ kom saman 26. ágúst, eins og áður segir. Ráðgert haföi verið að þvi lyki föstudaginn 5. september, en lokafundurinn dróst svo á lang- inn, að honum lauk ekki fyrr en aðfaranóttsunnudagsins 7. sept. Ráða má þvi, að umræður hafa orðið meiri og harðari en spáð hafði verið. Atkvæðagreiðsla féll þannig, að hækkun virðisaukaskattsins var samþykkt með eins at- kvæöis mun. Stjórnarflokkarnir, þ.e. Mið- flokkurinn, Frjálslyndi flokkur- inn og íhaldsflokkurinn, hafa samanlagt 175 þingmenn, en stjórnarandstöðuflokkarnir, sósialdemókratar og kommún- istar, hafa samtals 174 þing- menn. Kommúnistar lögðu til, að reynt yrði að fella rikisstjórnina á aukaþinginu með flutningi vantrauststillögu. Sósialdemó- kratar álitu hins vegar rétt, að fresta þvi þangað til á reglulegu þingi i haust. En Olav Palme hefur heitið þvi, að gera þá harða hrið að stjórninni. Fálldin forsætisráðherra hef- ur hins vegar lýst yfir, að stjórnin muni sitja til loka kjör- timabilsins, eða til 1982. Sam- kvæmt stjórnarskránni er ekki heldur auðvelt að fella stjórn- ina, þvi að samþykki van- trauststillögu nægirekki, heldur þarf einnig að vera fyrir hendi að meirihlutastjórn sé tilbúin að taka við. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.