Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 2

Tíminn - 10.09.1980, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 10. september 1980 KL— i gær rakst piltur á reiðhjóli utan i bíl i Ár- múlanum og skall í göt- una. Sem betur fór reyndist hann ekki slas- aður, en allur er varinn góður og kom sjúkrabill á vettvang. Oft hefur verið bent á, að götur Reykja- vikur eru ekki vel til hjól- reiða fallnar samfara bilaumferð, og þvi verður aldrei of oft sú visa kveð- in, að sérstaka aðgát þarf að hafa i umferðinni í námunda við hjólareiða- menn. (Tímamynd Þormóður) Jólafargjöld Flugleiöa: HELMINGS LÆKKDN FLUGFARGJALDA JSS— Flugleiðir hafa nú ákveðið sérstök jólafar- gjöld mjlli isiands og ná- grannalandanna. Gilda þau allan desembermán- uð og nema um 70% af annarrar ieiðar fargjaldi, eins og það gerist nú. Þannig kostar flugferð til og frá Kaupmanna- höfn 129.400 kr., til Glas- gow 96.400, til London 111.500 kr., til Luxem- borgar 137.400, til Osló 117.900 kr. og til Stokk- hólms 147.600 kr. Þær reglur gilda um jólafargjöldin, að keypt- ur og notaður sé miði báð- ar leiðir. Viðdvöl sé minnst 10 dagar og mest 45 dagar. útgáfa og greiðsla farmiða fari fram a.m.k. 14 dögum áður en ferð hefst og endurgreiðsla farmiða, sem ekki verður notaður er leyfileg 14 dögum fyrir brottför. Má þá endur- greiða 50% miðans. Þess skal getið, að of- angreind fargjöld, eru, eins og önnur, háð gengi og geta breyst við gengis- breytingar íslensku krón- unnar. „Félagsmálapakki” BSRB í framkvæmd: BRAÐABIRGÐALOG SETT í GÆR um aukin lifeyrisréttimli, atvinnuleysistryggingar og ólögbundinn samningstima JSS — ,,í dag”, svaraði Ragnar Arnalds fjár- málaráðherra er Timinn spurði hann i gær hvenær væri að vænta bráðabirgðalaga varð- andi „félagsmála- pakka” BSRB. 1 bráöabirgöalögunum, sem tóku gildi i gær er gengiö frá þvi aö samningstiminn veröi óbund- inn af lögum. Þá fá opinberir starfsmenn atvinnuleysistrygg- ingar, meö þvi aö rikissióöur ábyrgist rétt þeirra til slikra trygginga Ur rikissjóöi. Þeir fá hins vegar ekki aöild aö atvinnu- leysistryggingasjóöi, þvi þaö er taliö óþarfi aö mynda sjóö sér- staklega þess vegna”, sagöi fiár- málaráöherra. Einnigerum breytingu að ræöa í lögum ím lifeyrissjóö opinberra starfsmanna þe. aö 95-ára reglan er tekin aftur i gildi. Loks er af- numin tvöföld verötrygging til lif- eyrissjóösins, en hún hefur veriö meö þeim hætti, aö fé sjóösins hefur veriö lánaö út verötryggt, en jafnframt hefur ríkissjóður verötryggt lifeyrisgreiöslur aö fullu. Þetta er nú afnumiö hvað varöar þau 30% af ráöstöfunarfé lifeyrissjóðsins sem gengur til kaupa á verötryggöum hlutabréf- um rikissjóös. Loks fær BSRB, samkvæmt bráðabirgöalögunum, fulian samninsrétt fyrir starfsfólk sjálfseignarstofnana. Fyrirlestrar á vegum Ananda Marga KL — A vegum Ananda Marga- hreyfingarinnar er nú staddur hér á landi acharya Pharames- varananda Avt. (acharya er sanskrit og merkir sá sem kennir meö fordæmi) og mun hann halda hér tvo fyrirlestra um jóga.verö- ur fyrri fyrirlesturinn haldinn i Aöalstræti 16 2. hæö fimmtudag- inn 11. sept. og hefst hann kl. 20.30. Slöari fyrirlesturinn veröur siöan I Norræna húsinu föstudag- inn 12. sept. Aögangur aö fyrir- lestrunum, svo og kennsla I jóga, er ókeypis. Eigendur hins nýja veitingastaöar, Vesturslóö, bræöurnir Siguröur Viggósson og Anton Viggósson, sem jafnframt er matsveinn staöarins. Timamynd G.E. NYR VEIT- INGASTAÐUR: Vesturslóð KL — Nýr veitingastaöur hefur tekiö til starfa i Reykjavik. Ber hann nafniö Vesturslóö og er til húsa aö Hagamel 67. Eigendur eru Anton og Siguröur Viggóssyn- ir, en þeir eru bræöur hins þekkta veitingamanns Þorsteins Viggós- sonar, sem hefur um árabii rekiö þekkta skemmtistaöi i Kaup- mannahöfn. Staöarval hins nýja veitinga- staöar hefur vakiö nokkrar um- ræöur og næstu nágrannar sáu ástæöu til, áöur en starfræksla var hafin, aö gera viö þaö athuga- samdir. Aö ;,sögn Antons höföu Framhald á bls.19 3 SÖLUR í GÆR JSS—«í gær seldu þrjú skip erlendis. Kópur seldi i Fleet- wood 74.8 tonn fyrir 34.6 milljónir, meðalverö 464 krónur. Sigurey landaöi i Grimsby 104.8 tonnum fyrir 60.2 millj. króna, meöalverö 574 krón- ur. Loks seldi Bjarni Bene- diktsson i Þýskalandi 161.2 tonn i fyrir 72.8 millj., meöalverö 452 krónur. „VILJUM SÝNA EN EKKI 0PNA” Haukur Óskarsson gerir athugasemd JSG — ,,Viö höfum ekki gert annaö en aö hafa sýningar, og almenningur hefur notiö þeirra vel, en þaö hefur aldrei komiö fram aö viö vildum opna allt upp á gátt og lengja opnunartimann,” sagöi Haukur óskarsson I gær vegna oröa Björgvins Guömundssonar borgarfull- trúa i Timanum i gær, um helgarsýningar i Húsgagna- verslunum. „Ef á aö fara aö rýmka af- greiöslutima sölubúöa og kalla til starfsfólk, þá getum þaö náttúrlega leitt af sér hækkun vöruverös. Þessar sýningar hafa hins vegar ekki kostaö okkur neitt,” sagöi Haukur. Afríkusöfnun Rauða Krossins: Móttaka framlaga hafin Fjársöfnun til hjálpar nauöstöddum i Austur Afriku hefst á skipulegan hátt um næstu mánaöamót, en Rauöi Krossinn hefur vakið á þvi athygli aö þegar er fariö aö taka á móti framlögum á skrifstofu félagsins Nóatúni 21 Reykjavik. Einnig má hringja i sima 26722, og næstu daga verður opnaöur sérstakur póstgiróreikning- ur. Rauöa Krossinn vantar sjálfboöaliöa til þess aö taka þátt I Afrfkusöfnuninni og undirbúningi hennar. FEGURÐAR- VERÐLAUN Á AKRANESI NÝLEGA valdi fegrunar- nefnd Akraness fegurstu garöa bæjarins. Viöurkenningu hlutu garö- ur Sigriöar og Herdisar Ólafsdætra aö Vesturgötu 88 og garöur Ingelu Þóröardótt- ur og Ármanns Ármannsson- ar aö Sóleyjargötu 10. Þetta er annaö áriö, sem fegurstu garöar á Akranesi hljóta viöurkenningu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.