Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 338.. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá En Pósturinn kemur því til skila í tæka tíð fyrir jólin www.postur.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 0 7 - 1 5 3 5 Leikhúsin í landinu Öll leikhúsin á einum stað >> 45GÓÐUR EN SÚR LITRÍKUR SYKURINN VERÐUR AÐ MOLUM SEM RENNA LJÚFT NIÐUR Í MAGA >> 22 FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ÍSLENDINGAR nota sem kunnugt er mest allra Norðurlandaþjóða af þunglynd- islyfjum en toppsætinu gæti fyrr eða síðar verið ógnað af Dönum ef marka má frétt danska dagblaðsins Politiken. Þar kemur fram að þó að Íslendingar tróni enn á toppnum aukist notk- un Dana mest milli ár- anna 2000 og 2005. Samkvæmt fréttinni, sem byggð er á tölum frá OECD, jókst notk- un Dana úr 35 dag- skömmtum á hverja þúsund íbúa árið 2000 í 60 dagskammta árið 2005. Á sama tímabili jókst notkun Íslend- inga úr 66 dag- skömmtum í 90. „At- vinnuleysi hefur aldrei verið minna, velferð aldrei meiri, efnahagurinn aldrei betri og samt sem áður glímir almenningur við meiri geðræn vandamál en nokkru sinni fyrr,“ er haft eftir lækninum Ingu Marie Lunde í Politiken. Í íslenskri rannsókn eftir Tómas Helga- son geðlækni o.fl., sem birt var í Lækna- blaðinu árið 2004, segir hins vegar að aukin notkun geðlyfja hér á landi skýrist aðeins að litlu leyti af auknu algengi geðraskana, ekki frekar en aukin sala lyfja almennt skýrist af verra heilsufari þjóðarinnar. Lík- legra er talið að læknar og leikir þekki bet- ur möguleikana til að draga úr vanlíðan og vanheilsu með betri lyfjum en áður hafa þekkst. Algengi geðraskana virðist lítið hafa breyst þrátt fyrir þær breytingar sem orðið hafa á þjóðfélaginu, svo sem með markaðsvæðingu, aukinni efnahagslegri velmegun, auknum kröfum til efnahags- legra gæða, og vaxandi misskiptingu þeirra. Hins vegar kom fram í rannsókninni að algengi þunglyndis- og/eða kvíðaein- kenna, sem ef til vill eru ekki það mikil að teljast til geðraskana, virðist hafa aukist hjá konum, einkum á aldrinum 30-39 ára. Ný geðdeyfðarlyf, svokölluð SSRI-lyf, hafa rutt sér til rúms undanfarinn áratug. Þau hafa minni aukaverkanir en eldri lyf. „Erfitt er að segja hvort þessi lyf séu of- notuð, en alla vega má segja að þau séu að jafnaði ekki talin ávanabindandi, þótt ein- staka sinnum telji læknar að erfitt sé að fá fólk til að hætta notkun þeirra,“ segir Matt- hías Halldórsson aðstoðarlandlæknir. Ekki skipti mestu máli hversu margir taki lyfin, heldur að þau taki þeir sem þurfi á þeim að halda, í réttu magni og í hæfilega langan tíma. „Þunglyndi getur verið mjög óþægilegur og alvarlegur sjúkdómur og hefur mikil áhrif á alla í umhverfi sjúklingsins,“ segir Matthías. „Þar geta þessi lyf komið að mjög miklu gagni, sérstaklega þar sem um er að ræða þunglyndi sem kemur án verulega sýnilegrar ástæðu.“ Íslending- ar enn á toppnum Notkun geðdeyfðarlyfja eykst mest í Danmörku HJÓN, sem eiga meira en tvö börn, ættu að borga sérstakt kolefnisgjald til að bæta fyrir mengunina, sem barnið eða börnin umfram þau fyrstu tvö koma til með að valda. Er það tillaga ástralsks læknis og pró- fessors. Í grein eftir Barry Walters í ástr- alska læknatímaritinu segir hann að með hverju „aukabarni“ ættu for- eldrarnir að greiða í eitt skipti um 270.000 ísl. kr. og síðan 50.000 kr. á ári eftir það. Féð ætti að nota til að planta út trjám sem bættu fyrir áætl- aða mengun. Var grein Walters öðr- um þræði svar eða gagnrýni á „barnabónusinn“, sem áströlsk yf- irvöld greiða með hverjum nýbura. Í Ástralíu hafa ýmsir orðið til að taka undir með Walters og segja þeir að fólksfjölgunin verði að skipa miklu stærri sess í umræðunni um umhverfismál. Aukabörnin kolefnisjöfnuð Reuters Útblástur Einn kolefnisjafnaður? Eftir Andra Karl andri@mbl.is FLESTAR tillögurnar eru ýmist gamlir kunningjar eða hlutir sem hafa verið í umræðunni, ekkert kom á óvart, sagði Vilhjálmur Eg- ilsson, framkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, um sameigin- legar áherslur aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands í kom- andi kjaraviðræðum sem kynntar voru í gær. Meðal þess sem lögð er áhersla á er að stjórnvöld innleiði sam- þykkt Alþjóðavinnumálastofnun- arinnar (ILO) um að atvinnurek- endum beri að rökstyðja uppsagnir starfsfólks. Í því felist að þegar atvinnurekandi segi starfsmanni upp þurfi það að vera gert skriflega um mánaðamót og tilgreina þurfi ástæðuna. „Það er stórt prinsippmál að fá þetta inn í kjarasamninga,“ sagði Gylfi Arn- björnsson, framkvæmdastjóri ASÍ. Dregur úr sveigjanleika Vilhjálmur telur að ef sáttmál- inn yrði fullgiltur hér á landi myndi það draga úr sveigjanleika á vinnumarkaði. „Við erum hér með mjög öflugan vinnumarkað, sveigjanlegasta markaðinn í okk- ar heimshluta. Allir þeir sem hafa verið að skoða vinnumarkaðsmál öfunda okkur af þessum sveigjan- leika og við viljum halda í hann,“ sagði Vilhjálmur. Að öðru leyti sagði Vilhjálmur að hvert atriði yrði að skoða fyrir sig og það yrði gert þegar viðræð- ur hæfust. | 2 Gamlar tillögur eða í umræðunni Framkvæmdastjóri SA segir ekkert nýtt í tillögum ASÍ Í HNOTSKURN »Sameiginlegar áhersluraðildarfélaga ASÍ voru kynntar í gær. »Vilhjálmur Egilsson segirað öllum sé orðið ljóst að viðræðum ljúki ekki fyrir jól. Vilhjálmur Egilsson Gylfi Arnbjörnsson MIKIÐ hvassviðri gerði vestanlands í gærkvöldi og í nótt og varð vindhraðinn yfir 60 metrar á sekúndu í hviðum undir Hafnarfjalli á ellefta tímanum, sem telja má aftakaveður. Björgunarsveitir voru kall- aðar út um allt suðvestanvert landið frá Reykja- nesbæ og upp í Borgarfjörð til að bjarga verðmæt- um vegna foks. Ástandið var einna verst í Borgarfirði og í Hafnarfirði. Þannig splundraðist garðhýsi í Borgarnesi vegna hvassviðrisins, hjól- hýsi fauk þar á bíl og á Hvanneyri fuku gámar á bíla. Sömu sögu er að segja frá öðrum þéttbýlis- stöðum vestanlands, þar sem gluggar brotnuðu víða vegna hvassviðrisins, þakplötur fuku og annað laus- legt. Um tíma var óttast að þak fyki af í heilu lagi í Vallahverfinu í Hafnarfirði og fóru björgunar- sveitir í að bjarga því. Ófært var fyrir Hafnarfjallið og biðu flutningabifreiðar á suðurleið í Borgarnesi eftir að veðrið lægði. Undir miðnættið hvessti einn- ig í Vestmannannaeyjum og voru björgunarsveitir þá kallaðar út vegna foks á þakplötum. 60 metra hviður undir Hafnarfjalli Morgunblaðið/Frikki Foktjón í ofsaroki Hvassviðri Björgunarsveitir í Hafnarfirði voru kallaðar út og unnu hörðum höndum að því að hefta fok í bænum, en ástandið varð einna verst við norðurbakka hafnarinnar þar sem mikið er um nýbyggingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.