Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.12.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Einstakt tækifæri Einstakt fjárfestingarfyrirtæki til sölu sem hefur einnig stundað inn- og útflutning, fasteignaviðskipti og hefur öll leyfi í allri Evrópu. Staðsett í Danmörku og með fylgir góður aðgangur að Dönskum banka og yfir- dráttarheimild, góður ráðgefandi endurskoðandi varðandi skattamál og fjármál og einnig reyndur maður sem aðstoðar nýjan eiganda með alla hluti og skilur eftir hjá honum sína reynslu í þessum málum. Með þessu fylgir ein 90 fm íbúð á góðum eftirsóttum stað , sem einnig getur verið sem skrifstofa til að byrja með. Hægt að greiða að mestu með því að yfirtaka skuld á íbúðinni. Hagstæð langtímalán. Sparið tíma og peninga um leið og þið gerið óvenju góð kaup og getið haft aðstöðu til mikillar útrásar um alla Evrópu. Mjög gott nafn er á fyrirtækinu sem er því til framdráttar. Ótrúlega hagstætt verð. ÞETTA HELST ... ● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan lækkaði um 0,68% og var 6.389 stig við lokun markaða. Bréf SPRON hækkuðu í gær um 1,19%, en bréf Flögu lækkuðu um 6,54%. Krónan veiktist um 0,38% í gær en velta á millibankamarkaði nam um 8,1 milljörðum króna. Gengi Bandaríkjadals er 61,27 krónur, evru 90,16 krónur og punds 125,37 krónur. Lækkun í kauphöllinni ● FÉLAG í eigu Árna Stefánssonar, forstjóra Vífilfells hf., Fjárfesting- arfélagið Drangur ehf., hefur keypt samanlagt 20% hlut í Vífilfelli og Stuðlahálsi ehf. af Argyle og Trygg- ingamiðstöðinni, að því er kemur fram í tilkynningu. Ekki er gefið upp hvað hluturinn kostaði, en fyrirtækjaráðgjöf Kaup- þings sá um milligöngu við viðskipt- in. Kaupir 20% í Vífilfelli og Stuðlahálsi ● BAUGUR Group sendi í gær til- kynningu til kauphallarinnar í Lund- únum þar sem félagið staðfestir þann orðróm að það sé að kanna möguleika á að taka yfir bresku verslanakeðjuna Moss Bros Group. Baugur á í félagi við FL Group og Ke- vin Stanford um 28,5% hlut í Moss Bros. Í gær hækkaði gengi félagsins um 22,15% og var markaðsvirði fé- lagsins við lokun markaðar um 42,5 milljónir punda. Baugur staðfestir orð- róm um Moss Bros TÖLUVERÐ endurnýjun verður í stjórn FL Group á hluthafafundi fé- lagsins nk. föstudag, en frestur til að skila inn framboðum til stjórnar er runninn út. Aðeins Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group, og Þor- steinn M. Jónsson eru áfram í stjórn en nýir eru Gunnar Sigurðsson, for- stjóri Baugs, Pálmi Haraldsson í Fons, Hannes Smárason, fv. for- stjóri FL Group, Kristín Edwald hrl. og Þórður Már Jóhannesson frá Gnúpi. Peter Mollerup er áfram í kjöri í varastjórn en þar býður sig einnig fram Smári S. Sigurðsson, sem var áður í aðalstjórn. Aðrir sem fara úr stjórn eru Magnús Ármann, Jón Kristjánsson, Paul Davidson og Skarphéðinn Berg Steinarsson. Mikil endurnýj- un í stjórn FL Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is BJÖRN Wahlroos, forstjóri finnska tryggingafélagsins Sampo, sem Ex- ista er stærsti hluthafi í, vill eignast hlut sænska ríkisins í Nordea, stærsta banka Norðurlandanna, og ásælist sjálfur stól stjórnarformanns bankans. Þetta hefur sænska við- skiptablaðið Dagens Industri eftir heimildarmönnum og segir það ætl- an Wahlroos að búta bankann niður og selja hlutana. Meðal hugsanlegra kaupenda væru þá helstu keppinaut- ar á norrænum bankamarkaði svo sem Danske Bank, DnB Nor í Nor- egi og SEB og Handelsbanken í Sví- þjóð. Sampo myndi hins vegar taka yfir starfsemi Nordea í Finnlandi og reka hana undir merkjum Mandat- um – vörumerkis sem félagið hefur fengið aftur frá Danske Bank en Mandatum var nafn banka þess er Wahlroos rak áður og seldi Sampo þegar hann tók við rekstri þess fyr- irtækis. Sampo hefur á undanförnum miss- erum smám saman byggt upp hlut í Nordea og réð síðast þegar hluthafa- listi var birtur um 7,9% af heildar- hlutafé í bankanum. Búist er við að sú tala hafi hækkað eitthvað að und- anförnu en þó ekki þannig að Sampo hafi farið yfir flöggunarmörk, þ.e. 10% hlut. Nýr hluthafalisti verður birtur í næstu viku og þá kemur í ljós hvort þær grunsemdir eru réttar. Hafa ber í huga að kistur Sampo eru fullar fjár eftir að félagið seldi bankastarfsemi sína til Danske Bank fyrr á árinu. Samkvæmt heimildum DI hefur Wahlroos þegar reynt að fá aðra fjárfesta til þess að styðja hug- myndir sínar en blaðið segir þær við- ræður þó hafa farið leynt þar sem hugmyndir um að búta Nordea niður gætu farið fyrir brjóstið á mörgum auk þess sem kjörnefnd sænska bankans hefur þegar hafið starf sitt við að tilnefna menn í stjórn á næsta ári. Wahlroos vill ekki að hugmyndir hans leki út fyrr en ljóst er hvernig stjórn bankans verður skipuð. Wahlroos er reyndar ekki sá eini sem dottið hefur í hug að skipta Nor- dea upp því í nýlegri skýrslu frá fjár- festingarbankanum Cheuvreux er sama hugmynd sett fram. Hinn kost- urinn er að mati sérfræðinga Cheuvreux-yfirtaka, eða að bankinn renni saman við annan en þeir kostir eru ekki taldir líklegir þar sem ekki margir alþjóðlegir stórbankar myndu vera tilbúnir að greiða 35-40 milljarða evra, jafngildi um 3.200- 3.600 milljarða króna, til þess að ná fótfestu á norrænum fjármálamark- aði. Mun Sampo skipta Nordea upp? Forstjóri Sampo vill eignast hlut sænska ríkisins í Nordea Í HNOTSKURN » Nordea er stærsti banki áNorðurlöndum og veltir um 3,15 milljörðum evra, eða um 285 milljörðum króna, ár- lega. » Starfsmenn eru tæplega30.000 talsins og við- skiptavinir um 11 milljónir. » Hlutur finnska bankansSampo er um 7,9% af heildarhlutafé í bankanum, en Exista er stærsti hluthafinn í Sampo. HLUTABRÉF færeyska flugfélags- ins Atlantic Airways voru tekin til viðskipta í kauphöll OMX á Íslandi í gær. Formleg athöfn fór fram síð- degis þar sem forstjóri félagsins, Magne Arge, hringdi út viðskiptin. Atlantic Airways er fjórða færeyska félagið sem skráð er í íslensku kaup- höllina og 37. félagið sem fer á að- almarkað OMX Nordic Exchange á þessu ári. Eftir viðskipti gærdagsins er gengi bréfa félagsins 262,5 dansk- ar krónur. Flugfélagið var stofnað fyrir 20 árum og hefur vaxið jafnt og þétt síðan. Byrjað var með eina vél á áætlunarleiðinni á milli Færeyja og Kaupmannahafnar. Núna byggist meginstarfsemin á áætlunarflugi frá Færeyjum, leiguflugi í Evrópu og þyrlustarfsemi í Færeyjum og á Norðursjó. Félagið rekur nú um þessar mundir sex flugvélar og þrjár þyrlur. Félagið er í kauphöllinni flokkað með smærri félögum í iðn- aðargeiranum. Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX á Íslandi, lýsti við skráninguna í gær yfir mikilli ánægju með innkomu Atlantic Air- ways í kauphöllina. Lending félags- ins á verðbréfamarkaðnum gerði því kleift að hefja sig til flugs með glæsi- brag í framtíðinni. Færeysk félög hefðu verið í mikilli sókn í kjölfar einkavæðingar stjórnvalda og skrán- ingin nú væri vísbending um þá möguleika sem þau sæju. Fjórða færeyska félagið Morgunblaðið/Kristinn Hringt út Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways, hringdi út viðskiptin í lok dags í gær í Kauphöll Íslands, en með honum er Þórður Friðjónsson. SVISSNESKI bankinn UBS greindi frá því í gær að hann hefði tapaðum tíu milljörðum dala, andvirði um 620 milljarða króna, vegna vanskila á svokölluðum áhættusömum fast- eignalánum í Bandaríkjunum, en UBS er sá banki sem einna mest fjárfesti í slíkum lánum. Bréf bank- ans hækkuðu hins vegar í við- skiptum gærdagsins um 2,34%, en samhliða áðurnefndum fréttum var einnig greint frá því að fjárfest- ingafélag í eigu stjórnvalda í Singa- púr ætli að fjárfesta í bankanum fyrir 10 milljarða dala. Auk stjórn- valda í Singapúr hefur ónafn- greindur fjárfestingasjóður í Asíu fjárfest í bankanum fyrir 1,5 millj- arð dala. Í afkomuviðvörun frá UBS kemur fram að útlit sé fyrir að bankinn verði rekinn með tapi á fjórða ársfjórðungi. Áhættutaka UBS fjárfesti mikið í áhættusömum fasteignalánum. UBS tapar milljörðum ♦♦♦ ÍBÚÐAVERÐ mun hækka um 15,4% á þessu ári, en verður nær óbreytt á næsta ári gangi spá greiningar- deildar Glitnis eftir. Óbreytt húsnæðisverð ár- ið 2008 væri töluverður viðsnúning- ur eftir miklar hækkanir undanfarin ár. Samkvæmt spánni mun meðal- hækkun íbúðaverðs á árinu 2007 verða 9,4% frá fyrra ári og á árinu 2008 mun hækkunin frá fyrra ári vera að meðaltali um 7% þrátt fyrir óbreytt verð yfir árið og kemur mis- munurinn til vegna grunnáhrifa. Árið 2009 gerir Glitnir ráð fyrir að húsnæðisverð taki aðeins við sér þó að enn verði nokkuð rólegt á markaðnum miðað við það sem ver- ið hefur undanfarin misseri. Spáð er ríflega 3% hækkun yfir árið 2009 og um 0,6% meðalhækkun frá fyrra ári. Óbreytt íbúðaverð árið 2008 5*6 5*6   #$% #%$ 7 7 5*6 &86   #$% #$% 7 7 9&:;& <  =    #$% #$% 7 7 9 6  $ #$% #$% 7 7 5*6' 5*6( $  &$% #%$ 7 7          !  " #$%" &%%' )* + ",+  (& @&A3# 8 .0@&A3# ?B ( 3# +@&A3# @ ( 2 3# C#? A #4 !   DE   @&A3# " A1 !8 3# +  2    3# (  -8 /  23# > F 3# G 3# . * / 01  3# # E 3# ( ( E : F ( ( EH (&  H  ? 8  ! @&A3# I&F 8 DE   E@&A3# *  3# <J3  3# HK5< >F!! !  (0 3# L  (0 3# ) (! / 2  M (F   M& C8@  3# C A  3# 314 5 "1 $%$$  %  % %$ %$$    %$$  %  %$$ $%$$ %$$  %$$  % $ $%  %$$ $%$$ $%                                   L  A(  ! > 2&,&  ! N " A        -      -         -  - -  - -                        - -  - -                      -  - -   -  0 .  A(       -      -   -      -  - -  - - 9 ! ( .  .                              ● HANDELSBANKEN (SHB) hefur lækkað verðmat sitt á Kaupþingi. Nýtt markgengi er 90 sænskar krón- ur á hlut í stað 100 króna sem bank- inn hafði áður metið Kaupþing á. Í skýrslu SHB frá því fyrir helgi segir að ástæðulaust sé að greiða 14% yf- irverð á hlutabréfum bankans miðað við önnur fyrirtæki í sömu grein – sem er raunin miðað við markgengið 100. Þá hefur SHB lækkað afko- muspá sína fyrir hvern hlut í Kaup- þingi á næsta ári um 9-11% vegna hærri fjármögnunarkostnaðar, minni hagnaðar af fjárfestingum og aukn- ingar hlutafjár. SHB lækkar verðmat á Kaupþingi banka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.