Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 11
VATNSLEIKFIMI Mikill áhugi fyrir vatnsleikfimi / Borgarnesi er gefinn kostur á vatnsleikfimi fyrir yngri og eldri, konur og karla. Alls eru átta tím- ar í vatnsleikfimi á viku og að meðaltali eru 12-18 í hverjum tíma. Konurnar eru á aldrinum 23-83 ára og karlar á aldrinum 35-75 ára. Skinfaxi leit við í tíma hjá konunum og ekki var annað að sjá en keppnin við að styrkja likamann og láta sér líða vel væri framar öllu. Það er auðvitað íris Grönfeldt sem er potturinn og pannan í þjálfuninni, en þegar hún kom heim frá námi gaf hún út bók um vatnsleikfimi í 100 eintökum, sem seldist fljótt upp. Það má segja að Iris sé upphafsmanneskjan að miklum á- huga á vatnsleikfimi hér á landi og fjöl- margir hringja í hana til þess að fá upp- lýsingar um leikfimina. Nú er vatnsleik- fimi stunduð á Seltjarnarnesi, í Hafnar- firði, á Flateyri og e.t.v. á fleiri stöðum. íris segist byggja vatnsleikfimina upp út frá öllum líkamanum. „Ég legg á- herslu á að vinna með þau vandamál sem við vitum að eru landlæg í þjóðfé- laginu, eins og t.d. þau sem fylgja vöðvabólgu. Ég kenni fólki í fyrsta lagi rétta líkamsstöðu við hin ýmsu störf svo það losni við að fá vöðvabólgu og svo legg ég áherslu á réttar æfingar og teygj- ur til að meðhöndla þá vöðva sem ekki eru notaðir rétt. „Fólk er alltaf með herðarnar upp undir eyrunum. Það sem skiptir mestu máli er að reyna að finna varanlegar lausnir á bak-, herða- eða öðrum líkam- legum vandamálum. Skammtímalausnir bera engan árangur. Ég vil að fólk stundi vatnsleikfi eða aðrar greinar með það að markmiði að gera íþróttaiðkun að lífsstfl en ekki að það fari að sunda í- þróttir bara til þess að losna við ákveð- inn verk,” segir Iris. Vatnsleikfimin er almenningsíþróttagrein, hverjir eru aðal kostirnir við hana, t.d. fyrir eldra fólk? „Líkaminn er mjög léttur í vatninu og vegur einungis einn sjötta af eigin þyngd. Þegar fólk er orðið þyngra en það ætti að vera eða hefur ekki hreyft sig í mörg ár á það mun auðveldara með að hreyfa sig í vatninu en á þurru landi og kemst auk þess mun fyrr í betra form. Eldra fólkið finnur fljótt mikinn mun á sér. Félagsskapurinn skiptir líka mjög rniklu máli. Fólk fær mikið út úr því að koma í skipulagða íþróttatíma, það eru ekki allir sem geta verið heima einir síns liðs við æfingar. Það er t.d. mikilsvert fyrir heimavinnandi konur að komast út úr húsi og þær fá rnikið út úr því, bæði líkamlega og félagslega,” seg- ir íris. Vatnsleikfimin er fastur þáttur í tilverunni Stelpurnar í vatnsleikfiminni, sem æfa tvisvar í viku, voru á einu máli um að leikfiniin væri ómetanleg og þeim liði svo vel þegar þær væru búnar á æf- ingu. Þær neituðu því að leikfimin væri erfið, en sögðu að það þyrfti auðvitað að læra æfingarnar og ná góðurn tökum á þeim. Venjuleg leikfimi er mun erfiðari en vatnsleikfimi. Það er kjörið að stunda vatnsleikfimi þegar árin færast yfir. Það er engin hætta á því að rneiða sig eða snúa vegna þess að líkaminn er svo létt- ur í vatninu. „Ef við erurn illa fyrirkallaðar þá tök- um við ekki eins mikið á í það skiptið,” bætti ein við. Þær sögðu félagsskapinn mjög skemmtilegan og að þetta væri ein leið til þess að kynnast fólki í stað þess að hanga heima. Engin þeirra sagðist hafa verið í leikfimi áður, utan skóla- leikfimi. Og ein sagðist meira að segja hafa lært að synda nú þegar hún byrjaði í vatnsleikfiminni. En livað koin til að þœr byrjuðu í vatns- leikfimi? „Við vissum allar að við þyrftum að hreyfa okkur og stunda einhverja lík- amsrækt. Fólk verður ómögulegt ef það hreyfir sig ekki. Það er ekkert erfitt að byrja, bara að drífa sig af stað, en verra ef maður missir úr tíma og þarf að byrja aftur. Þetta er mjög auðvelt ef leikfimin verður fastur þáttur í tilverunni og starfi dagsins. Þá hlakkar maður til. Það er ómetanlegt að hafa hana Irisi. Hún hefur unnið hér mjög gott starf og við vonumst til að hafa hana sem lengt. Hún hefur einstakt lag á að gera leikfim- ina svo skemmtilega, alltaf blíð og bros- andi og hún á örugglega mikinn þátt í góðri íþróttaiðkun í Borgarnesi,” sögðu þessar hressu Borgarneskvinnur og voru þar með famar í sturtu. Borgarnespizza Borgarnesi Hreysti hf. Reykjavík íslenskir aðalverktakar Olíufélag íslands Skinfaxi 11

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.