Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 26
F R J Á L strákar sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Stangarstökk I heildina var árangur hér heldur slakari en áður. Kristján var lang- sterkastur, bætir síg á milli ára og var ekki langt frá sínu besta. Hann er líkleg einn sá besti í heiminum í sínum aldurs- flokki. Auðunn bætir sig en hann hefur þó fyrst og fremst einbeitt sér að tug- þrautinni. Gísli náði sér ekki á strik hér fremur en í öðrum greinum og hefur átt í erfiðleikum vegna þrálátra meiðsla. Kristján Gissurarson Freyr bætti drengjametið í greininni og loksins eru einhver merki um það að á- hugi þeirra yngri sé að vakna á þessari bráðskemmtilegu grein. Ennþá er þó enginn sem einbeitir sér að þessari grein af fullri alvöru en vonandi fer það að breytast núna þegar aðstaðan hefur víða batnað verulega. Langstökk Langstökkið er töluvert lakara en áður og svo til algjörlega einokað af tugþrautarmönnum og spretthlaupurum. Ólafur var sterkastur sem fyrr en náði sér þó alls ekki á strik. Freyr náði at- hyglisverðum árangri og þar skammt á eftir komu nokkrir ungir og efnilegir strákar. Hæst bar þar árangur Stefáns Gunnlaugssonar (6,24m ‘76) en þar er greinilega mikið stökkvaraefni á ferð- inni. Næsta sumar má búast við Jóni Arnari sterkum og vonandi dregur hann Ólaf með sér, en þeir hafa oft náð að keyra hvern annan upp. Þrístökk Þrístökkið var svipað og áður og var enn sem fyrr slappasta stökkgreinin. Haukur var sterkastur eins og áður en bætti sig lítið milli ára. Annars einkenn- í Þ R Ó T T A A N N A L L U M F I ist listinn af því að þarna er fyrst og fremst um unga stráka að ræða en því miður þá bæta þeir yngstu sig lítið. Vonandi mæta þessir strákar grimmari á þessu ári og rífa þessa grein upp úr þeim öldudal sem hún hefur verið í undanfar- in ár. Kúluvarp Árangur hér varð nokkuð slappari en næsta ár á undan en verður samt að telj- ast mjög góður. Miklu munar um að Pétur náði sér ekki á strik utanhúss eftir að hafa náð þeim frábæra árangri að verða í 4. sæti á heimsmeistaramótinu innanhúss. Andrés bróðir Péturs og Eggert Bogason gengu úr ungmennafé- lögum og detta því út af afreksskránni. Vésteinn og Helgi voru svipaðir milli ára en þetta er einungis aukagrein fyrir þá. Stefán sýndi mikla hörku bætir sig á “gamals” aldri og Geirmundur Vil- hjálmsson náði athyglisverðum árangri. i«n»íJnkari Pétur Gudmundsson Kringlukast Breiddin í kringlunni minnkar nokk- uð á milli ára þar sem Eggert og Unnar gengu úr röðum ungmennafélaganna. Vésteinn bætti sig milli ára og var skammt frá íslandsmeti sínu frá árinu ‘89. Elja hans við æfingar einstök og mættu margir af þeim yngri taka það sér til fyrirmyndar. Ennþá má þó segja að honum vanti herslumuninn uppá að komast í allra fremstu röð í heiminum. Helgi Þór bætti sig lítilsháttar og var í góðu formi um vorið en þrálát meiðsli í baki hafa komið í veg fyrir frekari bæt- ingar. Pétur bætti sig einnig í aukagrein sinni. Áhyggjuefnið hér er skortur á breidd og algjör skortur á ungum arftök- um. Vésteinn Hafsteinsson Spjótkast Árangurinn í spjótkastinu dettur tölu- vert niður milli ára, ekki vegna þess að mönnum fari aftur, heldur flótti þeirra bestu úr ungmennafélögunum. Það munar um minna að missa Einar Vil- hjálmsson og Unnar Garðarson úr sínum röðum. Sigurður Mattíasson bætti sig og kastaði í fyrsta sinn yfir 80 m og vantar nú aðeins herslumun upp á að komast í allra fremstu röð í heiminum Það er hins vegar mjög langt í næstu menn en Jó- hann, Sigurður og Ágúst bættu sig þó allir, en betur má ef duga skal. Sigurður Matthíasson Sleggjukast Jón Sigurjónsson er sá eini sem æfir þessa grein af einhverjum krafti og bætti sig yel á fyrsta móti síðasta vor. Hann náði sér hins vegar ekki nógu vel á strik eftir það en engin ástæða til að ætla ann- að en hann bæti sig í ár og verður gam- an að fylgjast með því hvort honum tekst að ná íslandsmetinu af Guðmundi Karlssyni. Vésteinn keppir í sleggju svo til eingöngu í bikarkeppninni. Bjarki og Auðunn hafa verið að dunda við sleggj- una en ekki einbeitt sér að henni ennþá. 26 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.