Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.02.1992, Blaðsíða 29
Ú R S L I T VERÐLAUNASAMKEPPNI Úrslit í verðlaunasamkeppni Skinfaxa Mjög góðar viðtökur voru við Verðlaunasamkeppni Skin- faxa um bestu íþróttasöguna, sem kynnt var í 3. tbl. 1991, en skilafrestur rann út 1. febrúar síðastliðinn. Alls bárust 65 í- þróttasögur frá mörgum stöðum af landinu. Dómnefnd sú sem fór yfir verkin hefur nú komist að niður- stöðu um hvaða sögur hljóta 1.-3. sæti og höfundar þeirra fá að launum sjálfvirkar myndavélar frá Hans Petersen. Dómnefndin var skipuð eftirtöldum aðilum: Stefaníu Þorgrímsdóttur frá Garði í Mývatnssveit, sem var formaður, Pálma Gíslasyni, for- manni UMFÍ, og Ingólfi Steindórssyni, fyrrverandi ritstjóra Skinfaxa. Niðurstaða dómnefndar Skinfaxa er eftirfarandi: 1. verðlaun hlýtur Stefán Bogi Sveinsson, Bjarkarhlíð 2, Egilsstöðum, fyrir söguna, Einu sinni var..., 2. verðlaun hlýtur Anna G. Ingvarsdóttir, Ytra-Osi, Hólmavík fyrir söguna Sundkeppnin, 3. verðlaun hlýtur Perla Ósk Kjartansdóttir, Búrfelli, V-Húnavatnssýslu, fyrir söguna Fornar íþróttir. Stefanía, formaður dómnefndar, sagði í samtali við Skinfaxa að allar ritgerðirnar hefðu verið vel unnar og greinilegt væri að höfundarnir hefðu lagt mikla vinnu í ritsmíðina. „Þessar þrjár ritgerðir sem báru sigur úr býtum skáru sig úr hvað snertir stíl og hugmyndaflug. En öll börnin eru greinilega vel að sér um í- þróttir og sérstaklega áhugasöm gegn neyslu vímuefna. Rit- gerðirnar báru þess líka greinileg merki að krakkarnir eru víð- lesin á mörgum sviðum. Stór hluti þeirra sameinar trúverðuga frásögn og tilraun lil skáldskapar,” sagði Stefanía Þorgrímsdótt- ir. Skinfaxi óskar sigurvegurunum hjartanlega til hamingju og þakkar öllum þeim sem tóku þátt í keppninni. I þessu blaði verður verðlaunasagan eftir Stefán Boga Sveinsson birt, en hin- ar tvær verða svo birtar í næstu blöðum. Þá er rétt að geta þess sérstaklega að allir nemendur í 7. bekk Laugarbakkaskóla, Miðfirði í V-Húnavatnssýslu tóku þátt í keppninni og verkin frá þeim voru sérstaklega vel frágengin. Sum voru innbundin, önnur fallega myndskreytt eða þeim fylgdi ljósmynd sem tengdist efninu. Skinfaxi mun veita 7. bekk Laugarbakkaskóla sérstaka viðurkenningu vegna þessa. Allir þeir sem sendu sögu í samkeppnina fá sent viðurkenn- ingarskjal innan tíðar. Hér til hliðar eru nöfn allra þeirra sem sendu blaðinu sögur og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir þátt- tökuna og óskað góðs gengis í íþróttum og vonandi kunnið þið öll að segja nei við vímuefnum. Þuríður Ósk Elíasdóttir, Stóru-Ásgeirsá, V-Húnavatnssýslu Laufey Kristín Skúladóttir, Tannstaðabakka, V-Húnavatnssýslu Ásgeir Ingason, Norðurbyggð 7, Þorlákshöfn Ragnheiður María Hannesdóttir, Klébergi 6, Þorlákshöfn Gísli Vigfússon, Þorlákshöfn Hafsteinn Elíasson, Þorlákshöfn Ómar Berg Torfason, Þorlákshöfn Gestur Þorbjörn Erlendsson, Þorlákshöfn Erna Björk Baldursdóttir, Þorlákshöfn Kristrún Kristjánsdóttir Laugabrekku, Laugum, S-Þing. Arngnmur Konráðsson, Hólavegi 5, Laugum, S-Þing. Haraldur Lúðvíksson, Kárhóli, Reykjadal, S-Þing. Gunnar Ingi Jónsson, Hólavegi 6, Laugum, S-Þing. Þórey Kristín Aðalsteinsdóttir, Fellshlíð II, Reykjadal, S-Þing. Teitur Þorbjörnsson, Sporði, V-Húnavatnssýslu Kolbrún Sif Marinósdóttir, Árbakka 2, Miðfirði, V-Húnavatns. Kolbrún Stella Indriðadóttir, Grafarkoti, V-Húnavatnssýslu Ellen Dröfn Björnsdóttir, Gilsbakka 2, Miðfirði, V-Húnavatns. Margrét Þórunn Guðnadóttir, Þórukoti, V-Húnavatnssýslu Guðmundur H. Jónsson, Syðsta-Ósi, V-Húnavatnssýslu Guðrún Petra Ingimarsdóttir, Uppsölum, V-Húnavatnssýslu Þormóður I. Heimisson, Sauðadalsá, V-Húnavatnssýslu Inga Rut Ólafsdóttir, Gilsbakka 6, Miðfirði, V-Húnavatnssýslu Þórarinn Óli Rafnsson, Staðarbakka, V-Húnavatnssýslu Ægir Pétursson Laugarbakkaskóla, V-Húnavatnssýslu Hólmfríður Margrét Grétarsdóttir, Birkihlíð, V-Húnavatnssýslu Þórarinn S. Jónsson, Kambshóli, V-Húnavatnssýslu Dýrfinna Ósk, Lækjarhvammi, V-Húnavatnssýslu Anton Rafn Ásmundsson, Víkurtúni 14, Hólmavík Benedikt Egils Sævarsson, Borgarbraut 17, Hólmavík Birgir Róbert Kristinsson, Víkurtúni 4, Hólmavík Guðrún Elínborg Þorvaldsdóttir, Hafnarbraut 13, Hólmavík Hjálmar Gunnar Guðbjömsson, Lækjartúni 7, Hólmavík Hrefna Guðmundsdóttir, Vesturtúni 1, Hólmavík Jóhanna Torfadóttir, Skólabraut 18, Hólmavík Karl Elenías Kristjánsson, Austurtúni 5, Hólmavík Knútur Gunnar Henrýsson, Lækjartúni 7, Hólmavík Kristjana Eysteinsdóttir, Lækjartúni 2, Hólmavík Nanna María Elfarsdóttir, Snæfelli, Hólmavík Guðmar Þór Pétursson, Brávöllum, Mosfellsbæ Ingibjörg Ólafsdóttir, Hrísbrú, Mosfellsbæ Ragnheiður Jónsdóttir, Reykjabyggð 11, Mosfellsbæ íris Dröfn Kristjánsdóttir, Leirutanga 15, Mosfellsbæ Grímur Hákonarson, Kársnesbraut 99, Kópavogi Aðalheiður Hannesdóttir, Hjarðarlundi 7, Akureyri Halla Hafbergsdóttir, Heiðarlundi 3d, Akureyri Pálmi Jóhannsson, Hlíð, Hörðudal, Dalasýslu Anna Berglind Halldórsdóttir, Magnússkógum III, Dalasýslu Hrefna Haraldsdóttir, Hrauntúni 33, Vestmannaeyjum Ingibjörg G. Sigurjónsdóttir, Boðaslóð 19, Vestmannaeyjum Guðbjörg Guðmannsdóttir, Dverghamri 36, Vestmannaeyjum Daníel Shane Ásgeirsson, Vestmannaeyjum Lýður Ó. Haraldsson, Vestmannaeyjum Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.