Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Blaðsíða 68
Setning
forseta
33. þing Farmanna
— og fiskimanna-
sambands ísiands
var haldið dagana
24. til 27. nóvember
s.l.áSO. afmælisári.
Á þinginu voru að
venju ýms mál
rædd og samþykkt-
ir gerðar, en í heild
voru menn mjög
sammála og Iftiö
um átakamál. Hér á
eftir fylgja nokkrar
ræður og sam-
þykktir og mynda-
opna í lokin
68 VÍKINGUR
33. þing F.F.S.I.
Við höfum hér verk að vinna
Góðir gestir og
þingfulltrúar.
Ég býð ykkur velkomin til
setningar 33. þings F.F.S.Í.
Þann 2. júní s.l. var haldinn há-
tíðarstjórnarfundur F.F.S.Í. í
þessum sal, í tilefni þess að þá
voru liöin 50 ár frá formlegri
stofnun samtaka okkar.
Á hátíðarstjórnarfundinum
voru heiðraðir þeir Konráð
Gíslason kompásasmiður sem
vareinn af stofnendum F.F.S.Í.
og sá eini eftirlifandi af þeim
sem voru í bráðabirgðaundir-
búningsstjórn F.F.S.Í. og Ing-
ólfur Stefánsson fyrrverandi
framkvæmdastjóri F.F.S.Í.
Á þeim sama fundi var
Slysavarnafélagi íslands af-
hent gjafabréf upp á 10 gúmmí-
björgunarbáta, sem ætlaðireru
til björgunaræfinga fyrir áhafnir
íslenskra skipa.
Fjölmargt gesta var á þess-
um hátíðarfundi og bárust
F.F.S.Í. góðar gjafir í tilefni
tímamótanna og árnaðaróskir.
Að lokinni dagskrá og ávörp-
um gesta voru boðnar veiting-
ar. Daginn eftir, þann 3. júní,
var opið hús í Borgartúni 18 og
kom þangað fjöldi fólks af
Hrafnistuheimilunum og var
einkar ánægjulegt að ræða við
það aldna heiðursfólk sem
mundi tímana tvenna.
Þessum hátiðarhöldum lauk
svo með kvöldverðarsamsæti,
þann 4. júní. í tilefni þessara
tímamóta, var gefið út veglegt
afmælisrit af málgagni F.F.S.Í.,
Sjómannaþlaðinu Víkingi. í
heild tókust þessi hátíðarhöld
vel. Nánar er frá þeim sagt í
skýrslu stjórnar, sem send var
aðildarfélögum um miðjan
þennan mánuð.
Þótt vissulega sé gott að
gleðjast á góðri stund hafa ekki
allir atburðir verið ánægjulegir
síðustu tvö árin. Tveir af þing-
fulltrúum síðasta þings hafa lát-
ist á tímabilinu. Þeir eru Anton
Nikulásson vélstjóri og Hlöðver
Einarsson yfirvélstjóri. Anton
Nikulásson var varaforseti á
32. þingi F.F.S.Í. og mjög virkur
félagsmaður, bæði í Vélstjóra-
félagi íslands og á þingum
F.F.S.Í.. Hann var í stjórn
F.F.S.Í. 1961-1963 og aftur
1967-1969. Hlöðver Einarsson
yfirvélstjóri var stjórnarmaður í
Vélstjórafélagi íslands og full-
trúi félagsins á þingi F.F.S.Í..
Hann var áhugasamur um
stéttarlega hagsmuni sína og
sinna félaga, fylginn sér í mál-
flutningi og duglegur kjara-
samningamaður. Hann fórst
með Suðurlandinu þann 25.
desember s.l. ásamt 6 félögum
sínum. Frá því við héldum síð-
asta þing hafa 23 íslenskir sjó-
menn látist við störf sín. Ég vil
biðja viðstadda að rísa úr sæt-
um í virðingarskyni við hina
látnu og ættingjum þeirra og
vinum færum við samúðar-
kveðjur.
Dánar- og slysatíðni í at-